Morgunblaðið - 07.12.2004, Qupperneq 19
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 7. DESEMBER 2004 19
ERLENT
STUÐNINGSMENNIRNIR dýrka
hana og dá, telja hana nánast goð-
um líka veru en andstæðingarnir
væna hana um lýðskrum og spill-
ingu. Júlía Tímosjenko er nú einn
þekktasti leiðtogi „Appelsínugulu
byltingarinnar“ í Úkraínu og marg-
ir telja að hennar bíði enn frekari
upphefð í stjórnmálum þar. Ýmis-
legt er hins vegar á huldu um feril
hennar og hún hefur verið sökuð
um að hafa makað krókinn ótæpi-
lega að hætti gjörspilltra úkr-
aínskra auðjöfra; mannanna sem
hún hefur barist gegn og uppskorið
alþýðuhylli fyrir.
Tímosjenko hefur verið áberandi
á undanliðnum vikum eða frá því að
stjórnarandstaðan í Úkraínu hóf
andóf til að mótmæla kosn-
ingasvikum í síðari umferð forseta-
kosninganna þar sem fram fóru í
liðnum mánuði. Hún hefur reynst
einn kröftugasti liðsmaður og mál-
svari Víktors Jústjenkos, leiðtoga
stjórnarandstöðunnar sem margir
telja að hafi í raun farið með sigur
af hólmi í síðari umferð kosning-
anna. Hún hefur talað til þúsunda
stuðningsmanna hans sem haldið
hafa til í miðbæ Kíev, höfuðborgar
Úkraínu, og svarið þess dýran eið
að láta ekki af mótmælum fyrr en
stjórnvöld hafi viðurkennt svikin.
Raunar munu vinsældir hennar
vera slíkar að hermt er að margir
vildu gjarnan að hún tæki við for-
setaembættinu. Hún er gjarnan
nefnd „gyðja byltingarinnar“ og til
marks um alþýðleika hennar er haft
að hár sitt greiði hún jafnan og
leggi að hætta úkraínskra bænda-
kvenna.
Verðandi forsætisráðherra?
Júlía Tímosjenko er ekki ný-
græðingur á sviði stjórnmála í
Úkraínu. Hún er 44 ára fædd í
Dniepropetrovsk í austurhluta
landsins árið 1960. Hún varð að-
stoðarforsætisráðherra á árunum
1999–2001 þegar Jústsjenko var
forsætisráðherra. Henni var þá fal-
ið, á grundvelli reynslu sinnar, að
blása til herfarar gegn hags-
munavörslu auðjöfra sem lagt höfðu
undir sig gjörvallan og gjörspilltan
orkugeirann í Úkraínu. Hermt er
að starf hennar hafi skilað andvirði
tveggja milljarða Bandaríkjadala í
ríkiskassann og veitti stjórnvöldum
ekki af þeim fjármunum.
Nú telja ýmsir að Tímosjenko
hyggist nýta sér vinsældir sínar og
hreppa sjálft forsætisráðherraemb-
ættið eftir sigur stjónarandstöð-
unnar í endurteknum forsetakosn-
ingum sem fram eiga að fara 26.
þessa mánaðar. Þar með gefist
henni tækifæri til að ná fram
hefndum og gera auðjöfrunum lífið
leitt.
Ekki er víst að leið hennar til
valda verði svo greið.
Gjörspilltur gasforstjóri?
Júlía Tímosjenko fór með orku-
mál í stjórn Jústsjenkos vegna sér-
þekkingar sinnar á þeim mála-
flokki. Á síðasta áratug liðinnar
aldar fór hún fyrir „Sameinaða
orkukerfinu“, helsta gasfyrirtæki
Úkraínu. Hún beitti sér fyrir ýms-
um breytingum á því sviði sem
flokkaðar voru sem „umbætur“ á
Vesturlöndum.
Hún er hins vegar sökuð um að
hafa misnotað aðstöðu sína og
hagnast gífurlega í þessu starfi.
Hermt er að árið 1996 hafi hagn-
aður sem svaraði til eins milljarðs
Bandaríkjadala „horfið“. Hún hefur
jafnan vísað ásökunum þessum á
bug og fjendur hennar hafa ekki
getað lagt fram óyggjandi sönn-
unargögn í þessu efni.
Ásakanirnar urðu til þess að
Leoníd Kútsma, fráfarandi forseti,
svipti hana embætti aðstoðarfor-
sætisráðherra árið 2001. Þá mynd-
aði Tímosjenko flokk á þingi lands-
ins og tók að beina spjótum sínum
mjög að forsetanum. Fullyrt er að á
milli þeirra tveggja ríki fullkomið
hatur.
Í febrúarmánuði 2001 var Júlía
Tímosjenko handtekin, sökuð um
spillingu. Ákærendur fullyrtu að
hún hefði sem stjórnandi gasfyr-
irtækisins mikla greitt Pavlo Laz-
arenko, annáluðu spillingartrölli,
alls andvirði 80 milljóna dollara í
mútur er sá var forsætisráðherra
Úkraínu á tíunda áratugnum. Að
auki var hún sökuð um pen-
ingaþvætti og að hafa misnotað að-
stöðu sína í starfi. Skömmu áður en
þetta gerðist hafði Júlía Tímosj-
enko hafið herferð í því skyni að
knýja Kútsma forseta til að segja af
sér á þeim forsendum að hann
tengdist morði á þekktum blaða-
manni, Georgíj Gongadze. Henni
var sleppt eftir stutta dvöl innan
fangelsismúra og ákæran var síðar
látin niður falla. Hins vegar dylst
engum að valdastéttin í Úkraínu
vill gjarnan ná sér niður á Júlíu
Tímosjenko og margvíslegar rann-
sóknir á framgöngu hennar í starfi
hafa verið hafnar.
Alþýðufylgið virkjað?
Almennt er litið svo á að Víktor
Jústsjenko sé heldur varfærinn
maður sem leita vilji sátta. Júlía
Tímosjenko er fulltrúi hins arms
stjórnarandstöðunnar, þeirra sem
telja að ekki komi til greina að fall-
ast á neinar tilslakanir í sam-
skiptum við stjórnvöld. Sumir ótt-
ast að stjórnarandstaðan komi til
með að klofna og víst þykir að Júlía
Tímosjenko njóti meira alþýðufylgis
en Jústsjenko. Hún er enda vænd
um ómerkilegt lýðskrum og oftar
en ekki hefur henni tekist að
kveikja í stjórnarandstæðingum á
fjöldafundum þeirra í fimbulkuld-
anum í Kíev á undanliðnum vikum.
Líkur eru á að hún hafi ekki sagt
sitt síðasta orð í stjórnmálum í
Úkraínu. Svo virðist sem alþýða
manna kæri sig kollótta um að hún
hafi eitt sinn fyllt flokk auðjöfranna
sem hún berst nú gegn.
Reuters
Júlía Tímosjenko í hópi aðdáenda í miðborg Kíev. Hún þykir alþýðleg í framgöngu og háttum þrátt fyrir að hafa
forðum verið gasforstjóri og, eftir því sem sagt er, hagnast gífurlega í því starfi. Valdastéttin í Úkraínu vænir hana
um lýðskrum en sagt er að hún hyggist nýta sér miklar vinsældir til frekari frama í úkraínskum stjórnmálum.
Lýðskrumari eða
byltingargyðja?
Trúlega er Júlía Tímosjenko vinsælust þeirra
sem nú fara fyrir stjórnarandstöðunni í Úkr-
aínu. Margir telja að hennar bíði enn aukin
áhrif í stjórnmálum landsins þrátt fyrir feril
sem virðast kann vafasamur.
’Nú telja ýmsir að Tím-osjenko hyggist nýta
sér vinsældir sínar og
hreppa sjálft forsætis-
ráðherraembættið.‘