Sunnudagsblaðið - 21.03.1965, Blaðsíða 13

Sunnudagsblaðið - 21.03.1965, Blaðsíða 13
vindum. En börnin vissu aldrei með vissu hvort risamir voru afturgöngur vegendanna eða hinna vegnu. - - Berjatíminn var næstum liðinn þetta haustið. í öllu falli var lyng- ið uppurið míluveg umhverfis þorpið; það var kallað í Botni, kannski vegna þess hvernig það lá í skjóli klettanna. Þegar hópurinn kom saman stakk Pétur upp á tiltæki sem jaðraði við byltingu: þau skyldu leita sér að berjamó á nýjum slóðum. „Það höfum við aldrei gert áð- ur”, sagði Fyrsti álasandi. Hann var ihaldssamt barn, með lítil augu djúpt inni í höfðinu, eins og dropi hefði holað stein; vita-hár- laust höfuð hans minnti á skorp- inn öldung. „Við lendum í klandri ef við gerum það,“ sagði Lísa. „Enginn þarf að vita af þvi“, sagði Pétur; „ekki ef við sverjum". Þorpið taldi sér af grónum vana eignarhald á landinu í þriggja mílna hálfhring frá innsta húsinu reiknað, — þó svo þetta innsta hús væri ekki nema rústir og grunnurinn einn eftir. Þeir töldu sig lika eiga sjóinn, stærra svæði og ógreinilegar afmarkað, einar tólf mrlur frá landi. Daginn sem þeir rákust á bátana handan um höfðann lá við þetta leiddi til illinda. Það var faðir Péturs sem stillti til friðar. Hann benti þeim á skýin sém hrönnuðust upp við sjóndeildarhring, eitt þeirra svart og furðu illúðlegt, svo allir sneru aftur til sama lands; fiski- mennirnir úr þorpinu handan við höfðann reru aldrei síðan jafn- langt (Það var ævinlega róið í dumbungi eða heiðskíru veðri, jafnvel á nóttunni þcgar ekki var tunglskín né sást til stjarna; að- eins þegar liægt var að greina raunverulega lögun skýjanna féllu róðrar niður). „En ef við hittum einlivern?“ spurði Annar. „Eins og.hvérn?" sagði Pétur. „Einhvers vegna er okkur bann að að fara,“ sagði Lísa. ,Það eru bara lög“. „Iss lög“, sagði Þriðji og sparkaðí í steinvölu til að sýna hvers hann virti lögin. „Eli'hver á landið?“ spurði Lísa. „Enginn", sagði Pétur. „Það er alls enginn þar“, „Samt hefur enginn rétt til þess”, sagði Fyrsti uppfræðandi, inneygur og voteygur. „Það var rétt“, sagði Pétur. „Enginn hefur það“. „Ég átti ekki við það sem þú heldur", anzaði Fyrsti. „Heldui’ðu það séu ber þarna uppfrá?1 spurði Annar. Hann var skynsamur piltur og vildi sann- færast um að áhættan svaraði kostnaði. ,,Það er lyng upp um allan skóg“, sagði Pétur. „Hvernig veiztu?" „Það hlýtur að vera“. Honum fannst það skrýtið hversu treg þau voru til að hlíta í'áðum hans. Hvers vegna skyldi berjalyngið hverfa á landamerkj- unum? Ekki voru berin gerð handa þeim einum. „Langar ykk- ur ekki að tína ber einu sinni enn áður en vetrar?“ ■ spurði Pétur; þau drúptu höfðu eins og þau leit- uðu sér að svari í rauðri mold- inni þar sem maurar ruddu sér braut stein frá steini. „Engmn hefur komið þar áður“, sagði Fyrsti loksins eins og það væri hið versta sem hann gæti sagt. „Því betri eru berin“. sagði Pétur. Annar hugsaði sig um. „Skóg- urinn er hærri uppfrá, og berin vaxa bezt i skjóli". sagði hann. Þi’iðji geispaði. „Eins og sé ekki sama um bláber. Þetta er nýtt land, það er hægt að gera fleira en tína ber. Komum og sjá til. Hver veit .... “ „Hver veit”, endurtók Lísa skelfingarlega; hún leit fyrst á Pétur og svo Þriðja eins og þeir vissu það kannski. „Þeir sem eru með rétti upp hönd“, sagði Pétur. Hann lyfti hendinni skipandi og Þriðji var ekki nema augnabliki seinni til. Annar fylgdi þeim hikandi eftir; og þegar Lísa sá hvað meirihlut- inn vildi, rétti hún líka upp hönd- ina, leit þó útundan sér á Fyrsta. „Ætlar þú þá heim?“ spurði Pétur fyrirlitlega. „Hann verður samt að sverja*, sagði Þriðji, „annars ....“ ,Ég þarf ekki að sverja, ef ég fer heim“. „Auðvitað verðurðu að sverja, — annars segirðu til okkar“. „Eins og mér sé ekki sama um þennan bjánalega eið. Hann hefur ekkert að segja. Ég get vel sagt til ykkar þó ég sverji“. Það varð steinþögn: hin börnin þrjú litu til Péturs. Þetta hafði aldrei gerzt fyrr: gagnkvæmum trúnaði þeirra stefnt í voða. „Við berjum hann“, sagði Þriðji. „Nei‘, sagði Pétur; hann vissi að barsmíðar bættu ekki úr skák. Fyrsti mundi samt lilaupa heim og segja upp alla sögu. Og vitund- in um refsinguna sem biði þeirra mundi spilla berjamónum fyrir þeim hinum. „Svei því“, sagði Annar. Hugs- um ekki um berin; við getum leik- ið Gamla-Nó“. Lísa fór að hrína eins og hver önnur stelpa. „Mig langar að tína ber“. En nú hafði Pétur komizt að niðurstöðu. „Hann á að sverja“, sagði hann, „og hann á líka að tína ber. Bindiö á honum hend- urnar“. Fyrsti reyndi að forða sér, en Annar brá fyrir hann fæti. Lísa vatt hárborðanum sínum um úln- iiði hans, hnýtti harðan hnút sem hún kunni ein; það var þvílík sérkunnátta sem kom henni með í hópinn. Fyrsti settist niður á múrbrot og gretti sig framan í þau. „Hvernig á ég að tína ber með bundnar hendur?“ „Þú varst svo gráðugur að þú EFTIR GRAHAM GREENE ALÞÝÐXJBLAÐIÐ - SUNNUDAGSBLAD 237

x

Sunnudagsblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Sunnudagsblaðið
https://timarit.is/publication/302

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.