24 stundir - 12.04.2008, Qupperneq 34
LAUGARDAGUR 12. APRÍL 2008ATVINNA34 stundir
Útboð
Fjallabyggð óskar eftir tilboðum í gatnagerð á
Siglufirði og Ólafsfirði árið 2008
Helstu magntölur eru:
Gröftur: 5.600 m3
Fylling: 5.200 m3
Skolplagnir 800 m
Malbik 10.300 m2
Stoðveggir 20 m
Gangstéttar 900 m
Útboðsgögn verða seld á bæjarskrifstofunum á
Siglufirði frá og með 14. apríl 2008
Tilboð verða opnuð þriðjudaginn 29. apríl 2008
Skipulags- og byggingafulltrúinn Fjallabyggð.
Aðalfundur
2008
Aðalfundur Félags bókagerðarmanna
verður haldinn á Grand Hótel v/Sigtún
laugardaginn 19. apríl kl. 10:00.
Reikningar, fundargerðir, tillögur um
lagabreytingar og aðrar framkomnar tillögur
liggja frammi á skrifstofu FBM frá og með
10. apríl 2008.
Boðinn verður morgunverður milli
kl. 9:00 og 10:00 og einnig matur í fundarhléi.
Reykjavík, 29. mars 2008,
Stjórn Félags bókagerðarmanna
In
g
u
n
n
Þr
ái
n
sd
ó
tt
ir
Af hverju að bíða og bíða eftir stóra vinningnum þegar þú
getur unnið fyrir öllu sem þig langar að eignast? Það eina sem
þú þarft að gera er að bera út blöð í 1-3 tíma á dag.
Besta aukavinna sem þú getur fundið
og góð hreyfing í þokkabót!
Hringdu núna og sæktu um
í síma 569 1440 eða á mbl.is!
Sæktu um blaðberastarf
– alvörupeningar í boði!
Hjúkrunarfræðingar,
hjúkrunarfræðinemar og sjúkraliðar
Heilbrigðisstofnunin Blönduósi
Flúðabakki 2 • 540 Blönduós • Sími 455 4100 –Fax 455 4136 • www.hsb.is
Heilbrigðisstofnunin Blönduósi þjónar aðallega íbúum A-Húnavatnssýslu. Að jafnaði eru um 80 manns á launaskrá hverju
sinni. Lögð er áhersla á uppbyggingu, skipulag og þróun til móts við nýja tíma. Starfsemin skiptist í rekstur sjúkra-og
hjúkrunarrýma samtals 36 rúm og 10 rýma dvalardeildar auk heilsugæslu með rekstri heilsugæslustöðva á Blönduósi og
Skagaströnd. Sjá nánar á www.hsb.is
Hjúkrunarfræðingar óskast til starfa í föst
störf frá 15. maí eða síðar. Óskum einnig eftir
hjúkrunarfræðingum og hjúkrunarfræðinemum til
sumarafleysinga. Um er að ræða dag og kvöldvaktir
en einnig eru bakvaktir. Starfshlutfall fer eftir
samkomulagi. Laun eru samkvæmt kjarasamningi
BHM og stofnanasamningi HSB.
Sjúkraliðar óskast í föst störf frá 15. maí eða
síðar og til sumarafleysinga. Starfshlutfall 80-
100%. Allar vaktir. Laun samkvæmt kjarasamningi
SLFÍ og stofnanasamningi HSB.
Útvegum húsnæði, leigan er hagstæð og
við aðstoðum við flutning.
Umsóknir með upplýsingum um náms-
og starfsferil skulu berist til Sveinfríðar
Sigurpálsdóttur framkvæmdastjóra
hjúkrunar sem veitir upplýsingar um
starfið í síma 455 4128 og 891 9004.
Netfang: sveinfr@hsb.is
Umsóknarfrestur er til og með 25. apríl.
Umsóknareyðublað er á heimasíðu HSB.
Öllum umsóknum verður svarað.
Umhverfisfulltrúi
í Ólafsfirði eða á Siglufirði
Fjallabyggð leitar að áhugasömum og framsæknum einstaklingi til að sinna starfi umhverfisfulltrúa.
Umhverfisfulltrúi ber ábyrgð á því að útlit bæjarins sé snyrtilegt og bæjarfélaginu til sóma. Hann þarf að hafa
forustu um bætta umgengni, endurnýtingu og endurvinnslu úrgangs og halda uppi fræðslu og áróðri í því skyni.
Umhverfisfulltrúi hefur meðal annars umsjón með skipulagningu og umhirðu opinna svæða, sorphirðu og
endurvinnslu, skipulagi umhverfismála og gerir umhverfisáætlanir, skipuleggur starfa vinnuskólans og starfar
með umhverfisnefnd að öllum verkefnum sem tengjast umhverfismálum s.s. staðardagskrá 21.
Menntunar- og hæfniskröfur:
• Menntun og/eða starfsreynsla á sviði garðyrkju og umhverfismála.
• Víðtæk tölvuþekking.
• Færni í að vinna með skipulagsgögn og teikningar.
• Góðir samskipta- og samstarfshæfileikar.
• Sjálfstæði í vinnubrögðum.
• Skipulagshæfileikar og frumkvæði við lausn verkefna.
• Stjórnunarreynsla er æskileg.
Umsóknarfrestur um starf umhverfisfulltrúa í Fjallabyggð er til og með 30. apríl nk.
Tengiliður: Þórir Kr. Þórisson bæjarstjóri, thorir@fjallabyggd.is s.464 9100