Sunnudagsblaðið - 14.03.1965, Qupperneq 6
Nýra föðurins
bjargaði Claes
CLARS ROTHELIUS lieilir sextán ára piltur í Sví-
þióð. Hann er búsettur hjá foreldrum sínum i Umeá,
borg norðanvert við mitt landið. En hann hefur ekki
verið mikið heima síðustu mápuðina; hann hefur
legið á sjúkrahúsum í Stokkhólmi síðan snemma í
haust, og hann á líf sitt að þakka djarfri skurðað-
gerð, sem nýlega var talsvert umrædd í heimsfrétt-
unum.
7"rír 'rahig, þegar Claes var aðeins sex ára gam-
all, fékk hann illkynjaða nýrnabólgu. Hann var lagð-
ur inn á sjúkrahús í heimabæ sínum, Umeá. og menn
gerðu ráð fyrir, að liann þyrfti aðeins að dveija þar
i stuttan tíma; þetta hlyti að lagast fljótt með hent-
ugri hjúkrun. En Claes litla batnaði ekki og hann
varð að liggja í sjúkrahúsinu í tvö löng ár. Þá fékk
hann að fara heim, en það var langt frá því, að
honum væri batnað. Nýrun störfuðu illa, og honum
versnaði með hverju árinu sem leið.
Claes gekk í skóla eins og önnur börn, og í haust
settist hann í menntaskóla borgarinnar. En dag einn
i september kom hann ekki heim úr skólanum á
venjúlegum tíma. Hann hafði veikzt alvaj-lega í tíma
cg verið fluttur á sjúkrahús. Útlitið var slæmt. Ilon-
umí var ekki hugað líf. Læknum sjúkrahússins bar
saman um það, að það væri spurning um tíma, hve
lengi hann lifði. Þaí5 gæti orðið fáeinar vikur, kannski
ekki nema nokkrir dagar eða klukkustundir. Faðir
hans setti sig þá óðar í samband við Harje Bucht,
ciósent, yfirlækni við nýrnadeild St. Erikssjúkrahúss-
íns í Stokkhólmi, og 28. september var Claes borinn
upp í flugvél, sem flutti haran suður til Stokkhólms.
Á flugvellinum beið sjúkrabíll eftir honum, og hann
>ar fiultur rakleitt á sjúkrahúsið.
Aðeins eitt gat orðið Claes til bjargar. Hann varð
Þessi var aðgerðin — nýrað \ar tekið úr honum.
206 SUNNUDAGSBLAÐ - ALPÝÐUBLAÐIÐ