Morgunblaðið - 20.12.2004, Page 6

Morgunblaðið - 20.12.2004, Page 6
Morgunblaðið/Skapti Hallgrímsson HALLUR Magnússon, sviðsstjóri þróunar- og almannatengslasviðs Íbúðalánasjóðs, segir það ekki rétt sem fram komi í fréttaskýringu Morgunblaðsins í gær, að sjóðurinn geti komist í þrot ef framhald verð- ur á miklum upp- greiðslum á útlán- um sjóðsins. Hallur segir að þó að ýmislegt í grein Morgunblaðsins standist fræðilega séð, þá séu ýmsar staðhæfingar og ályktanir sem dregn- ar séu í greininni rangar. „Það er alveg ljóst að staðhæfingar um að stjórnendur Íbúðalánasjóðs hafi ekki gert ráð fyrir innkomu bank- anna og uppgreiðslum lána eru rang- ar,“ segir Hallur. Hann bendir á að sérstaklega hafi verið haldið fyrir ut- an skuldabréfaskiptin sl. sumar rúm- lega 120 milljörðum kr. í húsbréfum. Þar að auki tryggi skiptiprósentan í útboðinu sjóðnum annað eins. „Það þýðir að öllu óbreyttu að sjóðurinn er með hátt í þriðja hundrað milljarða getu til þess að takast beint á við þess- ar breytingar, óháð öðrum þáttum sem við getum gripið til og höfum ver- ið að grípa til í gegnum okkar mjög svo virku áhættu- og fjárstýringar- stefnu og fjárstýringaraðgerðir.“ Hallur segir alveg ljóst að gerðar hafi verið ákveðnar grundvallarskipu- lagsbreytingar á kerfinu, eins og réttilega hafi verið bent á í greininni. „Húsbréfakerfið hafði þann eigin- leika, sem fram kemur í greininni, að dregið var út húsbréf á móti húsbréfi. Hins vegar gleymist til dæmis alger- lega sú forsenda að eignir Íbúðalána- sjóðs voru núvirtar þegar skipt var úr Húsnæðisstofnun yfir í Íbúðalánasjóð á ávöxtunarkröfunni 4,02% en ekki á þessari háu ávöxtunarkröfu sem hann [blaðamaður Morgunblaðsins] gefur sér að sé á sjóðnum í heild sinni. Það þýðir einnig að ákveðinn hluti af þess- um uppgreiðslum er hagnaður fyrir okkur,“ segir hann. Hröð uppgreiðsla á óvart Hallur segir einnig ljóst að stjórn- endur Íbúðalánasjóðs hafi gert ráð fyrir því í sínum áætlunum að hrina uppgreiðslna á útlánum sjóðsins yrði hægari en raunin er og það komi þeim því dálítið á óvart hversu snögg og hröð hún er. „Það breytir ekki grundvallaratrið- inu að í þessum breytingum var hug- að að þessu og gert ráð þessu og við gerðum ráð fyrir því í áætlunum okk- ar að geta staðist að útlánsvextir yrðu 3,5% en ekki fjármögnunarvextir. Það er töluvert mikill munur á því.“ Hallur segir einnig varðandi það sem fram kemur í fréttaskýringunni að útboðslýsing fyrir skuldabréfa- skiptin í sumar hafi verið birt tiltölu- lega seint, að það hafi verið með vilja gert og vegna ráðlegginga Deutsche Bank, sem vann með sjóðnum að und- irbúningi og framkvæmd skulda- bréfaskiptanna. „Sá aðdragandi tók rúma sex mánuði og markaðurinn vissi sex mánuðum áður hvað myndi gerast en útfærslurnar komu fram í útboðslýsingu, sem er sú langítarleg- asta og vandaðasta sem um getur á ís- lenskum skuldabréfamarkaði. Þar var mjög vel vandað til þessa en það er gefið í skyn að svo hafi ekki verið,“ segir hann. Hallur segir að um mjög alvarlegar vangaveltur sé að ræða í greininni, sem ekki standist og hefði verið eðli- legt að mati stjórnenda Íbúðalána- sjóðs að þær hefðu verið bornar undir þá. „Til þess í fyrsta lagi að benda á þá þætti sem misskilningur ríkir um og í öðru lagi að kommentera á þessar niðurstöður. Það í sjálfu sér væri óháð því þótt það væri sannleikskorn í þeim, þá væri það eðlileg blaða- mennska að okkar mati,“ segir Hall- ur. Hann segir það fjarri lagi að stefni í þrot Íbúðalánasjóðs og forsendur þess sem segi í frétt Morgunblaðsins að það stefni í tugi milljarða geng- istap sjóðsins séu rangar. ,,Sú niður- staða byggist á forsendum sem gefn- ar eru sem eru ekki réttar.“ Mat Moody’s staðfestir að sjóðurinn er ekki í hættu Hallur bendir einnig á að starfsemi Íbúðalánasjóðs heyri undir eftirlit Fjármálaeftirlitsins. „Við erum í stöð- ugu sambandi við Fjármálaeftirlitið. Þeir fylgjast með því sem við erum að gera og hafa ekki gert athugasemdir við okkar fjárstýringu og deila ekki áhyggjum með Morgunblaðinu hvað þetta varðar,“ segir Hallur. „Hins vegar fylgjast með okkur tvö virtustu lánshæfismatsfyrirtæki í heimi Moody’s og Standard & Poor’s,“ segir hann og vísar til þess að Moody’s hafi staðfest lánshæfismat Íbúðalánasjóðs með einkunninni Aaa og telur að horfur sjóðsins séu stöð- ugar. Moody’s staðfesti að sjóðurinn væri ekki í hættu. Íbúðalánasjóður væri með sama lánshæfismat og ís- lenska ríkið. Í fréttatilkynningu sem Íbúðalána- sjóður sendi frá sér í gær um lánshæf- ismat Íbúðalánasjóðs segir, að þessi niðurstaða Moody’s hafi borist í sein- ustu viku og komi í kjölfar heimsókn- ar sérfræðinga Moodýs í haust, þar sem sérfræðingarnir hafi m.a. farið ít- arlega yfir skuldabréfaskipti Íbúða- lánasjóðs síðastliðið sumar og afleið- ingar þess fyrir áhættu- og fjár- stýringu sjóðsins. Athygli veki hvað lánshæfismat Íbúðalánasjóðs sé miklu hærra en lánshæfismat bankakerfisins, sem þó fái mjög gott mat hjá Moody’s. Hallur Magnússon, sviðsstjóri hjá Íbúðalánasjóði, gagnrýnir fréttaúttekt Morgunblaðsins Fjarri lagi að sjóðurinn stefni í þrot Hallur Magnússon 6 MÁNUDAGUR 20. DESEMBER 2004 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR Spennandi myndasaga 5. sæti Börn og unglingar Penninn Eymundsson og Bókabú›ir MM 8. – 14. des. Sjálfstætt framhald verðlaunabókarinnar Blóðregns. „Útgáfan á Brennunni er glæsileg.“ Páll Baldvin Baldvinsson, DV „Spennandi og lifandi teiknimyndasaga.“ Ragna Sigurðardóttir, Mbl. Athugasemdir vegna ummæla sviðsstjóra hjá Íbúðalánasjóði HALLUR Magnússon, sviðsstjóri hjá Íbúðalánasjóði, lét þung orð falla um undirritaðan blaðamann á Morgunblaðinu í hádegis- fréttum Ríkisútvarpsins í gær, í tilefni af grein í blaðinu um þann vanda sem Íbúðalánasjóður getur staðið frammi fyrir. Í greininni var fjallað um það að vegna þess hvernig staðið var að skuldabréfa- skiptum sjóðsins síðastliðið sum- ar, þegar húsbréfakerfið var lagt af og hið nýja peningalánakerfi sjóðsins tók við, væri raunveruleg hætta á því að sjóðurinn gæti komist í þrot. Ástæðan var sögð sú að vegna mikilla uppgreiðslna á útlánum sjóðsins, eftir tilkomu íbúðalána bankanna, þá væri lík- legt að sjóðurinn þyrfti að fjár- festa í vöxtum sem væru lægri en vextir af skuldum hans. Hallur Magnússon kaus í viðtali við Ríkisútvarpið að svara í engu þeim efnislegu rökum sem sett voru fram í greininni. Hann sagði einfaldlega að „ásakanir“ blaða- manns væru rangar en tók reynd- ar undir að fræðilega séð gæti það gerst sem frá var greint. Í greininni var leitast við að varpa ljósi á hvað gæti gerst ef framhald yrði á uppgreiðslum á útlánum sjóðsins. Í því felast ekki ásakanir. Það eru heldur ekki ásakanir fólgnar í því að benda á að líkleg skýring á þeirri stöðu sem getur blasað við sjóðnum sé sú, að hann hafi ekki reiknað með bönkunum þegar skiptiálagið í skuldabréfaskiptunum var ákveð- ið. Íbúðalánasjóður hefur dregið mjög úr þeirri góðu upplýs- ingagjöf sem áður einkenndi störf sjóðsins. Mjög hefur verið kvart- að undan þessu, til að mynda með- al greiningaraðila á markaði. Upplýsingagjöf frá Íbúðalána- sjóðir er mjög mikilvæg vegna hinna miklu umsvifa sjóðsins. Það er miður að upplýs- ingastjóri jafnmikilvægrar rík- isstofnunar og Íbúðalánasjóður er skuli ekki geta rætt efnislega um þau vandamál sem geta blasað við sjóðnum. Vonandi verður umfjöll- un Morgunblaðsins í gær til þess að sjóðurinn gefi upp hvernig hann ætlar að fara að því að ávaxta það fé sem hann fær inn vegna uppgreiðslna á útlánum sínum. Það væri uppbyggilegra en upphrópanir. Grétar Júníus Guðmundsson blaðamaður. „ÍBÚÐALÁNASJÓÐUR er að fullu kom- inn undir eftirlit Fjármálaeftirlitsins frá og með miðju þessu ári,“ segir Páll Gunn- ar Pálsson, forstjóri Fjármálaeftirlitsins. „Sjóðurinn hefur verið að byggja upp áhættustýringu sína í nýju umhverfi og á samkvæmt reglum til dæmis að skila okkur skýrslu um áhættustýringu sína ársfjórðungslega. Hann hefur nú síð- ast gert það fyrir þriðja ársfjórðung. Sjóðurinn á að uppfylla ákveðin eig- infjárskilyrði samkvæmt reglugerð og Fjármálaeftirlitið fylgist að sjálfsögðu með þessu og mun fylgjast með því hvern- ig sjóðurinn mun spila úr áhættustýringu sinni í nýju umhverfi,“ segir Páll Gunnar. Hann vildi ekki tjá sig um efni frétta- skýringar Morgunblaðsins í gær um Íbúðalánasjóð eða um stöðu sjóðsins að öðru leyti. Forstjóri Fjármálaeftirlits um Íbúðalánasjóð Páll Gunnar Pálsson Fylgst með hvernig sjóðurinn spilar úr áhættu- stýringu sinni FYRSTA MasterCard-örgjörvakort- ið með fullgildum dulkóðunarlyklum var útbúið hjá Reiknistofu bankanna nýlega. Að sögn Bergþóru K. Ketils- dóttur, forstöðumanns upplýs- ingatækni hjá Kreditkortum hf., er reiknað með að öllum greiðslukort- um landsmanna verði skipt út með nýju örgjörvakortunum á fyrri hluta næsta árs. Örgjörvavæðingin er að sögn Bergþóru alþjóðlegt verkefni Mast- erCard International og VISA Int- ernational til að sporna gegn korta- svindli, sem færst hefur í aukana á undanförnum árum. Með ör- gjörvakortunum megi einnig hraða afgreiðslunni, því í stað undir- skriftar verða korthafar beðnir að slá inn PIN-númer kortsins á korta- lesara í verslunum til að staðfesta greiðslu, í stað þess að kortalesarinn hringi inn til að sannreyna leyni- númer kortsins. Aðspurð segir Bergþóra að korthafar eigi ekki að verða varir við neinar útlitsbreyt- ingar á kortinu aðrar en þær að lítil örflaga verður greypt ofan í plastið en leyninúmerið verður það sama og áður, auk þess sem áfram verður að finna segulrönd á kortinu. Að sögn Loga Ragnarssonar hjá Fjölgreiðslumiðlun hf., er unnið að undirbúningi að uppsetningu á bún- aði hjá þeim söluaðilum sem valdir hafa verið sem sérstakir samstarfs- aðilar um verkefnið í byrjun. Bún- aðinum er ætlað að geta lesið allar gerðir innlendra og erlendar ör- gjörvagreiðslukorta. „Við höfðum vonast til að geta sett þetta í gang um miðjan janúar en hvort það næst stjórnast að framgangi verkefnisins næstu vikurnar. Verkefnið er gríð- arlega umfangsmikið og margir sem að því koma sem gerir alla áætl- anagerð og framkvæmd svolítið snúna.“ Að sögn Loga hafa nær allir posar í landinu verið uppfærðir í nýrri gerðir en enn er unnið að breytingum á þeim hugbúnaði sem þarf að vera til staðar í tækjunum svo allt virki eins og til er ætlast. Vinnu við breytingar á hrað- bankakerfinu miðar hins vegar, að sögn Loga, ágætlega og er þess að vænta að fyrstu hraðbankarnir sem styðja hina nýju tækni verði tilbúnir undir lok janúarmánaðar. Fyrsta örgjörvakortið tilbúið Morgunblaðið/Golli Dæmi um nýjan posabúnað er getur lesið nýju örgjörvakortin.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.