Morgunblaðið - 26.10.2004, Page 13
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 26. OKTÓBER 2004 13
VIÐSKIPTI/ATHAFNALÍF
Komdu í næsta útibú,
kanna›u máli› á kbbanki.is
e›a hringdu í síma 444 7000.
KYNNTU fiÉR HVERNIG
fiÚ GETUR LÆKKA‹
GREI‹SLUBYR‹I fiÍNA
ME‹ KB ÍBÚ‹ALÁNI
– kraftur til flín!
ISDN POSAR
Heimildarbeiðni tekur aðeins
3-5 sek. í stað 20-30 sek.
Allt að átta posar í einu
Hver heimild kostar
aðeins 1 kr. í stað 4 kr.
Fyrirtæki og verslanir sem nýta posa í starfsemi sinni geta
breytt venjulegri símalínu í ISDN stafræna símatengingu.
Með ISDN stafrænni símatengingu stóraukast afköstin á
álagspunktum og þar af leiðandi þjónustan um leið.
Fáðu nánari upplýsingar í síma 800 4000 eða á siminn.is.
N
O
N
N
I
O
G
M
A
N
N
I
I
Y
D
D
A
/
s
ia
.i
s
/
N
M
1
1
8
1
8
SÖLUMIÐSTÖÐ hraðfrystihús-
anna, SH, hefur keypt 22,34% hlut
SÍF í SH. Um er að ræða
346.569.352 hluti sem keyptir voru á
genginu 9,1. Kaupverðið er því um
3,2 milljarðar króna. Salan á bréf-
unum er liður í fjármögnun SÍF á
kaupum félagsins á franska mat-
vælafyrirtækinu Labeyrie Group.
Samkvæmt lögum er SH ekki
heimilt að eiga meira en 10% hlut í
sjálfu sér til lengri tíma.
Gunnar Svavarsson forstjóri SH
segir að málið hafi borið brátt að.
„Það bar brátt að að þessi hlutur
losnar sem hafði verið frekar óþægi-
legt að búa við hjá aðilum sem voru í
þessari samkeppni og ljóst að ekki
yrði neitt framhald á milli félaganna
í sameiningarmálum eða slíku.
Þannig að þetta varð lausnin, að fé-
lagið kaupir þennan hlut til að byrja
með með það að markmiði að losa
sig við hann aftur innan ekki langs
tíma, hvort heldur er með beinni
sölu eða í viðskiptum í öðrum verk-
efnum sem kunna að bera að borði,“
segir Gunnar Svavarsson.
Samkvæmt 9 mánaða uppgjöri
SÍF sem birt var í gær, tapaði félag-
ið 1.729 milljónum króna á tíma-
bilinu en inni í því er sérstök gjald-
færsla í Frakklandi að fjárhæð
14.100 þúsund evrur, eða 1,2 millj-
arður króna. Hagnaður á sama
tímabili í fyrra var 2.059 þúsund
evrur. Hagnaður SÍF hf. fyrir af-
skriftir og fjármagnsliði (EBITDA)
að teknu tilliti til niðurfærslu í
Frakklandi nam 11.186 þús. evrum,
eða 983 milljónum króna á fyrstu
níu mánuðum ársins 2004 en var
12.400 þúsund evrur á sama tímabili
árið 2003. Framlegð félagsins er
10,63% en var 10,16% á fyrstu níu
mánuðum ársins 2003 og 9,88% allt
árið 2003.
Vulkan kaupir í SÍF
Í gær var tilkynnt um kaup Vulk-
an S.A. á tæplega 139 milljón hlut-
um í SÍF, eða 9,26% hlutafjár fé-
lagsins. Seljandi var Sund ehf.,
fyrrum stærsti hluthafinn í SÍF,
sem eftir viðskiptin á 9,26% hluta-
fjár í félaginu. Vulkan er í eigu Kjal-
ars ehf., sem er í eigu Ólafs Ólafs-
sonar stjórnarformanns SÍF og
stjórnarmanns í Keri. Samkvæmt
tilkynningu í Kauphöll Íslands er
Kjalar ehf. stór hluthafi í Keri og
Samskipum sem er eigandi Mundils.
Öll þessi félög eru hluthafar í SÍF
og eiga samkvæmt tilkynningunni
tæplega 445 milljónir hluta í félag-
inu eða um 30% hlutafjár.
SH kaupir SH-hlut SÍF
Morgunblaðið/Golli
Bar brátt að Gunnar Svavarsson,
forstjóri SH, þarf að finna hluta-
bréfunum nýja eigendur.
!" # !" $ % #
&
'
!
!
()
* +,$-.
/
!!
*0, +,$-.
/-,1
,2
32,4") '5
,46 )$,!
7/ +,
'
89
':
'!
/ :
'!
;
':
'! 89
'
,"9
"(
," 9
5
5 43
,! .)
. ' !",4
<=",3
),
-<-, 32,4") '5
:6
>-,
" #$%
!<
,!
1-, 89
'
9-59" 1 ,
7
<. 13
'
79-)
:,3?1-, /@'
1
,:6
7,
14,A) )6 B?,=
4'
,
&
,1:$,
' ,
9:
!-,
05-'
;C4)D!' 3?1-, ''
E=",3
8
92)-,4F9
5 -1-,9
'
D.9
) 09-< 1)01 =,
14,A) =6
'5
,A55 '5
< 1)01 '
G ''9-)01 '
B$,<?1-, ,
<< H D:",5
&
'(
-)-,:
!!
!"9 A3
43
,1
,
;
'C< 89
' D! 4D,
G2),A55 '5
4F9
5 89
' C1
)
* 1!6*",1
H
H
H
H
H
H
H
H
H
H
H
H
/,"A) '5 4,2
4A,,
* 1!6*",1
H
H
H
H
H
H
H
H
H
H
H
H
H
H
H
H
H
H
H
H
H
H
H
H
H
H
H
H
H
H
H
H
H
H
H
I HJ
I H J
I HJ
I H
J
H
I H
J
I HJ
I HJ
I HJ
I J
I HJ
I HJ
H
I H
J
I HJ
H
I J
H
H
H
I H
J
I H J
I HJ
H
H
I J
H
H
I HJ
H
I HJ
H
H
H
H
H
H
H
7" 9
,* 1! .)
5 '
9:$1 C 9$!
5K
-.
9
6
6 6
6 6 6 6 6
6
6
6 6 6 6
H
6 H
6
H
6
6
6 H
6
6
H
6 6 6
H
H
H
6 H
H
H
H
H
H
H
H
G 1! .) C L@6 !,6
76 M )=-5-'
,9 ) 309
* 1! .)
H
H
H
H
H
H
H
H
H
H
FJÓRIR af stærstu hluthöfum Vá-
tryggingafélags Íslands hf. (VÍS),
sem samanlagt eiga 87,31% hlutafjár
í félaginu, hafa gert með sér sam-
komulag um stjórnun og rekstur
þess. Verður öðrum hluthöfum í fé-
laginu gert yfirtökutilboð á genginu
49 krónur og verður VÍS í kjölfarið
afskráð úr Kauphöll Íslands en það
var skráð á Tilboðsmarkað Kaup-
hallarinnar í júlí 2002.
Hluthafarnir fjórir eru KB banki
sem á 29,46%, Eignarhaldsfélagið
Hesteyri (í jafnri eigu VÍS, Fiskiðj-
unnar Skagfirðings og Skinneyjar-
Þinganess) sem á 26,71%, Eignar-
haldsfélagið Samvinnutryggingar
sem á 25,84% og Eignarhaldsfélagið
Andvaka sem á 5,3% hlutafjár. Þessi
félög, utan KB banka, hafa verið tal-
in til svokallaðs S-hóps sem á rætur
að rekja til Sambands íslenskra sam-
vinnufélaga (SÍS). Athygli vekur að
Samvinnulífeyrissjóðurinn, sem á
8,43% í VÍS, tekur ekki þátt í sam-
starfinu þrátt fyrir að hann teljist
jafnan til S-hópsins.
Heildarhlutafé í VÍS er tæpar
545,7 milljónir króna og miðað við yf-
irtökuverðið 49 krónur á hlut má
gera ráð fyrir að greiða þurfi tæpa
3,4 milljarða króna fyrir 12,7% hlut
minnihlutans. VÍS er tíunda stærsta
félagið sem skráð er í Kauphöllinni,
sé miðað við markaðsvirði í lok sept-
embermánaðar en þá nam markaðs-
virði VÍS 25,1 milljarði króna. Við-
skipti með hlutabréf í félaginu hafa
hins vegar verið lítil.
Til samstæðu VÍS heyra, auk móð-
urfélagsins VÍS, Líftryggingafélag
Íslands hf., Áskaup ehf., Flutningar
ehf. og Traustfang hf. Meðal hlut-
deildarfélaga eru Öryggismiðstöð
Íslands þar sem VÍS á 48,5% hluta-
fjár. Samstæðan hefur fjárfest og á
eignarhluti í margvíslegum félögum.
Markaðsverð hlutabréfa sem skráð
eru í Kauphöll Íslands nam 15,3
milljörðum króna í lok september.
Meðal stærstu fjárfestinga eru
hlutabréf í KB banka, Bakkavör,
SÍF og Vinnslustöðinni.
Stórbættur hagnaður
Hagnaður varð af samstæðu VÍS á
fyrstu níu mánuðum ársins sem nam
1.557 milljónum króna og er það nær
23% aukning samanborið við sama
tímabil í fyrra. Hagnaður af vátrygg-
ingarekstri félagsins nam 1,3 millj-
örðum króna og jókst um tæp 19%
en hagnaður af fjármálarekstri nam
731 milljón króna og jókst um rúm
28%. Þar af var mest aukning vegna
hagnaðar af sölu fjárfestinga, um
311 milljónir eða rúm 40% miðað við
sama tímabil í fyrra.
Heildareignir samstæðunnar í lok
september námu 31,4 milljörðum
króna og jókst um tæp 9% frá ára-
mótum. Stærstur hluti eignanna eru
fjárfestingar í verðbréfum, veð-
lánum og öðrum útlánum, samanlagt
nær 22 milljarðar króna, eða 70%
eigna samstæðunnar.
Í afkomutilkynningu segir að það
sem einkenni reksturinn fyrstu níu
mánuði ársins sé umtalsverð lækkun
iðgjalda í skaðatryggingum og betri
afkoma af fjármálarekstri. „Fækkun
alvarlegra slysa hefur leitt til þess að
tjónakostnaður minnkar frá fyrra
ári, sem veitt hefur svigrúm til lækk-
unar iðgjalda. VÍS hefur á síðustu 12
mánuðum lækkað iðgjöld sín veru-
lega og þess vegna eru tekjur félags-
ins af iðgjöldum minni nú en á sama
tímabili í fyrra,“ segir í tilkynning-
unni.
Afkoma einstakra trygginga-
greina er mismunandi, ökutækja-
tryggingar og sjúkra- og slysatrygg-
ingar eru sagðar skila jákvæðri
afkomu, afkoma almennra ábyrgðar-
trygginga vera nokkuð í járnum, af-
koma eignatrygginga sé neikvæð og
afkoma líftrygginga jákvæð. Horfur
í rekstri VÍS eru sagðar góðar.
VÍS yfirtekið og afskráð