Morgunblaðið - 26.10.2004, Blaðsíða 12
12 ÞRIÐJUDAGUR 26. OKTÓBER 2004 MORGUNBLAÐIÐ
VIÐSKIPTI/ATHAFNALÍF
ÓGREIDDIR REIKNINGAR Á ÖÐRUM KANTINUM
OG HAUGAR ÚTISTANDANDI HINUM MEGIN?
Það er sama sagan hjá mörgum fyrirtækjum. Á sama tíma og umtals-
verðar fjárhæðir eru útistandandi er verulegur fjármagnskostnaður
að safnast upp annars staðar. Midt Factoring brúar þetta bil.
80% reikninga greidd strax
Í hvert sinn sem þú sendir frá þér reikning greiðum við þér stóran
hluta upphæðarinnar um leið og vara er afhent. Að jafnaði er það
hlutfall 80%. Afgangurinn er síðan borgaður þegar reikningur hefur
verið greiddur að fullu til Midt Factoring.
Hafðu samband og kynntu þér þjónustuna nánar.
Við látum peningana þína vinna fyrir þig.
Midt Factoring á Íslandi hf. var stofna› ári› 2000 og er dótturfyrirtæki Midt Factoring A/S sem er eitt stærsta og virtasta fyrirtæki í Danmörku á sínu svi›i. Sigtún 42 - 553 6300 - www.mfi.is.
Er ekki kominn tími til að peningarnir þínir vinni fyrir þig?
J
Ó
N
S
S
O
N
&
L
E
’M
A
C
K
S
•
jl
.i
s
•
14
14
Á AÐALFUNDI Félags dagabáta-
eigenda, sem fram fór á laugardag,
var ákveðið á breyta nafni félagsins í
Félag kvótabátaeigenda. Félagið
berst fyrir úrsögn félagsmanna úr
Landssambandi smábátaeigenda og
hefur höfðað mál á hendur samband-
inu.
Í ályktunum aðalfundarins kemur
fram að félagið sé knúið til að breyta
nafni sínu. „Á öndverðu vorþingi s.l., í
hita leiks fjölmiðlafrumvarps, er knú-
inn á okkur kvótasetning á óþingræð-
islegan og ólýðræðislegan hátt, aðför
sem skerti afla okkar um 20-40%,“
segir í ályktuninni. Þá er í ályktuninni
vísað til laga um skiptaverðmæti og
greiðslumiðlun innan sjávarútvegsins
og umsagnar Umboðsmanns Alþingis
frá 12. apríl 2001 þar sem fram kom
að greiðslumiðlunarlögin væru brot á
stjórnarskrá. Lýsir Félag kvótabáta-
eigenda furðu sinni og undrun á að
forsætisráðherra, sjávarútvegsráð-
herra, sem og allir þingflokksfor-
menn, skuli ekki aðhafast eitthvað í
málinu.
„Félagið berst fyrir mannréttind-
um og félagafrelsi,“ segir Hermann
B. Haraldsson, formaður Félags
kvótabátaeigenda. „Það er ennþá
kraftur í okkar félagsskap þó að daga-
kerfið hafi verið lagt niður. Væntan-
lega mun félagið ekki lengur berjast
fyrir hagsmunum sóknardagabáta,
nú þegar dagakerfið hefur verið lagt
niður. En félagið mun áfram berjast
fyrir öðru baráttumáli sínu, úrsögn
félagsmanna úr Landssambandi smá-
bátaeigenda. Við viljum ekki vera inn-
an vébanda LS en engu að síður þurf-
um við að greiða félagsgjöld sjálf-
krafa í gegnum greiðslumiðlunarsjóð.
Við höfum höfðað mál á hendur LS til
að fá þessu breytt og að þessar
greiðslur renni í okkar félag. Málið
verður væntanlega dómtekið fljót-
lega.“ Hermann segir tæplega 50
trillukarla eiga aðild að Félagi kvóta-
bátaeigenda og á von á að það fjölgi í
félagsskapnum.
Félag dagabátaeigenda verður Félag kvótabátaeigenda
Höfða mál á hendur LS
NÝSTOFNAÐ fyrirtæki, sem
fengið hefur nafnið Icefresh
GmbH hóf vinnslu á ferskum
karfaflökum í Cuxhaven síðastlið-
inn föstudag. Fyrsti aflinn í
vinnslunni var karfi úr Barða NK
sem Síldarvinnslan hf. gerir út og
fyrsti viðskiptavinurinn var Bohl-
sen, sem er uppáhalds veitinga-
staður Samherjamanna í Cux-
haven.
Þetta kemur fram á heimasíðu
Samherja en þar segir ennfremur:
„Stofnun ferskfiskvinnslunnar er
liður í útrásarstefnu Samherja og
verður áherslan fyrst um sinn á
karfa, sem er mjög vinsæll í
Þýskalandi en stefnt er að því að
framleiða og selja fleiri ferskar
tegundir í framtíðinni, t.d. ufsa og
steinbít. Ferskur ísaður fiskur af
íslenskum skipum er fluttur sjó-
leiðina til Cuxhaven þar sem hann
er flakaður og flökunum raðað á
ís í frauðplastkassa.
Þannig fer hann til viðskipta-
vinanna sem eru fyrst og fremst
veitingastaðir í Þýskalandi og
öðrum nálægum Evrópulöndum.
Framkvæmdastjóri og sölumaður
Icefresh GmbH er Sigmundur
Andrésson og aðrir Íslendingar
sem starfa hjá félaginu eru Ólafur
Sigurðsson verkstjóri og Þorbjörg
Ingvadóttir sem annast upplýs-
ingakerfið.
Samherji vinnur fersk-
an fisk í Cuxhaven
ÚR VERINU
ÞETTA HELST ...
VIÐSKIPTI
HANNES Smárason, stjórnarfor-
maður Flugleiða, hefur óskað eftir
fundi sem fyrst með Stelios Haji-
Ioannou, stofnanda og aðaleiganda
brezka flugfélagsins EasyJet, en
Flugleiðir keyptu fyrir helgi 8,4% í
félaginu. Í Financial Times kemur
fram að Haji-Ioannou sé á ferðalög-
um næstu daga og dagsetning hafi
ekki verið ákveðin. Hannes Smára-
son sagði í samtali við Morgunblaðið
að fundurinn væri fyrst og fremst
liður í að „kynnast þessu félagi og
fólkinu í kringum það.“
Haji-Ioannou var stjórnarformað-
ur EasyJet þar til í nóvember 2002
og á samkvæmt samningi rétt á að
endurheimta formennskuna þegar
honum sýnist. Hann á 17% hlut í fé-
laginu og systkini hans tvö 12%
hvort. Samanlagt á fjölskyldan því
41%. Flugfélagið á ekki sjálft vöru-
merki sín, útlit eða vefslóðir, heldur
leigir þau af EasyGroup sem Haji-
Ioannou stýrir. Haft er eftir stofn-
anda félagsins að eignarhlutur hans í
EasyJet sé honum mikilvægur og
hann hyggist ekki sem stendur selja
hann „á núverandi [verð]bili“.
Hannes
vill fund
Stelios.com
Stofnandinn Stelios Haji-Ioannou
stofnaði EasyJet og á ásamt systk-
inum sínum 41% í félaginu.
HAGAR hf., sem m.a. eiga versl-
anirnar Hagkaup, Bónus og 10–11,
hafa eignast allt hlutafé í olíufyr-
irtækinu Skeljungi hf. með kaupum
á eignarhaldsfélaginu Sólvindum.
Kaupverðið er að mestu leyti greitt
með hlutabréfum í Högum en eig-
endur Sólvinda, Fengur og tengd
félög, voru fyrir kaupin stórir hlut-
hafar í Högum. Eftir kaupin á Sól-
vindum eiga Baugur Group, Feng-
ur með tengdum fyrirtækjum, og
Stoðir hvert um sig 24–29% hlut í
Högum og mynda þar kjölfestu.
Skeljungur hf. er með starfsemi á
um 100 stöðum á landinu og starfs-
menn eru 270 talsins. Velta félags-
ins árið 2002 nam rúmum 15 millj-
örðum króna. Félagið var skráð úr
Kauphöll Íslands í ágúst 2003.
Mögulega fleiri bensínstöðvar
við matvörubúðir
Í tilkynningu frá Högum segir að
Hagar sjái með kaupunum ákveðin
tækifæri á íslenskum neytenda-
vörumarkaði til að koma betur til
móts við íslenska neytendur.
Jón Björnsson forstjóri Haga
segir að til að byrja með verði eng-
ar breytingar á rekstri Skeljungs
en tækifærin sem kaupin skapi
verði skoðuð í framhaldinu. „20%
okkar verslana eru með bensínstöð
frá Skeljungi eða Orkunni á lóð
sinni og það er mögulegt að það
hlutfall aukist í framhaldi af þess-
um kaupum. Ef horft er til Skand-
inavíu, Englands, Hollands, Banda-
ríkjanna eða Kanada til dæmis þá
hefur þetta mjög mikið verið að
gerast, þ.e. að matvöruverslanir
séu að setja bensínstöðvar upp á
lóðum sínum til að koma betur til
móts við viðskiptavini,“ segir Jón
Björnsson.
Eykur líkur á skráningu
Í tilkynningu Haga segir að tvö
af fyrirtækjum Haga, Hagkaup og
Bónus, hafi á sínum tíma komið að
stofnun Orkunnar með Skeljungi
með það að markmiði að selja elds-
neyti við stórmarkaði á lægra verði
en áður þekktist og hafi þannig ver-
ið brautryðjendur í lækkun elds-
neytisverðs á Íslandi, eins og segir í
tilkynningunni. Í dag séu bensín-
stöðvar frá Orkunni og Skeljungi
fyrir utan tíu verslanir í eigu Haga.
„Jafnframt telja hluthafar að mögu-
leikar félagsins til skráningar á
hlutabréfamarkaði aukist við kaup-
in. Ekki stendur til að gera neinar
breytingar á rekstrarfyrirkomulagi
Skeljungs og verður fyrirtækið
áfram rekið sem sjálfstætt hluta-
félag. Þar af leiðandi er aðkoma
stoðdeilda ekki hugsuð á þessu stigi
þó það kunni að breytast þegar
samlegðaráhrif verða skoðuð nán-
ar,“ segir í tilkynningunni.
Pálmi Haraldsson verður áfram
stjórnarformaður Skeljungs og
Gunnar Karl Guðmundsson verður
áfram forstjóri.
Hagar í bensínið
Morgunblaðið/Árni Torfason
Skeljungur aftur á markað? Jón Björnsson segir að með kaupum á Skelj-
ungi aukist líkur á að Hagar verði skráð í Kauphöll.
Eignast allt
hlutafé í Skelj-
ungi. Greiða með
hlutum í Högum
● ÚRVALSVÍSITALAN lækkaði um
2,97% í gær og var 3.707,13 stig við
lokun markaðarins í gær. Er þetta
næstmesta lækk-
un hennar á ein-
um degi frá því í
nóvember árið
2000.
Eins og bent er
á í Hálffimm frétt-
um KB banka
hafa hlutabréf
lækkað linnulítið í
Kauphöll Íslands
síðan þau náðu
hámarki 8. þessa
mánaðar. „Af ellefu viðskiptadögum
síðan þá hefur verð hlutabréfa lækk-
að níu daga,“ segir KB banki.
Mest varð lækkun í gær á bréfum
Bakkavarar Group 4,5%. Þá lækkaði
gengi bréfa í KB banka um 3,9%,
gengi Actavis um 3,3% og gengi
bæði Íslandsbanka og Straums
lækkaði um 3%. Mesta hækkun varð
á bréfum Flugleiða eða 7,6% og bréf-
um SÍF um 4,3% en bæði félög áttu í
stórum viðskiptum um síðustu helgi.
Viðskipti í Kauphöllinni voru með
mesta móti í gær og námu alls rúm-
um 17 milljörðum króna, mest með
hlutabréf fyrir 11,7 milljarða.
Næstmesta lækkun
úrvalsvísitölu í 4 ár
Sigurður Helgason
forstjóri Flugleiða.
!"
#!$
%#&
%#&
" $'$
( )$"
%&
%*&
( '#!
')'
%*&
%*&(
!!"
*+"
# '$!
%&'
%&)
# $% &$'"
( +#+
! +$#
%(&#
%#&