Morgunblaðið - 20.12.2004, Síða 24

Morgunblaðið - 20.12.2004, Síða 24
24 MÁNUDAGUR 20. DESEMBER 2004 MORGUNBLAÐIÐ MINNINGAR Minningarkort Minningar- og styrktarsjóðs hjartasjúklinga Sími 552 5744 Gíró- og kreditkortaþjónusta LANDSSAMTÖK HJARTASJÚKLINGA A u g l. Þ ó rh . 1 2 7 0 .9 7 ✝ Katrín Ingi-bergsdóttir fæddist á Melhól í Meðallandi í V- Skaftafellssýslu 8. október 1908. Hún lést á hjúkrunar- heimilinu Droplaug- arstöðum í Reykja- vík 10. desember síðastliðinn. For- eldrar hennar voru hjónin Guðríður Árnadóttir hús- freyja á Melhól, f. 16. ágúst 1873, d. 22. október 1950, og Ingibergur Þorsteinsson bóndi, f. 30. desem- ber 1856, d. 30. júlí 1942. Alsystk- ini Katrínar voru Steindór, f. 1897, d. 1897; Jón, f. 1899, d. 1923; Árni, f. 1903, d. 1928; Val- gerður, f. 1905, d. 1994; Málfríður Guðlaug, f. 1907, d. 1932; Vil- hjálmur Kristinn, f. 1909, d. 1990; Karólína, f. 1911, d. 1966; Svein- björg, f. 1912, d. 1996; Ragnheið- ur, f. 1913, d. 1997; og Eyþór, f. 1915, d. 1984. Hálfsystkini Katr- ínar, samfeðra, voru Páll, f. 1884, d. 1885; Sigurlaug, f. 1886, d. dóttur hjúkrunarfræðingi, f. 15.1. 1941. Þau skildu. Börn þeirra eru: a) Katrín, f. 20.3. 1958. Maki Eiríkur Jónsson, f. 21.8. 1952. Þau skildu. Börn þeirra: Lovísa, f. 1986, og Baldur, f. 1989. b) Ljósbrá, f. 24.6. 1971, maki Matthías Gísli Þorvaldsson, f. 15.6. 1966. Börn þeirra: Hrafn- hildur Ýr, f. 1991, Eysteinn Orri, f. 1997, og Svava Sól, f. 2000. Fyrir átti Matthías Söndru, f. 1989. c) Guðbjörg Eva, f. 16.6. 1982. Sambýliskona Baldurs er Anna Kristrún Jónsdóttir lyfja- fræðingur, f. 29.1. 1952. Börn hennar eru: Herdís Anna, f. 2.10. 1964, Gunnlaug, f. 23.4. 1976, Jón Þórarinn, f. 7.12. 1977, og Hannes Þórður, f. 13.4. 1983. Katrín og Óskar bjuggu lengst af í Vík í Mýrdal. Katrín var hús- freyja í Vík og Óskar sjómaður og síðar skrifstofumaður hjá Kaupfélagi V-Skaftfellinga. Þau fluttu árið 1959 á Selfoss og vann Óskar þar hjá Kaupfélagi Árnes- inga uns hann lést 1969. Katrín flutti þá til Reykjavíkur og starf- aði í nokkur ár hjá Afurðasölu Sambandsins á Kirkjusandi. Árið 1989 fór Katrín á hjúkrunarheim- ilið Droplaugarstaði og dvaldi þar til æviloka. Útför Katrínar fer fram frá Háteigskirkju í dag og hefst at- höfnin klukkan 13. 1951; Pálína, f. 1887, d. 1928; Karitas, f. 1891, d. 1973; Þor- steinn, f. 1892, d. 1914; og Magnús, f. 1894, d. 1941. Fyrsta október 1933 gekk Katrín að eiga Óskar Jónsson, sjómann, bókara og alþingismann, f. 3. september 1899, d. 26. apríl 1969. For- eldrar Óskars voru Ragnhildur Gunnars- dóttir, f. 27.7. 1869, d. 6.2. 1945, og Jón Valdemar Ey- leifsson, f. 18.4. 1880, d. 3.6. 1968. Katrín og Óskar eignuðust tvö börn, þau eru: 1) Ásdís hjúkr- unarfræðingur, f. 8.6. 1933, maki Benedikt Gunnarsson listmálari, f. 14.7. 1929. Börn þeirra eru: a) Valgerður, f. 29.1. 1965, maki Grímur Björnsson, f. 7.6. 1960. Börn þeirra: Gunnar, f. 1993, og Sóley, f. 1996. b) Gunnar Óskar, f. 18.5. 1968, d. 27.9. 1984. 2) Bald- ur viðskiptafræðingur og fram- haldsskólakennari, f. 26.12. 1940. Kvæntur Hrafnhildi Guðmunds- Einstaka konur eru svo stórar, strax við fyrstu kynni, að manni finnst þær fremur guðlegar en mennskar. Þegar ég mætti Katrínu tengdamóður minni fyrst var hún kona á háum aldri. Engu að síður hafði persóna hennar djúpstæð áhrif á mig. Mér fannst hún bæði vitur, góð og göfug. Hún varð samt að lúta lög- málum lífsins og missti þrótt undir lokin, bæði líkamlegan og andlegan. Hins vegar hélt hún reisn sinni, virð- ingu og sjálfstæði til síðustu stundar. Katrín var sönn listakona. Allt lék í höndunum á henni. Hún var sískap- andi frá morgni til kvölds. Mynstrin sem hún galdraði fram í frjálsu prjóni voru svo falleg að til þess var tekið. Hún teiknaði, orti og söng. Hafði yndi af öllu fögru. Hún elskaði ís- lenska náttúru öðru fremur, ólst þó upp við þröngan kost í einni rýrustu sveit landsins í stórum systkinahópi. Á heimili hennar í Meðallandi ríkti ávallt gleði, glaðværð og jákvætt við- horf til lífsins. Í uppeldinu og jafnan síðar var góður Guð nálægur. Kær- leikur og fyrirgefning voru þær dyggðir sem allir höfðu með í fartesk- inu upp frá því. Þung skörð voru því miður höggvin í þann stóra barnahóp allt of snemma og urðu Katrínu til- efni til fyrirbæna alla tíð. En krakk- arnir á Melhóli þóttu óvenju mann- vænleg og unnu sér traust og trúnað hvar sem þau hösluðu sér völl. Nú er Katrín, styrka eikin, fallin síðust úr hópi sautján systkina. Þegar við Baldur vorum stödd á Melhóli sumarið 1998 hringdum við í Katrínu og báðum hana að lýsa fjalla- sýninni. Hún hafði þá ekki komið austur í 40 ár. Engu að síður gat hún rakið nöfn kennileita og fjalla frá Vatnajökli vestur til Víkur. Síðustu árin dvöldum við í samtölum gjarnan við Meðallandið, vinina, leik og starf. Hún elskaði móður sína mikið, föður sinn og allt sitt fólk. Lýsing Katrínar á Kötlugosinu 1918, sem Valgerður Benediktsdóttir hljóðritaði á 90 ára afmæli hennar, hlýtur að verða jarð- fræðingum framtíðarinnar umhugs- unarefni. Það var ekki tilviljun að faðir minn, Jón apótekari í Iðunni, og móðir mín nutu þess að fara með okkur systk- inin til Víkur í Mýrdal. Þar dvöldum við iðulega á efsta lofti hótelsins hjá Gunnu og Brandi og hlustuðum á regnið belja á bárujárninu. Þess á milli gengum við um eina fegurstu strönd heimsins. Ég vissi þá ekki að í næsta húsi hefði Baldur fæðst. En ég veit það nú að Óskar og pabbi hittust og áttu sameiginlega kunningja. Garðurinn sem Katrín ræktaði við rætur Þorsteinsbrekku er enn mikil staðarprýði. Hún elskaði grösin og blómin og því ekki furða að kvæði Jónasar Hallgrímssonar væri sá skáldskapur sem hún leitaði jafnan til, auk Hallgríms Péturssonar sem var á vísum stað á hennar hillu. „Smávinir fagrir, foldar skart“ var eitt af því fyrsta sem hún kenndi Baldri. Kallið er komið. Þótt Katrín fengi aukinn kraft síðasta daginn sem hún lifði kveið hún ekki því sem koma skyldi. Hún vissi sem var að „þar bíða vinir í varpa sem von er á gesti“. Upprisan og lífið eftir lífið var í henn- ar huga jafn sannur veruleiki og sól- arupprásin. Megi góður Guð umvefja hana og ástvini hennar, þessa heims og annars, elsku sinni. Anna Kristrún Jónsdóttir. Allt breytist. Heimurinn, tíminn, landið – og við. Öldurnar við Vík hrifsa í sífellu ný stykki af fjörunni og kannski er það aðeins Katla sem get- ur bjargað henni, þegar öllu er á botninn hvolft. En jökullinn hefur þagað lengi. Síðast þegar gaus var heimurinn annar en nú. Þá var amma mín tíu ára, bjartleit með fléttur í rauðu hári og upplifði einn sérstæðasta atburð ævi sinnar, sem hún gaf okkur hlut- deild í hvenær sem við vildum. Nú hefur amma lokað augunum í hinsta sinn. Og jökullinn er tekinn að ókyrrast, Katla er farin að skjálfa á nýjan leik. Ég held í hendur ömmu þar sem hún hvílir í rúminu sínu. Finn hitann frá þeim streyma inn í mínar í síðasta sinn; veit að eftir stutta stund verður handtakið orðið kalt. Það seytlar inn í mig eins og fljót sem skarast, í boð- hlaupi kynslóðanna. Ég horfi á lokuð augu ömmu og get ekki varist brosi að sjá að glittir ögn í annað þeirra, eins og hún vilji áfram hafa auga með okkur sem eftir lifum. Amma. Tenging mín við horfinn tíma, tímavélin mín inn í fjósbaðstof- una í Meðallandinu, inn á heimilið í Vík og í garðinn hennar góða þar sem blómin uxu hvert öðru fegurra. Sagnaþulurinn amma, vísnakonan, galdrakonan með prjónana og heklu- nálina. Amma, þessi sterka kona sem tókst á við lífið af ósérhlífni og nægjusemi sinnar kynslóðar og hugsaði meira um velferð annarra en sjálfrar sín. Í huganum er ég í fjörunni í Vík, sökkvi lófum í sandinn og horfi á öld- urnar koma og fara. Bjargfuglinn svífandi í loftinu. Allir þessir enda- lausu steinar í fjörunni, og engir eins, heimtir úr hafi þar til næsta alda hremmir þá á ný. Sandurinn rennur milli fingra mér, sandurinn frá Kötlu, sandur sem kemur og fer, eins og lífið sjálft. Ég held enn um hendur ömmu. Innsigla vináttu okkar, beggja vegna grafar, og þakka henni samfylgdina. Mínum höndum og barna minna hélt hún heitum í áraraðir með því að prjóna á okkur vettlinga í tugatali. Nú vermi ég hennar hendur og óska henni góðrar ferðar yfir í þann heim sem hún trúði að biði að loknu þessu lífi. Valgerður Benediktsdóttir. Elsku langamma. Ég veit ekki hvernig hægt er að lifa lífinu án þín. Þótt ég heimsækti þig ekki oft var ég alltaf að hugsa til þín, hvernig þú hefðir það, hvað þú værir að gera og margt annað. En allt í einu varstu dá- in. Þú varst svo góð manneskja, prjónaðir vettlinga og sokka, peysur og margt annað handa okkur. Þegar ég fæddist komstu meira að segja með fullan kassa af flíkum handa mér á fæðingardeildina. Þegar þú varst yngri prjónaðirðu eina lopapeysu á dag og seldir, þang- að til þú varst búin að prjóna þér fyr- ir íbúð. Ég veit að engan langar til að deyja en röðin kemur einhvern tíma að manni. Svona er þetta og við get- um ekki breytt því. Ég hugsaði með mér að þótt það taki okkur á jörðu niðri sárt að þú skulir deyja þá muntu hitta aftur hann Óskar langafa, for- eldra þína og systkin, skyldmenni og vini. En það sem gleður mig mest er að þú skyldir deyja hamingjusöm. Daginn áður en þú dóst varstu svo spræk og glöð, orðin svo hress að þú gekkst niður stigann á Droplaugar- stöðum í staðinn fyrir að taka lyft- una, og minnið virtist líka vera komið í lag. Þegar þú varst látin fórum ég og foreldrar mínir í kaffi til afa og ömmu. Var ég beðinn að kveikja á kertinu sem stóð á matarborðinu. Eftir að ég kveikti á kertinu horfði ég mikið á það og virti fyrir mér litla log- ann sem óx og dafnaði, þar til hann slokknaði skyndilega. En þótt þú sért dáin þá elskum við þig samt öll, kæra langamma. Gunnar Grímsson. KATRÍN INGIBERGSDÓTTIR ✝ Jón Kjartanssonfæddist í Pálm- holti í Arnarnes- hreppi, Eyjafirði 25. maí 1930. Hann lést á heimili sínu 13. þessa mánaðar. For- eldrar hans voru Kjartan Ólafsson, f. 29.12. 1893, d. 19.1. 1972, bóndi í Pálm- holti, og Þuríður Jónsdóttir, f. 12.8. 1907, d. 16.4. 1997, húsfreyja í Pálm- holti. Systkini Jóns eru Ólafur, f. 2.8. 1931, Elín, f. 13.9. 1934, og Guð- rún, f. 4.10. 1937. Þau eru öll bú- sett á Akureyri. Árið 1970 kvæntist Jón Ingi- björgu Gunnþórsdóttur, f. 24.6. 1946. Jón og Ingibjörg áttu saman Laugaskóla 1954 og stundaði nám við Kennaraskóla Íslands 1955– 1957. Hann lauk verkstjóraprófi 1977 og stundaði einnig nám við Námsflokka Reykjavíkur og Fé- lagsmálaskóla alþýðu. Jón vann ýmis störf, m.a. barna- kennslu, gullsmíði, steinsmíði hjá Steinsmiðu Sigurðar Helgasonar og var starfmaður Félagsmála- stofnunar Reykjavíkurborgar. Jón var einn af stofnendum Leigjendasamtakanna og formað- ur þeirra í mörg ár. Hann sat um tíma í stjórn Rit- höfundasambands Íslands og auk þess í stjórn Ásatrúarfélagsins. Eftir Jón liggur fjöldi bóka, ljóðabækur, skáldsögur og þýðing- ar. Má þar t.d. nefna nýútkomna ljóðabók, Söng í mannhafinu, sem kom út fyrir stuttu, Orgelsmiðj- una, skáldsögu 1965, Ferðina til Sædýrasafnsins, barnabók 1979, List og tár, ljóðaþýðingar 1991, auk fjölda blaðagreina. Útför Jóns verður gerð frá Foss- vogskirkju í dag og hefst athöfnin klukkan 15. tvö börn. Þau eru: 1) Sigrún Lilja, f. 13.3. 1968, sambýlismaður Stefán E. Pálsson, f. 24.1. 1956. Sonur þeirra er Gunnþór, f. 13.5. 1994. Fyrir átti Sigrún Lilja dótturina Svanfríði Sunnu Árnadóttur, f. 12.10. 1990. 2) Gunnþór, f. 18.9. 1974, maki Katr- ín Sylvía Gunnars- dóttir, f. 30.7. 1974. Jón og Ingibjörg slitu samvistum. Fyrir átti Jón dótturina Fann- eyju Möggu, f. 23.6. 1959. Hennar sonur er Magnús Dílan Soransson, f. 22.1. 1989. Móðir Fanneyjar Möggu er Steinunn Ósk Magnús- dóttir. Jón lauk gagnfræðaprófi frá Elskulegi afi okkar hefur alltaf ver- ið í miklu uppáhaldi hjá okkur. Okkur þótti öllum vænt um hann og örugg- lega mörgum öðrum. Hann var mikill og merkilegur maður. Afi var skemmtilegur og við mun- um ekki eftir einum einustu jólum án hans. Við og vonandi margir aðrir munu muna eftir honum sem fjörugum bókaormi, listamanni og síðast en ekki síst frábærum afa. Takk fyrir okkur. Sunna og Gunnþór afabörn. Fræg er frásögn Steins Steinarrs í blaðagrein, þar sem hann lýsir komu sinni til Reykjavíkur og langri leit að Njálsgötu, en þar átti hann vísan samastað í húsi númer tólf. Það tók hann tvær klukkustundir að finna umrætt hús. En frá þeirri stundu, sem hann fann húsið, var hann Reyk- víkingur, að eigin sögn. Og tíminn hélt áfram að vefjast upp á kefli eilífð- arinnar, uns þar kom árið 1954 að annar ungur sveitamaður sté sín fyrstu skref á strætum borgarinnar. Hann hafði komið með rútu norðan úr Eyjafirði og haft með sér miða. Á þessum blaðsnepli stóð götuheitið Njálsgata að viðbættu húsnúmeri. Þessum unga sveitamanni fór sem Steini Steinarr hálfum mannsaldri áð- ur; honum gekk treglega að finna Njálsgötu. Stoðaði lítt að spyrjast til vegar, því fólki lá á í dagsins önn. Þó kom þar, að hann sá lágvaxin mann á gráum frakka og fór sá sér að engu óðslega. Þennan mann ávarpar komu- maður og spyr til vegar; hann sé að leita að Njálsgötu. Þeir voru staddir neðarlega á Skólavörðustígnum og sá frakkaklæddi lét sér ekki nægja að vísa vegvilltum manni til vegar, held- ur gekk með honum upp brekkuna og alla leið þangað sem sér frá Skóla- vörðustíg að Njálsgötu. Þar skildu leiðir. Síðar komst hinn ungi Eyfirð- ingur að því, að sá sem leitt hafði hann að Njálsgötunni var enginn annar en Steinn Steinarr. Ekki fór það nú svo með þennan unga mann norðan úr Eyjafirði, að hann yrði Reykvíkingur við það eitt að finna hús við Njálsgötu, að minnsta kosti ekki til fulls. Til þess lágu rætur hans of djúpt í frjórri mold norð- lenskrar bændamenningar. Og ekki enn risnir með mönnum draumar um álver norður þar. Jón Kjartanson hét sveitamaður- inn ungi og átti eftir að kenna sig við bæ þann, hvar hann ólst upp, Pálmholt í Arnarneshreppi. En þá var hann líka orðinn skáld og þurfti því að aðgreina sig frá öðrum Jónum þessa heims. Ég ætla mér ekki þá dul að kryfja til mergjar skáldskap Jóns frá Pálmholti í stuttri minningargrein, enda veit ég ekki annað, en að hann lifi góðu lífi þótt höfundur hans hafi nú gengið á fund feðra sinna. Hitt er svo annað mál, að bókmenntaiðja Jóns hefur lengstum verið vanmetin af flestum. En það er ekki hans skaði, heldur tjón villuráfandi þjóðar, sem undanfarna áratugi hefur ekki þorað að líta í spegil en kosið að ráfa um í myrkri og eltast við staka glampa frá hrævareldum. En þetta ástand á eftir að ganga yfir eins og aðrar plágur. Þegar þar kemur mun fólk læra að meta skáldskap Jóns frá Pálmholti. Heldur væri það þunnur þrettándi, ef Jóns frá Pálmholti yrði aðeins minnst fyrir skáldskap. Til þess var maðurinn of flókinnar gerðar. Hann hafði ríkari réttlætiskennd en flestir menn aðrir, sem ég hef kynnst. Hann hafði megnustu skömm á auðsöfnun, án þess ég heyrði hann nokkru sinni segja eitt styggðaryrði um þá, sem rata í þá ógæfu, að gangast henni á vald. Og fátæktina fyrirleit hann að innstu hjartans rótum. Bæði var hon- um ljóst, að hún er jafn mannskemm- andi og auðurinn og eins þótti honum hún beinlínis óþörf. Seint verður víst fundin raunhæf lausn til að lækna menn af auðsöfn- unaráráttunni. Þar á móti eru ýmsar leiðir færar, til að losa fólk undan fá- tækt, ekki síst meðal ríkra þjóða eins og Íslendinga. Jón frá Pálmholti kaus að ganga eina af þessum leiðum með því að berjast fyrir réttindum eins fá- tækasta hóps fólks í landi hér; leigj- enda íbúðarhúsnæðis. Hann gekkst fyrir stofnum Leigjendasamtakanna og var formaður þeirra frá stofnun þeirra árið 1978 til ársins 1985 og síðar aftur á árunum 1989 til 2001. Vann hann þar merkilegt starf í mannrétt- indabaráttu snauðra Íslendinga, sem að áliti margra stjórnmálamanna og hagfræðinga eru víst ekki til. Ber þar JÓN FRÁ PÁLMHOLTI

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.