Morgunblaðið - 07.12.2004, Qupperneq 26
26 ÞRIÐJUDAGUR 7. DESEMBER 2004 MORGUNBLAÐIÐ
DAGLEGT LÍF
Suðurveri • Glæsibæ • Húsgagnahöllinni • Mjódd
Gómsætar kynningar
alla daga
fram að jólum í Mjódd • S: 557 9060
Jólavörurnar komnar
Frábærir Ítalskir
götuskór með
dempun í hæl
fyrir dömur og
herra
Ekta leður
Skóbúðin Mjódd
sími 557-1291
Mikið úrval af úrum
frá FOSSIL
verð frá 6.900.-
í Mjódd
S: 567 3550
Á
leikskólanum Seljaborg
við Tungusel í Reykja-
vík hafa nú verið inn-
leiddir sérstakir skóla-
búningar, sem
samanstanda af bláum jogging-
buxum, rauðum bómullarpeysum og
rauðum flísjökkum. Framtak þetta
er samvinna skólans og
foreldranna. Eftir nokk-
urra vikna reynslu af
skólabúningunum telur
starfsfólk Seljaborgar að
stigið hafi verið mikið
framfaraskref í þróun
skólastarfsins með inn-
leiðingu búninganna, en
helstu rök með þeim eru þau að
jafna aðstöðumun nemenda, minnka
samkeppni og koma í veg fyrir vin-
sældakeppnir, styðja börnin til
sjálfshjálpar, ýta undir að ein-
staklingurinn njóti sín án umbúða
þar sem andlitið einkennir barnið en
ekki fatnaðurinn, efla andann og
skapa liðsheild, spara ágreining for-
eldra og barna á morgnana og spara
slit á öðrum fatnaði.
Skólabúningarnir voru á hinn
bóginn ekki tilviljunum háðir því
Seljaborg hefur frá árinu 2001 unnið
eftir Hjallastefnu Margrétar Pálu
Ólafsdóttur.
Það var einmitt
frumkvöðlastarf Hjalla-
stefnunnar að innleiða
skólabúninga hér á
landi, en nærri lætur að
um 15 leikskólar víðs-
vegar um landið starfi
nú eftir stefnunni, sem
reynst hefur frábært og
gagnlegt áhald til að vinna eftir
enda bæði skapandi og mannbæt-
andi, segja þær Ágústa Amalía
Friðriksdóttir leikskólastjóri og
Jensína Edda Hermannsdóttir að-
stoðarleikskólastjóri á Seljaborg
þegar Daglegt líf brá sér í heimsókn
í skólann á dögunum.
Fimm karlar í starfi
Ágústa tók við Seljaborg í árs-
byrjun 2001 og fékk Jensínu, sem er
Hjallaleikskólakennari, til liðs við
sig eftir að óskað hafði verið eftir
því við Leikskóla Reykjavíkur að
innleiða „hjallísk“ vinnubrögð.
Ágústa hringdi sömuleiðis í alla þá
karlleikskólakennara, sem hún hafði
spurnir af að væru að útskrifast, og
af þeim tíu hópstjórum, sem starfa
nú inni á deildum, eru fimm karl-
menn eða helmingurinn og allir fag-
lærðir, nema einn sem er nemi í
KHÍ, sem hlýtur að teljast eins-
dæmi.
„Þessi ofuráhersla mín á að fá
karlmennn í vinnu í bland við kon-
urnar lýtur svo sem ekki að Hjalla-
stefnunni beint þótt færa megi rök
fyrir því að karlmenn falli vel að
áherslum stefnunnar. Ég get bara
ekki hugsað mér að starfa eingöngu
í kvennaumhverfi vegna þeirrar
staðreyndar að á kvennavinnustöð-
um skapast allt önnur menning en á
blönduðum vinnustöðum. Umræðu-
efnin eru á annars konar plani auk
þess sem starfsmannahópurinn í
heild vinnur markvisst með heilindi.
Þetta er flottur og samstilltur
jafningjahópur sem staðið hefur
þétt saman að þróun skólans og ver-
ið einbeittur í æfingunni. Við göng-
um í allt eins og einn maður og er-
um á gólfinu með börnunum á
meðan þau eru hér. Viðvera hóp-
stjóra er mjög mikilvæg. Fundi
SELJABORG | Leikskólabörnin eru öll komin í skólabúninga, buxur, bómullarboli og flísjakka
Gleðin er svo
mikilvæg
Margvísleg rök eru fyrir innleiðingu skólabúninga,
að mati leikskólakennara á Seljaborg, sem merkja
jákvæðan tón eftir nokkurra vikna reynslu.
Jóhanna Ingvarsdóttir heimsótti krakka og kenn-
ara á Seljaborg, þar sem gert er út á jafnréttið í
sinni víðustu mynd í anda „hjallískra“ fræða.
Morgunblaðið/Einar Falur
Hjallastefnan er jafnréttisstefna þar sem aðalsmerki hvers kennara er jákvæðni, segja þær Ágústa Amalía Frið-
riksdóttir leikskólastjóri og Jensína Edda Hermannsdóttir aðstoðarleikskólastjóri.
„Hér eru engin
hefðbundin
leikföng til að
dunda sér með,
hvorki dúkkur
né bílar.“