Morgunblaðið - 20.12.2004, Page 1
STOFNAÐ 1913 347. TBL. 92. ÁRG. MÁNUDAGUR 20. DESEMBER 2004 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS mbl.is
www.postur.is
21.12.
er síðasti öruggi skiladagur
á jólakortum og
-pökkum innanlands!
Sorg um
hátíðarnar
Jólin oft erfið fyrir þá sem misst
hafa ástvin á árinu | Daglegt líf
Íþróttir og Fasteignir í dag
Íþróttir | Ólafur bikarmeistari á Spáni Viggó ætlar sér toppsæti í Túnis
Norskir Evrópumeistarar Fasteignir | Verð á húsnæði hækkar enn Á
verði gegn eldi og vatni Mikið sjávarútsýni í íbúðum við Herjólfsgötu
MINNST 62 menn lágu í valnum í gær eftir
tvær bílsprengjuárásir í helgustu borgum
sjíta í Írak, Najaf og Karbala. Talið er að
uppreisnarmenn úr röðum súnníta hafi ver-
ið að verki og markmið þeirra sé að koma af
stað átökum milli íraskra sjíta og súnníta
fyrir þingkosningarnar 30. janúar.
„Fyrir þeim vakir að fá sjíta til að hefna
sín og grafa þannig undan einingu þjóðar-
innar,“ sagði talsmaður helsta flokks ír-
askra sjíta. Klerkar sjíta hvöttu þá til að
svara ekki árásunum með ofbeldi sem þeir
sögðu að myndi leiða til borgarastyrjaldar.
AP
Írakar á torgi í Najaf-borg eftir sprengju-
tilræði sem kostaði 48 menn lífið í gær.
Najaf. AP, AFP.
Minnst 62 bíða bana/13
Um 60 sjítar
falla í árásum
UM tuttugu snjóbrettakappar
léku listir sínar inni í Smáralind
er þar fór fram fyrsta snjó-
brettasýning innandyra hér-
lendis svo vitað sé. Fimm sleða-
kerrur fullar af snjó voru
fluttar inn í Vetrargarðinn af
þessu tilefni. Vitað var að snjór-
inn myndi bráðna hratt og var
hann því fluttur inn rétt áður
en sýningin hófst. Lagðar voru
sérstakar brautir í anda hjóla-
brettabrauta með hindrunum
sem sýnendur stukku yfir.
Fjöldi manns fylgdist með sýn-
ingunni.
Morgunblaðið/Kristinn
Snjóbrettakappar í Smáralind
ÞINGKOSNINGAR fóru fram í Túrkmenistan í
gær en þar sem kjörstaðir voru nánast mannlausir
allan daginn í höfuðborginni Ashgabat var gripið
til þess ráðs að fara með kjörkassana inn á heimili
íbúanna til að tryggja að þeir kysu.
Þrátt fyrir lítinn áhuga meðal almennings á
kosningunum sögðu yfirvöld að kjörsóknin hefði
verið 76,88%.
Þingið í Túrkmenistan, fyrrverandi sovétlýðveldi
í Mið-Asíu, er nánast valdalaust.
Um 130 frambjóðendur kepptu um 50 þingsæti
og þeir eru allir í Lýðræðisflokknum, eina flokkn-
um sem leyfður er í landinu. Hann er undir forystu
Saparmurats Niyazovs, sem er titlaður „forseti til
lífstíðar“ og einnig nefndur Turkmenbashi, eða
„Faðir allra Túrkmena“.
Allir frambjóðendurnir studdu stefnu Turkm-
enbashi og í kosningabaráttunni vitnuðu þeir oft í
bók hans, „Rukhnama“, sem fjallar um rétta
breytni.
Til að auka kjörsóknina ákváðu yfirvöld að gefa
öldruðum kjósendum og þeim sem kusu í fyrsta
skipti ýmsar gjafir, svo sem bók forsetans, hand-
klæði og minnisbækur.
Atkvæðin sótt inn á heimilin
Ashgabat. AP.
STÆRSTU flokkarnir í Ísrael, Likud og
Verkamannaflokkurinn, reyndu í gærkvöldi
að leysa síðustu ágreiningsmálin um stjórn-
arsáttmála sem á að tryggja að hægt verði að
koma í framkvæmd áætlun Ariels Sharons
forsætisráðherra um að leggja niður allar
byggðir gyðinga á Gaza-svæðinu á næsta ári.
Stefnt er að því að stjórnarsáttmálinn
verði undirritaður á næstu dögum og nýja
stjórnin taki við völdunum fyrir lok vikunnar.
„Með aðild okkar að stjórninni er Gaza-
áætlunin í höfn og nú hefur verið tryggt að
hún nýtur stuðnings meirihluta þingsins í
mars þegar brotthvarf frá fyrstu byggðunum
á Gaza-svæðinu verður ákveðið,“ sagði Giora
Ayalon, talskona Verkamannaflokksins.
Einn flokka strangtrúaðra gyðinga, UTJ,
hefur þegar fallist á að ganga í stjórnina.
Sharon vonast til þess að annar strang-
trúarflokkur, Shas, fallist á aðild að stjórn-
inni og hyggst ræða við leiðtoga þingflokks
hans í dag.
„Gaza-áætl-
unin í höfn“
Jerúsalem. AFP.
BANDARÍSK stjórnvöld hafa hvatt íslensk
stjórnvöld til þess að draga til baka boðið til
bandaríska skákmannsins Bobby Fischers um
dvalarleyfi á Íslandi.
Þetta kom fram í orðsendingu sem utanrík-
isráðuneytinu barst síðastliðinn föstudag sam-
kvæmt upplýsingum Illuga Gunnarssonar, að-
stoðarmanns utanríkisráðherra.
Samkvæmt heimildum Morgunblaðsins
áréttaði bandaríski sendiherrann að ákveðið
ferli væri í gangi í Bandaríkjunum gagnvart
Bobby Fischer, þ.e. að hann hefði verið ákærð-
ur og væri þar eftirlýstur og að ekki stæði til
að falla frá því og því væru íslensk stjórnvöld
hvött til þess að draga boð sitt um dvalarleyfi
fyrir Fischer til baka.
Bobby Fischer hefur
verið í haldi í Japan síðan í
júlí og hann hefur verið
eftirlýstur í Bandaríkjun-
um síðan hann tefldi við
Borís Spasskí í Júgóslavíu
1992, þvert á viðskipta-
bann sem var í gildi, en
lögmenn hans hafa barist
gegn því að honum yrði
vísað úr landi.
Íslensk stjórnvöld samþykktu beiðni Fisch-
ers um landvistarleyfi hér á landi um miðjan
mánuðinn en það var Útlendingastofnun, að
höfðu samráði við dómsmála- og utanríkisráð-
herra, sem tók ákvörðun um að bjóða Fischer
hingað og komið hefur fram að hann muni
þekkjast boð Íslendinga.
Í gildi eru samningar milli Íslands og Banda-
ríkjanna um framsal sakamanna og eins voru
sett hér sérstök lög á sínum tíma vegna al-
þjóðlegs viðskiptabanns Sameinuðu þjóðanna á
Júgóslavíu. Davíð Oddsson utanríkisráðherra
hefur sagt að brot Fischers myndi teljast vera
fyrnt að íslenskum lögum. Davíð sagði það ekki
rétt, sem haldið hefði verið fram, að kæmi
krafa um framsal ætti sjálfkrafa að verða við
henni. „Íslensk yfirvöld hefðu leyfi til að leggja
á það mat hvort þessi athöfn hans væri brotleg
samkvæmt íslenskum lögum. Hún myndi ekki
teljast það, að minnsta kosti ekki lengur,“
sagði utanríkisráðherra.
Bobby Fischer
Hvetja Íslendinga til að draga
boðið til Fischers til baka