Morgunblaðið - 13.04.2003, Blaðsíða 45

Morgunblaðið - 13.04.2003, Blaðsíða 45
Kokteilstund lötu píunnar 3. 101 kokteill 3 cl Cachac̨a (brasilískt romm) 2 cl kókosmjólk 1 cl kókoslíkjör Hrist með ís, sigtað í glas. Skreytt með mintulaufi. „Þessi drykkur hefur unglingslega eiginleika; sætur og kemur til móts við mann, áfengið ekki yfirgnæf- andi. Og liturinn fer vel við stólana. Hann hæfir Reg- ínu, drottningunni, með eldrauðan varalit og grá greindarleg augu í svörtum flegnum kjól. Hún mætir um kvöldið og lítur út fyrir að vera eldri en hún er. Pantar sér drykk sem er ekki gegnsær fremur en hún. Hún vill stórar sýningar og fyllingu – hún gæti verið skautadrottning ef hún myndi einbeita sér að því. Og tónlistin – hún er elskust að þeirri tónlist sem hún hlustaði á með síðasta ástmanni sínum.“ 4. 101 Margarita 3 cl tequila 1 ½ cl Cointreau ½ cl Parfait amour-líkjör skvetta af súraldinsafa (lime) Vætið brún glassins með sítrónu eða lime og dýfið í salt. Hristið með ísmolum og sigtið í glasið, skreytt með lime-sneið. „Þetta er drykkur sem uppgjafabókmenntafræðingur myndi drekka fyrir misskilning – og verða fárveikur af...En konan sem drekkur þennan drykk er kjötæta og veiðimaður, þetta er Stella sem kemur um mið- nættið og dregst að grunnkryddi drykksins, saltinu sem meltir kjötið af bráðinni. Hún eltir ekki, hún bíð- ur ekki, hún tekur sér allan þann tíma sem hún vill yfir drykknum því hún veit að bráðin kemur. Drykk- urinn er mánaskin og hrímið á glasbrúninni rosa- baugur um tunglið, sítrónubitinn er karlinn í tungl- inu; gömul leiðinleg minning sem hún getur ekki losað sig við – en þegar hún er í stuði gleypir hún hann í sig. Stella gerir ekki upp á milli tónlistar, get- ur hlustað á allt – en hún kann öll Abbalögin.“ 5. Mojito 3 cl romm fersk mintulauf skvetta af súraldinsafa Glas fyllt upp með muldum ís og sódavatni. „Kúbustelpan Anna Nína – hún vill hreint bragð og gleði og veit að þegar tíminn er kominn, þá fer hún heim, hún er ekki að leita að neinu nema fersku bragði og heilnæmu fjöri, þetta er hennar lausn. Henni finnst best að koma heim til sín og raula Burt Bacharach-lögin sem hún kann utan að og af innlifun – sem betur fer eru til Kúbumenn sem blanda svona drykki.“ 5 drykkir – 5 konur George Leite hristi fyrir okkur nokkra litríka kokteila sem taka sig vel út með stílhreinar og næstum mein- lætalegar innréttingar barsins í bakgrunni. Daníel vill ekki kalla sig neinn kokteilsérfræðing: „Hvað er hægt að segja um mann sem drekkur helst bjór og rauðvín? Hefur ekki enn tekið ákvörðun?!“ Þess í stað sá hann fyrir sér hvers konar konur myndu dreypa á drykkjunum meðan þær hreiðruðu um sig í Lazy girl.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.