Morgunblaðið - 07.12.2004, Síða 39
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 7. DESEMBER 2004 39
MINNINGAR
arstjóra til andlegrar uppörvunar,
hvatningar og hressingar. Hann var
ekki síður vinsæll meðal starfs-
manna, sem sanngjarn yfirmaður,
góður félagi og fyrirmynd. Hann
hreif fólk og átt lykilþátt í því að
skapa góðan starfsanda og liðsheild.
Það er líka eftir því tekið hversu
margir starfsmenn eru farnir að
yrkja góðar vísur og bakka í bíla-
stæði. Ég gat ekki kosið mér betri
yfirmann. Hann var alltaf til staðar
þegar á þurfti að halda. Rekstur
sveitarfélagsins var alltaf efst á
baugi þegar við ræddum saman,
gjarnan fagleg mál sem kölluðu á
skjóta ákvörðun. En svo átti Sigurð-
ur það til að hressa mann við, með
því að hnýta einhverju alls óskyldu
léttmeti við faglegu málin, svona í
lokin. Það gátu verið ráðleggingar
um kveðskap, langhlaup eða hvernig
best væri að þétta birkikvistinn í
garðinum heima. Þetta var viðræðu-
stíll sem Sigurður tamdi sér og ég
kunni að meta. Þannig lauk samtal-
inu alltaf á léttu nótunum, með vin-
semd og virðingu. Og þannig lauk
okkar síðasta fundi, fyrir ári, þegar
ég kvaddi hann og fluttist tímabund-
ið búferlum úr Kópavoginum. Nú er
ég á leið til baka og kvíði því, hversu
tómlegt verður án Sigurðar. Sigurð-
ar Geirdals verður sárt saknað á
bæjarskrifstofunum. Ég sendi eigin-
konu hans og börnum mínar innileg-
ustu samúðarkveðjur.
Ólafur Briem bæjarritari.
Það var bjart yfir að líta en kalt í
lofti þegar við Sigurður Geirdal
kvöddumst að loknum stjórnarfundi
hjá Slökkviliði höfuðborgarsvæðis-
ins. Í lok vinnuviku voru lögð á ráðin
um næstu verkefni og mögulegt
samstarf og samvinnu á ýmsum svið-
um. Þau mál yrðu rædd nánar í
næstu viku. Sú vika varð strangari
en aðrar hjá Sigurði Geirdal, þar
sem mætur og góður maður kvaddi á
óvæntan og sáran hátt.
Rætur Sigurðar Geirdals sem fé-
lagsmálamanns lágu í Ungmenna-
félagi Íslands og kjörorð og hugsjón
þeirra samtaka, ræktun lands og
lýðs, hefur án efa nýst honum vel í
starfi sem bæjarstjóri í næststærsta
sveitarfélagi landsins.
Sigurður kom til starfa sem bæj-
arstjóri í Kópavogi 1990 og var því
með mesta starfsreynslu fram-
kvæmdastjóra sveitarfélaga á höfuð-
borgarsvæðinu þegar hann lést. Það
var okkur sem störfuðum með hon-
um á þeim vettvangi sem og á vett-
vangi SSH mikill styrkur að eiga ráð
hans og þekkingu ætíð vísa og fús-
lega veitta.
Kópavogur var og er ört vaxandi
sveitarfélag sem kallar að sjálfsögðu
á styrka forystu. Ákvarðanir kunna
að orka tvímælis þá teknar eru en
hvorki samherjum né andstæðingum
Sigurðar Geirdals gat blandast hug-
ur um einlægan vilja hans til góðra
verka eða hæfni hans til að hrinda
málum í framkvæmd að yfirveguðu
ráði.
Sigurður var forystumaður í hópi
sveitarstjórnarmanna á landsvísu.
Hann átti jafnframt lengi sæti í
stjórn Samtaka sveitarfélaga á höf-
uðborgarsvæðinu og sat þar sem for-
maður allt fram á nýliðinn mánuð.
Fyrir hönd stjórnar SSH er þakkað
mikilsvert starf og hvatning til auk-
ins samstarfs og samvinnu sem hef-
ur skilað góðum árangri.
Samstarf Hafnarfjarðarbæjar og
Kópavogs hefur verið vaxandi og
með miklum heilindum á umliðnum
árum. Þar hefur skipt miklu góður
hugur og vilji Sigurðar Geirdals.
Fyrir hönd Hafnarfjarðarbæjar eru
þau góðu samskipti þökkuð um leið
og við minnumst með hlýjum hug og
sárum söknuði minnisstæðs félaga
og vinar og færum fjölskyldu hans
hugheilar samúðarkveðjur.
Lúðvík Geirsson, bæjarstjóri.
Kær vinur okkar hjóna, Sigurður
Geirdal bæjarstjóri í Kópavogi, lést
á hjartadeild Landspítalans 28. nóv-
ember sl. Er hans sárt saknað af
mörgum.
Minningar hrannast upp, og allar
minningar um Sigurð eru góðar.
Hann var ljúflingur, léttur í lund og
bjó yfir ríku skopskyni. Það sem þó
einkenndi hann öllu öðru fremur var,
að hann var mannasættir. Með
stuttri gamansögu eða snjallri at-
hugasemd gat hann slegið á
spennuna á erfiðustu stundum.
Hann kunni að greina kjarnann frá
hisminu og eyddi ekki tíma í auka-
atriði.
Sigurður var farsæll maður bæði í
einkalífi og starfi. Sem bæjarstjóri í
Kópavogi var hann í forystu á mesta
framfaraskeiði í sögu bæjarfélags-
ins. Hann átti auðvelt með að laða
fólk til samstarfs við sig, og þeir eðl-
iskostir nýttust í störfum fyrir Kópa-
vogsbúa og í öðrum störfum sem
hann gegndi.
Aðrir munu vísast verða til að
rekja æviferil og störf Sigurðar. Við
viljum aðeins minnast góðs drengs
og þakka samskiptin við hann. Við
sendum Ólafíu konu hans og öðrum
ástvinum innilegar samúðarkveðjur.
Hólmfríður Gestsdóttir
og Jón Skaftason.
Sigurður Geirdal var kappsamur í
öllu því sem hann tók sér fyrir hend-
ur en jafnframt glöggur og glaðlynd-
ur. Við minnumst kynna við hann
fyrir norðan, hjá UMFÍ og núna síð-
ast þau 14 ár sem hann hefur verið
bæjarstjóri í Kópavogi. Jafnframt
var hann um skeið formaður Sam-
taka sveitarfélaga á höfuðborgar-
svæðinu. Samskipti okkar við Sigurð
voru nánust á ýmsum vettvangi
sveitarfélaganna og Sambands ís-
lenskra sveitarfélaga eftir að hann
varð bæjarstjóri í Kópavogi árið
1990. Á þeim vettvangi var hann til-
lögugóður og fylginn sér í málflutn-
ingi.
Íbúum Kópavogs fjölgaði úr um
16.000 í 25.000 í bæjarstjóratíð Sig-
urðar og því fylgdi gríðarleg upp-
bygging á öllum sviðum. Kapp hans
og aðrir hæfileikar nýttust vel í
ábyrgðarmiklu og erilsömu starfi
bæjarstjórans. Hann hafði góða yf-
irsýn yfir fjölþætta starfsemi, stýrði
framþróun bæjarfélagsins farsæl-
lega og naut vinsælda meðal íbú-
anna. Við minnumst leiðsagnar hans
um Kópavoginn, um nýbygginga-
svæði og eldri byggð, Salinn og
Gerðarsafn. Þar fór stoltur bæjar-
stjóri og það mátti hann líka vera.
Fyrir norðan lék Sigurður í dans-
hljómsveit, iðkaði íþróttir og hann
var liðtækur í vísna- og ljóðagerð.
Hann var ferðaglaður hvort sem var
í hópi bæjarstjóra eða meðal eyjar-
skeggja í Eyjahafinu, sem þau hjón
margsinnis heimsóttu. Nýverið
höfðu þau keypt sér hús á Kirkju-
bæjarklaustri og innan tíðar hefði
hann getað notið þar rólegri daga og
sinnt fjölþættum áhugamálum. Þess
í stað var atorkusami félagsmála-
maðurinn burt kallaður allt of fljótt.
Við kveðjum Sigurð Geirdal með
hlýhug og virðingu og sendum Ólaf-
íu, börnunum og öðrum aðstandend-
um innilegar samúðarkveðjur.
Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson,
Þórður Skúlason.
Góður vinur og einn öflugasti fé-
lagi sem ungmennafélagshreyfingin
hefur eignast í tæplega hundrað ára
sögu UMFÍ er allur. Fregnin um al-
varlegt hjartaáfall Sigurðar Geirdals
og síðar andlát hans kom óvænt. Að-
eins nokkrir dagar eru síðan hann
kom í þjónustumiðstöð UMFÍ og fór
yfir stöðu ungmennafélagsmála og
lét hugann reika inn í framtíðina.
Engan óraði fyrir því að örfáum dög-
um síðar yrði hann allur og að eftir
sæti stór hópur vina og vandamanna
sem spyr: Hvernig gat þetta gerst?
Maður sem er stöðugt á ferðinni,
leysir mál og leggur á ráðin fyrir
aðra, er hrókur alls fagnaðar og gef-
ur allt í starf sitt til að ná árangri og
nær honum. Hann á ekki að geta far-
ið svo fljótt.
Sigurður Geirdal var fram-
kvæmdastjóri UMFÍ frá 1970 til
1986. Við hlið Hafsteins Þorvalds-
sonar, þáverandi formanns UMFÍ
hófu þeir félagarnir endurreisnar-
starf af miklum eldmóði. Fóru þeir
vítt og breitt um landið og fengu
menn í lið með sér. Þúsundir félaga
streymdu inn í hreyfinguna og starf-
ið var eflt. Miklir uppgangstímar
voru á þessum árum sem við búum
enn að.
Þegar farið er yfir störf Sigurðar
innan ungmennafélagshreyfingar-
innar er af mörgu að taka. Við hlið
Hafsteins formanns var unnið að
stofnun Félagsmálaskóla UMFÍ og
Skinfaxi, málgagn hreyfingarinnar,
var stækkaður að umfangi. Allt starf
ungmennafélaga og héraðssam-
banda var eflt. Þrastaskógur var
gerður aðgengilegur öllum, m.a. með
uppbyggingu leikvallar inni í skóg-
inum og byggingu Þrastarlundar. Á
70 ára afmæli UMFÍ var gefin út
saga hreyfingarinnar í bókarformi.
Samtökin fengu sitt eigið húsnæði í
fyrsta sinn og um leið voru tengsl við
önnur samtök efld bæði innan lands
og utan. Listinn er langur og verk-
efnin voru stór.
Að leiðarlokum vill ungmenna-
félagshreyfingin þakka Sigurði Geir-
dal störf hans í þágu ungs fólks á Ís-
landi. Það er ljóst að ekki er einungis
genginn góður vinur, heldur er fall-
inn frá hugsjónamaður af bestu gerð
sem margir eiga eftir að sakna sárt
því skarðið er stórt.
Ég vil fyrir hönd starfsfólks og
stjórnar UMFÍ, senda Ólafíu og öll-
um aðstandendum okkar innilegustu
samúðarkveðjur.
Björn Bjarndal Jónsson,
formaður UMFÍ.
Það sló þögn á okkur Blika þegar
þau tíðindi bárust að vinur og okkar
heiðursfélagi, Sigurður Geirdal bæj-
arstjóri, hefði fallið frá. Það voru
ekki nema nokkrir dagar liðnir frá
því að hann mætti kátur og hress
með lið bæjarstjórnar til að etja
kappi í vináttuleik í knattspyrnu við
stjörnulið Breiðabliks í tilefni af tíu
ára afmæli íþróttahússins Smára.
Eins og venjulega fór bæjarstjórinn
þar fremstur í flokki enda gamall af-
Símar 581 3300 - 896 8242
Allan sólarhringinn - Áratuga reynsla
Suðurhlíð 35 — Fossvogi — www.utforin.is
Sverrir
Olsen,
útfararstjóri.
Sverrir
Einarsson,
útfararstjóri.
Bryndís
Valbjarnardóttir,
útfararstjóri.
Baldur
Frederiksen,
útfararstjóri.
Guðmundur Þór
Gíslason,
útfararstjóri.
ÚTFARARSTOFA ÍSLANDS
Minningarkort
Krabbameinsfélagsins
540 1990
krabb.is/minning
JÓNAS GUÐJÓNSSON
fyrrv. kennari
við Laugarnesskóla,
andaðist á Hrafnistu, Reykjavík, laugardaginn
4. desember.
Ingibjörg Björnsdóttir,
Ragnar Jónasson, Eva Örnólfsdóttir,
Björn H. Jónasson, Guðrún Þóroddsdóttir.
Elskulegur faðir okkar, tengdafaðir, afi, langafi
og langalangafi,
GUÐMUNDUR L. FRIÐFINNSSON
rithöfundur og bóndi,
Egilsá, Skagafirði,
andaðist á Heilbrigðisstofnun Sauðárkróks
laugardaginn 4. desember.
Jarðarför auglýst síðar.
Kristín Guðmundsdóttir, Hilmar Jónsson,
Sigurlaug Guðmundsdóttir Rósinkranz,
Sigurbjörg L. Guðmundsdóttir, Þór Snorrason,
Birgir G. Ottósson, Sólveig Pálsdóttir,
Anna M. Guðmundsdóttir, Sigurður Sigurðarson,
afabörn, langafabörn og
langalangafabörn.
Einlægar þakkir sendum við öllum er sýndu
okkur samúð og vinarhug við andlát og útför
SÓLBORGAR JÚLÍUSDÓTTUR,
áður til heimilis
á Hörpugötu 4,
Reykjavík.
Einnig þökkum við öllu starfsfólki á hjúkrunar-
heimilinu Grund fyrir góða umönnun.
Jens G. Guðmundsson,
Júlíus Óskarsson, Þorgerður Jónsdóttir,
Sigurður Óskarsson, Málfríður Björnsdóttir,
Trausti Óskarsson, Sólveig Ívarsdóttir,
Jóhann Óskarsson, Ragnheiður Davíðsdóttir,
Jón Óskarsson, Erla Hálfdánardóttir,
Jens Óskarsson, Íris Helgadóttir
og fjölskyldur þeirra.
Okkar ástkæra eiginkona, móðir, tengda-
móðir, amma og langamma,
ANNA PÁLÍNA SIGURÐARDÓTTIR,
Hraunbúðum,
Vestmannaeyjum,
áður Hásteinsvegi 64,
lést á Heilbrigðisstofnun Vestmannaeyja
sunnudaginn 5. desember.
Útför hennar fer fram frá Landakirkju laugardaginn 11. desember kl. 14:00
Guðlaugur Guðjónsson,
Inga Hrönn Guðlaugsdóttir, Birkir Agnarsson,
Guðrún Guðlaugsdóttir, Henrý Henrikssen,
Sigríður Guðlaugsdóttir, Sigurgeir Þór Sigurðsson,
Guðjón Guðlaugsson, Helga Katrín Sveinbjörnsdóttir
og ömmubörnin.
Elskulegur eiginmaður minn, faðir okkar,
tengdafaðir, afi og langafi,
KRISTMANN JÓNSSON,
Strandgötu 21a,
Eskifirði,
lést á Heilbrigðisstofnun Austurlands, Seyðis-
firði, laugardaginn 4. desember.
Arnheiður Klausen,
Sólveig Kristmannsdóttir, Árni Þ. Helgason,
Alrún Kristmannsdóttir, Gísli Benediktsson,
Herdís Kristmannsdóttir, Páll S. Grétarsson,
Guðrún Kristmannsdóttir, Gungör Tamzok,
Kristmann Kristmannsson, Hólmfríður Hilmarsdóttir,
Þorgeir Heiðar Kristmannsson, Drífa Jóna Kristjánsdóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.
Minningarkort
Hjartaverndar
535 1825
Gíró- og greiðslukortaþjónusta