Morgunblaðið - 26.10.2004, Síða 37
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 26. OKTÓBER 2004 37
MENNING
VETRARDAGSKRÁ Íslenska
dansflokksins hefst á dansverki
eftir Ísraelann Rami Be’er.
Höfundurinn er listrænn
stjórnandi Kibbutz Contempor-
ary Dance Company og dansaði
sjálfur við þann flokk áður en
hann tók við sem stjórnandi
hans. Dansflokkurinn er stað-
settur í Kibbutz Ga’aton sem er
nálægt landamærum Líbanons.
Screensaver fjallar um þann
skjöld sem fólk ber fyrir sig
sér til verndar gegn því áreiti
eða þeirri ágengni sem býr í
nútímasamfélagi. Þegar áhorf-
endur gengu í salinn var
kvendansari staðsettur bakvið
gagnsæja grisju á sviðinu. Hún
endurtók hringlaga hreyfingar
klædd hvítum dúllulegum kjól.
Stöfum sem mynduðu hreyf-
anlegt hringlaga form var jafn-
framt varpað á tjaldið. Sviðs-
myndin samanstóð af fimm
rúmum. Verkið hófst á því að
dansarinn rúllaði hvítum dúk
yfir sviðið undir örvænting-
arfullum hreyfingum annarra
dansara í rúmunum. Dans-
ararnir, sem klæddir voru í hvít
nærföt, dönsuðu hraðar og
ákafar hreyfingar með tilheyr-
andi bakfettum þar sem höfð-
inu var slengt til með tilþrifum.
Tónlistin samanstóð af rokki og
klassískri tónlist á víxl. Skot-
hvellir heyrðust inn á milli. Til-
vitnun úr Bibilíunni var varpað
á sviðið. Þar stóð meðal annars
á ensku: Öllu er afmörkuð
stund, og sérhver hlutur undir
himninum hefir sinn tíma.
Ófriður hefir sinn tíma og frið-
ur hefir sinn tíma.
Rúmin sem táknað gætu
samheldni, uppbyggingu, fjöl-
skyldu og frið voru notuð sem
skjáir og á þau varpað myndum
og texta. Á þeim var dansað og
þau brúkuð á allan mögulegan
máta í verkinu. Með jöfnu milli-
bili birtist manneskja klædd
gráum búningi, búningi sem
minnti á varnarbúning gegn
efnavopnaeitrun. Veran gekk
ógnandi skrefum um sviðið.
Verkið minnti á tónlistar-
myndbönd á Popp TV. Það var
smart og „commercial“. Eró-
tískt þar sem dansararnir á
nærbrókunum voru að leik í
rúmunum. Rokkuð tónlistin og
myndskreytingin þrýstu því
enn meir inn í söluramma tón-
listarmyndbanda. Þegar líða
tók á verkið fór það að líkjast
nafni sínu, Screensaver. Það
varð brátt ljóst að þrátt fyrir
skothvelli, ógnandi tónlistina og
örvæntingarfullan dansinn bjó
fátt annað að baki verkinu en
myndskreyting. Ógnvænlegir
skothvellirnir urðu hjóm eitt,
textinn úr biblíunni innan-
tómur, gráklædda fígúran þjón-
aði engum sýnilegum tilgangi
og myndrænar tæknibrellurnar
virkuðu sem filterteppi yfir
dansinn á sviðinu. Undir lok
verksins runnu lætin í dans-
inum út í eitt og örvæntingin í
hreyfingunum sem merkja
mátti í upphafi verksins varð
tilgangslaus. Tilgangurinn með
verkinu virðist vera að sýna
fram á upplifunardoða fólks
fyrir því óhugnanlega og
óþægilega í lífinu og hvernig
við brynjum okkur gagnvart
upplifuninni. En verkið var til-
finningarsnautt og innihalds-
rýrt og það olli vonbrigðum að
ekkert bjó að baki fallegri,
ágengri og poppaðri skreyting-
unni. Dansflokkurinn teflir
fram nokkrum efnilegum nýlið-
um sem stóðu sig vel og eiga
án efa eftir að samlagast
flokknum enn betur þegar fram
líða stundir. Að öðrum ólöst-
uðum þá var stuttur sólókafli
Katrínar Á. Johnson þar sem
hún var klædd rauðum kjól eft-
irminnilegur. Þunnt sneiddir
ljósgeislar brotnuðu á fallegum
hreyfingum hennar og mynd-
uðu eftirminnilega sýn. Þótt
poppdansverkið hafi ekki hrifið
þann sem þetta ritar ber að
geta þess að áhorfendur og að-
standendur sýningarinnar tóku
verkinu vel og var sýnendum
og höfundi klappað lof í lófa í
lok þess.
Flott popp?
Morgunblaðið/Golli
Dansverkið Screensaver eftir Rami Be’er: „Það olli vonbrigðum að
ekkert bjó að baki fallegri, ágengri og poppaðri skreytingunni.“
LISTDANS
Borgarleikhúsið
Íslenski dansflokkurinn
Höfundur Rami Be’er. Tónlist: L. Gerr-
ard, T. Rezor, A. Scarlati, P. Bourke,
C. Mansell, Sondheim. Hljóð: Alex
Claude. Myndband: Irit Batsry. Sviðs-
mynd, myndbandshönnun og ljósa-
hönnun: Rami Be’er. Búningahönnun:
Laura Dinulescu. Dansarar: Emilía
Benedikta Gísladóttir, Guðmundur
Elías Knudsen, Guðrún Óskarsdóttir,
Hjördís Lilja Örnólfsdóttir, Jóhann F.
Björgvinsson, Katrín Ingvadóttir,
Katrín Á. Johnson, María Lovísa
Ámundadóttir, Nadia K. Banine, Peter
Anderson, Philip Bergmann, Steve
Lorenz, Unnur E. Gunnarsdóttir og
Valgerður Rúnarsdóttir. Föstudag-
urinn 22. október.
Screensaver
Lilja Ívarsdóttir
SINFÓNÍUHLJÓMSVEIT Norðurlands er að
hefja sitt 12. starfsár, en boðið verður upp á
viðamikla efnisskrá í vetur og raunar fram á
næsta sumar. Alls verða sex tónleikar á dagskrá
með mismunandi efnisskrá, en að auki setur
hljómsveitin í samvinnu við Leikfélag Akureyr-
ar upp söngleikinn Óliver og þá stendur til að
leika í grunnskólum í Eyjafirði og S-Þingeyj-
arsýslu svo sem verið hefur undanfarin ár.
Stjórnandi Sinfóníuhljómsveitar Norðurlands á
öllum tónleikum vetrarins er Guðmundur Óli
Gunnarsson, sem hefur verið aðalstjórnandi
hennar frá upphafi.
Ungur Akureyringur leikur einleik
Fyrstu tónleikar vetrarins verða 14. nóv-
ember næstkomandi í Glerárkirkju. Þar verður
leikin 4. sinfónía Brahms en einnig sellókonsert
eftir R. Schumann. Einleikari á tónleikunum
verður Nicole Vala Cariglia, ungur Akureyr-
ingur sem nú starfar sem sellóleikari í Boston í
Bandaríkjunum. „Þetta verða tónleikar með
klassísku sniði,“ sagði Guðmundur Óli, en
hljómsveitin leikur nú í annað sinn sinfóníu eftir
Brahms. „Við höfum gert Beethoven ágæt skil,
búin að leika nánast allar hans sinfóníur og höf-
um nú snúið okkur að því að leika Brahms,“
sagði hann. Nicole Vala stundaði nám við Tón-
listarskólann á Akureyri en lauk framhaldsnámi
í Bandaríkjunum. „Hún er í hópi þeirra hljóð-
færaleikara sem eiga hér rætur og hafa fengið
sitt tækifæri með hljómsveitinni, leikið með sem
nemandi og einnig eftir að hafa lokið framhalds-
námi og fær nú færi á að spreyta sig sem ein-
leikari,“ sagði Guðmundur Óli.
Hann sagði tónlistarnemendur á Akureyri fá
fleiri tækifæri til að leika í hljómsveit en víða
annars staðar, margir lengra komnir nemendur
væru þegar orðnir vel þjálfaðir í að leika í
hljómsveitum þegar þeir hefðu lokið námi.
Aðventutónleikar verða í Akureyrarkirkju
12. desember og eru þeir fyrir alla fjölskylduna.
Nemendur í gítar- og blásaradeild Tónlistar-
skólans á Akureyri spila með hljómsveitinni
nokkur jólalög sem Guðmundur Óli útsetur. Á
tónleikunum verður frumflutt verkið „Jólaæv-
intýri“ eftir Hildigunni Rúnarsdóttur við sögu
Jóns Guðmundssonar. Einleikari verður László
Czenk, skólastjóri Tónlistarskólans á Hvols-
velli, sem verið hefur hljóðfæraleikari með SN
til margra ára, en hann flytur hornkonsert eftir
Franz Antonio Rosetti. „Þetta er efnisskrá sem
er upplögð fyrir alla fjölskylduna, það ættu allir
aldurshópar að hafa gaman af og um að gera að
njóta aðventunnar með góðri tónlist,“ sagði
Guðmundur Óli.
Sinfóníuhljómsveit Norðurlands ásamt Leik-
félagiAkureyrar setur svo upp söngleikinn
Óliver sem frumsýndur verður 28. desember.
„Við erum mjög ánægð með þetta samstarf og
eigum von á að þetta verði mjög gaman. Þetta
er stór og viðamikil uppsetning og geysilega
mikil og skemmtileg tónlist í þessu verki,“ sagði
hljómsveitarstjórinn. Áætlað er að sýningar
verði 30 talsins. „Við erum ánægð með að hafa
fundið leið til að geta nú lagt fram krafta okkar
með leikfélaginu á ný og gert það að verkum að
sýningin verði að veruleika,“ sagði Guðmundur
Óli, en hljómsveitin leggur fram fé á móti leik-
félaginu til að hægt sé að setja sýninguna upp.
Vínartónleikar eru á dagskrá 23. mars, á mið-
vikudegi fyrir páska. „Eftir nokkuð langt hlé
bjóðum við að nýju upp á vínartónlist og hún
ætti að gleðja fjölmarga aðdáendur þeirrar tón-
listar, en hún nýtur mikilla vinsælda. Þetta
verður gert með stóra stílnum, við fáum óperu-
söngvarana Sigrúnu Hjálmtýsdóttur og Jóhann
Friðgeir Valdimarsson til liðs við okkur að
þessu sinni,“ sagði Guðmundur Óli.
Tónleikarnir verða í íþróttahúsi
Glerárskóla.
Nýtt verk eftir Snorra Sigfús
Fjölskyldutónleikar verða
haldnir í Samkomuhúsinu 17. apríl
þar sem flutt verður verk eftir
Snorra Sigfús Birgisson við smá-
söguna „Stúlkan í turninum“ eftir
Jónas Hallgrímsson. Snorri samdi
þetta verk að beiðni SN nú í sumar.
Tónverkið verður frumflutt á
skólatónleikum vetrarins, en þeir
verða haldnir í nánast öllum grunn-
skólum í Eyjafirði og S-Þingeyj-
arsýslu að loknu verkfalli.
Næst liggur leiðin í Akureyr-
arkirkju, en sinfóníutónleikar verða þar í vor, 8.
maí, þar sem leikin verða verk eftir Mozart og
Mendelssohn. Einleikarar á tónleikunum verða
Greta Guðnadóttir fiðluleikari, konsertmeistari
hljómsveitarinnar, og Guðmundur Kristmunds-
son víóluleikari. Flutt verða Sinfonia concert-
ante og forleikurinn að Don Giovanni, bæði
verkin eftir Mozart, og sinfónía nr. 4 eftir
Mendelssohn.
„Við ljúkum svo starfsárinu með pomp og
prakt austur í Mývatnssveit í
samvinnu við Kórastefnu við Mý-
vatn,“ sagði Guðmundur Óli.
Hljómsveitin tekur nú þátt í
Kórastefnunni þriðja sinni, hefur
áður flutt Sköpunina eftir Haydn
og Krýningarmessu Mozarts, en
að þessu sinni flytur hún Messías
eftir Händel með einsöngvurum
og 150 manna kór.
„Þetta er viðameiri dagskrá en
við höfum áður getað boðið upp á
og við erum mjög stolt af efnis-
skrá okkar í vetur,“ sagði hljóm-
sveitarstjórinn, en fjárframlög til
sveitarinnar hafa hækkað lít-
illega að hans sögn. Tónleikar
vetrarins verða haldnir á fjórum
stöðum á Akureyri. „Við þurfum sífellt að spila
á nýjum og nýjum stöðum, hljómsveitin á engan
samastað ennþá, en það stendur til bóta þegar
menningarhúsið rís. Við horfum með mikilli
bjartsýni til þess tíma, það mun allt horfa til
betri vegar og stöðugir flutningar heyra þá sög-
unni til.“
Ársmiðar á tónleika SN verða til sölu í Penn-
anum Bókvali og gilda á þrenna tónleika vetr-
arins. Ársmiðinn kostar 3.500 krónur.
Tónlist | Sex tónleikar fyrirhugaðir á tólfta starfsári Sinfóníuhljómsveitar Norðurlands
Viðamesta dag-
skrá frá upphafi
Sinfóníuhljómsveit Norðurlands kemur víða við í verkefnavali á þessum vetri.
Guðmundur Óli
Gunnarsson
Í HAFNARBORG, Sverrissal, sýnir
franska listakonan Valerie Boyce 38 lands-
lagsmyndir unnar með olíulitum á striga
og pappír. Listakonan dvaldi í Listamið-
stöðinni Straumi í Hafnarfirði árið 1999,
ferðaðist um landið og sótti þá innblástur
víða í íslenskri náttúru. Myndirnar eru
flestar ýmist af íslensku eða frönsku
landslagi, en líka má sjá nokkrar húsa- og
hafnarmyndir.
Boyce sækir í rómantísk málverk 19.
aldarinnar en jafnframt gætir áhrifa frá
japanskri málaralist. Hún á til að end-
urtaka mótíf eða landslagshluta frá ólíku
sjónarhorni og flest eru þau frá skóg-
arlendi Verville í Frakklandi þar sem
listakonan er búsett.
Myndir Boyce eru af ýmsum stærðum
og gerðum. En eftir því sem þær eru
smærri og fínlegri eru þær skarpari. Lítil
frummynd af leikvelli í Reykjavík er t.d.
miklu líflegri en endanleg útfærslan sem
er sjöfalt stærri en frummyndin. Stærri
myndirnar eiga nefnilega til að fletjast
svolítið út. Styrkur listakonunnar í stærri
myndum kemur hins vegar í ljós þegar
hún nær að skapa sannfærandi birtu á
myndfletinum. Farnast henni betur, að
mínu mati, við að vinna með suðræna birtu
í skógarlendi en norræna birtu í hráu og
opnu landslagi. Allt virðist þetta samt eins
og myndskýringar frá annarri plánetu eða
dúnmjúkt draumalandslag.
Morgunblaðið/Kristinn
Eitt af málverkum Valerie Boyce.
MYNDLIST
Hafnarborg – Sverrissalur
Opið alla daga nema þriðjudaga kl. 11–17.
Sýningu lýkur 8. nóvember.
Málverk – Valerie Boyce
Jón B.K. Ransu