Morgunblaðið - 26.10.2004, Síða 36

Morgunblaðið - 26.10.2004, Síða 36
36 ÞRIÐJUDAGUR 26. OKTÓBER 2004 MORGUNBLAÐIÐ Lau. 30. okt. kl. 20 • fös. 12. nóv. kl. 20 sun. 14. nóv. kl. 20 • fös. 19. nóv. kl. 20 ATH. Fáar sýningar. Atriði í sýningunni eru ekki við hæfi barna. Ekki er hleypt inn í salinn eftir að sýning hefst. Litla stúlkan með eldspýturnar Lau. 30. okt. kl. 14 • sun. 31. okt. kl. 14 • lau. 6. nóv. kl. 14 • sun. 7. nóv. kl. 14 Leitin að Rómeó - aríur og söngvar eftir Gounod, Bellini, Bernstein og Sondheim Hádegistónleikar þriðjudaginn 26. okt. kl. 12.15 Hulda Björk Garðarsdóttir sópran og Kurt Kopecky píanó. Gestur: Maríus Sverrisson. Rakarinn morðóði Miðasalan er opin kl. 14-18 virka daga, kl. 13-18 lau. og sun. og fram að sýningu sýningardaga. Símasala kl. 10-18 virka daga. Miðasala á Netinu: www.opera.is 4 600 200 leikfelag.is Miðasölusími SVIK e. Harold Pinter, Fös. 5/11 kl. 20 7. kortas. UPPSELT Fös. 5/11 kl. 22 30 Aukasýning Sun. 7/11 kl. 20 8. kortas. Örfá sæti laus Síðustu sýningar á Akureyri Ausa og Stólarnir Fim 11/11 kl 20 Frums. UPPSELT Fös 12/11 kl 20 2.kortas. Örfá sæti laus Lau 13/11 kl 20 3.kortas. Örfá sæti laus Mán 15/11 kl 20 UPPSELT Þri 16/11 kl 20 UPPSELT Mið 17/11 kl 20 UPPSELT Fim 18/11 kl 20 UPPSELT SVIK Ekki missa af henni! W. A. Mozart ::: La Clemenza di Tito, forleikur W. A. Mozart ::: „Parto, parto“, aría úr La Clemenza di Tito W. A. Mozart ::: Divertimento í F-dúr, KV 138 W. A. Mozart ::: „Ch’io mi scordi di te”, konsertaría G. Rossini ::: Semiramide, forleikur G. Rossini ::: „Una voce poco fa“, úr Rakaranum í Sevilla Pablo Luna ::: Canción española úr El niño judío Franz Liszt ::: Les préludes, tónaljóð Hljómsveitarstjóri ::: Gerrit Schuil Einsöngvari ::: Guðrún Jóhanna Ólafsdóttir Töfrar óperunnar HÁSKÓLABÍÓI, FIMMTUDAGINN 28. OKTÓBER KL. 19.30 FÖSTUDAGINN 29. OKTÓBER KL. 19.30 Græn áskriftarröð #2 Íslendingar hafa eignast nýja söngstjörnu. Gagnrýnendur keppast við að lofa Guðrúnu Jóhönnu Ólafsdóttur fyrir raddfegurð og sviðsframkomu. Nýlega hlaut hún enn eina viðurkenninguna, nú í stórri samkeppni í Róm. Senn mun hún syngja í fyrsta sinn með Sinfóníuhljómveitinni. Háskólabíó vi› Hagatorg I Sími 545 2500 I sinfonia@sinfonia.is I www.sinfonia.is NEMENDALEIKHÚSIÐ Draumurinn eftir William Shakespeare 8. sýn. í kvöld kl. 20 9. sýn. mið. 27. okt. kl. 20 10. sýn. fim. 4. nóv. kl. 20 11. sýn. fös. 5. nóv. kl. 20 Sýnt í Smiðjunni, Sölvhólsgötu 13 552 1971 - leiklistardeild@lhi.is F im. 28 .10 20 .00 NOKKUR SÆTI Lau . 06 .11 20 .00 UPPSELT Sun . 07 .11 20 .00 UPPSELT F im. 11 .11 20 .00 LAUS SÆTI Lau . 13 .11 20 .00 LAUS SÆTI „Se iðand i og sexý sýn ing sem dregur f ram hinar undar legus tu kennd i r . “ - Va ld í s Gunnarsdót t i r , ú tvarpskona - ☎ 552 3000 eftir LEE HALL Ég skora á alla að sjá þessa stórkostlegu sýningu” AK Útvarp Saga Seljavegur 2 ✦ 101 Reykjavík ✦ Miðasalan er opin frá 11-18 ✦ midasala@loftkastalinn.is SÍÐUSTU SÝNINGAR! • Laugardag 30/10 kl 23 LAUS SÆTI • Fimmtudag 4/11 kl 20 LAUS SÆTI • Föstudag 12/11 kl 23 LAUS SÆTI “ÞVÍLÍK SNILLD! CHICAGO Missið ekki af vinsælustu sýningu ársins Stóra svið Nýja svið og Litla svið GEITIN - EÐA HVER ER SYLVÍA? eftir Edward Albee Lau 30/10 kl 20 , Fö 5/11 kl 20, Su 14/11 kl 20 Fö 19/11 kl 20 HÉRI HÉRASON e. Coline Serreau Lau 30/10 kl 20, - Umræður í forsal með höfundi í lok sýningar Fö 5/11 kl 20, Su 14/11 kl 20, Fö 19/11 kl 20 ALLIR Í LEIKHÚSIÐ - ENGINN HEIMA Börn tólf ára og yngri fá frítt í leikhúsið í fylgd með fullorðnum. Gildir á: Héri Hérason, Belgíska Kongó, Geitin, Screensaver CHICAGO e. Kender, Ebb og Fosse Tvenn Grímuverðlaun: Vinsælasta sýningin og bestu búningarnir. Fö 29/10 kl 20, - UPPSELT Lau 6/11 kl 20, Lau 13/11 kl 20, Lau 20/11 kl 20, Lau 27/11 kl 20 Síðustu sýningar BELGÍSKA KONGÓ e. Braga Ólafsson Gríman fyrir besta leik í aðalhlutverki Fi 28/10 kl 20, - UPPSELT Su 31/10 kl 20 - UPPSELT Fi 4/11 kl 20, Su 7/11 kl 20, Fö 12/11 kl 20 Aðeins þessar sýningar Miðasalan er opin: Mánud. og þriðjud.:10:00-18:00, mið-, fim- og föstudaga: 10:00-20:00, laugar- og sunnudaga: 12:00-20:00 Miðasölusími 568 8000 - miðasala á netinu: www.borgarleikhus.is LÍNA LANGSOKKUR e. Astrid Lindgren Su 31/10 kl 14, Su 7/11 kl 14, Su 14/11 kl 14, Su 21/11 kl 14, Su 28/11 kl 14 ÍSLENSKI DANSFLOKKURINN: SCREENSAVER eftir Rami Be'er 2. sýning fi 28/10 kl 20 - Gul kort 3. sýning su 31/10 kl 20 - Rauð kort 4. sýning su 7/11 kl 20 - Græn kort 5. syning fö 12/11 20 - Blá kort Su 21/11 kl 20 AÐEINS ÞESSAR SÝNINGAR ÉG VAR alveg hissa þegar ég las einhvers staðar að Þórunn Arna Kristjánsdóttir, sem leikur litlu stúlkuna með eldspýturnar í sam- nefndri uppfærslu í Íslensku óper- unni, væri ekki tólf ára heldur rúm- lega tvítug. Ég las þetta eftir sýn- inguna, en meðan á henni stóð hugsaði ég með mér: Ja, það er al- deilis að barnið hefur leikhæfileika! Hver ætli þetta sé? Litla stúlkan með eldspýturnar var fumsýnd á laugardaginn var. Þetta er söngleikur sem er byggður á sögu H.C. Andersen og er eftir þá Keith Strachan, Leslie Stewart og Jeremy Paul. Eins og allir vita er sagan sjálf fremur stutt og segir frá síðustu augnablikunum í lífi litlu stúlkunnar, en í söngleiknum er spunnið framan við söguna; við fáum að kynnast drykkfelldum föður stúlkunnar, vændiskonum, smá- borgurum og öðrum leiðindalýð. Út- koman er litríkt sjónarspil sem sam- svarar sér prýðilega; sagan er vissulega sorgleg (svo mjög að sex ára dóttir mín fór að skæla í lokin) en inn á milli eru gamansöm atriði þar sem alls konar furðulegir kar- akterar bregða á leik. Kómískar hliðar sögunnar valda því þó að endalokin eru jafnvel átakanlegri en ella. Tónlistin er í afslöppuðum dæg- urlagastíl sem gerir engar sérstakar kröfur um söngmenntun til leik- aranna. Raddirnar þurfa samt að vera fallegar og hreinar, auk þess sem þær þurfa að blandast vel sam- an. Söngstjórinn Margrét Pálma- dóttir hefur þar unnið frábært starf; söngurinn var öruggur og hljóm- fagur, kraftmikill og yfirleitt í pott- þéttum takti við litla hljómsveitina. Sérstaka aðdáun vakti glæsilegur söngur kórsins sem lék götubörnin; samsöngur drósanna var líka veru- lega flottur. Eins og áður sagði var Þórunn Arna í hlutverki litlu stúlkunnar og söng með stelpulegri rödd án þess að vera tilgerðarleg. Leikur hennar var eðlilegur og blátt áfram; það var auðvelt að vorkenna henni og fá óbeit á þeim sem voru vondir við hana. Ívar Örn Sverrisson, sem var eini vinur litlu stúlkunnar, var einnig afar sannfærandi í hlutverki sínu. Aðrir leikarar; Valur Freyr Ein- arsson, Birna Hafstein, Unnur Pét- ursdóttir, Bjarni Atlason og fleiri stóðu sig sömuleiðis með miklum sóma. Skrifast það á smekklega og líflega leikstjórn Ástrósar Gunn- arsdóttur hversu vel tókst til. Sviðsmyndin er sú sama og notuð er í Sweeney Todd, sem er ekki ama- legt því þetta er einhver íburð- armesta og magnaðasta sviðsmynd Íslensku óperunnar frá upphafi. Gengur hún fullkomlega upp í þess- ari uppfærslu því sögusvið beggja verkanna er skuggahverfi í stórborg fyrir alllöngu. Búningar Elínar Eddu Árnadóttur eru auk þess trú- verðugir og falla ágætlega að heild- arútliti sýningarinnar. Hljómsveit þeirra Hjörleifs Vals- sonar, Vignis Stefánssonar, Kjart- ans Valdimarssonar og Odds Björnssonar var með allt sitt á hreinu á frumsýningunni, spila- mennskan var í senn tær og fjörleg. Reyndar átti hljómsveitin það til að yfirgnæfa söngvaranna og skrifast það væntanlega á hljóðstjórnina; sem betur fer gerðist það ekki oft. Litla stúlkan með eldspýturnar er kjörin fjölskyldusýning; boðskap- urinn fer ekki framhjá yngstu áhorf- endunum og dóttir mín sagði við mig á eftir: „Fólk á ekki að vera svona vont.“ Vændiskonur og leiðindalýður TÓNLIST Íslenska óperan eftir Strachan, Stewart og Paul. Söng- stjóri: Margrét Pálmadóttir. Leikstjóri: Ástrós Gunnarsdóttir. Leikendur: Þórunn Arna Kristjánsdóttir, Ívar Örn Sverrisson, Valur Freyr Einarsson, Birna Hafstein, Unnur Pétursdóttir, Ásta Sigríður Sveins- dóttir, Bjarni Atlason, Ingrid Jónsdóttir, Ólafía Hrönn Jónsdóttir og fleiri. Útsetn- ingar og tónlistarstjórn: Stefán S. Stef- ánsson; hljómsveit: Hjörleifur Valsson, Vignir Stefánsson, Kjartan Valdimarsson og Sigurður Þorbergsson. Laugardagur 23. október. Litla stúlkan með eldspýturnar Morgunblaðið/Golli „Litla stúlkan með eldspýturnar er kjörin fjölskyldusýning.“ Jónas Sen UPPLÝSINGASKRIFSTOFA Norðurlandaráðs í Arkangelsk hefur efnt til nokkurra menningar- viðburða á þessu ári í tilefni for- mannssætis Íslands hjá Norður- landaráði. Viðburðirnir, sem unnir eru í samvinnu við ríkisrekna lista- safnið Gostiny Dvor, eru tileinkaðir Íslandi og íslenskri menningu. Hinn 12. nóvember nk. verður opnuð í safninu ljósmyndasýning með landslagsmyndum áhuga- ljósmyndarans Páls Guðjónssonar. Hefur Páli verið boðið til Arkangelsk til að vera viðstaddur opnun sýning- arinnar. Þar verður einnig flutt ís- lensk þjóðlagatónlist af nemum tón- listarskóla nr. 1, eins af fremstu tónlistarskólum borgarinnar. Í lok nóvember er áætlað að setja upp skemmtidagskrá fyrir börn und- ir heitinu „Tröll og álfar frá landi ísa“ og þar gefst börnum Arkang- elskbæjar kostur á að kynnast ís- lenskum tröllum, Grýlu og jólasvein- unum þrettán, sem og fleiri kynjakvikindum úr íslenskri þjóðtrú. Hinn 12. desember verður boðið upp á íslensk „litlujól“, og ungum sem öldnum boðið upp á að bragða á íslenskum jólamat, hlýða á íslenska jólatónlist og kynnast íslenskum jólahefðum. Viðburðirnir eru skipulagðir og styrktir af Norðurlandaráði. Íslensk menning í Arkangelsk Fréttasíminn 904 1100

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.