Morgunblaðið - 28.12.2004, Blaðsíða 11
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 28. DESEMBER 2004 11
FRÉTTIR
Setja skýr mörk á þann tíma sem barnið
fær að horfa á sjónvarp.
Hvetja til útileikja og hreyfingar.
Ganga eða hjóla í stað þess að taka
strætisvagn eða fá bílfar.
Nota stigann í stað lyftu eða rúllustiga.
Fara í gönguferðir, t.d. eftir göngustíg-
um í bæjum eða á öðrum útivistar-
svæðum.
Synda, hjóla eða renna sér á hjólabretti,
skíðum eða skautum.
Fara í frjálsa leiki með vinum.
Taka þátt í skipulögðu íþróttastarfi, s.s.
fótbolta, handbolta, blaki eða dansi.
Taka þátt í starfi félagsmiðstöðva,
skátastarfi eða útilífsstarfi s.s. vetrar-
íþróttum, klifri, fjallgöngum, fjallahjól-
reiðum eða ratleikjum.
Sækja íþróttakennslu og/eða líkams-
ræktarstöðvar.
Leiðir til að
auka hreyf-
ingu barna
„ÞETTA er í fyrsta lagi
tillaga um að hafin verði
vinna við að reyna að
sporna við þessari þró-
un í heilbrigðismálum,
sem er afleiðing offitu,
sérstaklega hjá börn-
um,“ segir Ásta R. Jó-
hannesdóttir, þingmað-
ur Samfylkingarinnar,
um þingsályktunartil-
lögu sína um takmörk-
un auglýsinga á óhollri
matvöru. Lagði hún til-
löguna fram á Alþingi
fyrr í þessum mánuði.
Meginefni tillögunn-
ar er eftirfarandi: „Al-
þingi ályktar að fela heilbrigðis-
ráðherra að kanna grundvöll fyrir
setningu reglna um takmörkun
auglýsinga á matvöru sem inni-
heldur mikla fitu, sykur eða salt
með það að markmiði að sporna við
offitu, einkum meðal barna og ung-
menna. Ráðherra leitist í þessu
skyni m.a. við að ná samstöðu með
framleiðendum, innflytjendum og
auglýsendum um að þessar vörur
verði ekki auglýstar í sjónvarpi
fyrr en eftir klukkan níu á kvöld-
in.“
Í greinargerð tillögunnar segir
að það sé von flutningsmanna að
hægt verði að koma á slíku banni
án beinnar lagasetningar. Með-
flutningsmenn Ástu eru fimm aðrir
þingmenn Samfylkingarinnar.
Ásta segir að tillaga hennar hafi
vakið mikla athygli og að hún hafi
almennt hlotið jákvæð viðbrögð.
Hún bendir á að Bretar séu að fara
svipaða leið, þ.e. þeir hafi ákveðið
að banna auglýsingar um ham-
borgara, gosdrykki og annað rusl-
sóknarverðar í augum barnanna
og með hliðsjón af niðurstöðum
rannsókna sem sýna sífellt aukna
sykur- og fituneyslu meðal barna
og ungmenna má álykta að auglýs-
ingarnar nái tilætluðum árangri.
Það er von og trú flutningsmanna
að framleiðendur, innflytjendur og
auglýsendur taki ábyrgð á þessum
málum þannig að unnt verði að
koma slíku auglýsingabanni á án
beinnar lagasetningar. Með fram-
angreindu er ekki gert lítið úr
ábyrgð foreldra í þessu efni. Þvert
á móti er það skoðun flutnings-
manna að þar sé ábyrgðin mest.
Hins vegar kemur það ekki í veg
fyrir aðrir axli þá ábyrgð sem þeim
ber í þessum málum. Að ota í sí-
fellu óhollum mat að börnum og
ungmennum án þess að hirða um
afleiðingarnar er ábyrgðarleysi.“
stjórnvalda til að stemma stigu við
þróuninni. „Í þessu sambandi er
sérstaklega brýnt að stjórnvöld
beini sjónum að aukinni offitu með-
al barna og ungmenna en rann-
sóknir hafa sýnt svo ekki verður
um villst að tíðni offitu hjá þeim
eykst hröðum skrefum. Sú stað-
reynd hlýtur að valda verulegum
áhyggjum enda eykur offita á unga
aldri verulega líkur á offitu á full-
orðinsárum.“
Áhrifamáttur
auglýsinga mikill
Í greinargerðinni segir að nauð-
synlegt sé að horfast í augu við að
áhrifamáttur auglýsinga sé mikill
„og þegar um börn er að ræða er
hann verulegur,“ segir í greinar-
gerðinni. „Með auglýsingum eru
umræddar matvörur gerðar eftir-
fæði í sjónvarpinu,
þegar börn horfa
mest á það, til að
sporna við offitu
barna.
„Þessi leið er til
umræðu víðar
þannig að mér
fannst ástæða til
þess að við hreyfð-
um við þessum
málum hér.“ Von-
ast hún til þess að
ráðherra og hags-
munaaðilar geti
komið sér saman
um reglur í þess-
um efnum. „Ég
trúi ekki öðru en að menn muni á
endanum líta jákvætt á þetta. Það
þarf hugarfarsbreytingu hjá þjóð-
inni og samfélagsátak til að breyta
þessu, þ.e. til að breyta lífsstíl,
mataræði og hreyfingu.“
Faraldur í
íslensku þjóðfélagi
Í greinargerð tillögunnar segir
m.a. að offita sé hratt vaxandi heil-
brigðisvandamál, einkum í hinum
vestræna heimi og að þar sé Ísland
engin undantekning. „Hafa rann-
sóknir sýnt að offita er í raun orðin
faraldur í íslensku þjóðfélagi en
hún eykur stórlega líkur á ýmsum
sjúkdómum, t.d. sykursýki 2 eða
svokallaðri áunninni sykursýki,
hjarta- og æðasjúkdómum, ristil-
krabbameini, kæfisvefni og stoð-
kerfissjúkdómum, auk þess sem
fullyrða má að sálrænir fylgikvillar
offitu séu verulegir.“
Í greinargerðinni segir að þrátt
fyrir þessar staðreyndir hafi lítið
farið fyrir beinum aðgerðum
Ásta R. Jóhannesdóttir, alþingismaður Samfylkingarinnar
Spornað verði við auk-
inni offitu meðal barna
Reuters
Ásta R. Jóhannesdóttir, þingmaður Samfylkingarinnar, hefur lagt fram
þingsályktunartillögu um takmörkun auglýsinga á óhollri matvöru.
Ásta R.
Jóhannesdóttir
Hafið reglu á máltíðum og millibitum,
forðist sífellt nart.
Reynið að koma í veg fyrir að barnið
borði fyrir framan sjónvarp eða meðan
það er að læra heima.
Hafið hollan mat í boði en leyfið sætindi
af og til, t.d. einu sinni til tvisvar í viku.
Verðlaunið barnið með öðru en mat eða
sætindum, t.d. með því að gefa því lím-
miða, bók eða leikföng, með bíóferðum
eða öðru sem því finnst skemmtilegt.
Notið frekar snertingu, samúð og hlýju
til að hugga, en síður mat.
Hafið ekki mat og drykk, sem barnið
þarf að forðast, aðgengilegan fyrir
barnið á heimilinu.
Heimild: Landlæknisembættið.
Klínískar leiðbeiningar um offitu barna og unglinga.
Leiðir til að
breyta matar-
venjum barna
JÚLÍUS Sigurbjörnsson, deildarstjóri rekstr-
ardeildar Fræðslumiðstöðvar Reykjavíkur,
segir það markmið Fræðslumiðstöðvarinnar
að nemendur fái ódýran, lystugan og hollan
mat í skólum borgarinnar.
„Ég kem í mjög mörg mötuneyti [skólanna]
og annaðhvort borða eða sé matinn. Það er
undantekning ef hann er ekki lystugur eða
virðist ekki hollur.“ Hann segir að hingað til
hafi skólarnir ekki haft samræmdan matseðil.
Að sögn Júlíusar lét Fræðslumiðstöðin ný-
lega gera úttekt á starfsemi eldhúsa skólanna.
Hann vill ekki upplýsa um niðurstöðu þeirrar
úttektar. Segir að skýrsluna þurfi fyrst að
senda til viðeigandi aðila.
Undantekning
ef matur
er ekki lystugur
Morgunblaðið/Ásdís
„ÞETTA er óframkvæmanleg til-
laga,“ segir Bjarney Harðardóttir,
formaður Samtaka auglýsenda,
SAU, um þingsályktunartillögu Ástu
R. Jóhannesdóttur alþingismanns
um takmörkun auglýsinga á óhollri
matvöru. Tillagan gerir m.a. ráð
fyrir því að heilbrigðisráðherra leit-
ist við að ná samstöðu með framleið-
endum, innflytjendum og auglýs-
endum um að óhollar matvörur
verði ekki auglýstar í sjónvarpi fyrr
en eftir klukkan níu á kvöldin.
Bjarney segist alfarið á móti slíku
banni. Ástæðan sé fyrst og fremst sú
að erfitt sé að skilgreina hvað sé
óhollt og hvað ekki. „Í öðru lagi mis-
munar þetta nýjum aðilum sem vilja
kynna sína vöru því ef auglýsingar
eru bannaðar með þessum hætti
komast nýir aðilar síður inn á mark-
aðinn, þ.e. þeir ná ekki sömu um-
fjölluninni og þeir sem fyrir eru á
markaðnum.“
Bjarney segir, í þessu sambandi,
að rannsóknir sýni að auglýsingar
hafi áhrif á það hvaða vörumerki
neytendur velja fremur en að auka
neyslu. „Auglýsingar hafa t.d. áhrif
á það hvernig súkkulaði fólk kaupir
en ekki hvort það kaupir súkkulaði,“
útskýrir hún.
Bjarney segir ennfremur að með
tillögunni sé verið að taka einn miðil
út, þ.e. sjónvarpið. Spyr hún hvað
eigi þá að gera við aðra miðla.
„Hvað á t.d. að gera við auglýsingar
í bíóum, auglýsingar í útvarpi eða
auglýsingar í blöðum?“ segir hún og
bætir við: „Þetta er mjög flókið í
framkvæmd, nánast óframkvæm-
anlegt.“
Bjarney Harðardóttir,
formaður SÍA
Alfarið á
móti banni
„RANNSÓKNIR hafa sýnt að
um það bil 20% íslenskra barna
eru yfir kjörþyngd,“ segir Laufey
Steingrímsdóttir, sviðsstjóri
verkefna- og rannsóknarsviðs
Lýðheilsustöðvar. „Fyrir nokkr-
um áratugum var þetta hlutfall
innan við eitt prósent.“ Haldi svo
fram sem horfi verði offita barna
mikið vandamál í framtíðinni.
Laufey segir meiri líkur á því
að einstaklingur verði yfir kjör-
þyngd á fullorðinsárum hafi hann
verið yfir kjörþyngd á barnsaldri.
Það eigi þó ekki við um ungbörn,
þ.e. lítið samband sé á milli of-
þyngdar ungbarna og ofþyngdar
fullorðinna.
Hún hvetur foreldra og for-
ráðamenn til þess að vera vak-
andi fyrir því ef barn, sem er að
komast á skólaaldur, þyngist
óhóflega mikið. Börn eigi þó aldr-
ei að setja í megrun, heldur eigi
að gefa þeim hollan mat og hvetja
þau til þess að leika sér úti og
hreyfa sig. Sömuleiðis eigi að
reyna að takmarka langar setur
þeirra fyrir framan sjónvarp eða
tölvu.
Laufey leggur þó áherslu á að
ekki sé hægt að breyta mataræði
barna, án þátttöku allrar fjöl-
skyldunnar. „Foreldrarnir og
fjölskyldan verða að taka þátt í
þessu með barninu og besti ár-
angurinn næst þegar börn hafa
ekki hugmynd um að verið sé að
endurskoða mataræðið eða auka
hreyfinguna.“
Fjölskyldan þurfi því að hugsa
sinn gang og spyrja hvað hægt sé
grundvöllur fyrir setningu reglna
um takmörkun auglýsinga á mat-
vöru sem innihalda mikla fitu,
sykur eða salt með það að mark-
miði að sporna við offitu, einkum
meðal barna og ungmenna.
„Okkur [hjá Lýðheilsustöð-
inni] líst vel á að þetta mál verði
tekið til athugunar,“ segir Lauf-
ey. „Augu manna eru, víða um
heim, að opnast fyrir þessari
miklu markaðssetningu gagnvart
börnum.“ Hún segist þar ekki
einasta vísa til auglýsinga heldur
einnig til markaðssetningar al-
mennt fyrir börn. Til dæmis í
tengslum við tómstundastarf og
íþróttir og eins varðandi það hvað
sé í boði í skólunum.
Hún vill að tekið verði á þessu,
sérstaklega, þar sem börn eiga í
hlut. „Sumir segja að þetta sé
forræðishyggja en þegar börn
eiga í hlut er þörf á meiri aðgát.
Við þurfum að passa börnin okk-
ar. Það gildir því annað um börn
en fullorðna.“
Aðspurð segir Laufey að fáar
rannsóknir hafi verið gerðar, hér
á landi, á því hvort og þá hvernig
auglýsingum sé beint að börnum.
Lýðheilsustöðin og Hjartavernd
hafi þó nýlega hafið þátttöku í
evrópsku verkefni sem fjalli um
markaðssetningu matvæla fyrir
börn. „Við erum því rétt byrjuð
að vinna í þessu en engin niður-
staða liggur enn fyrir,“ segir hún.
Upplýsingar um markaðssetn-
ingu gagnvart börnum þurfi þó
að liggja fyrir áður en settar
verði reglur í þeim efnum.
að gera betur; hvernig hægt sé að
hafa hollari mat og sem minnst af
snakki, kexi og kökum á heim-
ilinu.
Laufey segir líka mikilvægt að
börnum sé boðið upp á skemmti-
lega hreyfingu. „Það er aldrei
hægt að búast við því að fólk end-
ist, hvorki börn né fullorðnir, í
einhverri líkamsrækt, sem veitir
ekki ánægju eða skemmtun. Það
er leikurinn sem gildir þegar
börn eru annars vegar.“
Þurfum að passa
börnin okkar
Aðspurð kveðst Laufey taka
vel í þingsályktunartillögu Ástu
R. Jóhannesdóttur alþingis-
manns um að kannaður verði
Um 20% íslenskra
barna yfir kjörþyngd
Morgunblaðið/Golli
Laufey Steingrímsdóttir