24 stundir - 04.03.2008, Qupperneq 10
Eftir Elías Jón Guðjónsson
elias@24stundir.is
„Ég vona að Hallargarðurinn verði
ekki eyðilagður,“ segir Jón H.
Björnsson sem hannaði Hallar-
garðinn árið 1953. Reykjavíkur-
borg tók á sínum tíma tilboði
Novator, fjárfestingarfélagi Björg-
ólfs Thors Björgólfssonar, í húsið á
Fríkirkjuvegi 11 sem stendur í
Hallargarðinum. Sá fyrirvari var þó
á tilboðinu að veitt yrði heimild til
breytinga á garðinum með það að
markmiði að bæta aðkomu að hús-
inu. Jón segir að þær breytingar
sem lagðar hafa verið til muni eyði-
leggja garðinn.
Fyrsti garður sinnar tegundar
„Óhætt er að segja að garðurinn
hafi slegið í gegn eftir að hann var
fullgerður,“ segir Jón en hann rekur
vinsældir garðsins til þess að hann
hafi á sínum tíma verið nýstárlegur
og í raun fyrsti almenningsgarður
sinnar tegundar á Íslandi. „Garð-
urinn var hannaður í svokölluðum
óformlegum stíl öfugt við hinn
formlega stíl sem hér hafði tíðkast
og reyndar um meginland Evrópu,“
segir Jón. Hann segir að við skipu-
lag Hallargarðsins hafi hann leitast
við að hver lína garðsins hefði
ákveðna þýðingu og að opin svæði
mynduðu samræmda heild.
„Hverskonar rask myndi eyðileggja
heildarmynd garðins og það er ekk-
ert smá rask sem þær hugmyndir
sem nú eru uppi um breytingar á
garðinum fela í sér. Þar með væri
Hallargarðurinn ekki lengur til í
mínum huga.“ Jón segist helst vilja
sjá garðinn óbreyttan en standi til
að breyta honum þá vilji hann fá að
koma þar að.
Vilja halda í karakter garðisins
„Það sem lagt hefur verið til er
að bæta aðkomu að neðstu hæð
hússins, þar á meðal fyrir hjólastóla
og allan almenning en þar er gert
ráð fyrir sýningu um starf og ævi
Thors Jensen. Þar á að verða svolít-
ið torg,“ segir Stefán Örn Stefáns-
son arkitekt sem er ráðgjafi Nova-
tors. „Síðan er búinn til möguleiki
á því að keyra inn frá Fríkirkjuveg-
inum með gesti því gert er ráð fyrir
að þarna verði haldnar móttökur
líkt og í Höfða,“ bætir hann við og
segir þetta vera möguleika sem
verði einungis notaður í undan-
tekningartilvikum. „Í mínum huga
er þetta alls engin skemmd á garð-
inum. Við erum með þessum til-
lögum að reyna að raska karakter
garðsins sem minnst. Ég held að í
heildina tekið þá sé þetta til bóta
fyrir garðinn og þar með borgar-
búa alla.“
Óttast um framtíð
Hallargarðsins
Höfundur Hallargarðsins segir garðinn eyðilagðan gangi hugmyndir Novators eftir
Novator segir breytingarnar nauðsynlegar til þess að bæta aðgengi að Fríkirkjuvegi 11
➤ Í görðum í óreglulegum stíl erlögð áhersla á að á göngu
gegnum þá séu stöðugt ný
áhugaverð sjónarhorn sem
gesturinn upplifir.
➤ Í gegnum garða í formlegumstíl liggur ás sem endar í
ákveðinni þungamiðju líkt og
garðurinn sem liggur fyrir
framan Háskóla Íslands.
➤ Á seinni árum hefur formlegistíllinn þótt fátæklegur og
ófrumlegur í samanburði við
frjálsleika og fjölbreytni
óformlega stílsins.
ÓLÍKIR STÍLAR
24stundir/Frikki
10 ÞRIÐJUDAGUR 4. MARS 2008 24stundir
REOG
Þarf að leggja göngustíg, hirða gróður, setja upp
körfuboltahring eða framkvæma eitthvað annað?
SAMRÁÐ UM BETRA BORGARUMHVERFI
„Þingvallavatn er þekkt út um
allan heim fyrir hreinleika og
það koma fleiri hundruð ferða-
manna hingað til lands til þess
eins að kafa í því,“ segir Pálmi
Dungal sem kafað hefur í Þing-
vallavatni í 25 ár og tók við þá
iðju meðfylgjandi mynd úr Pen-
ingagjá.
Pálmi segir grátlegt að lesa
fréttir af því að mikið kvikasilfur
mælist í fisknum í Þingvallavatni
en eins og sagt var frá í 24 stund-
um fyrir skömmu er magn kvika-
silfurs í stórurriðanum í vatninu
yfir heilsuverndarmörkum.
„Þetta hefur verið þjóðargersemi
okkar Íslendinga og verið skráð á
heimsminjaskrá. Það er spurning
hvort það geti verið þar áfram þeg-
ar svona er komið fyrir vatninu,“
segir Pálmi, og bætir við: „Auk þess
hlýtur maður að spyrja sig hvort
við getum átt von á því að kvika-
silfur berist í neysluvatn, t.d. frá
Hellisheiðarvirkjun, fyrst það er
komið í Þingvallavatn.“
hlynur@24stundir.is
Þjóðargersemi okkar Íslendinga gæti verið í hættu
Áhyggjur af framtíð Þingvallavatns
Landbúnaðarráðherra segir að
glöggt megi merkja aukinn áhuga
á heimavinnslu hjá bændum.
Hann hefur nú skipað nefnd til
að skoða hvernig best sé að
standa að og greiða fyrir þróun
og sölu heimaunninna afurða, í
samráði við Félag heima-
vinnsluaðila sem stofnað var sl.
föstudag. Henni hafa ekki verið
sett nein ákveðin tímamörk til
vinnunnar, að sögn ráðherra.
þkþ
Hallargarðurinn dregur nafn
sitt af Bindindishöllinni en húsið
sem stendur á Fríkirkjuvegi 11
gekk undir því nafni á sínum tíma
þegar það var þá í eigu góðtempl-
ara. Garðurinn var tekinn í notk-
un þann 18. ágúst 1954 og vakti
þá tjörn með gosbrunni sérstaka
athygli. Hún varð mjög vinsæl á
meðal barna sem heimsóttu garð-
inn á góðum sumardögum en
með tímanum fór tjörnin þó að
leka og var á endanum fjarlægð.
„Ávalar línur einkenna garðinn
í öllu skipulagi eins og garða am-
erísku módernistanna. Megin-
stígur bugðast skáhalt í gegnum
garðinn frá Listasafni Íslands og
kvíslast svo annars vegar til móts
við Fjólugötu en hins vegar til
móts við Hljómskálann. Annað
megineinkenni skipulagsins sést
þegar gengið er eftir stígum
garðsins. Birtast þá í sífellu ný
sjónarhorn, bæði innan garðsins
og utan,“ segir Samson Bjarnar
Harðarson landslagsarkitekt um
skipulag garðsins í Morgun-
blaðinu þann 6. júní 2005 en
garðurinn er fyrsti almennings-
garðurinn á Íslandi sem er í svo-
kölluðum óreglulegum stíl. ejg
Heimavinnsla
Sala og þróun
afurða skoðuð
Hallargarðurinn
Nýstárleg
hönnun
Jón H. Björnsson Í
hallargarðinum sem
hann hannaði fyrir
meira en hálfri öld.