Morgunblaðið - 07.12.2004, Page 22
22 ÞRIÐJUDAGUR 7. DESEMBER 2004 MORGUNBLAÐIÐ
MINNSTAÐUR
Stefnumótun | Stýrihópur um
starfsáætlanagerð fastanefnda hef-
ur lagt til að bæjarstjórn Akureyrar
geri sér áætlun um stefnumót-
unarvinnu á árinu 2005. Tillagan
gerir ráð fyrir að í janúar verði
fjallað um félagsmál og áfengis- og
vímuvarnamál, í febrúar um um-
hverfis-, skipulags- og nátt-
úruverndarmál, í mars um menning-
ar-, íþrótta- og tómstundamál, í apríl
um skólamál, í maí um fram-
kvæmdamál og í júní um stjórn-
sýslumál og jafnréttis- og fjöl-
skyldumál. Í september verði síðan
fjallað um stefnumörkun bæj-
arstjórnar í heild sem og stöðu mál-
efnasamnings meirihlutaflokkanna
en niðurstöður þeirrar umræðu liggi
til grundvallar fjárhagsáætlun fyrir
árið 2006. Tillagan var kynnt fyrir
bæjarráði 18. nóvember sl. Stjórn-
sýslunefnd leggur til við bæjarstjórn
að verklag við stefnumótun verði
með þeim hætti sem stýrihópurinn
leggur til.
Góð gjöf | Gjafasjóði Fjórðungs-
sjúkrahússins á Akureyri barst á
dögunum vegleg peningagjöf, ein
milljón króna, frá Álfdísi Sigurgeirs-
dóttur, Helluhrauni 6, Mývatnssveit.
Álfdís er fædd 1925 á Skinnastað í
Öxarfirði en átti lengst af heima á
Syðri-Neslöndum í Mývatnssveit.
Gjöfinni verður varið til kaupa á
lækningatækjum fyrir sjúkrahúsið,
segir í frétt á vef FSA.
Samhygð | Jólafundur Samhygð-
ar, samtaka um sorg og sorgarvið-
brögð, verður haldinn fimmtudaginn
9. desember kl. 20.30 í safnaðarsal
Akureyrarkirkju. Gestur fundarins
verður séra Hannes Blandon.
Sambúð og hjónabönd | Jóla-
fundur foreldrafélags samkyn-
hneigðra á Norðurlandi verður hald-
inn á Sigurhæðum fimmtudags-
kvöldið 9. desember kl. 20, en
fulltrúar stjórnar verða til viðtals frá
klukkan 19.30.
Sambúð og hjónabönd samkyn-
hneigðra, fjölskyldulíf þeirra, barn-
eignir og ættleiðingar verða til um-
fjöllunar á fundinum. Þeir sem eiga
ekki heimangengt en vilja fá að
fylgjast með starfinu og fá sendar
upplýsingar frá félaginu geta sent
tölvupóst á svp@internet.is.
MÆÐRASTYRKSNEFND á Akureyri fékk í gær
afhenta viðurkenningu jafnréttis- og fjölskyldu-
nefndar Akureyrar. „Allt starf Mæðrastyrks-
nefndar er unnið í sjálfboðavinnu, það fer ekki
mikið fyrir því, störfin eru unnin í hljóði, en það
mikla starf sem unnið er á vegum nefndarinnar
verður aldrei fullþakkað,“ sagði Gerður Jóns-
dóttir, formaður jafnréttis- og fjölskyldu-
nefndar. Hún sagði að nefndin hefði að þessu
sinni ákveðið að leggja áherslu á málefni fjöl-
skyldna, en áður hefðu viðurkenningar verið
veittar á sviði jafnréttismála. Með auknu og
breyttu hlutverki nefndarinnar sagði Gerður að
nú hefði þótt við hæfi að beina sjónum sér-
staklega að fjölskyldumálefnum. Leitað var til-
nefninga en til greina kom að veita viðurkenn-
inguna fyrirtæki sem hefði sérstaka stefnu í
fjölskyldumálum, félagasamtökum sem vinna
sérstaklega að málefnum fjölskyldna, hafa stutt
þær eða láta sig málefni þeirra varða og ein-
staklingum sem skarað hefðu framúr í vinnu að
málefnum fjölskyldna. Jafnréttis- og fjöl-
skyldunefnd ákvað svo eftir að hafa farið yfir til-
nefningar að veita Mæðrastyrksnefnd bæjarins
viðurkenninguna í ár. Nefndin hefur starfað á
Akureyri í um 70 ár, en tilgangur hennar er að
styrkja efnalitlar fjölskyldur. Um 300 fjöl-
skyldur fá styrk frá nefndinni árlega, fyrir jólin
m.a. með matar- og peningagjöfum. Starf nefnd-
arinnar er nú að hefjast að sögn Jónu Bertu
Jónsdóttur, formanns hennar, „og ég hef enga
trú á að minna verði hjá okkur nú en í fyrra“,
sagði hún. Gerður afhenti Jónu Bertu þar til gert
viðurkenningarskjal og peninga í umslagi, van-
inn er að færa viðtakendum listaverk við tilefni
af þessu tagi, „en af sinni alkunnu hógværð af-
þakkaði nefndin allt slíkt og fær því andvirði
listaverksins að gjöf þess í stað“. „Og það mun
renna beint til okkar skjólstæðinga,“ sagði Jóna
Berta.
Mæðrastyrksnefnd fær viðurkenningu jafnréttis- og fjölskyldunefndar
Morgunblaðið/Kristján
Viðurkenning Fulltrúar Mæðrastyrksnefndar Akureyrar og jafnréttis- og fjölskyldunefndar, f.v.
Inga Ellertsdóttir, Fjóla Guðjónsdóttir, Siggerður Tryggvadóttir, Björg Hansen, Jóna Berta Jóns-
dóttir, Gerður Jónsdóttir og Tryggvi Gunnarsson.
Vinna verk
sín í hljóði
BÆJARSTJÓRN Dalvíkur hefur
samþykkt að skipa þriggja manna
vinnuhóp til að útfæra nánari gögn
varðandi framtíðarskipan grunn-
skólamála í Dalvíkurbyggð. Í hópn-
um eru Valdimar Bragason, Arn-
grímur V. Baldursson og Kolbrún
Reynisdóttir.
Í tillögu Valdimars Bragasonar
bæjarstjóra kemur fram að skóla-
málafulltrúi muni vinna með hópnum
auk skólastjóra grunnskólanna eftir
því sem þurfa þykir og þá mun hóp-
urinn hafa samráð við fræðsluráð,
foreldraráð allra grunnskólanna og
leita að auki upplýsinga frá starfs-
mönnum skólanna. „Hópnum er ætl-
að að leita leiða til að ná fram bestu
nýtingu á þeim fjármunum sem varið
er til grunnskólarekstrar en jafn-
framt að kappkosta að rekið verði
faglega öflugt skólastarf sem tryggi
öllum nemendum tækifæri til árang-
urs,“ segir í tillögunni. Þá segir enn-
fremur að hópurinn skuli kynna sér
þá möguleika sem fyrir hendir eru
varðandi fyrirkomulag skólahaldsins
og leggja fram gögn sem sýna mögu-
legan ávinning og þá ókosti sem
kunna að vera á tilteknum leiðum.
Einnig er hópnum falið að afla upp-
lýsinga um viðhorf foreldra og íbúa
til mögulegra lausna. Áliti sínu á
hópurinn að skila til bæjarstjórnar
fyrir 31. janúar 2005. Bæjarráði var
falið að skipa í vinnuhópinn.
Fulltrúar I-lista bókuðu á fundin-
um að þeir geti ekki stutt tillöguna
þar sem þeir telji tímann sem hópn-
um er ætlaður til starfa of stuttan,
„og óvissu um skólahalda á Húsa-
bakka er ekki eytt með framlagn-
ingu hennar.“ Þeir segja tillöguna
viðhalda því óvissuástandi og óró-
leika sem íbúar sveitarfélagsins hafi
búið við að undanförnu varðandi
skólamál „og teljum að verið sé að
slá ryki í augu fólks með framlagn-
ingu hennar og að ákvörðun um að
leggja niður skólahald á Húsabakka
hafi þegar verið tekin af núverandi
meirihluta.“ Leggja þeir til að skip-
aður verði breiður vinnuhópur til að
fara yfir skólamál í byggðarlaginu,
allt frá leikskóla til fullorðinsfræðslu
og framhaldsskóla við utanverðan
Eyjafjörð og mörkuð verði mennta-
stefna fyrir sveitarfélagið. Í tilefni af
þessari bókun minnihlutans lagði
Valdimar ásamt Svanhildi Árnadótt-
ur fram bókun þar sem segir að það
sé misskilningur að þegar sé búið að
taka ákvörðun um lokun Húsa-
bakkaskóla.
Vinnuhópur fer yfir framtíðarskipan skólamála í Dalvíkurbyggð
Reynt verði að ná sem
bestri nýtingu fjármuna
MIKIL hálka hefur verið á Akureyri undanfarna daga
og hafa gangandi vegfarendur ekki farið varhluta af
því, enda mörgum orðið hált á svellinu. Starfsmenn
bæjarins hafa verið duglegir að bera sand á helstu
gönguleiðir en það hefur ekki dugað til. Starfsfólk á
slysadeild Fjórðungssjúkrahússins hefur haft í nógu að
snúast, því þangað hefur fjöldi fólks á öllum aldri þurft
að leita til aðhlynningar. Að sögn Ara H. Ólafssonar,
yfirlæknis á bæklunardeild, hafa ansi margir komið á
slysadeildina, bæði yngri og fullorðnir, sem hafa dottið
og nokkrir þeirra brotnað illa. „Það er mikið um að
fólk hafi snúið í sundur ökkla og slitið liðbönd og marg-
ir hafa hlotið minni háttar áverka.“ Ari sagði að fólk í
nágrannabyggðum Akureyrar og jafnvel austan af
fjörðum hefði einnig leitað á slysadeildina vegna hálku-
slysa.
Morgunblaðið/Kristján
Mörgum orðið hált á svellinu
AKUREYRI