Morgunblaðið - 07.12.2004, Side 44
Helgi Ólafsson
sigrar í Ólafsvík
Fjöldi ungmenna tók þátt í skákmótinu í Ólafsvík.
ÞAÐ voru galvaskir skákmenn
sem mættu á BSÍ um tíuleytið laug-
ardagsmorguninn 4. desember sl. en
þaðan var förinni heitið í Snæfellsbæ
til að taka þátt í skákmóti sem Tafl-
félag Snæfellsbæjar stóð fyrir til
minningar um Ottó Árnason. Á dag-
inn kom að rútan sem átti að fara
með var of lítil þar eð skákmenn
voru of margir. Þegar rútan var
komin smáspöl frá BSÍ til þess að fá
nýja slíka kom Björn nokkur Þor-
finnsson hlaupandi frá Umferðar-
miðstöðinni eins og hann ætti lífið að
leysa og rétt náði rútunni. Svo var
skipt um ökutæki en einn skákmað-
ur sem hafði sofið yfir sig fékk far
alla leið í Borgarnes til að ná í skottið
á hópferðabifreiðinni. Góður andi
sveif yfir vötnum og glatt var á
hjalla. Upp úr hádegi var komið á
áfangastað en það reyndist vera fé-
lagsheimilið í Ólafsvík en ekki það á
Hellissandi eins og auglýst hafði ver-
ið. Vel var tekið á móti aðkomu-
mönnum en í hópi þeirra voru mörg
börn og unglingar sem tefla fyrir
Skákfélagið Hrókinn, en það félag
hefur hjálpað taflfélaginu fyrir vest-
an að halda samskonar mót tvö und-
anfarin ár. Forsprakki taflfélagsins
þar, Tryggvi Leifur Óttarsson, hélt
stutta tölu og eftir söng þriggja með-
lima kirkjukórs staðarins hélt Sturla
Böðvarsson samgönguráðherra
ræðu og setti mótið. Í máli hans voru
nokkrar skemmtilegar sögur sagðar
af Ottó en hann var aðaldriffjöður
bæjarins í félagsmálum í marga ára-
tugi. Hann hélt skák að ungviðinu og
sá m.a. um kvikmyndahús bæjarins.
Eitt sinn, þegar Friðrik og Larsen
áttust við í einvígi um Norðurlanda-
meistaratitilinn árið 1955, var sem
oftar bíósýning í Ólafsvík. Þegar
fregnir bárust af sigri Friðriks í
einni einvígisskákanna stöðvaði Ottó
sýninguna og kallaði hátt og skýrt:
„Friðrik vann!“ Nokkurn tíma tók að
koma mótinu af stað en eftir að það
hófst gekk það eins og smurð vél
undir öruggri stjórn Ólafs S. Ás-
grímssonar. Það hefur aldrei verið
jafn fjölmennt og nú en alls tóku 69
skákmenn þátt í því. Í fyrstu fjórum
umferðunum voru tefldar sjö mín-
útna skákir og höfðu þá Hannes Hlíf-
ar Stefánsson og undirritaður einir
keppenda fullt hús vinninga. Þeir
mættust þá í fimmtu umferð en þá
urðu tímamörkin tuttugu mínútur á
hvorn keppanda.
Hvítt: Helgi Áss Grétarsson
Svart: Hannes Hlífar Stefánsson
1. c4 Rf6 2. g3 c6 3. Bg2 d5 4. Rf3
dxc4 5. a4 Be6 6. Ra3 Bd5 7. Dc2 e5
8. Rxc4 e4 9. Rg5 Ra6 10. 0–0 Be7
11. b3 Rc5 12. Bb2 h6 13. Rh3 0–0
14. Rf4 Hc8?
Eftir óvenjulega byrjun hafa línur
skýrst en baráttan snýst aðallega
um hvort svörtum tekst að halda
þeirri pressu sem hann hefur á mið-
borðinu. Textaleikurinn er slæmur
þar sem nú tekst hvítum að virkja
hvítreita biskup sinn með leikvinn-
ingi.
Sjá Stöðumynd 1
15. Bh3! Hb8 16. b4! Rxa4?!
Það var freistandi að leika þessu
en gengur ekki alveg upp. 16. … Ra6
hefði verið betra.
17. Be5! Ha8 18. Ra5
18. Hxa4 hefði verið vel svarað að
með 18. … b5
18... b5 19. Rxc6 Bxc6 20. Dxc6 a6
21. Hab1!
Hvítur hefur mun rýmra tafl og
biskupar hans vinna vel saman.
Svartur freistast nú til að taka peð
en það reynist eitrað í meira lagi.
Sjá Stöðumynd 2
21. … Dxd2?? 22. Hfd1 Da2 23.
Ha1 Db3 24. Hdb1 og svartur gafst
upp þar eð annaðhvort fellur drottn-
ingin hans eða hann verður manni
undir eftir 24. … Dc4 25. Dxc4 bxc4
26. Hxa4. Þetta þýddi að greinarhöf-
undur var kominn með vinningsfor-
skot á keppinauta sína þegar fimm
umferðum var lokið af átta. Alkunna
Helgi Ólafsson í skák sinni gegn Hannesi Hlífari.
SKÁK
Taflfélag Snæfellsbæjar
3. Minningarmót Ottós Árnasonar
4. desember 2004
44 ÞRIÐJUDAGUR 7. DESEMBER 2004 MORGUNBLAÐIÐ
MINNINGAR
Einar Arnórsson
vélaverkfræðingur
stofnaði ásamt þremur
félögum sínum verk-
fræðistofuna Fjarhitun
árið 1962. Starfaði hann
á verkfræðistofunni óslitið í 30 ár eða
þar til hann lét af störfum vegna ald-
urs árið 1992.
Þegar verkfræðistofan Fjarhitun
var stofnuð náði hitaveitan í Reykja-
vík inn að Snorrabraut, en flest hús
þar fyrir austan voru olíukynt.
Fyrsta verkefni verkfræðistofunnar
var að hanna stækkun hitaveitukerf-
isins. Einar var eini vélaverkfræðing-
ur fyrirtækisins á fyrstu árunum og
lagði hann allar meginlínur að upp-
byggingu kerfisins og annaðist hönn-
un dælu- og stjórnstöðva þess. Allan
tímann sem Einar starfaði hjá Fjar-
hitun var hann leiðandi í hönnun hita-
veitukerfa sem stofan tók að sér og
má þar nefna auk hitaveitunnar í
Reykjavík, Hitaveitu Suðurnesja,
Húsavíkur, Blönduóss og Hvamms-
tanga svo dæmi séu tekin. Jafnframt
því að leggja grunn að hönnun veitu-
kerfa miðlaði Einar af þekkingu sinni
til yngri starfsmanna og lagði þannig
grunn að þeirri þekkingu sem verk-
fræðistofan býr nú yfir á þessu sviði.
Einar Arnórsson var ekki aðeins
góður fagmaður, hann var einnig
góður vinnufélagi og mikill húmor-
isti. Þó Einar hafi hætt störfum fyrir
12 árum er enn í dag oft vitnað í
fleygar setningar sem hann lét falla
við ýmis tækifæri bæði í leik og
starfi. Einar var mikill unnandi góðr-
ar listar. Sjáfur var hann afkastamik-
ill málari og prýða margar myndir
hans veggi fyrirtækisins og þekking
hans á íslenskri ljóðlist var annáluð.
Stjórn og starfsmenn Fjarhitunar
hf. þakka Einari langt og farsælt
samstarf og votta eftirlifandi konu
hans Inger og börnum þeirra innileg-
ustu samúð.
Sigþór Jóhannesson.
Við sem aldur hefur færst yfir
sjáum að samferðafólki okkar fækk-
ar smám saman. Það hverfur af vett-
vangi lífsins ýmist að degi eða nóttu,
eftir aðdraganda eða nánast fyrir-
varalaust. Ungur má en gamall skal,
segir gamalt orðtæki um dauðans
óvissa tíma. Nú hefur horfið af lífs-
sviðinu Einar Arnórsson verkfræð-
ingur, vinur okkar um tugi ára. Fyr-
irvaralítil var brottför hans, þó að
heilsa hefði látið undan síga seinni ár-
in, eins og oft vill verða með hækk-
andi aldri. Við höfum átt margar
ánægju- og samverustundir með
Einari og konu hans Inger, sem nú
lifir mann sinn. Gestrisni þeirra var
EINAR
ARNÓRSSON
✝ Einar Arnórssonfæddist á Tind-
um í Geiradalshreppi
í A-Barð. 27. maí
1921. Hann lést á
heimili sínu 27. nóv-
ember síðastliðinn
og var útför hans
gerð frá Bústaða-
kirkju 6. desember.
ávallt með ágætum. Við
söknum nú góðs vinar.
Snemma kom í ljós
að Einari höfðu hlotn-
ast góðar gáfur og hag-
ar hendur, til smíða
bæði á tré og málm.
Listrænn var hann og
teiknaði vel og málaði
myndir. Þá var hann vel
hagmæltur vildi hann
það við hafa. Gaman
hafði Einar af vísum og
ljóðum eftir vísnasmiði
og skáld fyrri tíma.
Kunni hann og fór með
margt af slíku, þegar
svo bar undir. Margt er það sem okk-
ur mannfólkinu getur virst dularfullt,
t.d. draumar og hugboð. Svo vildi til
að skömmu fyrir andlát sitt skýrði
Einar okkur vinafólki sínu frá því að
sér liði mjög vel og taldi hann það
boða dauða sinn innan skamms.
Hann reyndist sannspár. Við viljum
nú að leiðarlokum þakka Einari vin-
áttu og ógleymanlegar samveru-
stundir á liðnum árum. Konu hans
Inger, börnum þeirra og öðrum að-
standendum, sendum við hugheilar
samúðarkveðjur.
Þórunn og Hallgrímur.
Mætur maður, Einar Arnórsson
verkfræðingur, er fallinn frá. Þau
hjónin Einar og Inger sýndu mér
ungum ræktarsemi og virðingu sem
ekki allt fullorðið fólk gerir. Við vor-
um ævinlega velkomin í Langagerði
með Lindu og Jóhanni tengdasyni
þeirra, gjarnan í kátu andrúmslofti,
þar og víða annars staðar. Þannig
hafa liðið áratugir.
Ekki deildum við Einar stjórn-
málaskoðunum og gaman höfðum við
af því að vegast á í þeim efnum. Um
annað var meiri samhljómur og sér-
staklega ánægjulegt að fylgja honum
í yfirferð um málverkin hans eða hag-
leiksgripi sem hann bjó til af frum-
leika og uppfinningasemi. Þá fann ég
vel hvað verkfræðilegar lausnir voru
honum hugleiknar. Liggja eftir hann
kostagripir með óvenjulegum patent-
lausnum.
Í fertugsafmæli Jóhanns fyrir 12
árum varð óvenju gamansamt í Þór-
oddarkoti. Dansaði ég þá með Einar
á öxlunum með nokkrum útúrdúrum.
Fyrir það tiltæki fékk ég þungt tiltal
frá Inger sem taldi það ekki sæmandi
meðferð á 71 árs gömlum verkfræð-
ingi. Lét ég mér það svo rækilega að
kenningu verða að ég hef aldrei aftur
komið þannig fram við verkfræðing á
þeim aldri.
Einar var íhugull maður, hæglátur
og grandvar. Mörgum okkar mundi
eflaust farnast betur ef við ræsktum
okkur nokkrum sinnum áður en við
tækjum til máls eins og hann gerði
gjarnan. Það var gott að fá að kynn-
ast Einari Arnórssyni og hans óvenju
samheldnu fjölskyldu í Langagerði.
Við Hrafnhildur vottum ykkur öllum,
Inger, Lindu, Jóhanni, Tór, Hannesi
og börnunum dýpstu samúð okkar.
Guð veri með ykkur öllum.
Óskar Magnússon.
Morgunblaðið birtir minningargrein-
ar alla útgáfudagana.
Skil Minningargreinar skal senda í
gegnum vefsíðu Morgunblaðsins:
mbl.is (smellt á reitinn Morgunblaðið
í fliparöndinni – þá birtist valkostur-
inn „Senda inn minningar/afmæli“
ásamt frekari upplýsingum).
Skilafrestur Ef birta á minningar-
grein á útfarardegi verður hún að
berast fyrir hádegi tveimur virkum
dögum fyrr (á föstudegi ef útför er á
mánudegi eða þriðjudegi). Ef útför
hefur farið fram eða grein berst ekki
innan hins tiltekna skilafrests er ekki
unnt að lofa ákveðnum birtingardegi.
Þar sem pláss er takmarkað getur
birting dregist, enda þótt grein ber-
ist áður en skilafrestur rennur út.
Lengd Minningargreinar séu ekki
lengri en 2.000 slög (stafir með bil-
um - mælt í Tools/Word Count). Ekki
er unnt að senda lengri grein. Hægt
er að senda örstutta kveðju, HINSTU
KVEÐJU, 5-15 línur, og votta þeim
sem kvaddur er virðingu sína án þess
að það sé gert með langri grein. Ekki
er unnt að tengja viðhengi við síð-
una.
Formáli Minningargreinum fylgir
formáli, sem nánustu aðstandendur
senda inn. Þar koma fram upplýsing-
ar um hvar og hvenær sá, sem fjallað
er um, fæddist, hvar og hvenær hann
lést, um foreldra hans, systkini,
maka og börn og loks hvaðan útförin
fer fram og klukkan hvað athöfnin
hefst. Ætlast er til að þetta komi að-
eins fram í formálanum, sem er feit-
letraður, en ekki í minningargreinun-
um.
Undirskrift Minningargreinahöfund-
ar eru beðnir að hafa skírnarnöfn sín
en ekki stuttnefni undir greinunum.
Minningargreinar
VERNHARÐ Guðnason, formaður
Landssambands slökkviliðs- og
sjúkraflutningamanna, var nýver-
ið kjörinn formaður nýstofnaðrar
alþjóðadeildar helstu samtaka
sjúkraflutningamanna í Banda-
ríkjunum.
Bandarísku samtökin nefnast
National Association of Emerg-
ency Medical Technicians
(NAEMT).
Samtökin eru stærstu einstöku
samtök sjúkra-
flutningamanna
í Bandaríkj-
unum með um
14.500 fé-
lagsmenn, þar
af 140 utan
Bandaríkjanna.
NAEMT er fag-
félag sem hefur
það markmið að
stuðla að auk-
inni viðurkenningu á störfum
sjúkraflutningamanna og ann-
arra sem starfa við heilbrigð-
isþjónustu utan stofnana.
Að sögn Vernharðs gefst með
stofnun alþjóðadeildarinnar
tækifæri til að taka þátt í að
móta það alþjóðastarf sem
sjúkraflutningamenn vilja að
komist á um málefni sjúkraflutn-
ingamanna hvarvetna í heim-
inum.
Fyrsti formaður alþjóðadeildar
sjúkraflutningamanna
Vernharð
Guðnason
UMBOÐSMAÐUR Alþingis telur
að ráðherra og ráðuneyti landbún-
aðar hafi ekki farið að upplýsinga-
lögum við ráðningu á héraðsdýra-
lækni og ekki gætt ákvæða
stjórnsýslulaga í svari til hins um-
sækjandans sem kvartaði yfir ráðn-
ingunni og óskaði eftir afriti af öllum
gögnum málsins. Umboðsmaður tel-
ur að þessir annmarkar á meðferð
málsins geti þó ekki ógilt ákvörð-
unina.
Er þeim tilmælum beint til ráðu-
neytisins að það taki beiðni kvart-
anda fyrir að nýju, óski hann aftur
eftir aðgangi að gögnum málsins. Er
því einnig beint til ráðuneytisins að
það taki framvegis mið af fyrirmæl-
um 23. gr. upplýsingalaga þegar það
aflar munnlegra upplýsinga um um-
sækjendur um störf. Kemst umboðs-
maður Alþingis að því að landbún-
aðarráðuneytinu hafi borið að skrá
niður þær upplýsingar sem aflað var
með viðtölum við umsækjendurna
tvo og áhrif höfðu á valið milli þeirra.
Er það niðurstaða umboðsmanns
að ekki sé tilefni til athugasemda við
að landbúnaðarráðherra hafi við val
á milli umsækjendanna ákveðið að
leggja áherslu á formlega reynslu
þeirra í starfi héraðsdýralæknis, auk
þess að líta til þeirrar reynslu sem
umsækjendur höfðu öðlast við störf í
umræddu héraði. Rannsókn málsins
hafi verið fullnægjandi að því er laut
að starfsreynslu umsækjenda og að
beiting þessara sjónarmiða hafi ekki
farið í bága við jafnræðisreglu
stjórnsýslulaga.
Ekki farið að lögum við ráðningu
Ekki nóg til að
ógilda ákvörðunina
KÓPAVOGSDEILD Rauða kross Ís-
lands gaf Fjölsmiðjunni nýverið
eina milljón króna til að bæta að-
stöðu nema og starfsfólks bíla-
þvotta- og hússtjórnardeilda. Kópa-
vogsdeild hefur þá styrkt
uppbyggingu og rekstur Fjölsmiðj-
unnar með samtals ríflega átta
milljónum króna á undanförnum
þremur árum. Ennfremur hafa
sjálfboðaliðar deildarinnar stutt við
starfið.
Fjölsmiðjan í Kópavogi er
mennta- og þjálfunarsetur fyrir
fólk á aldrinum 16–24 ára sem ekki
hefur náð að fóta sig í námi og á
vinnumarkaði. Markmiðið er að
styðja nemana til þess að komast á
ný til náms eða í vinnu og hefur
náðst mjög góður árangur í því,
segir í fréttatilkynningu.
Á meðfylgjandi mynd er Þor-
björn Jensson, forstöðumaður Fjöl-
smiðjunnar, sem tók við styrknum
úr hendiGarðars H. Guðjónssonar,
formanns Kópavogsdeildar.
RKÍ styrkir
Fjölsmiðjuna