Morgunblaðið - 28.12.2004, Síða 32
32 ÞRIÐJUDAGUR 28. DESEMBER 2004 MORGUNBLAÐIÐ
MINNINGAR
✝ Hulda Valdi-marsdóttir
fæddist á Akureyri
3. mars 1912. Hún
lést á öldrunardeild
Heilbrigðisstofnun-
ar Þingeyinga 17.
desember síðastlið-
inn. Foreldrar
hennar voru Herdís
Friðfinnsdóttir hús-
móðir frá Hvammi í
Hjaltadal, f. 17. maí
1876 og Valdimar
Kristján Þórarins-
son sjómaður og
verkamaður frá
Þorvaldsstöðum við Húsavík, f.
12. febrúar 1881, d. 1930. Hulda
átti einn albróður, Garðar Hólm,
sem lést barnungur. Hún átti tvö
eldri hálfsystkini, Valdimar og
Sigfríði, og einn fósturbróður,
Árna Indriða. Þau eru öll látin.
dætur, Sigríði Borghildi og
Kristínu Önnu. d) Sævar, d. 1984.
2) Jón, f. 1936, maki Lára Bene-
diktsdóttir, börn þeirra eru a)
Hulda, maki Jóhann Gunnarsson,
þau eiga þrjú börn, Láru Sóley,
Jón Hafstein og Benedikt Þór. b)
Ingólfur, maki Berglind Steina-
dóttir, þau eiga eina dóttur,
Hjördísi Dong. c) Jónasína Lilja,
maki Haukur Gröndal, þau eiga
einn son, Kristófer Örn. 3) Bragi,
f. 1947, d. 1998, maki Guðrún
Svavarsdóttir, börn þeirra eru a)
Herdís, maki Marinó Önundar-
son, þau eiga tvo syni, Braga og
Arnar. b) Elvar, á eina dóttur,
Dagnýju. c) Guðni, maki Rann-
veig Þórðardóttir, þau eiga eina
dóttur, Guðrúnu Maríu. 4) Ing-
ólfur, f. 1949 d. 1949. 5) Dagný,
f. 1952, maki Tryggvi Einar
Geirsson, börn þeirra eru a)
Geir, maki Anna Margrét Jóns-
dóttir, þau eiga eina dóttur, Kol-
brúnu Huldu. b) Inga Huld, maki
Viðar Pálsson. c) Davíð Þór.
Hulda verður jarðsungin frá
Húsavíkurkirkju í dag og hefst
athöfnin klukkan 14.
Hulda giftist 31.
október 1931 Ingólfi
Jónassyni frá Ysta-
Hvammi í Aðaldal, f.
31. júlí 1904, d. 10.
mars 1986. Foreldrar
Ingólfs voru Jónas
Sigurbjörnsson, f.
1876, d. 1924 og Jón-
ína Kristín Sig-
tryggsdóttir, f. 1876,
d. 1965. Börn Huldu
og Ingólfs eru: 1)
Valdimar, f. 1934,
maki Erla Sigurjóns-
dóttir, börn þeirra
eru a) Hulda, maki
Sveinn Pálmi Guðmundsson, þau
eiga þrjá syni, Atla Má, Sævar
Inga og Andra Þór. b) Olga,
maki Hermann Jónasson, Olga á
þrjú börn, Valdimar, Erlu og
Helgu. c) Jón Ingi, maki Rann-
veig Ólafsdóttir, þau eiga tvær
Húmar að kveldi, hljóðnar dagsins ys,
hnígur að Ægi gullið röðulblys.
Vanga minn strýkur blærinn blíðri hönd,
og báran kveður vögguljóð við
fjarðarströnd.
Ég er þreyttur, ég er þreyttur,
og ég þrái svefnsins fró. –
Kom, draumanótt, með fangið fullt af friði
og ró.
(Jón frá Ljárskógum.)
Er húmaði að kveldi hinn 17. des-
ember sl. kvaddi amma mín og nafna
Hulda Valdimarsdóttir þetta líf, orðin
92 ára. Hún hafði þá verið mjög veik í
nokkra sólarhringa. Þó að erfitt sé að
missa ástvin og ekki síst á þessum
tíma veit ég að amma hefur fengið
góðar móttökur hjá afa og öllum hin-
um úr fjölskyldu okkar sem farnir
eru.
Minningarnar um ömmu eru marg-
ar og langar mig að minnast nokkurra
þeirra. Tónlist skipaði ætíð stóran
sess í lífi ömmu. Hún fékk fótstigið
orgel í fermingargjöf sem hún spilaði
á. Efst í huga mínum eru aðfanga-
dagskvöldin, bæði á Reykjum og á
Túngötu 3, er amma sat við orgelið og
spilaði og allir í fjölskyldunni sungu
með. Einnig spilaði amma á gítar og
svo söng hún líka vel.
Hún var ein af stofnendum Verka-
kvennakórsins Vonar á Húsavík 1937
og stjórnaði honum. Þetta voru konur
sem komu saman og æfðu í stofunni á
Reykjum. Haldnar voru kvöld-
skemmtanir til fjáröflunar fyrir félag-
ið. Einnig kom kórinn fram við ýmis
önnur tækifæri. Þessi kór hætti starf-
semi eftir 1940. Músíkin fylgdi ömmu
ætíð og aðeins stuttu fyrir andlát
hennar söng hún jólasálma er að-
ventusamkoma var haldin á Sjúkra-
húsinu fyrir sjúklinga og aðstandend-
ur þeirra.
Þegar að ég kom í heimsókn til
ömmu nú í seinni tíð á sjúkrahúsið var
hún oftar en ekki að raula eitthvert
lag og fannst mér gaman að raula
með henni og þá kom glampi í augun
og augljóst að hún hafði gaman af. Ég
veit að það var henni líka mikil gleði
hversu margir afkomendur hennar
hafa lært á hljóðfæri og sungið.
Amma var mikil blómakona og bar
heimili hennar og garður þess vott,
allir litir og afbrigði af alls konar
blómum. Hún hafði gaman af sauma-
skap og hannyrðum sem hún vann af
vandvirkni og margt fallegt prýddi
heimili hennar.
Amma vildi líka alltaf vera fín til
fara og hafði gaman af því að punta
sig. Það var því okkur báðum ánægja
að hún var fyrst til að setjast í stólinn
hjá mér er ég hafði opnað hár-
greiðslustofu mína á Húsavík fyrir 25
árum. En nú er komið að kveðjustund
í bili. Ég og fjölskylda mín kveðjum
Huldu ömmu með einlægri þökk fyrir
samfylgdina og biðjum Guð að blessa
minningu hennar.
Á kertinu mínu ég kveiki í dag
við krossmarkið helgi og friðar
því tíminn mér virðist nú standa í stað
en stöðugt þó fram honum miðar.
Ég finn það og veit að við erum ei ein
að almættið vakir oss yfir,
því ljósið á kertinu lifir.
Við flöktandi logana falla nú tár,
það flýr enginn sorgina lengi.
Hún braut allar vonir, hún braut allar þrár,
hún brýtur þá viðkvæmu strengi,
er blunda í hjarta og í brjósti hvers manns.
Nú birtir, og friður er yfir,
því ljósið á kertinu lifir.
Sá einn þekkir gleðinnar gáska og fjör
sem gist hefur þjáning og pínu.
Sá einn getur sigrast á ótta og kvöl
sem eygir í hugskoti sínu,
að sorgina við getum virkjað til góðs,
í vanmætti sem er oss yfir,
ef ljósið á kertinu lifir.
(Kristján Stefánsson frá Gilhaga.)
Hulda Jónsdóttir.
Amma Hulda lést föstudaginn 17.
desember. Amma Hulda var hlý og
brosmild kona sem var ætíð einstak-
lega góð við okkur systkinin. Við
minnumst hennar og afa Ingólfs ætíð
með hlýhug og gáfu þau okkur marg-
ar góðar minningar fyrir framtíðina.
Sérstaklega eru okkur minnistæðar
dvalir okkar hjá ömmu og afa á Húsa-
vík þar sem ýmislegt var haft fyrir
stafni eins og útilegur, að tína aðalblá-
ber sem við fengum síðan að borða
með rjóma og sykri, að gefa öndun-
um, skíðaferðir á Húsavíkurfjall, fót-
bolti og oft var tekið í spil. Amma og
afi gáfu sér alltaf tíma til að leika og
tala við okkur og við vorum alltaf glöð
þegar við heyrðum að þau væru að
koma suður til Reykjavíkur til að vera
hjá okkur um jólin því þá vissum við
að þar væri komið fólk sem ekki
þreyttist á ólsen ólsen. Amma Hulda
var mjög tónelsk kona og það var ekki
sjaldan sem við fengum að heyra
hana spila listavel á orgelið í Túngöt-
unni og syngja með. Amma Hulda var
líka með fagurgræna putta og blómin
hennar ætíð litskrúðug og falleg og
blómin á Sólbrautinni fengu oft
sterka vítamínsprautu á meðan
amma var í heimsókn. Við eigum eftir
að sakna söngsins þíns, elsku amma
okkar, og hvert sinn sem við sjáum
stjúpublóm hugsum við til þín. Við er-
um þakklát fyrir allar samverustund-
irnar sem við fengum saman og fyrir
alla þá hlýju og ást sem þú gafst okk-
ur. Þú munt alltaf lifa í hugum okkar.
Við vitum núna að þú ert þar sem þú
vilt vera, með afa Ingólfi og Braga
frænda. Guð blessi ykkur öll.
Geir, Inga Huld og Davíð Þór.
HULDA
VALDIMARSDÓTTIR
✝ Friðgeir Guð-jónsson fædd-
ist að Hermundar-
felli í Þistilfirði 3.
ágúst 1919. Hann
lést á Dvalarheim-
ilinu Nausti á
Þórshöfn 20. des-
ember síðastlið-
inn. Foreldrar
hans voru hjónin
Jóna Hólmfríður
Jónsdóttir og Guð-
jón Árnason. Al-
systir Friðgeirs er
Árnína, f. 1921,
búsett á Akureyri.
Maður hennar var Guðmundur
Reynir Antonsson, f. 1921, d.
1989. Börn þeirra eru Þorbjörg, f.
1949, Hallur, f. 1956, Jóna Mar-
grét, f. 1958, og Guðrún, f. 1960.
Þau Guðjón og Jóna skildu árið
1923. Fluttist Jóna þá til Raufar-
hafnar með dótturina, Árnínu.
Friðgeir var áfram í skjóli föður
síns næstu árin. Eftir fermingu
1933 réðst hann sem
vinnumaður í Holt í
Þistilfirði til Þorsteins
Þórarinssonar og eftir
lát Þorsteins 1952 til
þeirra Holtsbræðra,
Þórarins og Árna Krist-
jánssona og loks til
Gunnars Þóroddssonar í
Holti. Eftir áttrætt tók
Friðgeir að bila mjög á
heilsu og fluttist þá á
Dvalarheimilið Naust á
Þórshöfn þar sem hann
átti skjól síðustu árin.
Friðgeir var annálaður
dugnaðarforkur og
hlífði sér hvergi. Hann var
gangnaforingi í öllum göngum í
Dalsheiði áratugum saman, kunn-
ur að ratvísi og ráðsnilld. Hann
var heiðraður með hinni íslensku
fálkaorðu fyrir störf sín að fjall-
skilum.
Útför Friðgeirs fer fram frá
Svalbarðskirkju í dag og hefst at-
höfnin klukkan 14.
Í dag er til moldar borinn frá
Svalbarðskirkju í Þistilfirði gamall
vinur og frændi, Friðgeir Guðjóns-
son, eða Geiri í Holti eins og hann
var kallaður nær alla sína ævi.
Hann var Þistilfirðingur í húð og
hár, fæddur að Hermundarfelli í
Þistilfirði og í þeirri sveit átti hann
heima allt sitt líf. Lífið tók hann
ómjúkum tökum í fyrstu, foreldrar
hans skildu og heimilið var leyst
upp. Hann lifði því bernsku sína
sem sveitardrengur, en sú stétt var
lengst af nánast réttlaus í þessu
landi, þrælkuð og svelt. Það má því
nærri geta að hann hefur ekki not-
ið ástríkis eða nærgætinnar
umönnunar í bernsku sinni. Aldrei
talaði hann þó um það eða bar fyrri
húsbændum illa söguna. Árið 1933,
fermingarárið hans, réð Þorsteinn
Þórarinsson í Holti hann til sín
sem vinnumann eins og það var
kallað. Þar varð heimili hans og
þar varð starfsvettvangur hans
langa og giftusama ævi. Eftir lát
Þorsteins 1952 réðst hann til
þeirra Holtsbræðra Árna og Þór-
arins og er búskap þeirra lauk til
Gunnars Þóroddssonar, núverandi
bónda í Holti.
Geiri í Holti var um margt mjög
sérstakur maður. Hann var vel að
manni, harðduglegur og bar hag
búsins fyrir brjósti eins og hann
ætti það sjálfur. Hann naut nær
engrar skólagöngu en hann var
náttúrubarn, glöggskyggn og at-
hugull.
Ég minnist þess þegar ég var
kúasmali í Holti að kýrnar voru
settar út á dal á sumrin og rásuðu
þá oft út að sjó eða vestur á Dals-
móa í hvarf frá bænum. Ekki hafði
ég vit á því að fylgjast með hátta-
lagi kúnna til þess að geta séð
nokkurn veginn fyrir hvar þeirra
yrði að leita um kvöldið. En það
kom ekki að sök, maður fór bara til
Geira og spurði hann hvar kýrnar
væru. Aldrei brást það að hann
vissi það nákvæmlega.
Börn og ekki síður unglingar
sóttust eftir návist Geira. Við borð-
ið sátum við strákarnir á „vinnu-
mannabekknum“ hjá Geira eftir
tignarröð. Ég sat við hlið hans um
tíu ára skeið, næstur mér kom
Kristján Ingi, þá Haddi, svo Hörð-
ur o.s.frv.
Hann var vinur okkar og félagi
og eins og einn af okkur krökk-
unum en auðvitað sjálfkjörinn for-
ingi. Margan reiðtúrinn fórum við,
að ekki sé minnst á bíltúrana og
ballferðirnar síðar. Þegar maður
minnist þessara góðu, glöðu daga
bernsku sinnar og æsku kemur
mynd Geira ætíð fram í hugann.
En það vorum ekki bara við krakk-
arnir í Holti og Dal sem sóttum til
Geira heldur nánast allir krakkar í
sveitinni, a.m.k. frá Austurbæjun-
um. Þegar Þórarinn frændi í Holti
var oddviti sagði hann á góðri
stundu að réttast væri að gera
Geira að æskulýðsfulltrúa í sveit-
inni. Einhver skaut því þá að, að
þess þyrfti ekki – hann væri það
nú þegar!
En þótt Geiri væri ætíð tilbúinn
að slást í hóp okkar krakkanna þá
tók hann að sjálfsögðu fullan þátt í
heimi fullorðna fólksins. Hann var
virkur félagi í Ungmennafélaginu
Aftureldingu og gangnaforingi í
Dalsheiði um áratugi. Hann þekkti
heiðarnar eins og lófann á sér og
ratvísi hans var við brugðið. Þáttur
um Geira birtist í Göngum og rétt-
um fyrir nokkrum árum. Framlag
hans til fjallskila færði honum að
lokum hina íslensku fálkaorðu frá
forseta Íslands.
Snemma þurfti Geiri að brynja
sig til varnar í hörðum heimi og
bar því ógjarnan tilfinningar sínar
á torg. Aðeins einu sinni sá ég
hann láta það eftir sér að tárfella –
það var við jarðarför öðlingsins
Þórarins í Holti, húsbónda hans,
félaga og vinar.
Síðustu æviárin urðu Geira erfið.
Hann dvaldi þá á Dvalarheimilinu
Nausti á Þórshöfn og naut alúðar
og umönnunar þess einstaka
starfsfólks sem þar vinnur.
Nú við leiðarlok er mér þakklæti
efst í huga fyrir kynninguna við
vininn góða og frændann, bros
hans og þétt handtak gleymist
ekki. Farðu vel, bróðir og vinur.
Óttar Einarsson.
Enn einn góður sveitungi og vin-
ur hefur lagt upp í ferðina löngu.
Hann fellur síðastur frá af gamla
heimilisfólkinu í Holti sem átti þar
heimili seinni hluta síðustu aldar.
Við Holt eru tengdar minningar
frá góðum samverustundum sem
voru hluti af erli hversdagsins eða
upplyftingu á góðri stund.
Friðgeir eða Geiri í Holti eins og
hann var jafnan kallaður var mikill
FRIÐGEIR
GUÐJÓNSSON
REYNSLA • UMHYGGJA • TRAUST
Þegar andlát ber að höndum
Önnumst alla þætti útfararinnar
ÚTFARARSTOFA
KIRKJUGARÐANNA
Vesturhlíð 2 • Fossvogi • Sími 551 1266 • www.utfor.is
Sími 551 3485 • Fax 551 3645
Áratuga reynsla í umsjón útfara
Önnumst alla þætti
Davíð Osvaldsson
útfararstjóri
Sími 896 8284
Eyþór Eðvarðsson
útfararstjóri
Sími 892 5057
Vaktsími allan sólarhringinn
Minningarkort
Hjartaverndar
535 1825
Gíró- og greiðslukortaþjónusta
Símar 581 3300 - 896 8242
Allan sólarhringinn - Áratuga reynsla
Suðurhlíð 35 — Fossvogi — www.utforin.is
Sverrir
Olsen,
útfararstjóri.
Sverrir
Einarsson,
útfararstjóri.
Bryndís
Valbjarnardóttir,
útfararstjóri.
Baldur
Frederiksen,
útfararstjóri.
Guðmundur Þór
Gíslason,
útfararstjóri.
ÚTFARARSTOFA ÍSLANDS