Morgunblaðið - 20.12.2004, Síða 28
FRÉTTIR
28 MÁNUDAGUR 20. DESEMBER 2004 MORGUNBLAÐIÐ
Treystu á þessar, þær virka...
Fæst í öllum apótekum, Blómaval,
Heilsuhúsunum og Heilsubúðinni Hfj.
af öllum flíspeysum til jóla.
20%afsláttur
J
Ó
N
S
S
O
N
&
L
E
’M
A
C
K
S
•
jl
.i
s
Fegurð
Hreysti
Hollusta
Hafnarstræti 97
602 Akureyri
Sími: 462 2214 FRANK USHER
S
tarfsemi tæknifrjóvgunar-
stofunnar ART Medica í
Kópavogi hefur komist í
kastljósið eftir að Morg-
unblaðið birti frétt sl.
miðvikudag um að óskað væri eftir
eggjum frá konum gegn greiðslu.
Málið vakti athygli og umtal og m.a.
kom fram gagnrýni frá heilbrigð-
isráðuneytinu og landlækni, sem
taldi að ART Medica væri þarna á
gráu svæði. Einnig hefur mikið verið
hringt á stofuna og spurt og dæmi
eru um að konur hafi spurt út í
greiðslurnar. Fleiri hafa þó boðið
fram aðstoð sína, án þess að hugsa
um að fá eitthvað greitt fyrir það.
Til að afla frekari upplýsinga um
fyrirkomulag eggjagjafar var tekið
hús á læknunum Þórði Óskarssyni
og Guðmundi Arasyni, sem eru í for-
svari fyrir ART Medica. Það gekk
reyndar ekki þrautalaust fyrir sig,
því biðstofan var þétt setin og erfitt
að ná tali af þeim félögum báðum í
einu. Skiptust þeir á að sinna við-
skiptavinum sínum og forvitnum
blaðamanni og í þessari stuttu heim-
sókn kom berlega í ljós hve eft-
irspurn eftir þjónustu ART Medica
er mikil. Þess má geta að ART er
skammstöfun á enska fagheitinu
Artificial reproductive technology.
Stofan hóf einkarekstur sinn í ný-
legu húsnæði við Bæjarlind 12 í októ-
ber sl. og var svo vígð með form-
legum hætti í byrjun nóvember af
Jóni Kristjánssyni heilbrigð-
isráðherra. Hjá ART Medica starfa
nú 10 manns, flestir þeir sömu og
voru á tæknifrjóvgunardeild Land-
spítalans, sem lokað var í júní á
þessu ári.
Hátt í 30 pör bíða eftir eggi
Tæknifrjóvganir lágu því niðri í
nokkra mánuði og segir Þórður í
upphafi samtals okkar að næg verk-
efni hafi beðið nýju stofunnar í októ-
ber. Mörg pör hafi verið orðin
óþreyjufull að komast að og langur
biðlisti myndast. Við opnun stof-
unnar var byrjað á tæknisæðingum
og síðan tóku glasafrjóvganir við.
Þeir segja starfsemina nú vera
komna á fullt og eftirspurn eftir
tæknifrjóvgunum vera svipaða og
þegar þeir störfuðu á Landspít-
alanum, en um 300 slíkar meðferðir
hafa farið fram árlega.
„Við höfum náð að anna eftir-
spurninni án þess að stytta mikið
biðlistana sem hafa myndast. Þörfin
fyrir egg er mikil en framboðið hefur
nær ekkert verið,“ segir Þórður en í
dag eru á bilinu 25–30 pör sem bíða
eftir því að fá egg til frjóvgunar.
Hafa sum pörin beðið í mörg ár og
m.a. gripið til þess ráðs að auglýsa í
blöðum eftir eggjagjafa. Hafa þær
auglýsingar ekki skilað árangri upp á
síðkastið og að sögn Þórðar og Guð-
mundar er það ekki síst af þeim sök-
um sem ART Medica ákvað að hjálpa
þessu fólki og vera milligönguaðili
um greiðslur fyrir egg frá konum, ef
með þarf.
Þeir leggja mikla áherslu á að
þetta séu ekki kaup og sala á ein-
hverri vöru, heldur séu greiðslurnar
hugsaðar til að dekka þann kostnað,
vinnutap og fyrirhöfn sem lendir á
konum sem vilja gefa egg. Um sé að
ræða meðferð sem geti tekið frá hálf-
um mánuði upp í einn mánuð og til
þessa hafi allur kostnaður lent á
eggjagjafanum. „Við tökum engar
þóknanir fyrir milligöngu okkar
heldur er litið á greiðslurnar sem
kostnað fyrir þá fyrirhöfn sem fylgir
svona meðferð. Við erum ekki að
auglýsa eftir eggjum til kaups og
sölu. Á því byggist sennilega mis-
skilningurinn sem hefur verið í um-
ræðunni,“ segir Þórður.
Skilyrði að vera ung og hraust
En hvernig ber kona sig að sem
vill gefa úr sér egg? Getur hvaða
kona sem er gefið egg? Ekki er það
svo einfalt, segja læknarnir. Fyrsta
skilyrði er að konan þarf að vera á
aldrinum 25–35 ára og hraust á sál
og líkama. Hún getur verið vinkona,
systir eða frænka konunnar, má alls
ekki vera mágkona hennar eða önnur
úr ætt viðkomandi eiginmanns eða
sambýlismanns.
Ef konan uppfyllir þessi skilyrði
getur hún haft samband við ART
Medica og er í kjölfarið kölluð í ít-
arlegt viðtal þar sem farið er yfir fé-
lagslegan bakgrunn og heilsufars-
sögu hennar. Grennslast er fyrir um
ástæðu fyrir áhuga konunnar og
henni gerð grein fyrir hvað hún er að
fara út í. Gengið er úr skugga um að
konan sé ekki að þessu á röngum for-
sendum og ef ástæða þykir til er
frekari upplýsinga aflað um hana
annars staðar frá, m.a. frá aðstand-
endum og kunningjum.
Þegar ákveðið hefur verið að hefja
meðferð og þiggja egg frá konunni,
hringir hún á tæknifrjóvgunarstof-
una við upphaf blæðinga og fær þá
nefúða og eina litla sprautu á dag í
vikutíma eða svo. Næst fer egg-
heimtan fram hjá ART Medica með
ómstýrðri ástungu og tekur sú að-
gerð 15–20 mínútur. Einum til tveim-
ur tímum síðar fær konan að fara
heim og notar nefúða áfram í nokkra
daga, eða þar til að blæðingar hefjast
á ný. Telst þá meðferð vera lokið fyr-
ir eggjagjafann.
Ekki líkt og blóðgjöf
Þórður bendir á að víða í hinum
vestræna heimi fari sæðisgjöf fram
og þá gegn greiðslu fyrir þann tíma
og fyrirhöfn sem slík meðferð kostar
viðkomandi gjafa. Slíkar greiðslur
tíðkist t.d. hjá sæðisbönkum í Dan-
mörku, sem útvegað hafa sæði hing-
að til lands, en um sé að ræða lágar
greiðslur og þær fyrst og fremst
hugsaðar sem óþægindakostnaður.
Lyfjafyrirtæki bjóði fólki einnig
greiðslur fyrir þátttöku í margs kon-
ar rannsóknum.
Landlæknir hefur líkt eggjagjöf
við gjöf á lífsýnum eins og blóði.
Þórður segir þetta ekki sambærilegt.
Blóðgjöf kalli á heimsókn í Blóð-
bankann sem taki 15–20 mínútur en
eggjagjöf geti tekið allt upp í mánuð
og fyrirhöfnin því margfalt meiri.
Varðandi umræðuna um greiðslur
og ekki greiðslur benda þeir á að séu
eggjagjafar óskyldir konunum þá sé
til mikils mælst ef þeir fá ekkert fyr-
ir sína fyrirhöfn. Ekki geti verið um
háar greiðslur að ræða ef til kemur.
Að sögn læknanna hjá ART Medica
hafa nokkrar konur hringt síðustu
daga og efst í huga þeirra margra
hefur ekki verið að fá eitthvað greitt
fyrir egg úr sér. Hafa þessar konur
gjarnan sagt að þær hafi ekki áttað
sig á hver þörf fyrir gjafaegg hafi
verið mikil. Eru þó einhver dæmi
þess að konur hafi spurt hve þóknun
geti verið mikil.
Spurður hvort greiðslur fyrir egg
úr konum hafi tíðkast áður segist
Guðmundur ekki vita til þess, enda
hafi tæknifrjóvgunardeild Landspít-
Mikið hringt í tæknifrjóvgunarstofuna ART Medica og spurt út í egg til gjafar eða greiðslu
Erum alls ekki á gráu svæði
Morgunblaðið/Sverrir
Læknarnir Þórður Óskarsson og Guðmundur
Arason hjá tæknifrjóvgunarstofunni ART
Medica segja misskilning vera í umræðunni um
greiðslur fyrir egg til tæknifrjóvgunar. Í sam-
tali við Björn Jóhann Björnsson segjast þeir
aðeins vera milliliðir í aðstoð við fjölmörg pör
sem beðið hafa eftir eggi árum saman.