Morgunblaðið - 07.12.2004, Qupperneq 57
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 7. DESEMBER 2004 57
ÚT ER kominn bæði geisla- og
mynddiskur, sem ber nafnið Joyful
en í anda titilsins eru þetta diskar
með gospeltónlist. Innihalda disk-
arnir upptökur frá tónleikum Gosp-
elkórs Reykjavíkur í Háskólabíói 1.
nóvember í fyrra, sem haldnir voru
til styrktar Samhjálp.
Einvalalið á borð við Óskar Guð-
jónsson, Sigurð Flosason og Ómar
Guðjónsson, spilaði á hljóðfæri
þetta kvöld en stjórnandi upptöku
var Óskar Einarsson. Óskar hefur
verið leiðandi í gospeltónlist á Ís-
landi síðustu ár sem stjórnandi hins
fjögurra ára gamla Gospelkórs
Reykjavíkur og tónlistarstjóri Fíla-
delfíu.
Fyrsta upplagið með þúsund
diskum samtals kláraðist í síðustu
viku en nýtt upplag barst fyrir
helgina og er Óskar ánægður með
viðtökurnar. „Annað upplagið er
komið í dreifingu og þetta gengur
vel,“ segir hann.
Þverkirkjulegur kór
„Þetta er þverkirkjulegur kór
þar sem enginn rígur er á milli trú-
félaga,“ segir hann um Gospelkór
Reykjavíkur. „Stærsti hlutinn er úr
Þjóðkirkjunni en þarna er fólk úr
Veginum, Krossinum, Fíladelfíu og
alls staðar að.“
Nýjung er að tónleikar sem þess-
ir komi út á mynddiski og er Óskar
ánægður með útkomuna. Segir
hann að allt frá því að kórinn tók til
starfa á Kristnihátíðinni á Þingvöll-
um árið 2000 hafi það verið draum-
ur hjá honum að gefa út disk og
mynddisk með stórtónleikum sem
þessum. „Mynddiskurinn er til þess
að fólk geti upplifað tónleikana og
er diskurinn hljóðblandaður í
„surround“ þannig að fólk geti upp-
lifað sig á miðjum tónleikunum.“
Á diskunum er að finna uppá-
haldslög Óskars. „Þetta eru lög sem
ég hef haldið upp á í áravís. Meðal
annars eru þarna lög eins og „Oh
Happy Day“ og „Lean on Me“. Svo
eru þarna fimm lög eftir Andraé
Crouch en það má segja að hann sé
lærifaðir minn í gospeltónlist og
þess vegna vildi ég heiðra hann,“
segir Óskar en Crouch hélt tónleika
fyrir fullu húsi hérlendis vorið
1997.
Til viðbótar við kórfélagana
koma við sögu á diskunum gesta-
söngvarar á borð við Pál Rósin-
kranz og Guðrúnu Gunnarsdóttur.
Kórinn syngur líka bakraddir á
nýrri plötu Páls og í nokkrum lög-
um í væntanlegri Stuðmannamynd.
„Við erum orðin Stuðmannakórinn,
enda er þetta stuðtónlist.“
Óskar segist hafa fengið sér-
staklega góðar viðtökur við gosp-
elnámskeiðum sem hann hefur
haldið víða um land. „Ég er búinn
fara um landið og halda yfir 20
gospelnámskeið fyrir hátt í þúsund
manns. Alls staðar er fullt á nám-
skeiðin og í messunum sem haldnar
eru í kjölfarið er mikil stemning.“
Af hverju er gospeltónlistin
svona vinsæl? „Þessi tónlist er
gleðigjafi. Hún er full af lífi og
þetta lyftir mönnum upp í skamm-
deginu. Menn þurfa ekki að vera
trúaðir eða taka þátt í kirkjustarfi
til að hlusta á þessa tónlist. Þetta er
topptónlist með góðum boðskap.“
Tónlist | Gospel er málið á mynd- og geisladisknum Joyful
Upplyfting í skammdeginu
Morgunblaðið/Kristinn
Óskar Einarsson hefur verið leiðandi í gospeltónlist á Íslandi síðustu ár
sem stjórnandi Gospelkórs Reykjavíkur og tónlistarstjóri Fíladelfíu.
Morgunblaðið/Kristinn
Gospelkór Reykjavíkur á æfingu fyrir tónleikana í Háskólabíói í fyrra en
búið er að gefa tónleikana út á plötu og mynddiski.
ingarun@mbl.is
TILNEFNINGAR til Íslensku
tónlistarverðlaunanna 2004 voru
kunngerðar á föstudaginn var.
Lágu þá fyrir tilnefningar í þrem-
ur stærstu flokkunum; popp- og
rokktónlist, sígildri tónlist og
djasstónlist og auk þess auka-
flokki sem tilnefnir bestu kápu-
hönnun.
Var þá eftir að upplýsa um til-
nefningar í tveimur flokkum til
viðbótar; plata ársins í flokknum
Ýmis tónlist og Myndband ársins í
flokki rokk- og popptónlistar.
Eftirfarandi plötur eru til-
nefndar í flokknum ýmis tónlist:
Nói albínói – Slowblow
Sálmar – Ellen Kristjánsdóttir
Draumalandið – Sigurður Flosa-
son og Gunnar Gunnarsson
Silfurplötur Iðunnar
Hjörturinn skiptir um dvalarstað
– Hróðmar I. Sigurbjörnsson
Enn er eftir að gefa upp hvaða
myndbönd verða tilnefnd til tón-
listarverðlaunanna í ár.
Mugison og
Jagúar hljóta,
eins og fyrr hef-
ur verið greint
frá, flestar til-
nefningar eða
fimm talsins.
Rokksveitin
Brain Police
hlýtur fjórar til-
nefningar. Quar-
ashi, Hjálmar og
Ragnheiður Gröndal þrjár, sem og
Björn Thoroddsen sem er til-
nefndur í öllum þremur djass-
flokkunum; sem flytjandi ársins,
fyrir plötuna Lúther og lagið „Í
dauðans höndum“.
Íslensku tónlistarverðlaunin
verða afhent við athöfn í Þjóðleik-
húsinu 2. febrúar nk.
Tónlist | Íslensku tónlistarverðlaunin 2004
Tilnefningar í flokkn-
um ýmis tónlist
Ellen
Kristjánsdóttir Fólk folk@mbl.is
Draumahjónaband Brads Pittsog Jennifer Aniston hangir á
bláþræði ef marka má bresku götu-
blöðin. Ástæðan er sögð æ nánari
vinátta Pitts við Angelinu Jolie.
Draumaparið Pitt og Aniston gengu
í það heilaga árið 2000 og hefur
gengið á ýmsu. Síðasta vandamál ku
vera að Aniston hreint ekki sátt við
hversu vel þeim er orðið til vina Pitt
og Jolie, vinátta sem varð til er þau
léku saman í myndinni Mr. and
Mrs. Smith sem er væntanleg.
Aniston grunar mann sinn ekki um
að hafa haldið framhjá sér en varð
samt æf er hún sá myndir af þeim
Jolie frá tökustaðnum þar sem þau
héldust í hendur. Hún ku þó naga
Aniston tilhugsunin um að Jolie hafi
tíðla átt í ástarsambandi við mót-
leikara sína.
SETH GREEN MATTHEW LILLARD DAX SHEPARD
KRINGLAN
kl. 10.10.
Frá leikstjóra Mr Deeds kemur
gamanmynd sem fær þig til að
missa það algjörlega.
Fór beint á toppinn í USA
ÁLFABAKKI
Sýnd kl. 8.20. B.i. 12 ára.
Kvikmyndir.is
Le Poulpe(kolkrabbinn)
Garde á Vue
(Í varðhaldi)
ÁLFABAKKI
Sýnd kl. 4, 6 og 8.
Jólamyndin 2004 Pólarhraðlestin
Jólamyndin 2004 Pólarhraðlestin
S.V. Mbl.
Jólamyndin 2004 Pólarhraðlestin Jólamyndin 2004 Pólarhraðlestin Jólamyndin 2004 Pólarhraðlestin
HILARY DUFF CHAD MICHAEL MURRRAY
Sagan af Öskubusku í nýjum búningi
KEFLAVÍK
Sýnd kl. 8 og 10.10
Kvikmyndir.is
H.J.Mbl.
KRINGLAN
Sýnd kl. 6. Ísl. tal
KRINGLAN
kl. 10.20. B.i. 16 ára.
Stanglega bönnuð innan 16 ára
ÁLFABAKKI
Sýnd kl. 10.10.
ÁLFABAKKI
Sýnd kl. 10.30. Stanglega bönnuð innan 16 ára
KRINGLAN
Sýnd kl. 6 og 8.10. Ísl. tal./
Sýnd kl. 5.50, 8 og 10.10. Enskt tal.
H.L. Mbl.
KEFLAVÍK
Sýnd kl. 8.
AKUREYRI
Sýnd kl. 6.
ÁLFABAKKI
Sýnd kl. 4.
O P E N
W A T E R
KRINGLAN
Forsýnd kl. 8.
BEN
AFFLECK
CHATERINE
O´HARA
CHRISTINA
APPLEGATE
JAMES
GANDOLFINI