Morgunblaðið - 07.12.2004, Síða 17
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 7. DESEMBER 2004 17
VIÐSKIPTI/ATHAFNALÍF
Strandgata 32 • S. 555 2615
opið Laugardag 10 - 16 &
Sunnudag 13 - 17
JÓLATILBOÐ
Tilboð 1: kr. 20.000,-
Göngu-, tölvu-, sjónvarps- eða lesgleraugu.
Fjölskipt gleraugu, þ.e.
fjær- + lesgleraugu.
Tilboð 2: kr. 40.000,-
Trönuhrauni 6, 220 Hafnarfjörður • Sími: 565 1533
www.polafsson.is • polafsson@polafsson.is
púlsmælar fyrir alla þjálfun
HREIÐAR Már Sigurðsson, forstjóri KB
banka, segir að sú mynd sem dregin er upp í
dönskum fjölmiðlum af starfsemi bankans und-
anfarna daga sé alröng, engin innbyrðis eigna-
tengsl séu milli KB banka og annarra íslenskra
fjármálastofnana.
Umfjöllun danskra fjölmiðla, einkum Berl-
ingske Tidende, um útrás íslenskra banka hef-
ur einkum beinst að KB banka. Hefur meðal
annars verið sagt að í kringum hann sé
köngulóarvefur eignatengsla sem hafi verið
bönnuð í Danmörku frá því á þriðja áratug síð-
ustu aldar og sem auki líkur á að erfiðleikar
komi upp í rekstri.
„Það er verið að telja fólki trú um að við eig-
um í einhverjum öðrum íslenskum bönkum og
aðrir íslenskir bankar eigi í okkur og það er
einfaldlega ekki rétt,“ segir Hreiðar Már.
KB banki keypti í haust allt hlutafé í FIH,
þriðja stærsta fyrirtækjabanka Danmerkur.
Að mati Hreiðars Más kemur umfjöllun
dönsku fjölmiðlanna í kjölfar kaupa
Baugs Group, Straums Fjárfestingabanka,
o.fl. á meirihluta hlutafjár í Magasin du Nord á
dögunum.
Hann segir athyglisvert að líta til eigna-
tengsla í dönskum bönkum. „Í öllum stærstu
bönkum Norðurlandanna er annaðhvort ríkið
stór eignaraðili eða einhver innbyrðis eigna-
tengsl á milli stærstu hluthafa og viðkomandi
banka.“
Ekki þurfi annað en líta til stærsta banka
Dana, Danske Bank, þar sem stærsti hluthaf-
inn sé stærsta fyrirtækjasamsteypa Danmerk-
ur, A.P. Møller Group. „Það er ljóst að útrás
okkar hefur vakið mikla athygli og kannski
ekki að furða, því að í upphafi þessa árs voru
örfá dönsk fyrirtæki að greiða okkur vaxtamun
en í lok þessa árs eru yfir 5.500 dönsk fyrirtæki
að greiða íslenskum banka vaxtamun,“ segir
hann.
Ekki fiskimarkaður
Að sögn Hreiðars Más hafa viðtökurnar ver-
ið sams konar á hinum Norðurlöndunum, t.d.
þegar bankinn hóf að fjárfesta í Svíþjóð fyrir
nokkrum misserum. Samtök smærri fjárfesta
þar í landi hefðu t.d. sagt að sænskur fjár-
málamarkaður væri ekki fiskimarkaður og Ís-
lendingar hefðu ekkert fram að færa. Umræð-
an þar í landi hefði hins vegar snúist til hins
betra. Í Bretlandi hafi umræða fjölmiðla um
útrás íslenskra fjármálastofnana og fyrirtækja
verið mun jákvæðari.
Baugshlutur til sölu
Berlingske Tidende birti síðan í gær viðtal
við Sigurð Einarsson, stjórnarformann KB
banka. Blaðið segir að Sigurður eigi sjálfur
hlutabréf í bankanum fyrir yfir 1.100 milljónir
íslenskra króna, en í viðtalinu vísar Sigurður
því á bug að vexti fyrirtækisins megi líkja við
vöxt tölvu- og tæknifyrirtækja í tæknibólunni
fyrir nokkrum árum.
Sagt er í greininni að verð hlutabréfa í KB
banka hafi vaxið með miklum hraða; tvöfaldast
í ár og er Sigurður beðinn um skýringu á því.
„Ástæða gengishækkunarinnar er auknar
tekjur. Gengi, innra virði og hagnaður sem
hlutfall af markaðsvirði skýra framvinduna,“
er haft eftir Sigurði og einnig að eiginfjárhlut-
fall bankans sé 16%, sem sé afar traust.
Sigurður er spurður út í tengsl KB banka og
Jóns Ásgeirs Jóhannessonar, sem hafi nýlega
keypt Magasin Nord í Kaupmannahöfn, þar
sem bankinn eigi yfir fimmtung í Baugi Group,
fyrirtæki Jóns Ásgeirs. „Þessi 22 prósenta
hlutur í Baugi var staða sem við tókum þegar
fyrirtækið var tekið af hlutabréfamarkaði.
Þessi hlutur er til sölu,“ segir Sigurður í við-
talinu. Hann undirstrikar að bankinn eigi ekki
fulltrúa í stjórn Baugs og komi ekki nálægt
rekstrinum.
Þá vísar Sigurður því á bug, að „köngulóar-
vefurinn“ í íslensku atvinnulífi, eins og blaðið
orðar það, þar sem hópur fyrirtækja eigi hlut
hvert í öðru, sé vandamál. Markmið KB banka
sé að fjárfesta í óskráðum fyrirtækjum og
selja bréfin eftir þrjú ár að jafnaði. „Þannig
eignir eru nú minna en eitt prósent af eignum
okkar. Það er talsvert minna en markmið okk-
ar, sem er á milli 3 og 5 prósent,“ er haft eftir
Sigurði.
Sigurður er sagður eiga hlutabréf í KB
banka fyrir yfir 1.100 milljónir króna og sam-
tals eigi 14 stjórnendur bankans hlutabréf að
virði 8.500 milljóna króna. Fullyrt er að slíkt
eigi ekki fordæmi í Danmörku. „Það þýðir
ekki að það sé rangt,“ svarar Sigurður. „Það
er rétt, að þetta er stór upphæð, en hafa ber í
huga, að fyrst þegar ég keypti hlutabréf í
bankanum, árið 2000, var gengi bréfanna ann-
að. Maður verður að skoða hvernig bankanum
hefur reitt af og hver þróunin hefur verið á
hlutabréfamarkaði síðan. Hefur þróunin orðið
þessi bara vegna þess að við höfum hallað okk-
ur aftur í stólnum og ekki aðhafst neitt? Eða
er það vegna þess að við höfum eitthvað að-
hafst, sem hefur leitt til þess að verðmæti
bankans hefur aukist?“ spyr Sigurður að lok-
um.
Forstjóri KB banka um umfjöllun danskra fjölmiðla
Dregin upp
alröng mynd
Morgunblaðið/Kristinn Ingvarsson
Vekja athygli Hreiðar Már Sigurðsson segir
að í lok árs greiði yfir 5.500 dönsk fyrirtæki
íslenskum banka vaxtamun.