Morgunblaðið - 28.12.2004, Síða 31
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 28. DESEMBER 2004 31
UMRÆÐAN
Eftirfarandi greinar eru á
mbl.is:
Guðrún Lilja Hólmfríðardótt-
ir: „Ég vil hér með votta okkur
mína dýpstu samúð vegna
þeirrar stöðu sem komin er
upp í íslensku þjóðfélagi með
skipan Jóns Steinars Gunn-
laugssonar í stöðu hæstarétt-
ardómara. Ég segi okkur af því
að ég er þolandinn í „Prófess-
orsmálinu“.“
Sveinn Aðalsteinsson: „Nýj-
asta útspil Landsvirkjunar og
Alcoa er að lýsa því yfir að
Kárahnjúkavirkjun, álbræðsl-
an í Reyðarfirði og línulagnir
þar á milli flokkist undir að
verða „sjálfbærar“!“
Hafsteinn Hjaltason:
„Landakröfumenn hafa engar
heimildir fyrir því, að Kjölur sé
þeirra eignarland, eða eignar-
land Biskupstungna- og Svína-
vatnshreppa.“
María Th. Jónsdóttir: „Á
landinu okkar eru starfandi
mjög góðar hjúkrunardeildir
fyrir heilabilaða en þær eru
bara allt of fáar og fjölgar
hægt.“
Guðmundur Hafsteinsson:
„Því eru gráður LHÍ að inntaki
engu fremur háskólagráður en
þær sem TR útskrifaði nem-
endur með, nema síður sé.“
Á mbl.is
Aðsendar greinar
BRÉF TIL BLAÐSINS
Morgunblaðið Kringlunni 1 103 Reykjavík Bréf til blaðsins | mbl.is
NÝLEGAR íslenskar kannanir
sýna að ungmennum eru helst boð-
in ólögleg vímuefni í partíum,
þ.e.a.s. eftirlitslausum unglinga-
samkvæmum. Þar næst eru ung-
mennum oftast boðin vímuefni á
götunni, rúntinum, fyrir utan
skemmtistaði og svo framvegis.
Okkur, foreldrum, er hollt að
hafa þetta í huga. Okkur er líka
hollt að hafa það í huga að oftast
ryður áfengisneysla ungmenna
veginn að ólöglegum vímuefnum.
Það ætti því að vera öllum ljóst að
ef foreldrar hafa það að markmiði
að reyna með öllum skynsamlegum
ráðum að fresta áfengisneyslu
unglinganna sinna sem lengst er
verið að minnka líkurnar á því að
þeir leiðist út í neyslu eiturlyfja.
Þá má spyrja hvernig við frest-
um áfengisneyslunni. Ekki er til
neitt einhlítt svar við þessu, en
hins vegar má nefna bestu þekktu
aðferðirnar. Þær eru t.d. að for-
eldrar framfylgi útivistarreglunum,
leyfi ekki eftirlitslaus unglinga-
samkvæmi, kaupi ekki áfengi fyrir
börnin sín og reyni að fjölga sam-
verustundum með börnum sínum.
Í þessu sambandi má benda á að
kannanir sýna að innihald sam-
verustundanna skiptir ekki öllu
máli. Hér áður fyrr var því haldið
fram að fáar en innihaldsmiklar
samverustundir skiptu mestu máli
í þessu sambandi, en í dag er það
t.d. viðurkennt að sameiginlegt
sjónvarpsgláp telur ekki síður. Það
ætti því að vera einfalt að uppfylla
þessar þarfir barnanna okkar, að
reyna að fjölga samverustundum
með börnum okkar, án þess að
skipulögð dagskrá sé alltaf til stað-
ar.
Minna má á að sá hópur ung-
menna sem verður 16 ára á árinu
2005 má, skv. útivistarreglunum
vera úti lengur en til miðnættis
strax um nk. áramót. Þetta er þó
háð leyfi foreldra þeirra að sjálf-
sögðu. Í sjálfu sér er ekki, í flest-
um tilvikum, ástæða til að banna
þessum ungmennum að fara út eft-
ir miðnættið. En mikilvægt er að
foreldrar séu á varðbergi, setji
þessum börnum sínum tímamörk á
heimkomu og séu vakandi þegar
þau koma heim. Mikilvægt er að
börnin hafi fulla vitneskju um hvað
pabbi og mamma eru að hugsa og
hvaða væntingar þau geri til heil-
brigðrar hegðunar barna sinna
með hliðsjón af þessum auknu
réttindum, sbr. þessar útivist-
arreglur.
Stöndum vörð um börnin okkar í
verki. Og notum viðurkenndar að-
ferðir.
Vá Vesthópurinn vill að lokum
óska öllum, foreldrum og börnum
gleðilegra jóla, árs og friðar.
Fyrir hönd Vá Vesthópsins,
forvarnahóps á norðanverðum
Vestfjörðum,
HLYNUR SNORRASON.
Hvatningarorð til
foreldra á Ísafirði
Frá Vá Vesthópnum.
FYRIR RÚMU ári átti ég þess
kost að skreppa til New York í
desember, nokkuð sem ég hafði
saknað í mörg ár. Mesta tilhlökk-
unin var að sjá skautasvellið og
jólatréð á Rockefeller Center,
finna lyktina af ristuðu kast-
aníuhnetunum og sjá rauðklædda
jólasveina á hverju götuhorni. Nú
brá svo við að engan fann ég jóla-
sveininn. Skautasvellið, tréð og
kastaníuhneturnar voru á sínum
stað en eftir langa leit fann ég
einn jólasvein í felum inni í versl-
uninni Bloomingdale. En það sem
mest vakti furðu mína var að
hvergi nokkurs staðar sá ég kveðj-
una Merry Christmas. Aftur á
móti sá ég víða prentað stórum
stöfum Happy Hanukah og svo
þessa hálfvolgu kveðju Happy Ho-
lidays. Meira að segja jólakortin
voru með Happy Holidays. Ég
þurfti að leita lengi að jólakortum
með kveðjunni Merry Christmas.
Það fauk í mig en ég þorði ekki
fyrir nokkurn mun að láta skoðun
mína í ljósi enda enn að bíða eftir
réttum pappírum til að fá að dvelja
í þessu svokallaða frjálsasta landi
heims. Nú eru pappírarnir komnir
og aftur eru komin jól og þessi
hálfvolga kveðja tröllríður hér öllu
og svo Happy Hanukah auðvitað.
Nú er það vitað að í New York
eru hlutföllin öðruvísi en annars
staðar í Bandaríkjunum. Þrátt fyr-
ir það telja 75 prósent Bandaríkja-
manna sig kristna en til þess að
styggja ekki 1,5% þjóðarinnar sem
nota kveðjuna Happy Hanukah og
til þess að verða ekki vændir um
að vera ekki „politiskt correctir“
er farinn einhvers konar millivegur
og þessi kveðja Happy Holidays,
sem í mínum augum er hvorki fugl
né fiskur. Eins og í forsetakosn-
ingunum er það ekki prósentan
heldur peningarnir sem hér virðast
ráða öllu.
Hvað varð um jólin?
En nú bregður svo við að meira
að segja fréttamönnum sjónvarps
og útvarps blöskrar, ekki bara
mér. Og hvers vegna skyldu
kristnir menn ekki mega nota
kveðjuna Merry Christmas þegar
þeir óska öðrum gleðilegar jólahá-
tíðar, sama hverrar trúar viðtak-
andi kveðjunnar er? Það er svo
annarra að nota sínar kveðjur þeg-
ar það á við. Þetta er komið út í
öfgar eins og margt annað hér í
þessu landi. Hvað skyldi verða
langt þangað til jólin verða tekin
af okkur hér?
En þangað til vanda ég öðrum
kveðjurnar og nota óspart kveðj-
una Merry Christmas eða á okkar
ylhýra gleðileg jól!
ELÍN KÁRADÓTTIR,
fv. ritstjóri Gestgjafans,
nú búsett í Bandaríkjunum.
Vandaðar kveðjurnar
Frá Elínu Káradóttur:
flísar
Stórhöfða 21, við Gullinbrú,
sími 545 5500.
www.flis.is ● netfang: flis@flis.is
Allt fyrir baðherbergið
Krabbameins-
félagsins
Vinningar í happadrætti
Útdráttur
24. desember 2004
Audi Sportback, 2.490.000 kr.
86615
Bifrei› e›a grei›sla upp í íbú›, 1.000.000 kr.
110270
Vinningar
B
ir
t
án
á
b
yr
g
ð
ar
Byrja› ver›ur a› grei›a út vinninga 10. janúar nk.
Úttekt hjá fer›askrifstofu e›a verslun, 100.000 kr.
233
422
1133
3484
4488
5049
5847
6960
7712
8400
9735
10756
11062
11673
12952
13044
13870
14029
14287
14612
15863
16250
16792
18351
19188
20234
20550
20623
20654
20846
21323
22245
23826
24859
26027
26058
26549
27160
28413
28442
28760
30411
31627
31814
33674
33855
34590
35356
36600
36672
37620
39197
39216
39502
42567
43104
44085
44723
45304
46954
46979
48672
49088
49444
49952
50159
51986
55073
55413
56241
56444
59126
60846
62399
64705
66158
67281
67742
68713
69079
69621
70888
71105
71306
73040
73369
73375
74098
75225
76374
76575
77799
77910
78492
78500
78987
79645
82540
82625
82713
83337
83385
83573
84390
85065
86397
87488
87930
88024
90191
90267
91098
91225
92408
92520
93100
93311
93374
93557
93698
94654
95134
95191
95685
96326
97248
97863
98460
101169
101891
102032
102552
103668
104655
105707
106429
106789
108801
110177
110745
111419
111504
113630
113937
113958
114078
114750
115308
117215
118266
118514
119839
120008
122516
123028
123119
123943
124048
125030
125588
125757
126083
126414
130180
130381
132428
132469
134883
Handhafar vinningsmi›a framvísi fleim á skrifstofu
Krabbameinsfélagsins a› Skógarhlí› 8, sími 540 1900.
Krabbameinsfélagi› flakkar
landsmönnum veittan stu›ning