Morgunblaðið - 13.04.2003, Blaðsíða 7

Morgunblaðið - 13.04.2003, Blaðsíða 7
F í t o n / S Í A F I 0 0 6 3 3 9 www.lambakjot.is Skerið kjötið í gúllasbita. Setjið lauk, hvítlauk, engifer og krydd í matvinnsluvél eða blandara og látið ganga þar til allt er orðið að mauki. Bræðið smjörið á stórri pönnu og brúnið kjötið vel á öllum hliðum. Takið það upp með gataspaða og setjð á disk. Setjið kryddaða laukmaukið á pönnuna og látið það krauma viðmeðalhita í nokkrarmínútur. Hrærið oft á meðan. Hrærið svo jógúrt, vatni, teningum og tómatþykkni saman við, setjið kjötið aftur út í, leggið lok yfir og látið malla í um hálftíma. Takið þá lokið af pottinum og sjóðið í hálftíma í viðbót, eða þar til kjötið er meyrt og sósan hefur þykknað. Smakkið til með nýkreistum sítrónusafa og e.t.v. pipar og salti. Þetta er aðeins ein af ótal einföldum og góðum aðferðum við að elda lambakjöt. Ef kjöt er í réttinum, hikaðu ekki við að hafa það lambakjöt. 7 – 800 g lambakjöt, bein- og fituhreinsað 3 laukar, saxaðir 3 – 4 hvítlauksgeirar, saxaðir 4 – 5 cm bútur af engifer, saxaður 1 msk. karríduft, gjarna Madras 2 tsk. garam masala 1 tsk. kardimommur, malaðar 1 tsk. kanill ½ tsk. chilipipar, eða eftir smekk 50 g smjör 300 ml hrein jógúrt ½ l vatn 2 kjúklingakraftteningar 2 msk. tómatþykkni (paste) sítrónusafi e.t.v. pipar og salt Indverskt lambakarrí

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.