Morgunblaðið - 22.12.2004, Qupperneq 4
EIÐUR Smári Guðjohnsen,
fyrirliði íslenska landsliðs-
ins í knattspyrnu, sem tók
þátt í kjöri á leikmanni árs-
ins á vegum Alþjóða knatt-
spyrnusambandsins, setti
samherja sinn hjá Chelsea,
Frank Lampard, í efsta sæt-
ið á atkvæðaseðli sínum,
Thierry Henry í annað og
Ronaldinho í þriðja.
Atkvæðaseðill landsliðs-
þjálfaranna Ásgeirs Sig-
urvinssonar og Loga Ólafs-
sonar var með Ronaldinho í
efsta sæti, Thierre Henry í
öðru og Brasilíumanninn
Adriano í þriðja.
Það voru landsliðsþjálf-
arar og fyrirliðar landsliða,
sem tóku þátt í kjörinu.
Eiður Smári
valdi
Lampard
FÓLK
GUÐJÓN Þórðarson, fyrrverandi
landsliðsþjálfari í knattspyrnu, skrif-
aði í gær undir þriggja ára samning
hjá Keflavíkurliðinu í knattspyrnu.
JULIAN Duranona skoraði 9
mörk, þar af eitt úr vítakasti, þegar
lið hans Vulkan Vogelsberg vann
SG Bruchköbel, 37:31, í 3. deild
þýska handknattleiksins. Duranona
er markahæsti leikmaður liðsins á
leiktíðinni, hefur skorað 115/25 í 13
leikjum.
GRÍÐARLEGUR áhugi var í Nor-
egi á úrslitaleik Norðmanna gegn
Dönum í úrslitaleik Evrópumóts
landsliða í handknattleik sl. sunnu-
dag. Tæplega 1,3 millj. Norðmenn
horfðu á beina útsendingu frá leikn-
um á TV 2 en þar fögnuðu Norð-
menn sigri. En þetta er ekki metá-
horf þar sem 1,5 millj. Norðmenn
sáu úrslitaleik Norðmanna gegn
Frökkum í úrslitum heimsmeistara-
keppni kvenna sem fram fór í Noregi
árið 1999.
SCOTT Parker miðjumaður úr liði
Chelsea leikur ekki knattspyrnu
næstu vikurnar. Leikmaðurinn varð
fyrir meiðslum í leik Chelsea gegn
Norwich um síðustu helgi og eftir
myndatöku kom í ljós að Parker er
fótbrotinn.
RICARDO Carvalho, varnarmað-
ur Chelsea, er frá keppni eins og er
vegna tábrots. Hann lék ekki gegn
Norwich en José Mourinho, knatt-
spyrnustjóri, reiknar með að hann
geti leikið gegn Liverpool á nýárs-
dag en telur hæpið að Portúgalinn
nái leiknum við Aston Villa annan í
jólum.
MATHIAS Svensson framherji
Norwich verður frá keppni og æf-
ingum næstu vikurnar vegna
meiðsla í hné sem hann hlut í leikn-
um við Chelsea um nýliðna helgi.
EDMILSON hinn brasilíski, er á
förum frá norska liðinu Lyn en þang-
að kom hann í sumar. Hann fékk
heimþrá kappinn og var ákveðið að
láta hann fara, enda náði hann sér
aldrei á strik með liðinu. Lyn hefur
keypt finnska sóknarmanninn Keijo
Huusko, en hann er 24 ára og var ný-
lega valinn í finnska landsliðið í
knattspyrnu.
DANIEL Karbassiyoon, tvítugur
varnarmaður frá Arsenal, hefur ver-
ið lánaður til 1. deildarliðs Ipswich í
einn mánuð. Karbassiyoon er banda-
rískur en foreldrar hans eru frá Ítal-
íu og Íran og hann hefur leikið með
yngri landsliðum Bandaríkjanna.
Hann lék með Arsenal gegn Ever-
ton, Manchester City og Manchester
United í deildabikarnum fyrir
skömmu og skoraði gegn City.
Ég á ekki von á því að takaákvörðun fyrir jól, en býst við
að vera búinn að því fyrir áramót.
Það kemur vel til greina að leika
áfram og það væri mun skemmti-
legra að halda áfram að spila körfu-
bolta. En ég veit ekki hvað verður,“
sagði Kristinn við Morgunblaðið í
gær. Spurður um hvort líklegra
væri að hann léki með liði á Suð-
urnesjum þar sem hann er búsettur
sagði Kristinn að það skipti ekki
öllu máli. „Ég gæti allt eins leikið
með Tindastól á ný eða Keflavík. Í
raun skiptir það ekki máli hvar liðið
er staðsett og allt kemur til
greina,“ sagði Kristinn en hann
verður 33 ára á Þorláksmessu.
Hann lék fyrst í úrvalsdeild 1989–
1990 með Keflavík og hefur skorað
yfir 15 stig að meðaltali í úrvals-
deild í rúmlega 300 leikjum. Mest
tímabilið 1994–1995 með Þór frá
Akureyri, 27,1 stig að meðaltali.
KRISTINN Friðriksson, fyrrverandi þjálfari og leikmaður úrvals-
deildarliðs Grindavíkur í körfuknattleik, hefur ekki gert upp hug
sinn hvort hann leiki með öðru félagi á yfirstandandi leiktíð. Samn-
ingi Friðriks var sagt upp í síðustu viku og tók Einar Einarsson við
sem þjálfari liðsins.
SHAQUILLE O’Neal miðherji
NBA-liðsins Miami Heat mun
mæta fyrrum félögum sínum í
Los Angeles
Lakers í
fyrsta sinn á
laugardag
frá því að
hann fór frá
Lakers sl.
sumar. Í við-
tali á mánu-
daginn sagði
O’Neal að
hann ráð-
legði fyrrum
félaga sínum
hjá Lakers,
Kobe
Bryant, að
halda sig
fyrir utan vítateiginn í sókn-
arleik Lakers, því það mætti bú-
ast við átökum. Bryant hefur
ítrekað sent O’Neal kaldar
kveðjur í gegnum fjölmiðla frá
því O’Neal fór fram á það að
fara frá Lakers.
„Ef að hraðskreiður bíll lendir
á vegg á miklum hraða þá mun
eitthvað slæmt gerast. Bryant er
hraðskreiður og ég er vegg-
urinn,“ sagði O’Neal við ABC-
sjónvarpsstöðina á mánudaginn.
Leikurinn fer fram í Los Ang-
eles og býst O’Neal við köldum
kveðjum frá stuðningsmönnum
liðsins. „Ég virði Bryant sem
leikmann en við vorum ekki
miklir mátar á meðan við vorum
samherjar og hann virti mig
ekki sem leikmann, hann vildi að
ég léki með öðrum hætti sem
hentaði honum betur. En ég
vissi að ég yrði að fara frá fé-
laginu er ég frétti það á vefsíðu
að Phil Jackson þjálfari liðsins
yrði ekki endurráðinn. Yfirleitt
var ég sá fyrsti sem frétti um
breytingar sem voru í vændum
en það var búið að ýta mér út í
horn hjá félaginu,“ segir O’Neal.
„Vertu
úti,
vinur“
O’Neal
ÞAÐ hrökk ekki til hjá Allen Iver-
son að hann skyldi skora 51 stig
fyrir Philadelphia 76ers í NBA-
deildinni í fyrrakvöld en þar tapaði
76’ers 103:101 gegn Utah Jazz.
Iverson skoraði 54 stig gegn Mil-
waukee í síðasta leik 76’ers og er
þar með sjöundi leikmaðurinn frá
upphafi NBA-deildarinnar sem
skorar 50 stig eða meira í tveimur
leikjum í röð. Iverson fékk 6. villu
sína rétt fyrir leikslok eftir að hann
braut á Mehmet Okur og tryggði
Okur Jazz sigur með því að hitta úr
tveimur vítaskotum.
„Jim O’Brien þjálfari okkar var
duglegur að kalla leikkerfi þar sem
ég fékk að ljúka sóknum okkar og í
raun notuðum við sama leikkerfið
fyrir mig frá upphafi til enda. Það á
við um alla leikmenn sem ná að
finna taktinn í sókninni, þeir hætta
ekki að skjóta,“ sagði Iverson eftir
leikinn en hann skoraði 54 stig
gegn Milwaukee í vikunni og er þar
með fyrsti leikmaður félagsins sem
nær að skora meira en 50 stig í
tveimur leikjum í röð frá því að Wilt
Chamberlain gerði slíkt árið 1962.
Antawn Jamison skoraði 50 stig í
tveimur leikjum í röð sem leik-
maður Golden State Warriors árið
2000 en aðrir sem hafa afrekað
slíkt eru Rick Barry, Elgin Baylor,
Chamberlain, Bernard King og
Michael Jordan.
AP
Allan Iverson sækir hér að körfu Utah Jazz, þar sem þeir Aleks-
andar Radojevic (51) og Carlos Boozer eru til varnar.
Iverson með
yfir 50 stig á ný
Kristinn liggur
undir feldi