Morgunblaðið - 07.12.2004, Síða 8
8 ÞRIÐJUDAGUR 7. DESEMBER 2004 MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Það verður æ erfiðara fyrir einstæða móður með barn að komast af í þessu fjármálaumhverfi.
Fyrsta nóvember sl.var innleitt starfs-matskerfi hjá
Reykjavíkurborg. Í kjara-
samningum milli Starfs-
mannafélags Reykjavík-
urborgar (SR), Eflingar –
stéttarfélags og Kjara-
félags Tæknifræðinga-
félags Íslands (KTFÍ)
annars vegar og hins veg-
ar Reykjavíkurborgar, var
samið um að taka upp nýtt
starfsmatskerfi og leið-
rétta starfslaun í áföngum
á samningstímabilinu á
grundvelli sérstakra fjár-
veitinga. Samhliða þessari
launakerfisbreytingu var
ákveðið að taka upp eitt
samræmt hæfnismat og nýtt
hæfnislaunakerfi.
Tilgangurinn var að hrinda í
framkvæmd á samningstímabilinu
breytingu á launakerfinu til að ná
árangri varðandi það langtíma-
markmið að greiða sömu laun fyr-
ir sambærileg og jafnverðmæt
störf hjá öllum stofnunum og fyr-
irtækjum Reykjavíkurborgar.
Um 200 starfsheiti leiðrétt
Starfsmatið náði til um 400
starfsheita og um 4.500 starfs-
manna Reykjavíkurborgar sem
gegna þeim. Um 900 einstaklingar
tóku þátt í starfsmatsviðtölum
með starfsmatsráðgjöfum.
Tæplega 200 starfsheiti af þeim
400 starfsheitum sem tekin voru
undir starfsmatið tóku einhverj-
um launaleiðréttingum 1. nóvem-
ber sl.
Hlutverk starfsmatsins var að
vera aðferð til að leggja samræmt
mat á ólík störf, aðferð til að gera
forsendur launaákvarðana sýni-
legar, aðferð til þess að gera rökin
á bak við launaákvarðanir skýrari
og leið til að ákvarða laun fyrir
sambærileg eða jafnverðmæt
störf. Hinsvegar var tekið fram í
kynningarbæklingi fyrir starfs-
menn sem valdir voru í starfs-
matsviðtal að starfsmat væri ekki
mat á persónulegri hæfni, árangri
eða frammistöðu starfsmanna í
starfi. Samningsaðilar sáu um að
velja þá starfsmenn sem fóru í
starfsmatsviðtal samkvæmt fyrir-
fram ákveðnum vinnureglum sem
samningsaðilar komu sér saman
um. Miðað var við að u.þ.b. 10%
starfsmanna í sama starfi hafi far-
ið í viðtal.
Ekki eru allir á eitt sáttir með
útkomu starfsmatsins, þá sérstak-
lega þeir sem lægst hafa launin. Í
grein eftir Sigrúnu Reynisdóttur,
sem starfar við sundlaug í Reykja-
vík og tilheyrir SR, sem birtist í
Morgunblaðinu 29. nóvember sl.,
kemur fram að hún sé ósátt með
að hafa lent í einum þeirra hópa
sem ekki þóttu verðir til launa-
hækkunar. Hún segir starfsmatið
hafa verið kynnt á þann veg að það
myndi fela í sér kjarabætur.
„Langtímamarkmiðið er að greiða
sömu starfslaun fyrir sambærileg
og jafnverðmæt störf,“ segir Sig-
rún og vísar í kynningarbækling
fyrir starfsmenn sem valdir voru í
starfsmatsviðtal. Að auki hafa
skólaliðar, sem einnig heyra undir
SR, lýst yfir óánægju sinni með
útkomu starfsmatsins.
Sem kunnugt er fóru leikskóla-
kennarar ekki í starfsmatið, því
hafa laun ófaglærðra sem tilheyra
öðrum stéttarfélögum sem fóru í
starfsmatið, t.a.m. Eflingu, hækk-
að verulega í samanburði. Að sögn
Guðrúnar Halldóru Sveinsdóttur,
verkefnisstjóra starfsmatsins,
standa ófaglærðir deildarstjórar á
leikskólum leikskólakennara-
menntuðum deildarstjórum, sem
eru í Félagi leikskólakennara, þó
langt að baki hvað kjör varðar.
Að sögn Garðars Hilmarssonar,
hjá SR, hefur launaleiðréttingin
náð til 142 starfsheita af 345 hjá
félaginu, eða um 54% starfsmanna
innan SR. Garðar segir ljóst að
ekki sé því um sömu hluti að ræða,
þ.e. starfsheiti annars vegar og
hlutfall af starfsfólki hins vegar.
Garðar segir það vera ljóst að þeir
sem ekki fengu launaleiðréttingu
séu óánægðir en að sama skapi
séu þeir sem fengu leiðréttingu
kátir með sitt. Hvað sem því líði sé
staðan sú að Reykjavíkurborg
borgar ekki nægilega há laun að
mati SR.
Hjá stéttarfélaginu Eflingu
fengu 42 starfsheiti af 50 launa-
leiðréttingu 1. nóvember sl., eða
um 48% starfsmanna þar. Greiðsl-
urnar eru afturvirkar frá 1. des-
ember 2002 og geta mest orðið 10
launaflokkar.
Þær upplýsingar fengust hjá
Eflingu að almennt væri fé-
lagsfólk ánægt með starfsmatið.
Helst hafi borið á óánægjuröddum
hjá almennum starfsmönnum hjá
leikskólum og starfsmönnum í
móttökueldhúsum.
Hjá KTFÍ náði starfsmatið til
26 tæknifræðinga í sex mismun-
andi störfum, en þrjú starfsheiti
tæknifræðinga fengu leiðréttingu.
Unnið að skýrslugerð
Starfsmatsnefnd vinnur nú að
skýrslu þar sem fram munu koma
meginniðurstöður úr innleiðingu
starfsmatsins, þ.e. hvernig það
kemur út fyrir ákveðna hópa inn-
an stéttarfélaga. Sex manns sitja í
nefndinni. Stéttarfélögin þrjú eiga
hvert um sig einn fulltrúa og að
auki sitja þrír fulltrúar frá
Reykjavíkurborg. Búist er við að
skýrslan verði birt í desember.
Fréttaskýring | Starfsmatskerfi var inn-
leitt nýverið hjá Reykjavíkurborg
Launin leið-
rétt í áföngum
Sömu laun greidd fyrir sambærileg eða
jafnverðmæt störf innan borgarinnar
400 starfsheiti voru tekin undir starfsmatið.
Starfsmatið unnið að
breskri fyrirmynd
Starfsmatskerfið SAMSTARF
var hannað í Bretlandi á grunni
áratugalangrar hefðar fyrir
starfsmati og hefur gefið góða
raun í sveitarfélögum þar.
Starfsmatið var hannað fyrir
starfsmenn sveitarfélaga með
það að leiðarljósi að það yrði
kyn- og kynþáttahlutlaust og
væri aðgengilegt á tölvutæku
formi. Uppbygging starfsmats-
ins byggist á vinnureglum frá
Alþjóðavinnumálastofnuninni.
jonpetur@mbl.is
LÍFTÆKNIFYRIRTÆKIÐ Urð-
ur, verðandi, skuld (UVS) hefur afl-
að samþykkis sjúklinga, Vísindasiða-
nefndar og Persónuverndar vegna
rannsóknar sem m.a. krefst þess að
lífsýni úr krabbameinssjúklingum
verða send til bandaríska líftækni-
fyrirtækisins ACLARA BioScienc-
es. Afar takmarkaðar upplýsingar
fylgja lífsýnunum og samningur,
sem uppfyllir kröfur Evrópu-
sambandsins, verður gerður við
ACLARA um meðferð lífsýnanna.
UVS er í samstarfsverkefni við
ACLARA sem felst í því að tengja
meðferðarupplýsingar krabba-
meinssjúklings við niðurstöður rann-
sókna á æxlissýnum úr viðkomandi.
Þannig er mögulegt að komast að því
af hverju sumir svara lyfjameðferð
en aðrir ekki.
Þórunn Rafnar, framkvæmda-
stjóri rekstrar UVS, segir að ESB
setji strangar reglur meðferð lífsýna
en þau teljast til viðkvæmra per-
sónuupplýsinga. Sambandið hafi
skilgreint að bandarísk lög veiti ekki
nægjanlega vernd á upplýsingunum
og því þurfi bandarískir rannsókn-
araðilar, fyrirtæki sem og akadem-
ískar stofnanir, að uppfylla annað
tveggja skilyrða til að leyfilegt sé að
senda þangað lífsýni frá löndum sem
falla undir tilskipun ESB. Þessir að-
ilar þurfi annaðhvort að hafa verið
flokkaðir sem „örugg höfn“ fyrir
persónuupplýsingar eða gerður hafi
verið við þau sérstakur samningur
um meðferð upplýsinganna.
Tækni úreldist fljótt
Þórunn segir að fáar stofnanir
uppfylli fyrra skilyrðið og ACLARA
sé ekki eitt af þeim. Því þurfi UVS að
gera samning við ACLARA vegna
rannsóknarinnar þar sem skýrt
verður kveðið á um hvernig fara
skuli með lífsýnin og upplýsingar
þeim tengdar. Frumgerð að slíkum
samningi sé að finna á vef ESB og
við hann verði miðað. Afrit af honum,
ásamt nákvæmri lýsingu á meðferð
rannsóknargagna, verði síðan sent
til Persónuverndar.
Þórunn segir að þetta sé fyrsti
skipti sem UVS geri slíkan samning
við bandarískt fyrirtæki. Það sé þó
síður en svo einsdæmi hér á landi að
sýni eða gögn séu send til annarra
landa í tengslum við samstarfsrann-
sóknir. Hún bendir á að það yrði afar
óhagkvæmt ef íslensk fyrirtæki
þyrftu að eiga allan nýjasta tækni-
búnað til að stunda rannsóknir.
Tækniþróun sé mjög hröð í geiran-
um og tækni og búnaður geti orðið
úrelt á einu ári. Aðalatriðið sé að við
stundum rannsóknir með bestu
tækni sem völ er á.
Þórunn ítrekar að afar takmark-
aðar upplýsingar fylgi lífsýnunum
sem send verða til ACLARA, á þeim
verði aðeins númer og hvaðan úr lík-
amanum það var tekið, ekki nafn
sjúklings eða nokkuð þess háttar.
Samningur gerður um
meðferð lífsýnanna