Morgunblaðið - 28.12.2004, Qupperneq 23
Reyðarfjörður | Vinna við grunn álversins við
Reyðarfjörð hófst í september og gengur sam-
kvæmt áætlun. Á henni að mestu að vera lokið inn-
an árs. Jarðvegsvinna er unnin af Suðurverki hf.
Hafnarfirði, en fyrirtækið tekur á sama tíma einnig
þátt í að byggja tvær stíflur, þar sem magnið er um
4,5 milljónir m3 við Kárahnjúka.
Á álverslóðinni er um að ræða útgröft lausra
jarðlaga sem nemur um 1.400.000 m3, sprengingu
klappar sem nemur 1.600.000 m3, mölun fyllingar
um 1.500.000 m3 og gerð frárennslisskurða sem eru
2,6 km á lengd og magnið þar um 300.000 m3. Mun
þetta vera stærsta verkefni sinnar tegundar hér á
landi. Að sögn þeirra Suðurverksmanna þarf verkið
að vinnast hratt og mikil afköst kalla á umtalsverð-
an tækjakost; á sjötta tug 20–140 tonna vinnuvéla.
Rúmlega 150 manns vinna á þrískiptum vöktum
allan sólahringinn. Búa starfsmennirnir í búðum
sem Bechtel hefur verið að reisa á Haga fyrir utan
þéttbýlið í Reyðarfirði Þar er verið að byggja búðir
fyrir 1.800 manns ásamt aðstöðu fyrir ýmiskonar
afþreyingu. Starfsmenn eru nú í jólafríi en vinna
byrjar aftur 3. janúar.
Suðurverk var stofnað 1967 og hefur starfað sem
jarðvinnuverktaki, m.a. við stíflugerð fyrir Lands-
virkjun, vega- og hafnarframkvæmdir og ýmis önn-
ur verkefni.
Morgunblaðið/Hallfríður Bjarnadóttir
Sitja stillt Þessi vélaruna haggast ekki fyrr en Suðurverk fer aftur af stað með jarðvegsvinnu eftir áramót.
Grunnur lagður að álveri
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 28. DESEMBER 2004 23
MINNSTAÐUR
Reyðarfjörður | Það leikur margt á
himninum á vetrarnáttum og má þar
helstra geta stjarna og norðurljósa.
Fréttaritari blaðsins, sem var á leið
um Reyðarfjörð að kvöldi annars
dags jóla, leit þá augum rosabaug
mikinn um mánann og var hann
óvenjustór og greinilegur.
Rosabaugurinn ber nafn með
rentu því hann þótti vita á rosa í tíð-
inni framundan og var talinn áreið-
anlegur fyrirboði illviðris og mann-
skaðaveðra við sjávarsíðuna sér-
staklega. Bændur fóru sér jafnan
hægt fyrstu dægrin eftir að rosa-
baugur hafði sést um tungl.
Fleira hefur sést markvert á
himni. Þannig hafði margur Héraðs-
búinn gaman af fréttum um glitský
sem sást um hátíðarnar í Reykjavík.
Var skýið sagt bæði fágætt fyrir-
bæri og merkilegt. Héraðsbúar urðu
nokkuð hvumsa yfir þessu því glit-
ský eru tiltölulega algeng eystra og
hafa ekki færri en fimm slík sést frá
því seint í haust.
Morgunblaðið/Sigurður Aðalsteinsson
Rosabaugur Máni hátt á himni skín.
Leikið
á himni
„HINGAÐ kemur fólkið til að fá sér
kaffi eða öl, en hér eru hvorki leyfð-
ar reykingar né áfengisdrykkja,
nema í sérstökum tilvikum,“ segir
Sóley Árnadóttir, sem stjórnar
klúbbnum í aðalbúðum Impregilo
við Kárahnjúkavirkjun.
„Konur ítölsku starfsmannanna
hafa skreytt salinn fallega og við
erum að leggja síðustu hönd á ljós
og hljóð, svo allt verði tilbúið fyrir
hátíðardagskrána á gamlárskvöld.“
Starfsfélagi Sóleyjar, Bryndís
Ásta Ólafsdóttir, segir fólk hið
kurteisasta og þótt vinnudagurinn
sé langur, 12 klst., sé auðvelt að
umgangast starfsfólk Impregilo.
„Það er helst að heyrist hátt í
Portúgölunum, tungumálið þeirra
er þannig að það er alltaf eins og
þeir séu að hrópa og jafnvel rífast,
svona dálítið eins og ítalskan.“
Sóley segir að í sérstökum tilvik-
um sé leyft að hafa samkvæmi þar
sem vín er veitt í klúbbnum, en ann-
ars þjóni hann fremur sem kaffihús.
Lítill salur annars staðar í búðunum
sé lánaður undir partístand ef svo
beri undir. Sóley segist vön því að
vera á óhefðbundnum stöðum við
störf, hafi m.a. starfað í fimm ár á
skemmtiferðaskipi. Lífið í Kára-
hnjúkum sé ágætt og skemmtileg
fjölbreytni í mannlífinu.
Gert klárt
í klúbbnum
Morgunblaðið/Steinunn Ásmundsdóttir
AUSTURLAND