Morgunblaðið - 16.11.2004, Side 12
Sýning
eða
sýnishorn?
12 ÞRIÐJUDAGUR 16. NÓVEMBER 2004 MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
á morgun
ÚR VERINU
LOÐNA fannst djúpt út af Vest-
fjörðum um helgina, í loðnurann-
sóknaleiðangri Hafrannsókna-
stofnunar sem nú stendur yfir.
Enn liggur ekki fyrir hversu mikið
af loðnu er þar á ferðinni. Leitað er
að loðnu í samvinnu við útgerðir
sex loðnuskipa.
Hjálmar Vilhjálmsson, fiskifræð-
ingur á Hafrannsóknastofnuninni
og leiðangursstjóri, segir að leitað
hafi verið á svæði nokkuð langt
vestan við Grænlandssund, eða
eins langt og hægt er vegna hafíss.
Á þessu svæði hafi ekkert sést
nema loðnuseiði frá í fyrra. Aftur á
móti hafi orðið vart við loðnulóðn-
ingar norðvestur af Ísafjarðar-
djúpi, innan grænlensku lögsög-
unnar, á 80 sjómílna löngum kafla.
Hjálmar segir að ekki hafi enn ver-
ið gerðar mælingar á þessari loðnu
en margt bendi til að í að minnsta
kosti hluta þessara lóðninga sé
hefðbundin hrygningarloðna. Hann
vill þó ekkert segja til um hversu
mikið magn gæti verið það á ferð-
inni. Það sé verkefni næstu daga að
áætla það.
„Það sem hefur fundist af loðnu
núna er utan þess svæðis sem við
gátum farið yfir í leiðangrinum á
síðasta ári og einnig árið þar á
undan. Okkur hefur gengið illa að
finna loðnuna undanfarin tvö haust
en hún hefur engu að síður skilað
sér upp á landgrunnið. Núna virð-
ist hún vera nokkuð vestar og
norðar en við höfum áður talið.“
Óborganlegt samstarf
Auk Bjarna Sæmundssonar taka
sex loðnuskip þátt í leiðangrinum
og segir Hjálmar að skipin hafi
ekki fengið mikinn afla enn sem
komið er, enda sé það ekki tilgang-
urinn. Aðalatriðið sé að leita að og
finna loðnu og auðvelda þannig
mælinguna. „Samstarfið við þessi
loðnuskip hefur reynst óborganlegt
því með þessum hætti náum við að
fara yfir mun stærra svæði en ella.
Við náum að fara mjög nákvæm-
lega yfir svæðið, það eru ekki nema
10 sjómílur á milli skipa þannig að
það ætti ekkert að fara framhjá
okkur. Reyndar hefur verið leið-
inda veður hluta leiðangursins og
þá leitast ekki vel, auk þess sem
eitt skipanna hefur tafist vegna bil-
unar,“ segir Hjálmar.
Áætlað er að skipin verði við
loðnuleit í viku til viðbótar að
minnsta kosti en Hjálmar segir að
veður og vindar ráði mestu um það
hversu langur leiðangurinn verður.
Loðnurannsóknaleiðangur Hafrannsóknastofnunarinnar
Loðna fannst djúpt
út af Vestfjörðum
Ljósmynd/Friðþjófur Helgason
Erfiðlega hefur gengið að finna loðnu í leiðöngrum síðustu ára.
Ragna Sigurðardóttir skrifar
um samsýningu 20 listamanna
í Listasafni Íslands
+
JAFNRÉTTISSTOFA hefur fengið
23 milljóna króna styrk frá Jafnrétt-
isáætlun Evrópusambandsins til að
vinna fjölþjóðlegt verkefni um stað-
alímyndir kynjanna í íþróttum og
íþróttafréttum. Verkefnið heitir
„Íþróttir, fjölmiðlar og staðal-
ímyndir“. Þetta er í annað sinn sem
Jafnréttisstofa stýrir stóru Evrópu-
verkefni, en fyrr á þessu ári lauk
verkefni sem sneri að töku karla á
fæðingarorlofi.
Vinna við verkefnið hófst formlega
1. nóvember, en fyrsti fundur vegna
þess var í gær. Það mun taka 15
mánuði, lýkur í janúar 2006 með fjöl-
þjóðlegri ráðstefnu þar sem niður-
stöður verða kynntar og ræddar.
Áætlað er að kostnaður við verkefnið
nemi alls 29 milljónum króna, þannig
að styrkur ESB nemur 80% af kostn-
aði, en vilyrði hafa fengist um styrki
frá ÍSÍ, menntamála- og félagsmála-
ráðuneytum.
Samstarf er við stofnanir í Noregi,
Austurríki, Litháen og Ítalíu, en hér
á landi verður samstarf haft við
Rannsóknastofnun Háskólans á Ak-
ureyri, námsbraut í fjölmiðlafræði
við félagsvísinda- og lagadeild Há-
skólans á Akureyri, Rannsóknastofu
í kvenna- og kynjafræðum við Há-
skóla Íslands, Félag íþróttafrétt-
manna og Íþrótta- og Ólympíusam-
band Íslands.
Ingunn Helga Bjarnadóttir hjá
Jafnréttisstofu sagði að verkefnið
snerist um að gera rannsókn í fimm
áðurnefndum Evrópulöndum á stað-
alímyndum og endurspeglun
kynjanna í íþróttum og íþróttafrétt-
um, en fyrri rannsóknir sýna að
mjög hallar á hlut kvenna í íþrótta-
fréttum.
Niðurstöður rannsóknarinnar
verða notaðar til að hanna fræðslu-
efni fyrir íþróttafréttamenn, íþrótta-
kennara og þjálfara og verður það
gefið út á margmiðlunarformi.
Markmið þess verður að hvetja til
breytinga á birtingarmyndum
kynjanna í íþróttum og íþróttafrétt-
um. Nemendur í fjölmiðlafræði við
HA munu vinna fræðsluefni.
Morgunblaðið/Kristján
Fulltrúar þeirra sem koma að verkefninu af Íslands hálfu, f.v. Kristrún
Heimisdóttir, Samúel Örn Erlingsson, Ingunn Helga Bjarnadóttir, Kjartan
Ólafsson, Birgir Guðmundsson og Margrét María Sigurðardóttir.
Jafnréttisstofa stýrir Evrópuverkefni
Fékk 23 milljónir
til að rannsaka
staðalímyndir
VERÐLAUN Jónasar Hall-
grímssonar verða veitt í dag, á
degi íslenskrar tungu, í Safna-
húsinu á Ísafirði. Fyrir níu ár-
um ákvað ríkisstjórnin að fæð-
ingardagur Jónasar Hallgríms-
sonar, 16. nóvember, yrði
dagur íslenskrar tungu ár
hvert. Menntamálaráðuneytið
hefur síðan árlega beitt sér fyr-
ir sérstöku átaki í þágu íslensks
máls og helgað þennan dag
rækt við það, í samstarfi við
skóla, stofnanir, fyrirtæki, fé-
lagasamtök og einstaklinga.
Þorgerður Katrín Gunnars-
dóttir menntamálaráðherra
mun afhenda verðlaun Jónasar
Hallgrímssonar á Ísafirði í dag
auk tveggja sérstakra viður-
kenninga fyrir störf í þágu ís-
lensks máls. Dagskráin verður í
Safnahúsinu á Ísafirði og hefst
kl. 13.30. Tónlistarflutningur
verður í umsjón Tónlistarskóla
Ísafjarðar.
Dagskrá verður ennfremur í
Edinborgarhúsinu á Ísafirði í
kvöld þar sem fjallað verður í
tali og tónum um Jónas Hall-
grímsson og verk hans. Þröstur
Jóhannesson mun m.a. flytja
frumsamin lög við ljóð Jónasar.
Ný vefsíða tekin í notkun
Þá hefur Námsgagnastofnun
útbúið sérstaka vefsíðu helgaða
degi íslenskrar tungu. Þar er
leitast við að gefa kennurum
hugmyndir að skemmtilegum
verkefnum sem nota má í tilefni
dagsins. Sjá http://namsgagna-
stofnun.is/gpw/ngs.nsf/pages/
dagur.html
Þá verður málræktarþing Ís-
lenskrar málnefndar og Mjólk-
ursamsölunnar haldið nk. laug-
ardag í hátíðarsal Háskóla
Íslands, kl. 11.00–13.00.
Verðlaun
Jónasar
Hallgríms-
sonar afhent
á Ísafirði