Morgunblaðið - 26.10.2004, Side 1
ESB samheiti yfir
„fölsk fyrirheit“?
TILRAUNIR Evrópuþjóð-
anna til að ná og fara síðan
fram úr Bandaríkjamönnum í
efnahagsmálum hafa mistekist
með öllu, að sögn Ítalans Rom-
ano Prodis, sem lætur af emb-
ætti forseta framkvæmda-
stjórnar Evrópusambandsins
um mánaðamótin. Segir Prodi
að neitunarvald hvers aðildar-
ríkis hafi lamandi áhrif á við-
leitni til að koma á brýnum
umbótum en aðildarríkin eru
nú 25.
Prodi minnti í viðtali við
breska blaðið Financial Times
á að fyrir fjórum árum hefðu
leiðtogar ESB samþykkt á
fundi í Lissabon 10 ára áætlun
um að auka með ýmsum ráð-
um hagvöxt og leggja grunn að
því að sambandið yrði í farar-
broddi í þróun á næstu áratug-
um. Lagt yrði til atlögu við
skriffinnsku og alþjóðleg sam-
keppnisgeta aukin. ESB gæti
þannig keppt við Bandaríkin
um forystu á þessum sviðum í
heiminum. En Prodi sagði
áætlunina hafa mistekist með
öllu.
„Það er ekki hægt að ná
fram einhug á öllum sviðum
efnahagsmála, ef menn gera
það verða þeir að sætta sig við
að Lissabon-hugmyndirnar
mistakist,“ sagði hann. Stjórn-
ir aðildarríkjanna hefðu komið
í veg fyrir að tillögunum yrði
hrundið í framkvæmd.
Financial Times bætti við að
í skýrslu sem senn verður birt
um efnahagsumbætur í ESB
og gerð var undir forystu Wim
Koks, fyrrverandi forsætisráð-
herra Hollands, væri sam-
bandið gagnrýnt harðlega. Það
væri sakað um skort á pólitísk-
um vilja og varað við því að
ESB gæti orðið „samheiti yfir
markmið sem ekki náðust og
fölsk fyrirheit“. Lagðar eru
fram tillögur um að færir vís-
indamenn frá öðrum heims-
hlutum fái atvinnuleyfi á und-
an öðrum innflytjendum, ýtt
verði undir að fólk fari síðar á
eftirlaun en nú tíðkast og lögð
áhersla á símenntun.
Fram kemur á fréttavef
BBC að Kok leggi m.a. til að
aðildarríki sem hafi ekki komið
á ákveðnum grundvallarum-
bótum verði nafngreind sér-
staklega í von um að ráðamenn
þeirra skammist sín.
London. AFP.
Hörð gagnrýni í væntanlegri innanhússskýrslu
Roð og dún-
mjúkar gærur
Hefðbundin hráefni í bland við
nýstárlega fatahönnun | Menning
Íþróttir í dag
Lykilmenn yfirgefa Fylki Þrenna
Eiðs Smára sú sjöunda fyrir Chelsea
Hver skvetti á Sir Alex?
MAÐURINN sem Héraðs-
dómur Reykjaness frestaði í
liðinni viku að dæma til refs-
ingar fyrir líkamsárás gegn
eiginkonu sinni, hlaut árið
1990 dóm fyrir að ráðast á
fyrrverandi eiginkonu sína.
Þeirrar árásar var ekki getið
í sakavottorði sem héraðs-
dómur fékk í hendur og ekki
heldur í dómnum. Þar er á
hinn bóginn tekið fram að
maðurinn hafi hlotið refsing-
ar fyrir umferðarlagabrot
árin 1985 og 1988.
Maðurinn var árið 1990
ákærður og dæmdur fyrir að
hafa skellt fyrrverandi eig-
inkonu sinni í gólfið með
þeim afleiðingum að hún
úlnliðsbrotnaði og marðist.
Maðurinn neitaði sök og
sagði konuna hafa hlotið
áverkana þegar hún braut
blómapotta með höndunum.
Þennan framburð taldi
Sakadómur Reykjavíkur
ótrúverðugan og dæmdi
manninn í þriggja mánaða
fangelsi, skilorðsbundið til
þriggja ára.
Í reglugerð frá 1999 segir
að hafi viðkomandi hlotið tvo
eða fleiri fangelsisdóma beri
að færa þá alla í sakavottorð,
þótt aðeins einn þeirra sé
innan tíu ára tímamarka,
sem þar eru tilgreind.
Þorbjörg I. Jónsdóttir
hrl., réttargæslumaður kon-
unnar, telur að í þessu máli
hljóti Sakaskrá ríkisins að
hafa orðið á mistök. Hún
tekur fram að fyrri dómur-
inn hefði ekki haft ítrekun-
aráhrif þar sem of langt er
liðið frá því hann var kveð-
inn upp. Hugsanlega hefði
það þó breytt afstöðu dóm-
arans hefði þetta legið fyrir.
Þorbjörg býst við að
skaðabótamál verði höfðað á
hendur manninum. Hún
segir fullt tilefni til að áfrýja
dómnum til Hæstaréttar og
að ríkissaksóknari muni
brátt taka afstöðu til þess.
Áður dæmdur fyrir
árás á eiginkonu
Sleppt við refsingu fyrir árás á eiginkonu sína
ÁSMUNDUR Stefánsson ríkis-
sáttasemjari hefur boðað fulltrúa
kennara og sveitarfélaganna á
samningafund í dag, en áður hafði
fundur verið boðaður seint í næstu
viku. Þetta varð niðurstaðan eftir
að Halldór Ásgrímsson forsætis-
ráðherra hitti forsvarsmenn deil-
enda á fundi í stjórnarráðinu í gær-
morgun ásamt mennta- og
fjármálaráðherra. Samkvæmt
heimildum Morgunblaðsins kom
skýrt fram á fundinum að ríkis-
stjórnin hygðist ekki hafa afskipti
af kjaradeilunni með beinum hætti,
svo sem með lagasetningu.
Forsætisráðherra sagði nið-
urstöðu fundanna í gær hljóta að
vekja bjartsýni á nýjan leik. „Við
kynntum okkur þessa stöðu og það
er alveg ljóst að deilan er í mjög
erfiðum hnút. En það verður að
leysa hana og það er ekki fram-
bærilegt að halda ekki fundi fyrr en
eftir tæpan hálfan mánuð og það
hafa allir orðið sammála um það.“
Morgunblaðið/Golli
„Við erum orðin leið á því að vera heima,“ sögðu skólabörn úr Vesturbænum, sem ræddu við forsætisráðherra utan við Stjórnarráðið.
Ekki gripið til lagasetningar
Nýr fundur í kennaradeilunni boðaður í dag
Kennaraverkfall/4
STJÓRNVÖLD í Noregi skipuðu í gær
starfsmönnum í olíuiðnaði, sem verið hafa í
verkfalli í fjóra mánuði, að hefja störf á ný
og verður skipaður gerðardómur til að leysa
kjaradeiluna. Samtök atvinnurekenda
drógu í gær til baka hótun frá því um morg-
uninn um víðtækt verkbann. Talsmenn
stéttarfélaga andmæltu ákaft ákvörðuninni
um gerðardóm í gær að sögn Aftenposten.
Verð á Norðursjávarhráolíu lækkaði
hratt á alþjóðamörkuðum í gær eftir að
þessar fréttir bárust en það hafði fyrr um
daginn hækkað vegna ótta við að verkfall og
verkbann myndu stöðva nær alveg framboð
á olíu frá Noregi innan tveggja vikna.
Dagfinn Høybraaten, atvinnu- og félags-
málaráðherra Noregs, átti fund með báðum
aðilum í gær og sagði hann í kjölfarið að
binda yrði enda á verkfallið. „Álit Noregs
sem mikilvægs útflytjanda olíu er í húfi,“
sagði ráðherrann. Skipaður yrði gerðar-
dómur sem myndi kveða upp úrskurð er
deiluaðilar yrðu að hlíta.
Gerðardómur
í olíuverkfalli
Ósló. AFP.
BILL Clinton,
fyrrverandi for-
seti Bandaríkj-
anna, kom fram á
kosningafundi
með John F.
Kerry, forseta-
efni demókrata, í
Pennsylvaníu í
gær, en Clinton
er nú á batavegi
eftir hjartaað-
gerð. „Ég hef stundum verið kallaður end-
urkomu-strákurinn,“ sagði Clinton. „Eftir
átta daga ætlar John Kerry að gera
Bandaríkin að endurkomu-landinu.“
Tímaritið The New Yorker lýsti í gær
yfir stuðningi við Kerry og er þetta í
fyrsta sinn í 80 ára sögu þess sem það tek-
ur afstöðu í forsetakjöri.
Clinton í slaginn
♦♦♦
Heiðar Sigurðsson hefur átt
ljón í þrjátíu ár | Daglegt líf
Tuskuljón
á víxlum
STOFNAÐ 1913 292. TBL. 92. ÁRG. ÞRIÐJUDAGUR 26. OKTÓBER 2004 PRENTSMIÐJA ÁRVAKURS HF. mbl.is