Morgunblaðið - 28.12.2004, Síða 41
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 28. DESEMBER 2004 41
DAGBÓK
Þakkir til Jóhannesar
í Bónus
ÉG vil koma koma á framfæri
þökkum til Jóhannesar í Bónus fyr-
ir ávísanir sem íbúar í íbúða-
sambýli, sem ég rek, fengu nú í des-
ember. Þessir íbúar eru með
geðfötlun og hafa aldrei upplifað
það áður að hafa fengið svona ávís-
un og getað farið og keypt það sem
þá langar í.
Þeir versluðu að sjálfsögðu í Bón-
us kex, smákökur, gos og sælgæti.
Einn keypti geisladisk.
Með bestu kveðjum,
Guðrún Einarsdóttir,
forstöðumaður.
Góð grein – fyrirspurn
Á SÍÐASTA ári, í júní 2003, birtist í
Morgunblaðinu viðtal Guðna Ein-
arssonar við Sigurbjörn Sigurðsson
um gamlar flugvélar. Greinin hét
„Fornir Faxar Flugfélags Íslands“.
Fannst mér þetta mjög skemmti-
legt og áhugavert viðtal og hefði
áhuga á að lesa fleiri viðtöl við Sig-
urbjörn en hann virtist mjög fróður
um þetta efni. Spyr ég því hvort
Morgunblaðið ætli að birta fleiri
viðtöl við hann.
Árni Þorsteinsson.
Útsendingar Skjás 1
MIG langar að minnast aðeins á
þau vandkvæði sem eru í gangi með
að ná útsendingum Skjás eins. Það
virðist vera að margir nái alls ekki
útsendingum skjásins og þegar
hringt er til þeirra er sagt að þetta
fari að lagast. En hvenær? Og af
hverju í ósköpunum gengu þeir ekki
til samstarfs um stafræna útsend-
ingu með Stöð 2?
Hvenær kemst þetta í lag?
Kveðja,
„Fyrrverandi“ áhorfandi Skjás eins.
Velvakandi
Svarað í síma 5691100 frá 10–12
og 13–15 | velvakandi@mbl.is
Mörg ár, ef ekki áratugir, eru síðan jafn-mikið hefur verið um útköll björg-unarsveita um jólin. Margir björg-unarsveitarmenn eyddu jólunum á
vegum úti, m.a. við að aðstoða ferðafólk og starfs-
fólk heilbrigðisstofnana við að komast leiðar sinnar
í vonskuveðri sem geisaði víða um land.
Jón Gunnarsson, formaður Slysavarnafélagsins
Landsbjargar, segir þessar annir endurspegla ann-
ir ársins, en gríðarlega mörg útköll hafi verið í ár.
„Ég hef orðið var við það síðustu daga að fólk
gleymir stundum að allir félagsmenn björg-
unarsveitanna eru sjálfboðaliðar og fara burtu frá
sínum nánustu um hátíðarnar til að koma öðrum til
hjálpar,“ segir Jón. „Þessir traustu björgunarsveit-
armenn eru alltaf á bakvakt, allt árið um kring, til-
búnir að koma til hjálpar þegar á þarf að halda.
Sem komið er á þessu ári eru skráð um 940 útköll
hjá okkur og tel ég líklegt að þetta séu um 75%
þeirra útkalla sem við höfum farið á árinu þannig
að það hefur verið í nógu að snúast á árinu sem nú
er að líða.“
Jón segir sumarið enga fríatíð hjá björgunar-
sveitum en varla hafi liðið útkallslaus dagur í sumar
sem leið. „Verkefnin eru margvísleg, allt frá minni
aðstoð upp í stærri leitir og aðgerðir.“
Nú líður að áramótum, hvað er efst á baugi hjá
slysavarnasveitunum?
„Um áramót snýst allt um flugelda hjá okkur
enda eru björgunarsveitirnar að taka inn megnið af
sínu rekstrarfé fyrir næsta ár á þessum 4 dögum.
Allur hagnaður af flugeldasölunni rennur beint í
björgunarsveitarstarfið og gerir okkur það kleift að
vera með öflugan tækjabúnað, tilbúinn til björg-
unarstarfa hvenær sem er. Hér á landi er hundrað
og ein björgunarsveit og í þeim eru yfir 3.000 fé-
lagar. Það má segja að það séu björgunarsveitir í
öllum byggðakjörnum. Það er mikil vinna að halda
þessum mannskap í þjálfun og endurnýja tækja-
búnaðinn svo hann megi starfa af miklu öryggi. Þó
öll vinna björgunarfólks sé unnin í sjálfboðastarfi
þá er mikill kostnaður samfara þessu starfi.“
Sem fyrr eru slysavarnir afar mikilvægar um
áramótin. Hvað þarf fólk að hafa í huga?
„Ef notuð eru flugeldagleraugu og farið eftir
leiðbeiningum um notkun flugeldanna er lítil hætta
á ferðum. Slysin sem verða um áramót eru oftast
vegna ógætilegrar meðferðar á flugeldum, oft á tíð-
um vegna þess að fólk sem er að skjóta upp hefur
neytt of mikils áfengis og ætti þess vegna að láta
aðra sjá um að skjóta upp. Við höfum langa reynslu
af sölu á flugeldum, en það er aldrei nógu vel brýnt
fyrir fólki að ganga varlega um þessa vöru. Þeir
sem kaupa flugelda frá okkur geta fengið flug-
eldagleraugu endurgjaldslaust, en þau hafa bjarg-
að miklu síðan þau komu á markað.“
Slysavarnir | Afar annasöm jól að baki hjá Björgunarsveitum landsins
Jón Gunnarsson er
fæddur í Reykjavík árið
1956. Hann lauk prófi í
rekstrar- og við-
skiptafræðum frá HÍ. Jón
hefur verið félagí í björg-
unarsveitum sl. 30 ár og
hefur gegnt formennsku í
flugbjörgunarsveitum í V-
Húnavatnssýslu og
Reykjavík. Þá sat hann í
stjórn Landsbjargar frá stofnun hennar 1991
og Svf. Landsbjargar frá stofnun þess 1999.
Jón hefur verið formaður SL síðan 2000 og
setið í aðgerðarstjórnum, svæðisstjórn og
landsstjórn á vegum samtakanna.
Jón er kvæntur Höllu Ragnarsdóttur og eiga
þau þrjú börn.
Sjálfboðaliðar fjarri fjölskyldunum
1. e4 e5 2. Rf3 Rf6 3. Rxe5 d6 4. Rf3
Rxe4 5. d4 d5 6. Bd3 Be7 7. 0–0 Rc6 8.
He1 Rf6 9. Bg5 0–0 10. c3 h6 11. Bh4
Rh5 12. Bxe7 Rxe7 13. Rbd2 Rf4 14.
Bc2 Bg4 15. Rf1 Reg6 16. Re3 Dd7 17.
h3 Be6 18. h4 Bg4 19. g3 Rh3+ 20. Kg2
f5 21. Hh1 Hae8 22. Rf1
Staðan kom upp á firnasterku lok-
uðu alþjóðlegu móti sem lauk fyrir
skömmu í Ashdod í Ísrael. Líháíski
stórmeistarinn Eduardas Rozentalis
(2.595) hafði svart gegn Gregory Kaid-
anov (2.611). 22. … Rxh4+! Hvíta
kóngsstaðan og leppun riddarans á f3
gera það að verkum að svartur nær nú
óstöðvandi sókn. 23. gxh4 Rf4+ 24.
Kg1 24. Kg3 hefði verið svarað með 24.
… Dd6 og svartur gæti haldið sókn
sinni áfram í rólegheitum án þess að
hvítur fengi rönd við reist. 24. … Re2+
25. Kg2 Rf4+ 26. Kg1 He2! 27. Dc1 27.
R1d2 hefði ekki gengið upp vegna 27.
… Dd6! og hótunin Dd6-Dg6 er hvítum
ofviða. Eftir textaleikinn vinnur svart-
ur manninn til baka með peði meira og
unnið tafl. 27. … Bxf3 28. Dxf4 Bxh1
29. Bd3 He4 30. Bxe4 fxe4 31. Dh2 Bf3
32. Re3 Hf6 33. Dg3 Kh7 34. Kh2 Bh5
35. Hg1 Hf3 36. Dg2 Dd6+ 37. Kh1
Df6 38. Hf1 Dxh4+ 39. Kg1 Hf6 og
hvítur gafst upp. Jólahraðskákmót
Taflfélags Reykjavíkur hefst í kvöld kl.
20.00 í Faxafeni 12. Öllum er heimil
þátttaka.
Svartur á leik
SKÁK
Helgi Áss Grétarsson | dagbok@mbl.is
Staðurogstund
http://www.mbl.is/sos
Dæmi um spilliefni sem finnast í fyrirtækjum
prentlitir
matarolía
þynnar
tvistur
rafgeymar
glussi
M
IX
A
•
fít
•
0
4
0
4
4
Þakka þér fyrir að skila spilliefnum á réttan stað
Fyrirtækjum ber skylda til að farga spilliefnum sem til falla á
öruggan og umhverfisvænan hátt. Aðstaða Efnamóttökunnar er
sú eina hér á landi sem uppfyllir öll skilyrði til móttöku og
meðhöndlunar allra spilliefnaflokka.
Nánari upplýsingar í síma 520 2220 eða á www.efnamottakan.is
Fimmtudaginn 6. janúar
og föstudaginn 7. janúar 2005
Pétur Óskarsson, viðskiptafulltrúi á aðalræðisskrifstofu Íslands
í New York, verður með viðtalstíma fyrir þau fyrirtæki sem óska
eftir aðstoð vegna markaðssetningar og viðskipta í Norður
Ameríku.
Fundirnir verða haldnir á skrifstofu Útflutningsráðs, Borgartúni
35, en Pétur mun einnig heimsækja þau fyrirtæki sem þess óska,
verði því við komið.
Fyrirtækjum sem óska eftir viðtalstímum er boðið að bóka tíma
í síma 511 4000 eða með tölvupósti á netfangið
utflutningsrad@utflutningsrad.is.
Nánari upplýsingar um þjónustu viðskiptafulltrúa í sendiráðum
Íslands má sjá þá á vefsíðunum www.utflutningsrad.is og
www.vur.is
M
IX
A
•
fí
t
•
0
4
3
5
4
í
Viðskiptatækifæri
New York
BÓKAÚTGÁFAN Bjartur hefur á
undanförnum árum verið óþreytandi
við að koma á framfæri bókum, bæði
fyrir börn og fullorðna frá öðrum
löndum en þeim sem við þekkjum
best. Það eykur fjölbreytni, auk þess
sem það ætti undir flestum kring-
umstæðum að víkka sjóndeildarhring
lesenda. Menn
hafa lengi velt fyr-
ir sér hvernig
bókin geti aftur
orðið börnum og
unglingum jafn
hugleikin eins og
raunin var á árum
áður. Til þess
þurfa þær að vera
skemmtilegar, vel skrifaðar og
spennandi. Bókin Konungur þjófanna
eftir þýska rithöfundinn Corneliu
Funke virðist uppfylla allar þessar
kröfur.
Sagan fjallar um tvo munaðarlausa
bræður búsetta í Hamborg sem eru
fimm og tólf ára gamlir. Frænka
þeirra hefur sótt um forræði yfir
þeim yngri, en sá eldri getur ekki
hugsað sér að þeir séu skildir að og
grípur til sinna ráða. Hann fer til
Feneyja og kemst þar í kynni við önn-
ur börn sem eru á götunni og fram-
fleyta sér með þjófnuðum. Frænkan
og maður hennar leita á náðir einka-
spæjara og fela þau honum að leita
drengina uppi. Söguþráðurinn er
ótrúlegur, vel spunnin og sagan er
sérlega læsileg. Lesandinn finnur til
með söguhetjunum sem leita athvarfs
í gömlu, ónotuðu kvikmyndahúsi í
Feneyjum. Henni tekst að gera þær
ljóslifandi fyrir lesandanum, bæði þá
sem teljast vera góðir og hina sem
uppfylla ekki þá eiginleika. Höfundi
tekst vel að nýta sér sérstöðu Fen-
eyja, til að skapa skemmtilegt og trú-
verðugt sögusvið. Konungur þjóf-
anna, Scipio, er margbreyttari
persóna en virðist í upphafi sögunnar,
en ekki má skemma fyrir lesendum
með því að segja of mikið.
Cornelia Funke hefur skrifað yfir
40 bækur fyrir börn og unglinga og
hlotið viðurkenningar í Evrópu og í
Bandaríkjunum. Hún hefur verið
borin saman við J.K. Rowling og hafa
þær verið titlaðar drottningar ung-
lingabókanna. Vonandi eigum við eft-
ir að kynnast fleiri bókum eftir Corn-
elu Funke á næstu árum, því að ekki
er ólíklegt að þau börn og unglingar
sem eiga eftir að lesa þessa bók komi
til með að bera henni góða söguna.
Það að gera sögu lifandi og áhuga-
verða fyrir íslenska lesendur byggist
að miklu leyti á verki þýðandans.
Hafliði Arngrímsson þýðir bók
Corneliu og nær að gæða hana því lífi
sem við viljum að bækur búi yfir.
Ævintýri í
Feneyjum
BÆKUR
Unglingar
Höfundur: Cornelia Funke
Íslensk þýðing: Hafliði Arngrímsson
352 bls. Bjartur, 2004
Konungur þjófanna
Sigurður Helgason
Félagsstarf
Bólstaðarhlíð 43 | Hárgreiðsla, böð-
un, línudans, fótaaðgerð.
Dalbraut 18 – 20 | Kl. 9–11 kaffi og
dagblöð, kl. 9–14 baðþjónusta, kl. 9–
16.45 hárgreiðslustofan opin, kl. 10–11
samverustund, kl. 11.15–12.15 matur, kl.
14 félagsvist, kl. 14.30–15.30 kaffi.
Hraunbær 105 | Kl. 9 postulínsmálun,
glerskurður, myndlist, hárgreiðsla, kl.
10 boccia, kl. 11 leikfimi, kl. 12 hádeg-
ismatur, kl. 12.15 Bónusferð, kl. 15 kaffi.
Hæðargarður 31 | Opið félagsstarf kl.
9–16. Skráning hafin í Listasmiðju í
framsögn og framkomu sem verður
alla mánudaga eftir áramót. Soffía
Jakobsdóttir leikkona kennir. Engin
leikfimi í dag. Nánari upplýsingar í
síma 568 3132. Hárgreiðslustofa 568
3139. Fótaaðgerðarstofa 897 9801.
Vesturgata 7 | Kl. 9–16 hárgreiðsla og
fótaaðgerðir, kl. 9.15–15.30 handa-
vinna, kl. 9.15–16 postulínsmálun, kl.
10.15–11.45 enska, kl. 11.45–12.45 há-
degisverður, kl. 13–16 bútasaumur, kl.
13–16 frjáls spil, kl. 13–14.30 leshringur,
kl. 14.30–15.45 kaffiveitingar.
Vitatorg | Handavinnustofan opin
12.30 til 15, félagsvist kl. 14.
Kirkjustarf
Fríkirkjan Kefas | Bænastund kl.
20.30.
Hallgrímskirkja | Fyrirbænaguðsþjón-
usta kl. 10.30. Beðið fyrir sjúkum.
Hjallakirkja | Jólagleði aldraðra verð-
ur í dag kl. 14. Söngvinir, kór aldraðra,
syngja og krakkar úr Barnakór Snæ-
landsskóla koma í heimsókn. Veitingar
og happadrætti í safnaðarsal.
Kristniboðssambandið | Kristniboðs-
sambandið þiggur með þökkum um-
slög og frímerki af jólapóstinum. Þau
eru seld til ágóða fyrir kristniboðs– og
hjálparstarf í Afríku. Móttaka við sölu-
bás á 2. hæð Kringlunnar, í húsi KFUM
og K á Holtavegi 28 og Glerárgötu 1 á
Akureyri, svo og í sumum kirkjum.