Morgunblaðið - 26.10.2004, Síða 34

Morgunblaðið - 26.10.2004, Síða 34
34 ÞRIÐJUDAGUR 26. OKTÓBER 2004 MORGUNBLAÐIÐ DAGBÓK  Hrútur (21. mars - 19. apríl)  Hugsanlegt er að þú hefjir samband við eldri og reyndari manneskju í dag. Sam- bandið getur bæði verið huggulegt og náið eða praktískt og vinnutengt. Naut (20. apríl - 20. maí)  Samstarfsmenn sýna hjálpsemi og lið- legheit í dag. Allir virðast til í að láta hendur standa fram úr ermum. Það er jákvætt frá framleiðnisjónarmiði. Tvíburar (21. maí - 20. júní)  Teikn eru á lofti um ástarævintýri þar sem aldursmunur er mikill milli ein- staklinga. Foreldrum gæti þótt ungviðið nokkur byrði, þótt dýrmætt sé. Krabbi (21. júní - 22. júlí)  Sinntu endurbótum á heimilinu eða liðk- aðu fyrir samskiptum á milli fjölskyldu- meðlima. Samræður eru alvarlegar og praktískar en líklegar til árangurs. Ljón (23. júlí - 22. ágúst)  Andleg áreynsla á vel við þig í dag sem og hvers kyns verkefni sem krefjast mikillar einbeitingar og natni við smáat- riði. Þú ert í stuði fyrir heimavinnuna. Meyja (23. ágúst - 22. sept.)  Fé sem þú ákveður að láta af hendi í dag reynist vel ráðstafað til lengri tíma litið. Þú sýnir hvorki eyðslusemi né léttúð. Þú vilt sitthvað fyrir þinn snúð. Vog (23. sept. - 22. okt.)  Útlit er fyrir að viðræður við yfirmenn og áhrifamikla einstaklinga muni ganga vel í dag. Þú færð þann stuðning sem þú leitar eftir. Fólk sér að þér er alvara. Sporðdreki (23. okt. - 21. nóv.)  Þú gerir þér far um að vinna í einrúmi í dag og kemur miklu í verk fyrir vikið. Allt sem viðkemur hinu opinbera og stórum stofnunum gengur að óskum. Bogmaður (22. nóv. - 21. des.) Leitaðu ráða hjá þér eldri manneskju í dag. Mundu að þú þarft ekki að finna upp hjólið. Hví ekki að byggja á mikilli reynslu þeirra sem á undan gengu? Steingeit (22. des. - 19. janúar) Fólki þykir mikið til þín koma í dag. Háttvísi, nærgætni, einlægni og þokka stafar af þér. Þér er lagið að sannfæra hvern sem er. Vatnsberi (20. jan. - 18. febr.) Aðstæður eru góðar til þess að gera metnaðarfullar áætlanir tengdar námi, ferðalögum og útgáfu. Þú ferð vel í saumana á öllu og þér sést ekki yfir neitt. Fiskar (19. feb. - 20. mars) Einhverjum í fiskamerkinu gæti hlotn- ast arfur í dag. Auðævi og bolmagn ann- arra kemur þér í það minnsta að góðum notum. Þú átt það fyllilega skilið. Stjörnuspá Frances Drake Sporðdreki Afmælisbarn dagsins: Þú hikar ekki við að hrista upp í hlutunum og vilt bæta og endur- skipuleggja hvar sem þig ber niður í starfi. Þú vilt í raun bæta heiminn. Vinnusemi, góð skipulagsgáfa og pen- ingavit eru einkenni þitt. Stjörnuspána á að lesa sem dægradvöl. Spár af þessu tagi eru ekki byggðar á traustum grunni vísindalegra staðreynda. Árnaðheilla dagbók@mbl.is Myndlist Lóuhreiður | Sigrún Sig- urðardóttir sýnir akrýl- verk í Lóuhreiðri undir titlinum Gróður og grjót. Sigrún, sem er fædd árið 1929, byrjaði að fást við liti árið 1998 þegar hún dvaldist í fjalllendi Spán- ar. Söfn Borgarskjalasafn Reykjavíkur | Fimmtíu ára afmælissýning Borgarskjalasafns ,,Reykjavík – á fleygiferð til framtíðar“ stendur til 31. okt. Mannfagnaður Kaffi Reykjavík | 21. Skáldaspírukvöldið á Kaffi Reykjavík. Þrír höfundar frá Sölku lesa úr verkum sínum; Kristian Guttesen, Margrét Lóa Jónsdóttir og Hallgerður Gísladóttir. Einnig lesa Valur Brynjar Ant- onsson frá Nýhyl og Kristín Eiríksdóttir frá Bjarti upp úr ljóðabókum. Fyrirlestrar Háskóli Íslands | Ingvill T. Plesner flytur erindi á vegum Heimspekistofnunar Há- skóla Íslands um ýmsar hliðar laganna er nýlega gengu í gildi í Frakklandi, sem banna nemendum á grunnskólastigi að ganga með áberandi trúarleg tákn. Fyrirlesturinn er á ensku, í Lögbergi stofu 101 kl. 12.05. Kjarvalsstaðir | Jurgen Beyer, hollenskur hönnuður með aðsetur í Rotterdam og yf- irmaður vöruhönnunar í Hönnunaraka- demíunni í Eindhoven, er gestakennari hjá LHÍ um þessar mundir og heldur opinn fyr- irlestur um verk sín á Kjarvalstöðum kl. 12. Stofnun Vigdísar Finnbogadóttur í er- lendum tungumálum | Erla Erlendsdóttir, lektor í spænsku, HÍ, flytur fyrirlestur, kl. 12.15, í stofu 102 í Lögbergi. Fjallar hún um tökuorð úr tungumálum indíána Nýja Heimsins í íslensku, en þau hafa lítið verið rannsökuð. Fyrirlesturinn er á spænsku. Málstofur Háskóli Íslands | Á morgun, kl. 12.15, mun Jón Þór Sturluson, sérfræðingur við Hag- fræðistofun, flytja erindið „Aftenging um- hverfis og hagvaxtar“ í opinni málstofu á vegum Hagfræðistofnunar og Viðskipta- fræðistofnunar í Odda stofu 101. Félagsstarf Árskógar 4 | Bað kl. 8–14, handavinna kl. 9–16.30, leikfimi kl. 9, boccia kl. 9.45, smíði, útskurður, kl. 13–16.30, línudans kl. 20.30. Bólstaðarhlíð 43 | Hárgreiðsla, böðun, vefnaður, leikfimi, almenn handavinna, sund, boccia, fótaaðgerð. Dalbraut 18–20 | Kl. 9–11 kaffi og dagblöð, kl. 9–14 baðþjónusta, kl. 9–16.45 hár- greiðslustofan opin, kl. 10–11 sam- verustund, kl. 11.15–12.15 matur, kl. 14 fé- lagsvist, kl. 15–15.45 kaffi. Félag eldri borgara Kópavogi | Brids í Gjá- bakka í kvöld kl. 19. Félag eldri borgara Reykjavík | Skák kl. 13. Miðvikudagur: Göngu–Hrólfar ganga frá Ásgarði Glæsibæ kl. 10. Félagsstarf aldraðra Garðabæ | Vatns- leikfimi í Mýrinni 9.10, málun kl. 9.30, les- hringur bókasafns kl. 10.30, karlaleikfimi og bútasaumur kl. 13, opið hús í safn- aðarheimilinu á vegum kirkjunnar kl. 13. Félagsstarf Gerðubergs | Fjölbreytt vetr- ardagskrá hvern virkan dag kl. 9–16.30. M.a.vinnustofur opnar, spilasalur, kórstarf, dans, sund og leikfimiæfingar, gönguferðir, sjálfboðaliðar o.fl. Allir velkomnir. Upplýs- ingar á staðnum, s. 575-7720, og www.gerduberg.is. Hraunbær 105 | Kl. 9 postulínsmálun, gler- skurður, hárgreiðsla, kl. 10 boccia, kl. 11 leik- fimi, kl. 12 hádegismatur, kl. 12.15 Bónus- ferð, kl. 13 myndlist, kl. 15 kaffi. Hæðargarður 31 | Opið félagsstarf kl. 9–16, opin vinnustofa, tréskurður, leikfimi kl. 10– 11, bókabíllinn kl. 14.15–15. Bókmennta- klúbbsfélagar geta náð í pantaðar bækur. Bónusbíllinn kl. 12.40. Dagblöðin liggja frammi, molasopi í býtið, hádegismatur, síðdegiskaffi. Félagsstarfið er opið öllum, sími 568-3132. Korpúlfar Grafarvogi | Á morgun, miðviku- dag, gaman saman í Miðgarði kl. 14. Norðurbrún 1, | Kl. 9–12.30 tréskurður, kl. 9–16.30 opin vinnustofa, kl. 10–11 boccia, kl. 11.30–12.30 hádegismatur, kl. 14 leikfimi, kl. 15–16 kaffi. Sjálfsbjörg | Opið hús – spilað UNO í fé- lagsheimilinu, Hátúni 12, í kvöld kl. 19.30. Vesturgata 7 | Kl. 9–16 hárgreiðsla og fótaaðgerðir, kl. 9.15–15.30 handavinna, kl. 9.15–16 postulínsmálun, kl. 10.15–11.45 enska, kl. 11.45–12.45 hádegisverður, kl. 13– 16 bútasaumur, kl. 13–16 frjáls spil, kl. 14.30–15.45 kaffiveitingar. Vitatorg | Smiðja kl. 8.45, bókband og hár- greiðsla kl. 9, morgunstund og fótsnyrting kl. 9.30, leikfimi kl. 10, félagsvist kl. 14. Þórðarsveigur 3 | Bænastund og samvera kl. 10, bókabíllinn kl. 16.45–17.30. Þjóðdansafélag Reykjavíkur | Opið hús verður á morgun í sal félagsins, Álfabakka 14A Rvk. kl. 20.30. Gömlu dansarnir. Nemendafélag Héraðsskólans í Reykja- nesi | Nemendur Héraðsskólans í Reykja- nesi við Ísafjarðardjúp veturna 1961, 1962 og 1963 ætla að hittast fös. 29. okt. í sal Framsóknarfélags Mosfellsbæjar í Háholti 14, Mosfellsbæ, 2. hæð, klukkan 20. Kirkjustarf Akureyrarkirkja | Morgunsöngur kl. 9. Fermingarfræðsla kl. 15 (hópur 2). Áskirkja | Opið hús milli kl. 10 og 14 í dag. Kaffi og spjall. Bænastund kl. 12. Boðið upp á léttan hádegisverð. Allir velkomnir. Digraneskirkja | Leikfimi ÍAK kl. 11. Kl. 12 léttur málsverður, helgistund. Sr. Gunnar Sigurjónsson. Samvera og kaffi. KFUM & KFUK 10–12 ára börn kl 17:00–18.15. Opið frá 16.30. Alfanámskeið kl. 19. Um bænina. Fræðsla: Katla K. Ólafsdóttir. www.digra- neskirkja.is. Garðasókn | Opið hús í Kirkjuhvoli, Vídal- ínskirkju kl. 13 til 16. Við spilum lomber, vist og bridge. Röbbum saman og njótum þess að eiga samfélag við aðra. Kaffi og með- læti kl. 14:30. Helgistund í kirkjunni kl. 16:00. Allir velkomnir. Akstur fyrir þá sem þess óska. Upplýsingar í síma: 895-0169. Hallgrímskirkja | Starf með öldruðum þriðjudaga og föstudaga kl. 11–15. Fyrir- bænaguðsþjónusta kl. 10.30. Beðið fyrir sjúkum. KFUM og KFUK | Ad KFUK fellur inn í samkomuröð Kristniboðssambandsins. Gunnar Hamnöy talar. Allar konur hvattar til að mæta á Háaleitisbraut 58. Kópavogskirkja | Bæna- og kyrrðarstund kl. 12.10. Kristniboðssambandið | Samkoma í kvöld 26. okt. í Kristniboðssalnum á Háaleit- isbraut 58–60, kl. 20.00. Yfirskrift kvölds- ins er „Ég er í skuld“. Gunnar Hamnöy frá Noregi talar. Kaffiveitingar eftir samkomu. Laugarneskirkja | Kl. 19.45 Trúfræðsla. Unnið samkvæmt bókinni „Lífið er áskor- un“. Frábær félagsskapur um trú. Gengið inn um litlar dyr á austurgafli kirkjunnar. Kl. 20.30 kvöldsöngur í kirkjunni. Gengið inn um aðaldyr. Kl. 21 fyrirbænaþjónusta og kaffispjall í safnaðarheimilinu. Neskirkja | Barnakór kl. 15, 7–8 ára. Stúlknakór kl. 16, 9–10 ára. Stjórnandi Steingrímur Þórhallsson. Uppl. í síma 896- 8192. Litli kórinn, kór eldri borgara, kl. 16.30. Stjórnandi Inga Backman. Uppl. í síma 552-2032. Nedó-unglingaklúbbur, 8. bekkur kl. 17, 9. bekkur og eldri kl. 19.30. Alfa kl. 19. Sr. Örn Bárður Jónsson. Víðistaðakirkja | Æskulýðsfélagið Megas heldur vikulegan fund kl. 19.30–21. Fjöl- breytt viðfangsefni fyrir unglinga. Dagskrá fyrir 10–12 ára (TTT) í dag kl. 17–18. KANADÍSKA harðkjarnapönksveitin Comeback Kid mun spila í Norðurkjallara MH í kvöld kl. 21, en sveitin er, að sögn rokkfróðra, í fylkingarbroddi mikillar upp- sveiflu sem hefur átt sér stað síðastliðin ár í harðkjarna- og pönkgeiranum í Kan- ada. Þykja þeir sameina smekklegar lag- línur og samhljóma á hárréttum stöðum auk ómótstæðilegra danskafla, hraðra takta og vel staðsettra hryntakta. Come- back Kid hefur náð miklum vinsældum víða um heim á stuttum ferli og eru þeir félagar þekktir fyrir afar kraftmikla sviðs- framkomu. Auk Comeback Kid koma fram sveit- irnar I Adapt, Hölt hóra og Lada Sport. Comeback Kid í Norðurkjallara Brúðkaup | Gefin voru saman 7. ágúst sl. í Háteigskirkju af sr. Helgu Soffíu Konráðsdóttur þau Kristborg Bóel Steindórsdóttir og Sigurjón Rún- arsson. Skugginn/Barbara Birgis Brúðkaup | Gefin voru saman 29. maí sl. í Háteigskirkju af sr. Sigfinni Þor- leifssyni þau Brynja Björk Harð- ardóttir og Halldór Skúlason. Skugginn/Barbara Birgis 6 8 11 15 22 1 24 12 3 10 17 21 4 9 13 18 23 14 5 19 7 20 2 16 Krossgáta Hægt er að kaupa 10 krossgátur á 600 kr. á mbl.is. Slóðin er: http://www.mbl.is/mm/f olk/krossgata/index.html Lárétt | 1 sköpulag, 8 bisk- upshúfa, 9 blunda, 10 magur, 11 safna saman, 13 fram á leið, 15 næðis, 18 óbreyttur, 21 frístund, 22 skil eftir, 23 styrkjum, 24 svalur. Lóðrétt | 2 þráttar, 3 hressa við, 4 örskotsstund, 5 kvendýr, 6 skömm, 7 ræfil, 12 hópur, 14 rot- skemmdar, 15 menn, 16 duglegur, 17 blaðlegg, 18 hvell, 19 moluðu, 20 vítt. Lausn síðustu krossgátu Lárétt | 1 ópera, 4 sægur, 7 ólgan, 8 kurfs, 9 auk, 11 iðan, 13 barð, 14 eitla, 15 fans, 17 krás, 20 enn, 22 nálin, 23 æf- ing, 24 Ingvi, 25 totta. Lóðrétt | 1 ósómi, 2 ergja, 3 arna, 4 sekk, 5 garfa, 6 ræsið, 10 urtin, 12 nes, 13 bak, 15 fangi, 16 nálæg, 18 reist, 19 sigla, 20 enni, 21 næmt. Deildarkeppnin. Norður ♠– ♥ÁK3 V/AV ♦KD1094 ♣ÁD852 Vestur Austur ♠ÁKDG9852 ♠74 ♥D5 ♥1092 ♦85 ♦G763 ♣9 ♣K764 Suður ♠1063 ♥G8764 ♦Á2 ♣G103 Fyrri hluti hinnar nýju deildar- keppni BSÍ var spilaður um helgina og kepptu 26 sveitir í þremur deildum. Í fyrstu deild er sveit Eyktar með afger- andi forystu, í annarri deild leiðir sveit Selís, og Suðurnesjasveitin er efst í þriðju deild. Síðari hluti mótsins fer fram helgina 20.–21. nóvember. Spilið að ofan er frá síðustu umferð á sunnudaginn. Víða vakti vestur á fjór- um spöðum og norður ýmist doblaði eða kom inn á fjórum gröndum til að sýna tvo liti. Þetta var ein útgáfan: Vestur Norður Austur Suður 4 spaðar 4 grönd * Pass 5 lauf Pass 6 lauf Allir pass Slemman virðist dæmd til að tapast í þessari legu, en ekki er allt sem sýnist. Hin eðlilega byrjun er þessi: Spaðaás út, sem sagnhafi trompar. Hann fer heim á tígulás og svínar laufgosa, en austur drepur og styttir sagnhafa í trompinu með öðrum spaða. Austur á nú trompi meira en blind- ur, en ef sagnhafi les rétt í stöðuna get- ur hann unnið spilið. Hann tekur KD í tígli og trompar tígul með þristinum heima. Spilar svo ÁK í hjarta og þriðja hjartanu á gosann þegar drottningin fellur. Trompar svo spaða og tígul á víxl og austur verður að undirtrompa. Er þetta fráleit spilamennska? Ekki svo, því laufnía vesturs hefur öll ein- kenni einspils. BRIDS Guðmundur Páll Arnarson | dagbok@mbl.is 80 ÁRA afmæli.Mánudaginn 25. október sl. varð áttræð frú Sigríður Jónsdóttir, húsmóðir. Eiginmaður hennar er Jóhann Hjartarson. Þau hjónin eru að heiman, en þeir sem vilja hafa sam- band við hana geta hringt í síma 0034966804403. Staður og stund á mbl.is. Nánari upplýsingar um viðburði dagsins er að finna á Staður og stund undir Fólkið á mbl.is Meira á mbl.is Staðurogstund http://www.mbl.is/sos Fréttir í tölvupósti

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.