Morgunblaðið - 26.10.2004, Qupperneq 2
2 ÞRIÐJUDAGUR 26. OKTÓBER 2004 MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
FUNDUR Í DAG
Ríkissáttasemjari hefur boðað
fulltrúa deiluaðila í kjaradeilu kenn-
ara og sveitarfélaga á sinn fund kl.
15 og 17 í dag. Fundirnir eru haldnir
að ósk Halldórs Ásgrímssonar for-
sætisráðherra, sem hitti fulltrúa
kennara, skólastjórnenda og sveitar-
félaga í stjórnarráðinu í gær.
Neyðarkall frá Ósk KE
Neyðarkall barst frá netabátnum
Ósk KE-5 í gærköldi vegna elds sem
komið hafði upp í stýrishúsi bátsins
er hann var staddur um 12 sjómílur
vestur af Garðskaga. Lítil hætta var
á ferðum og var ekki óskað eftir
frekari aðstoð Gæslunnar.
Hafði hlotið dóm
Maðurinn sem Héraðsdómur
Reykjaness frestaði í liðinni viku að
dæma til refsingar fyrir líkamsárás
gegn eiginkonu sinni, hlaut árið 1990
dóm fyrir að ráðast á fyrrverandi
eiginkonu sína. Þeirrar árásar var
ekki getið í sakavottorði sem héraðs-
dómur fékk í hendur.
Gagnrýna ESB
Romano Prodi, fráfarandi forseti
Framkvæmdastjórnar Evrópusam-
bandsins, segir að mistekist hafi
gersamlega að tryggja framgang
efnahagsumbóta sem samþykktar
voru árið 2000. Hann segir neitun-
arvald hvers ríkis lama umbætur.
Sprengiefni horfið
Nær 400 tonn af mjög öflugu
sprengiefni hafa horfið úr vopnabúri
í Írak. Fyrir innrásina 2003 varaði
Alþjóðakjarnorkumálastofnunin
Bandaríkjamenn við og sagði brýnt
að gæta vopnageymslunnar vel.
Y f i r l i t
Morgunblaðið Kringlunni 1, 103 Reykjavík. Sími 5691100 Innlendar fréttir frett@mbl.is Ágúst Ingi Jónsson, aðstoðarfréttaritstjóri, aij@mbl.is Sigtryggur Sigtryggsson, aðstoðarfréttaritstjóri, sisi@mbl.is Erlendar fréttir Ásgeir Sverrisson, fréttastjóri,
asv@mbl.is Viðskipti vidsk@mbl.is Ólafur Stephensen, aðstoðarritstjóri, olafur@mbl.is Úr verinu Hjörtur Gíslason, fréttastjóri, hjgi@mbl.is Daglegt líf Guðbjörg Guðmundsdóttir, gudbjorg@mbl.is Menning menning@mbl.is Orri Páll Ormarsson, ritstjórnarfull-
trúi, orri@mbl.is Skarphéðinn Guðmundsson, skarpi@mbl.is Umræðan|Bréf til blaðsins Magnús Finnsson, fulltrúi ritstjóra, magnus@mbl.is Hallur Þorsteinsson, hallur@ .is Minningar minning@mbl.is Hilmar P. Þormóðsson, Stefán Ólafsson Dagbók|Kirkjustarf
Ellý H. Gunnarsdóttir, elly@mbl.is Íþróttir sport@mbl.is Sigmundur Ó. Steinarsson, fréttastjóri, sos@mbl.is Útvarp|Sjónvarp Auður Jónsdóttir, dagskra@mbl.is mbl.is netfrett@mbl.is Guðmundur Sv. Hermannsson fréttastjóri gummi@mbl
BJÖRN B. Tryggva-
son, fyrrverandi að-
stoðarbankastjóri
Seðlabanka Íslands, er
látinn á 81. aldursári.
Björn var fæddur í
Reykjavík 13. maí árið
1924, sonur hjónanna
Tryggva Þórhallssonar
forsætisráðherra og
Önnu Klemensdóttur.
Björn lauk stúdents-
prófi frá Menntaskól-
anum í Reykjavík 1944
og lögfræðiprófi frá
Háskóla Íslands árið
1951. Hann réðst sem
lögfræðingur til Landsbanka Íslands
að loknu námi, varð varabankastjóri
fyrir Norðurlöndin hjá Alþjóðabank-
anum í Washington og viðskipta-
fulltrúi við sendiráð Íslands í Wash-
ington 1957 til 1958. Björn var
skrifstofustjóri Landsbankans frá
1958 og síðar Seðla-
bankans og var aðstoð-
arbankastjóri Seðla-
bankans frá 1967 þar til
hann fór á eftirlaun.
Björn var formaður
Rauða kross Íslands á
árunum 1971 til 1977 og
naut virðingar jafnt
innan Rauða kross Ís-
lands sem og á al-
þjóðlegum vettvangi
innan hreyfingarinnar.
Þá vann Björn ötult og
óeigingjarnt starf á
þeim tíma sem eldgosið
stóð í Vestmannaeyj-
um.
Björn kvæntist Kristjönu Bjarna-
dóttur árið 1952 en hún lést 1990.
Þau áttu tvö börn, Önnu Guðrúnu og
Bjarna Þór. Björn giftist Dóru
Hvanndal 2001 og eignuðust þau
dótturina Valgerði B. árið 1999.
Andlát
BJÖRN B.
TRYGGVASON
FERTUGUR karlmaður var í gær
dæmdur í þriggja ára fangelsi fyrir
gróft kynferðislegt ofbeldi gegn 14
ára gamalli fósturdóttur sinni, fyrir
að káfa innanklæða á 15 ára gamalli
vinkonu hennar og fyrir að hafa í
vörslum sínum mikið magn af barna-
klámi.
Barnaklámið fannst í tölvu og á
geisladiskum við húsleit á vinnustað
mannsins og heimili hans eftir að
fósturdóttir hans lagði fram kæru.
Um var að ræða 176 kvikmyndir,
samtals rúmlega níu klukkustundir
að lengd og tæplega 600 ljósmyndir.
Maðurinn játaði vörslu barnakláms-
ins en neitaði eindregið að hafa brot-
ið gegn stúlkunum. Þrátt fyrir að
maðurinn neitaði sakargiftum var
hann dæmdur fyrir að hafa mörgum
sinnum á árunum 2002 til 2003 haft
samfarir við fósturdóttur sína á
heimili þeirra eða á vinnustað hans.
Veikleikum haldið á lofti
Fjölskipaður dómur Héraðsdóms
Reykjaness taldi að frásögn fóstur-
dótturinnar hefði verið skýr og af-
dráttarlaus í skýrslu sem hún gaf í
Barnahúsi. Hún hefði í engu reynt að
draga dul á sína eigin annmarka og
veikleika „sem óspart hefur verið
haldið á lofti af ákærða“ eins og segir
í dómnum. Þannig hefði hún greint
frá því að hafa lent í óreglu árið 2002
og að hafa prófað að reykja hass.
Þótti þetta styrkja trúverðugleika
framburðar hennar, svo og að hún
greindi öðrum frá ofbeldinu áður en
hún lagði fram kæruna. Maðurinn
var einnig dæmdur fyrir að káfa inn-
anklæða á vinkonu fósturdóttur
sinnar. Líkt og fyrr neitaði maðurinn
sök en frásögn vinkonunnar þótti
trúverðug auk þess sem hún fékk
stoð í framburði vitnis.
Í niðurstöðum dómsins segir að
maðurinn hafi brotið alvarlega gegn
fósturdóttur sinni, misnotað aðstöðu
sína og brugðist trúnaðartrausti
hennar á svívirðilegan hátt. Brotið
gegn vinkonu hennar hafi einnig ver-
ið alvarlegt og beinst gegn mikilvæg-
um hagsmunum. Maðurinn eigi sér
engar málsbætur. Auk þriggja ára
fangelsis var maðurinn dæmdur til
að greiða fósturdóttur sinni 1,2 millj-
ónir króna í bætur og vinkonu henn-
ar 150.000 krónur. Þá var hann
dæmdur til að greiða eina milljón
króna í málsvarnar- og réttargæslu-
laun.
Finnbogi H. Alexandersson,
Gunnar Aðalsteinsson og Sveinn
Sigurkarlsson kváðu upp dóminn.
Vilhjálmur Þórhallsson hrl. var skip-
aður verjandi mannsins. Sigríður
Jósefsdóttir flutti málið f.h. ríkissak-
sóknara. Réttargæslumaður fóstur-
dótturinnar var Steinunn Guðbjarts-
dóttir hdl. og Helga Leifsdóttir var
réttargæslumaður vinkonu hennar.
Fertugur karlmaður játaði einungis að eiga mikið magn af barnaklámi
Þriggja ára fangelsi
fyrir gróf kynferðisbrot
ÍSLENSKU sveitirnar á ólympíu-
skákmótinu stóðu sig vel í 10. um-
ferð, sem tefld var í gær. Karlaliðið
gerði jafntefli við mjög sterka sveit
Hollendinga, 2-2 og konurnar unnu
sterka sveit Króatíu 2-1.
Stefán Kristjánsson vann stór-
meistarann Nijboer, en Þröstur
Þórhallsson tapaði fyrir Íslandsvin-
inum Timman. Ivan Sokolov, sem
er nýkominn frá sigri á ofurskák-
móti í Hollandi, gat ekki beygt
Hannes Hlífar Stefánsson, og skák
Helga Ólafssonar og Tivjakovs varð
einnig jafntefli.
Hjá konunum vann Guðlaug Þor-
steinsdóttir á öðru borði í við-
burðaríkri skák, þar sem sú króat-
íska varð að gefa drottninguna og
skákina, skömmu síðar. Lenka
Ptácníková gerði öruggt jafntefli á
1. borði, en Guðfríður Lilja
Grétarsdóttir bjargaði jafntefli í
erfiðri stöðu með snilldarlegri
vörn.
Staðan í karlaflokki er þessi: 1.
sæti Úkraína, 29 v. af 40 mögu-
legum. 2. sæti Rússland, 27 v. 3.
sæti Armenía, 26 v. Íslendingar eru
í 36.–39. sæti, með 22 v. Aðrar
Norðurlandaþjóðir: Svíþjóð, 23 v.,
Noregur og Danmörk, 22,5 v., Finn-
land, 21 v., Færeyjar, 18 v.
Í kvennaflokki er staðan þessi:
Kína er í 1. sæti með 24,5 v. af 30
mögulegum (tap 1–2 fyrir Banda-
ríkjunum) 2.–4. sæti Bandaríkin,
Indland, Georgía, 19,5 v. Ísland er í
30.–32. sæti með 16 v. Norðurlanda-
þjóðir: Svíþjóð, 17 v, Noregur, 16 v.,
Finnland, 15,5 v. Danmörk, 13,5 v.
Í dag teflir karlaliðið við Argent-
ínu, en konurnar við Íran.
Íslensku liðunum hefur vegnað vel á Ólympíuskákmótinu á Mallorka
Ljósmynd/Gunnar
Á myndinni eru skákkonurnar Lenka Ptácníková, Guðlaug Þorsteinsdóttir og Guðfríður Lilja Grétarsdóttir.
Sigur
og jafn-
tefli
!
"
#
$
%&' (
)***
Í dag
Sigmund 8 Viðhorf 24
Fréttaskýring 8 Bréf 26
Úr verinu 12 Minningar 27/29
Viðskipti 12/13 Skák 29
Erlent 14/15 Dagbók 32/34
Minn staður 16 Myndasögur 32
Suðurnes 18 Staður og stund 34
Akureyri 18 Menning 35/41
Landið 19 Af listum 38
Austurland 19 Bíó 38/41
Daglegt líf 20 Ljósvakar 42/43
Umræðan 21/26 Veður 43
Forystugrein 22 Staksteinar 43
* * *