Morgunblaðið - 26.10.2004, Síða 10

Morgunblaðið - 26.10.2004, Síða 10
10 ÞRIÐJUDAGUR 26. OKTÓBER 2004 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR ÞOTUR frá flugfélaginu Atlanta og Swissair voru of nálægt hvor annarri þegar leiðir þeirra skárust yfir París í sumar og í nið- urstöðu hinnar frönsku rannsóknarnefndar flugslysa er flugumferðaratvikið talið alvar- legt þar sem hætta hafi verið á árekstri. Lárétt var bilið milli vélanna um 800 metrar og lóðrétt um 100 metrar sem er mun minna en áskilið er. Árekstrarvari Atl- anta-þotunnar gaf flugmönnum til kynna óæskilega nálgun og lækkuðu þeir sam- stundis flugið til að forða við árekstri. Frá atvikinu er greint í ársskýrslu Rannsókn- arnefndar flugslysa, RNF, sem er að koma út en nefndin átti samstarf við franska starfsbræður sína vegna atviksins og endur- útgaf RNF skýrslu frönsku rannsóknar- nefndarinnar fyrir nokkru. Þota Atlanta sem er af gerðinni Boeing 767-300 var á leið frá Róm til Dýflinnar og Swissair-þotan, Airbus A320, frá London til Basel. Atvikið gerðist að kvöldi 1. ágúst 2003. Atlanta-þotan var í 38 þúsund feta hæð en þota Swissair í 27 þúsund fetum sem er vanaleg flughæð á leið milli London og Basel. Flugi yfir Evrópu er stjórnað af nokkrum flugstjórnarmiðstöðvum og færist stjórn flugvéla milli þeirra eftir því sem líð- ur á ferðina. Starfsþjálfun stóð yfir Flugmenn Swissair-þotunnar óskuðu eft- ir hækkun í allt að 39 þúsund fet og var það heimilað í áföngum. Meðan á þessu stóð fór vélin milli flugstjórnarsvæða sem vissu af hækkuninni og samþykktu hana. Atlanta-þotan fór sem leið lá í 38 þúsund feta hæð og eftir samskipti við flugumferð- arstjórn í París var henni skilað á næsta flugstjórnarsvæði, nokkru áður en leiðir flugvélanna tveggja áttu að skerast. Fram kemur í skýrslunni að flugumferðarstjóri í starfsþjálfun var við ratsjána undir stjórn kennara og hafði hann nýlega skipt um stöðu við annan flugumferðarstjóra. Flugumferðarstjórar í París heimiluðu svissnesku vélinni að lækka flugið í 35 þús- und fet um leið og þeir skiluðu henni til flugstjórnar í Reims. Á sama tíma var Atl- antaþotunni heimiluð vinstri beygja frá umferð á svæðinu sem færði þotuna nær flugleið Swissair-þotunnar. Svissneska þot- an fær heimild frá Reims til að hefja um- beðna lækkun og tæpri mínútu síðar er þotunni fyrirskipað að beygja til hægri sem flugmenn staðfesta en flugumferðar- stjóri breytir síðan í vinstri beygju og var- ar þá við umferð á móti. Tíu sekúndum síð- ar er flugmönnum þotu Atlanta fyrirskipað af flugumferðarstjórum í Reims að beygja til hægri. Flugmenn sinna því ekki og þeg- ar það er ítrekað segja þeir „traffic alert“ eða viðvörum um umferð og segjast hefja lækkun. Um hálfri mínútu síðar staðfestu flugmenn Swissair-þotunnar að beiðni flug- umferðarstjóra í París að þeir hefðu séð þotu Atlanta, „frekar nálægt og fer framhjá fyrir neðan okkur“ og sögðu um leið að vélin hefði ekki komið fram á árekstrarvaranum. Fékkst ekki skýring á því við rannsóknina. Á þessari stundu hafði því svissneska þotan verið að lækka flugið í átt að Atlanta-þotunni sem lækkaði skyndilega flugið eftir skipun árekstrar- varans. Í niðurstöðu frönsku nefndarinnar segir að láréttur aðskilnaður vélanna hafi verið um 800 metrar og lóðréttur um 100 metr- ar, árekstrarvari Atlanta-þotunnar hafi varað við hættunni og þó að flugmenn svissnesku þotunnar hafi orðið hinnar vél- arinnar varir sé ljóst að hér hafi verið hætta á árekstri. Ástæðurnar séu þær að heimildir um flugleiðir hafi ruglast og flug- umferðarstjórar gleymt Atlanta-þotunni og að svissnesku þotunni skuli hafa verið leyft að hækka sig í 39 þúsund fet á leið sinni. Það sé ekki í samræmi við reglur um flug- hæðir á þeirri leið. Meðvirkandi þættir eru sagðir hið margbrotna flugstjórnarsvæði, þjálfun nýrra flugumferðarstjóra við slíkar aðstæður og skortur á aga þegar flug- umferðarstjórar eru að skiptast á. Í þessu tilviki hafi Atlanta-þotan gleymst. Lærdómur sem franska nefndin telur að draga megi af atvikinu er að endurmeta mönnun í flugstjórnarmiðstöðvum og gæta ýtrustu varkárni þegar menn skiptast á stöðum og leysa hver annan af. Flugumferðaratvik hjá Atlanta og Swissair yfir París á síðasta sumri Árekstrarvarinn kom í veg fyrir árekstur vélanna Ljósmynd/Baldur Sveinsson Franska rannsóknarnefndin telur í skýrslu sinni að flugatvikið hafi verið alvarlegt. Lárétt bil milli flug- vélanna var aðeins um 800 metrar EIRÍKUR Guðmundsson, umsjónarmaður Víðsjár í Ríkisútvarpinu fjallaði í pistlum í þættinum í síðustu viku um birtingu Morg- unblaðsins á annars vegar grein Hannesar Hólmsteins Gissurarsonar um viðhorf sænsku nóbelsakademíunnar til Halldórs Laxness, og hins vegar um upprifjun blaðsins á fréttum þess um afhendingu verðlaunanna árið 1955. Í fyrri pistli sínum fjallaði Eiríkur m.a. um staðsetningu greinar Hannesar í Morgun- blaðinu. „Gleymum því ekki að grein Hannesar Hólmsteins Gissurarsonar er innlegg í barátt- una um sannindin um Halldór Laxness og hann er í góðri aðstöðu. Hannes fær ekki bara heila opnu í Morgunblaðinu heldur fær hann opnuna,“ sagði Eiríkur. „Tímasetningin er engin tilviljun, innan skamms kemur út ævi- saga Halldórs Laxness eftir Halldór Guð- mundsson. Það má því segja að senuþjófurinn Hannes Hólmsteinn sé enn sem fyrr mættur til að stela senunni og bleyta púðrið, um allt í senn, sviðsstjórn, lýsingu og búningahönnun, sér að þessu sinni Morgunblaðið.“ Eiríkur sagði ennfremur: „Við hoppum ekki hæð okkar í loft upp yfir grein Hannesar Hólmsteins í Morgunblaðinu í dag. Við vitum inn í hvaða samhengi hún er skrifuð og hvers vegna hann fær undir sig heila opnu í hinu frjálslynda og galopna Morgunblaði þar sem steinarnir tala á hverjum degi. En baráttan heldur áfram og boltinn er líklega núna hjá Halldóri Guðmundssyni, hann verður að trompa Hannes.“ Jón Karl Helgason bók- menntafræðingur fjallaði í kjöl- far fyrri pistils Eiríks um grein Hannesar og upprifjun Morg- unblaðsins á fréttum af afhend- ingu nóbelsverðlaunanna árið 1955. Í pistlinum lýsir Jón Karl þeirri skoðun sinni að með upp- rifjuninni „vilji einstaklingar í ritstjórn Morgunblaðsins svara hugsanlegum ásökunum um að blaðið hafi ekki fagnað sem skyldi þegar Halldór fékk verð- laun sín.“ Eiríkur fjallar síðan um málið í öðrum pistli í Víðsjá 22. októ- ber sl. Þar veltir hann m.a. fyrir sér upprifjun Morgunblaðsins um afhendingu nóbelsverðlaunanna. „Þetta er nafnlaus grein,“ sagði Eiríkur um upprifjun Morgunblaðsins. „Ein af þessum greinum í Morgunblaðinu þar sem blaðið tal- ar, í þessu tilfelli um sjálft sig. Um það hvern- ig það brást við þeirri frétt að Halldór Lax- ness hefði fengið nóbelsverðlaun í bókmenntum.“ Eiríkur segir niðurstöðu Morgunblaðsins í greininni þá að á síðum blaðsins haustdagana árið 1955 megi sjá að þjóðin hafi verið upp með sér og stolt af þeirri viðurkenningu sem Halldóri Laxness hlotnaðist með nóbels- verðlaununum. „Og nú spyrjum við hið andlitslausa og allt- umlykjandi Morgunblað, hvers vegna sér blaðið ástæðu til að rifja upp haustdagana árið 1955 í heilsíðu grein þann 21. október árið 2004? Varla er ástæðan sú að þann 21. október árið 2004 voru nærri því 49 ár frá því tilkynnt var í Stokk- hólmi að Halldór Laxness hlyti nóbelsverðlaun í bókmenntum. Nei, ástæðan hlýtur að liggja annars staðar. Spurningar vakna um vonda samvisku, er blaðið að þrífa sig, fara með Maríubænir, telja upp sálumessurnar sem það hefur í gegnum tíðina sungið heilögum mönnum.“ Biður Eiríkur hlustendur að hafa í huga að grein Hannesar Hólmsteins hafi birst daginn áður en upprifjunin birtist. „Það þarf ekki sagn- fræðing til að vita að hægri menn hafa ekki alltaf verið hrifnir af Halldóri Laxness þótt að um þessar mundir sé sannarlega sálumessu- bragur á mönnum,“ segir Eiríkur. Vitnar hann í pistil Jóns Karls Helgasonar þar sem bent var á að Kristján Albertsson hafi ekki verið hrifinn af skáldsögunni At- ómstöðinni. „Það var öðru nær,“ segir Eirík- ur. „Þetta veit Morgunblaðið enn í dag, það er hvorki neflaust, blint né minnislaust þegar kemur að gömlum pólitískum og fag- urfræðilegum væringum. Nei, Morgunblaðið sem talar til okkar þann 21. október árið 2004 um haustdagana árið 1955 veit hvað það er að gera. En hvers vegna sit ég hér og tala um Morg- unblaðið eins og um sé að ræða augljósa stærð, eitthvað sem allir vita hvað er? Hvers vegna sit ég hér og tala um blaðið, segi það í stað þess að vitna í, já hvern? Já hvert er ídentitet hins annars ágæta Morgunblaðs? Talar Hannes Hólmsteinn í nafni Morg- unblaðsins?“ Í lok pistilsins segir Eiríkur: „Það eru allir að reyna að fá síðustu salibununa út á nafn Halldórs Laxness. Við getum ímyndað okkur skemmtigarð þar sem röðin fyrir utan rússíbanann Halldór Laxness er löng, sumir eru með ólæti, aðrir hafa sett upp helgimynd- arsvipinn. En hver rekur þennan rússíbana? Já, hver var það sem fékk nóbelsverðlaun í bók- menntum árið 1955? Var það Halldór Lax- ness, var það íslenska þjóðin eins og hún legg- ur sig, Íslandi sómi sýndur var jú fyrirsögnin í Mogganum í gær, eða var það kannski téður Moggi? Já, var það kannski í raun Morg- unblaðið sem fékk nóbelsverðlaunin í bók- menntum haustið 1955, með dyggri aðstoð Kristjáns Albertssonar, en þó fyrst og síðast Morgunblaðið sem fékk nóbelsverðlaunin í bókmenntum. Það var algjörlega óumdeild ráðstöfun, engin illindi, engin önnur skoðun, blaðið vann. Það heldur áfram að fjárfesta í Halldóri Laxness hf., hlutafélagi sem verður verðmeira með hverju árinu sem líður, rússíbana sem er vinsæll og verður ekki rifinn í bráð, heldur líklega einkavæddur í fyllingu tímans.“ Eiríkur Guðmundsson fjallaði um birtingu Morgunblaðsins á greinum um nóbelsskáldið Spyr um ástæður upprifjunar blaðsins Eiríkur Guðmundsson SKRAUTLEGUR brúðandarsteggur, amer- ískur að uppruna, er nú í heimsókn hér á landi. Hans varð vart í Keflavík í liðinni viku þegar hann var að forvitnast í innkeyrslunni hjá Geir Gunnarssyni. Geir fangaði hann í kassa og lét hann í hendur Sólmundar Einarssonar sem fór með hann á Náttúrufræðistofnun Íslands. Eftir að starfsmenn þar höfðu dáðst að litaraftinu og gengið úr skugga um að steggurinn væri við bestu heilsu var honum sleppt á nýjan leik. Ævar Petersen fuglafræðingur hjá Nátt- úrufræðistofnun segir að þó að fuglinn sé norður-amerískur geti vel verið að hann hafi flækst hingað frá Evrópu enda séu svo skraut- legar endur gjarnan hafðar í fuglagörðum. Það er þó líklegra að hann hafi komið frá Am- eríku, því á svipuðum tíma sáust margir aðrir flækingsfuglar þaðan hér á landi. Ævar segir að slíkt gerist gjarnan í kjölfar fellibylja sem gangi yfir álfuna. Þetta er í fimmta skipti sem brúðönd sést hér á landi, svo vitað sé. Síðasta heimsóknin var árið 1995. „Hún er alveg af- skaplega falleg. Það eru í henni allir hugs- anlegir litir,“ segir Ævar. Brúðöndin er náskyld hinni asísku mand- arínönd sem einnig er skrautleg með af- brigðum. Ljósmynd/Álfheiður Ingadóttir Brúðandarsteggurinn sperrir sig fyrir ljósmyndarann á Náttúrufræðistofnun. Skrautlegur gestur í óvæntri heimsókn SNEMMA í gærmorgun óku lögreglumenn fram á mann liggjandi á götu í miðborg Reykjavíkur. Héldu lögreglumennirnir í fyrstu að ekið hefði verið á manninn en fljótlega kom í ljós að hann var ofurölvi. Maðurinn var þá fluttur á lögreglustöð þar sem rætt var við hann. Sagðist hann vera blaðamaður og sýndi erlendan blaðamanna- passa. Maðurinn gaf þær skýringar að hann væri staddur hér á landi til þess að skrifa grein um næturlífið í Reykjavíkurborg. Eftir viðræð- ur við varðstjóra var blaðamanninum erlenda ekið á hótel þar sem hann dvelur. Rannsakar næturlífið ♦♦♦

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.