Morgunblaðið - 26.10.2004, Side 14
14 ÞRIÐJUDAGUR 26. OKTÓBER 2004 MORGUNBLAÐIÐ
ERLENT
Borgartúni 28, símar 520 7901/520 7900
www.ef.is
• Hagstætt verð
NÆSTUM 400 tonn af mjög öflugu
sprengiefni eru horfin úr vopna-
geymslu í Írak en það má meðal ann-
ars nota til að koma af stað kjarna-
sprengingu. Ætlast hafði verið til, að
Bandaríkjamenn gættu geymslunn-
ar, en hún virðist hafa verið á einskis
manns landi allt frá innrásinni í fyrra-
vor og vitað er, að þar voru þjófar á
ferð fyrir aðeins nokkrum dögum.
Talsmaður Johns Kerrys, frambjóð-
anda demókrata í forsetakosningun-
um í Bandaríkjunum, krafðist þess í
gær, að George W. Bush forseti og
stjórn hans upplýstu þjóðina um
þetta mál.
Vopnaeftirlitsmenn Sameinuðu
þjóðanna og IAEA, Alþjóðakjarn-
orkumálastofnunin, höfðu á sínum
tíma eftirlit með Al Qaqaa-vopna-
geymslunni og sprengiefninu, 380
tonnum, sem þar var geymt. Var það
svokallað HMX- og RDX-sprengi-
efni, sem er mjög öflugt og má meðal
annars nota til að koma af stað
kjarnasprengingu. Fyrir innrásina
varaði IAEA Bandaríkjastjórn sér-
staklega við og brýndi fyrir henni, að
vopnageymslunnar yrði að gæta sér-
staklega vel. Svo virðist þó ekki hafa
verið og er það nú allt horfið. Kom
það fram í yfirlýsingu frá írösku
bráðabirgðastjórninni og IAEA í
gær.
Upplýst í fjölmiðlum
Talsmaður Hvíta hússins segir nú,
að Condoleezzu Rice, öryggisráð-
gjafa Bandaríkjastjórnar, hafi verið
skýrt frá hvarfinu fyrir nokkrum vik-
um en ekki er ljóst hvort Bush forseti
var upplýstur um það. Opinberlega
var heldur ekkert um þetta sagt fyrr
en í síðustu viku er dagblaðið The
New York Times og „60 mínútur“,
fréttaskýringaþáttur CBS-sjón-
varpsstöðvarinnar, gerðu það að um-
talsefni.
Ekki er talin mikil hætta á, að
sprengiefnið verði notað í tengslum
við kjarnorkuvopn, heldur, að því
verði beitt gegn hernámsliðinu í Írak.
Sprengiefni af þessari gerð var meðal
annars notað er Pan Am-þotan var
sprengd yfir Lockerbie í Skotlandi
1988, við mikið hryðjuverk í Riyadh í
Sádi-Arabíu fyrir ári og þegar heilt
fjölbýlishús var sprengt í Moskvu
1999. Þá fórust 300 manns.
„Í meðallagi brýnt“
Al Qaqaa-vopnageymslan er 30 km
fyrir sunnan Bagdad og Bandaríkja-
menn vissu vel af henni. Rashad M.
Omar, vísinda- og tækniráðherra
írösku stjórnarinnar, segir, að eftir
innrásina hafi hún verið á ábyrgð
bandarísku herstjórnarinnar og hún
eða þeir menn, sem hana skipuðu,
ættu því að vita hvað varð um
sprengiefnið.
Embættismenn í Washington segj-
ast samt ekkert um það vita og New
York Times hefur það eftir háttsett-
um embættismanni, að það hafi að-
eins verið talið „í meðallagi brýnt“ að
gæta Al Qaqaa-geymslunnar. Í upp-
lausninni eftir innrásina hafi raunar
engin gæsla verið höfð um sumar aðr-
ar geymslur, sem mikilvægari þóttu.
„Alvarlegustu mistökin“
„Ríkisstjórn George W. Bush verð-
ur nú að svara fyrir það, sem kannski
eru alvarlegustu mistökin í Íraks-
stríðinu, sem þó hefur einkennst af
hverju klúðrinu á fætur öðru,“ sagði
Joe Lockhart, einn helsti ráðgjafi
Johns Kerrys í gær. „Hvernig tókst
henni glopra niður 380 tonnum af
mjög hættulegu sprengiefni þrátt
fyrir alvarlegar viðvaranir frá Al-
þjóðakjarnorkumálastofnuninni?
Hvers vegna voru það blaðamenn,
sem upplýstu þetta? Reyndu örygg-
isráðgjafar okkar að breiða yfir mál-
ið?
Í Bandaríkjunum er ekki síst tekist
á um það hvorum frambjóðendanna
sé betur treystandi til að gæta örygg-
is Bandaríkjamanna. Þetta mál kann
því að hafa einhver áhrif í kosninga-
baráttunni.
380 tonn af mjög öflugu
sprengiefni hurfu í Írak
Írakar segja bandarísku hernámsstjórnina hafa átt að gæta þess
– Demókratar krefja Bush forseta og ríkisstjórn hans svara
Vín. AFP.
AP
Al Qaqaa-vopnageymslan suður af Bagdad. Þótt Alþjóðakjarnorkumálastofnunin hefði varað alvarlega við því
hefur hún verið eftirlitslaus frá því í innrásinni í fyrravor og nú er allt sprengiefnið, 380 tonn, horfið.
FIMM karlmenn á Kyrrahafs-
eyjunni Pitcairn hafa verið
fundnir sekir um fjölda kyn-
ferðisbrota gegn ungum stúlk-
um og konum á eynni. Meðal
þeirra er Steve Christian, bæj-
arstjóri eyjarinnar. Sjötti mað-
urinn hafði áður játað sig sekan
en sá sjöundi var sýknaður. Bú-
ist er við að þeir áfrýi.
Aðeins 47 manns búa á Pitc-
airn og eru flestir afkomendur
manna sem gerðu uppreisn á
breska kaupskipinu Bounty í
lok 18. aldar. Það voru dómarar
frá Nýja-Sjálandi sem stýrðu
réttarhöldunum í samræmi við
bresk lög en verjendur héldu
því fram, að uppreisnarmenn-
irnir á Bounty hefðu fyrirgert
breskum ríkisborgararétti þeg-
ar þeir brenndu skipið 1789 og
því ættu bresk lög ekki við.
Sögðu mökin hafa
þótt sjálfsögð
Mennirnir sjö voru ákærðir
fyrir að beita ungar stúlkur á
aldrinum 12 og 13 ára kynferð-
islegu ofbeldi og var ákært fyr-
ir atburði sem áttu sér stað fyr-
ir allt að 40 árum. Nokkrir
mannanna báru við réttarhöld-
in að það hafi þótt sjálfsagt á
eynni að svo ungar stúlkur
hefðu kynmök en nokkrar af
konunum báru við réttarhöldin
að þeim hefði verið nauðgað.
Steve Christian, sem segist
vera kominn í beinan karllegg
af Fletcher Christian, leiðtoga
uppreisnarmanna á Bounty,
var fundinn sekur um fimm
nauðganir. Sonur hans, Randy,
var fundinn sekur um nauðgun
í fjórum tilfellum. Þá var Len
Brown, sem er 78 ára, fundinn
sekur um að hafa nauðgað
tveimur konum og Dave, sonur
hans, var fundinn sekur um
kynferðisbrot. Dennis Christ-
ian og Terry Young voru einnig
sakfelldir.
Dæmdir
fyrir kyn-
ferðisbrot
á Pitcairn
Auckland. AFP.
NORSKI rithöfundurinn Margit
Sandemo upplýsti í viðtali við
sænska sjónvarpið fyrir helgi, að
hún hefði orðið manni að bana þeg-
ar hún var 11 ára gömul. Hefði
hann nauðgað henni og hún þá bar-
ið hann í höfuðið með steini.
Sandemo, sem stendur á áttræðu,
sagði í viðtalinu, að sér hefði verið
nauðgað þrisvar sinnum er hún var
á aldrinum sjö til 11 ára. Bjó hún þá
í Svíþjóð og í þriðja og síðasta sinn-
ið hefði hún hefnt sín á ofbeldis-
manninum með því að berja hann í
höfuðið með steini. Varð það hon-
um að bana. Segir hún, að um hafi
verið að ræða garðyrkjumann, sem
flakkaði frá einum stað á annan, og
hefði hún dregið líkið ofan í díki í
skóginum.
Þrisvar sinnum
á geðsjúkrahús
Sandemo segist ekki vita hvort
líkið hafi nokkru sinni fundist en
telur, að nauðganirnar og þessi at-
burður hafi átt mestan þátt í, að
hún var þrisvar sinnum lögð inn á
geðsjúkrahús á unglingsárunum.
Sandemo, sem er kannski kunn-
ust fyrir sögur sínar um Ísfólkið,
segist hafa sagt frá þessu öllu fyrir
20 árum, þegar
hún sextug, en
þá bara í einni
bóka sinna. Vakti
það enga athygli
enda var atburð-
urinn búinn sem
reynsla einnar
sögupersón-
unnar.
Sandemo er
fædd í Noregi en ólst upp í Svíþjóð
frá sex ára aldri með sænskri móð-
ur sinni, Elsu Reuterskiöld, en hún
var af aðalsættum. Voru þau fimm
systkinin en Margit fór mikið ein-
förum og var oft úti í skógi. Var
hún þar á ferð í öll skiptin er henni
var nauðgað að því er hún segir.
Meira en 150 bækur í næstum
40 milljónum eintaka
Sandemo settist síðar aftur að í
Noregi og lengst af ævinnar hefur
hún búið í Valdres. Fyrir tveimur
árum fluttist hún síðan til Svíþjóðar
og býr nú á Skáni. Í Noregi hafa
komið út meira en 150 bækur eftir
Margit Sandemo og bækur hennar
hafa selst í næstum því 40 millj. ein-
taka. Er hún meðal þeirra norrænu
rithöfunda, sem mest hafa selst.
Segist hafa orðið
manni að bana
Sandemo kveðst hafa drepið mann
sem nauðgaði henni 11 ára gamalli
Margit Sandemo
STJÓRNENDUR breska útvarps-
ins, BBC, eru sagðir ætla að segja
upp næstum fjórðungi starfsmanna
en um umfangsmestu breytingar á
rekstri BBC yrði að ræða í 82 ára
sögu stofnunarinnar.
Það var dagblaðið The Times sem
greindi frá þessu í gær. Sagði í frétt
blaðsins að mest yrði fækkað á
frétta- og framleiðsludeild BBC en
áætlað er að uppsagnir komi til
framkvæmda á næsta ári. Um 28
þúsund manns starfa hjá BBC og
sagði The Times að fækkað yrði um
6.000 starfsgildi.
Talsmenn BBC höfnuðu fréttum
The Times og sögðu tölur blaðsins
getgátur einar. Verið væri að fara
yfir starfsemi stofnunarinnar og því
ekki tímabært að ræða þessi mál.
Einkaleyfi BBC til að rukka alla
sjónvarpsnotendur í Bretlandi um
gjald kemur næst til endurskoðunar
árið 2006.
Mikil fækkun hjá BBC?
London. AFP.