Morgunblaðið - 22.12.2004, Síða 3

Morgunblaðið - 22.12.2004, Síða 3
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 22. DESEMBER 2004 C 3 ÞÓRARINN Kristjánsson, knattspyrnumaður úr Keflavík, er kominn heim eftir vikudvöl hjá norska 1. deildarliðinu Bryne. Áður var hann í rúma viku hjá Busan Icons í Suður-Kóreu, og honum líst mjög vel á aðstæður hjá báðum félögum. Flest bendir til þess að hann fái tilboð frá þeim báðum á næstu dögum. „Það kom mér nokkuð á óvart hversu öflugt félag Bryne er þó það sé í 1. deild. Þetta er hörku fé- lag sem ætlar sér stóra hluti og hefur sett stefnuna beint á úrvals- deildina. Eins var það með Busan Icons, þar voru bæði að- stæður og sjálfur fótbolt- inn mun betri en ég átti von á og það væri spenn- andi kostur að spila þar,“ sagði Þórarinn við Morg- unblaðið í gær. Hann ætlar þó að kanna þriðja kostinn en Þórarinn fer til Skotlands í byrjun janúar og æfir þá vænt- anlega með úrvalsdeildarliðinu Aberdeen. „Ég ætla að bíða með að ákveða mig framyfir þá ferð en ég stefni á að klára mín mál sem fyrst að henni lokinni og ætla að vera kominn með allt á hreint um miðjan janúar,“ sagði Þórarinn Kristjánsson. Þórarinn ánægður með bæði Busan og Bryne Þórarinn FÓLK  ELLERT Jón Björnsson, knatt- spyrnumaður, skrifaði í gær undir nýjan tveggja ára samning við ÍA. Ellert lék 10 leiki með Skagamönn- um í úrvalsdeildinni á síðustu leiktíð og skoraði tvö mörk og þrjú mörk í þremur Evrópuleikjum.  FINNUR Hansson, fyrrum leik- maður FH, er í færeyska landsliðinu í handknattleik sem mætir Norð- mönnum í tveimur leikjum í vikunni, í Noregi. Finnur, sem er sonur Hans Guðmundssonar, fyrrum leikmanns með FH og fleiri félögum og íslenska landsliðinu, hefur verið búsettur í Færeyjum um árabil og leikur þar með Kyndli frá Þórshöfn.  GUÐJÓN Valur Sigurðsson, Ess- en, var valinn í lið vikunnar í annað sinn á leiktíðinni af þýska handbolta- tímaritinu Handball Woche sem birti liðið í gær.  GUÐMUNDUR Stephensen og fé- lagar í Malmö unnu Meriedals í 10. umferð sænsku deildarinnar í borð- tennis í fyrradag. Guðmundur vann sinn leik nokkuð örugglega 3-1 þar sem allar loturnar enduðu 11:7. Malmö er í öðru sæti með 16 stig en Eslövs er efst með 18 stig.  FRÓÐI Benjamínsen, færeyski landsliðsmaðurinn í knattspyrnu sem lék með Fram í sumar, er geng- inn til liðs við B36 í Þórshöfn. Flest liðin í færeysku 1. deildinni voru á höttunum á eftir Fróða sem kom til Fram frá B68.  FERNANDO Morientes, sem er á mála hjá Real Madrid, lýsti því yfir í gær að hann hefði mikinn áhuga á að leika með Liverpool í Englandi. Hann fær fá tækifæri hjá Real, var í láni hjá Mónakó í fyrra og gekk mjög vel og hefur franska liðið falast eftir kröftum hans á ný eins og Liverpool.  VELIMIR Zajec var í gær ráðinn knattspyrnustjóri Portsmouth í stað Harry Redknapps sem sagði starfi sínu lausu á dögunum og er tekinn við liði Southampton. Zajec var ráð- inn yfirmaður knattspyrnumála hjá Portsmouth í haust og það fór eitt- hvað fyrir brjóstið á Redknapp sem ákvað í kjölfarið að hætta.  STEVE Morgan, sem hefur reynt að fjárfesta í Liverpool undanfarið, hefur dregið 70 milljóna punda tilboð um að taka yfir félagið til baka. Hann segist vera orðinn þreyttur á að bíða eftir því að stjórnin taki ákvörðun og reyni um leið að nota tilboð hans til að pressa á einhverja aðra um að gera betra tilboð.  THOMAS Grandi frá Kanada varð hlutskarpastur í stórsvigi í heims- bikarkeppninni á skíðum en mótið fór fram í Flachau í Austurríki í gær. Þetta var annar sigur Grandis í heimsbikarkeppninni en hann fagn- aði sigri á Ítalíu um síðustu helgi. Didier Cuche frá Sviss varð annar og Bandaríkjamaðurinn Bode Mill- er, sem hefur forystu í stigakeppn- inni, varð þriðji. SIGURLÁS Þorleifsson var í gær ráðinn þjálfari bik- armeistaraliðs ÍBV í knatt- spyrnu kvenna til eins árs. Hann tekur við liðinu á ný eftir sex ára hlé, en Heimir Hallgrímsson, sem tók við af Sigurlási fyrir tímabilið 1999, lét af störfum í haust. Heimir hefur verið með Eyjaliðið frá 1999, að árinu 2002 undanskildu þegar El- ísabet Gunnarsdóttir stjórn- aði því frameftir sumri og Michelle Barr á lokasprett- inum. Sigurlás þjálfaði áður karlalið ÍBV, Stjörnunnar og Selfoss og hann hefur þjálf- að yngri flokka í Vest- mannaeyjum um árabil. ÍBV vann sinn fyrsta stóra titil á þessu ári þegar liðið varð bikarmeistari og það hefur verið í öðru sæti úrvals- deildar undanfarin tvö ár. Sigurlás tekur við ÍBV Samningur Auðuns við Landskronarennur út um áramótin en forráða- menn liðsins hafa boðið honum nýjan tveggja ára samning og þá hafa Íslands- meistarar FH-inga rætt lítillega við Auðun með það fyrir augum að fá hann í sínar rað- ir. Auðun hafnaði tilboði frá norska úrvals- deildarliðinu Fredrikstad á dögunum og þá hefur félag í dönsku úrvalsdeildinni sýnt honum áhuga. „Ég var nú eiginlega nokkuð ákveðinn í að flytja heim. Ég hafnaði tveimur tilboð- um frá Landskrona en nú er ég með það þriðja undir höndum og er að brjóta heil- ann um hvað ég eigi að gera. Það tók nýr þjálfari við Landskrona í haust og eftir að hafa rætt við hann þá freistar það mín að vera áfram hjá liðinu því hann leggur mikla áherslu á að ég verði um kyrrt,“ sagði Auðun við Morgunblaðið í gær. Auðun segir líka spennandi að koma heim og spila í úrvalsdeildinni og þá fyrir FH. Auðun er fæddur og uppalinn FH- ingur og lék með liðinu áður en hann skipti yfir í Leiftur Ólafsfirði og fór síðan út í at- vinnumennsku, fyrst með Viking í Noregi, síðan Lokeren í Belgíu og loks hjá Lands- krona í Svíþjóð þar sem hann hefur leikið síðustu tvö árin. „Það kemur vissulega til greina að spila hér heima og þá vonandi með FH,“ sagði Auðun sem reiknar með að taka ákvörðun um framtíð sína á allra næstu dögum. Auðun með Lands- krona eða FH AUÐUN Helgason knattspyrnumaður hefur ekki gert upp hug sinn um hvort hann leikur áfram með sænska úrvalsdeildarliðinu Landskrona á næstu leiktíð eða sest að á Íslandi á nýjan leik og gengur í raðir sinna gömlu félaga í FH. Auðun Helgason Við höfum gert það upp við okkur ern verður kallað ef þörf reynist r markvörð til viðbótar ef meiðsli ma upp hjá þeim sem fyrir eru. Þá ður leitað til Ólafs Gíslasonar hjá eir sextán leikmenn sem ég hef valið og stefni á að fara með til is eru heilir heilsu eftir því sem est veit. Nokkrir þeirra eiga eft- ð fara í gegnum strangt pró- mm hjá félagsliðum sínum í kalandi fram yfir áramót. Nú er a að krossa fingur og vona að allir pi heilir í gegnum þessa leiki,“ r Viggó Sigurðsson, sem farið er klæja í fingurna eftir að hefja irbúning með landsliðinu sínu r fyrsta stórmótið sem landsliðs- fari í handknattleik – heims- starakeppnina í Túnis.           ! " " " # # # # # # # # 1 899> ; 4< #' 899@ ; C2  Morgunblaðið/Golli Guðjón Valur Sigurðsson skorar í sigurleik gegn Slóveníu á ÓL í Aþenu. ÍÞRÓTTIR HSÍ hefur fengið tvo mark- varðaþjálfara til að koma til móts við íslenska landsliðið á meðan það dvelur í Svíþjóð við æfingar 3.–7. janúar nk. Þetta eru Ramón Lauren, mark- varðaþjálfari hjá Ystad, en lið- ið er eitt af fjórum þeim bestu í Svíþjóð. Hinn er Peter Kanht en hann hefur verið mark- mannaþjálfari hjá sænska handknattleikssambandinu og félagsliðum. Lauren, sem vinnur með sænska unglinga- landsliðið, kemur með heim með íslenska landsliðinu og þjálfar markverði landsliðsins þar til það heldur í æfingaferð til Spánar 13. janúar. Allar æf- ingar þeirra verða teknar upp á myndband til fræðslu og út- breiðslu fyrir íslenskan hand- knattleik. „Markvarsla er Akkíles- arhællinn í íslenskum hand- knattleik og ég vil að á þessum málum verði tekið. Því vona ég að þessi samvinna við sænsku þjálfarana sé upphafið að því að menn taki þjálfun markvarða föstum tökum hér á landi og mér finnst koma til greina að HSÍ stuðli að fleiri heimsóknum sem þessum,“ segir Viggó Sigurðsson, lands- liðsþjálfari. Þeir þjálfa mark- verðina

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.