24 stundir - 12.04.2008, Qupperneq 54
54 LAUGARDAGUR 12. APRÍL 2008 24stundir
ÍÞRÓTTIR
ithrottir@24stundir.is a
Eftirleikurinn er svo einfaldari þar sem
áhugi barna og unglinga eykst í hlutfalli
við árangur og eins og stendur erum við að fót-
boltanum frátöldum stærsta deildin innan ÍR.
Eftir Albert Örn Eyþórsson
albert@24stundir.is
Afreksstefna hefur verið tískuorð
um nokkurra ára skeið og íþrótta-
félögin orðin fá á landinu sem ekki
hafa slíka stefnu á pappírum. En
eitt er að setja fram slíka stefnu og
annað að fylgja henni til þrautar
enda vandrataður vegur. Það hefur
þó sannarlega tekist hjá frjáls-
íþróttadeild ÍR sem þrátt fyrir bág-
an hag og jafnvel djúpar skuldir á
tímabili hefur tekist að framfylgja
stefnu sinni af slíkri sannfæringu
að deildin er orðin að sönnu stór-
veldi í frjálsum íþróttum í landinu.
Allir með, engin pressa
Þótt fjölmargt afreksfólk sé inn-
an raða ÍR þessi dægrin tekur Mar-
grét Héðinsdóttir, formaður frjáls-
íþróttadeildarinnar, fram að
frjálsræði sé í hávegum haft og eng-
inn iðkandi þurfi frekar að keppa
en hann sjálfur vilji. „Við setjum
alls enga pressu á einstaklinga inn-
an okkar raða. Vilji fólk taka þátt í
keppnum er það sjálfsagt en sé að-
eins vilji til að vera með er það
jafnsjálfsagt í okkar huga.“
Yfir 400 einstaklingar leggja
stund á frjálsar hjá félaginu þennan
veturinn og til að þjóna þeim hópi
eru 20 þjálfarar og leiðbeinendur á
launaskrá deildarinnar og þeir ekki
af verra taginu. Meirihluti þjálfara
hefur menntun í slíku og af sjö
þjálfurum meistaraflokks eru til að
mynda sex þeirra fyrrverandi eða
núverandi Íslandsmeistarar. Mar-
grét segir það mjög meðvitaða
ákvörðun að fá bestu þjálfara
hverju sinni til liðs við ÍR. „Það er
stór hluti af því að fylgja afreks-
stefnu okkar að hafa til þess hæf-
asta fólkið hverju sinni og það hef-
ur tekist vonum framar og óhætt
að fullyrða að hér er bæði í meist-
araflokki og yngri flokkunum val-
inn þjálfari í hverju rúmi. Þetta
gerum við þó alveg sé ljóst að æf-
ingagjöldin sem við fáum inn duga
alls ekki fyrir launum þeirra. Á því
vinnum við bug með fjáröflun auk
þess sem meirihluti starfsins að
öðru leyti er unninn í sjálfboða-
vinnu og í flestum tilfellum af for-
eldrum barna sem hér æfa.“
Samfélagsleg áhrif
Undir þetta tekur yfirþjálfari
frjálsíþróttadeildarinnar, Þráinn
Hafsteinsson. Segir hann stígandi
gengi ÍR í frjálsum enga tilviljun
heldur einmitt afleiðingu þess að
hátt sé stefnt og staðið við það.
„Við gerum okkur mikið far um að
laða til okkar hæfustu þjálfara
landsins því að okkar mati er það
algjör undirstaða þess að árangur
náist. Eftirleikurinn er svo einfald-
ari þar sem áhugi barna og ung-
linga á að taka þátt eykst í hlutfalli
við árangur og fyrir utan fótbolt-
ann erum við nú stærsta deildin
hjá ÍR.“
Aðspurður um annað það er
máli skiptir segir Þráinn samfélags-
þáttinn mjög mikilvægan sem og
einnig fjölbreytni í starfinu. „Við
gerum okkur far um það hjá þeim
yngstu að leggja enga ofuráherslu á
keppni heldur samveru og leiki í
bland við æfingar og það er ekki
fyrr en síðar sem við förum að taka
þátt í stærri mótum og förum
reglulega með hópa til útlanda.
Starfið er svo reglulega endurskoð-
að og við breytum áherslum á
tveggja ára fresti og viðhöldum
þannig áhuga þeirra er með okkur
eru.“
Framtíð frjálsra Hluti þeirra 400 ein-
staklinga sem stund leggja á frjálsar
íþróttir hjá ÍR en hver titillinn á fætur
öðrum fellur nú félaginu í skaut.
Grunnur lagður
að gullaldarskeiði
Fyrir átta árum var fjárhagur frjálsíþróttadeildar Íþróttafélags Reykjavíkur, ÍR, ein rjúk-
andi rúst og starfið lamað fyrir vikið Með stórhug og einbeittu átaki hefur tekist að rífa
hana upp úr þeirri ládeyðu og íþróttafólk félagsins sigrar nú flest sem hægt er að sigra
➤ Frjálsíþróttafólk ÍR hefur sigr-að í stigakeppni allra innan-
hússmóta sem haldin hafa
verið í vetur.
➤ ÍR vann Bikarmeistaratitilinná síðasta stórmótinu innan-
húss.
➤ Unnu stigakeppni Unglinga-meistaramóts 15-22 ára.
➤ Unnu aðalhluta MeistaramótsÍslands.
➤ Félagar úr ÍR unnu Öld-ungameistaramót Íslands.
➤ Titillinn úr Bikarkeppni Frjáls-íþróttasambands Íslands til-
heyrir ÍR.
➤ Síðasta sumar tók ÍR sæti FHsem sigursælasta félagið í
stigakeppni Íslandsmeist-
aramóta.
FRÁBÆR UPPSKERA
Fókus Fórnir þarf til að ná árangri og
unglingarnir hjá ÍR hafa margir hverjir
fært þær enda árangurinn eftir því.
Hindranir Allar slíkar hafa verið yf-
irstignar hjá ÍR og starfið ekki verið í
eins miklum blóma um áraraðir.
a
Þetta gerum við þó
alveg sé ljóst að æf-
ingagjöldin sem við fáum
inn duga alls ekki fyrir
launum þeirra.
24stundir/Ómar
Þrettán íslenskir keppendur
taka þátt í Norðurlanda-
mótinu í karate sem fram fer í
Laugardalshöllinni í dag en
keppt verður þar í kata og ku-
mite. Allar helstu stjörnur
greinarinnar frá hinum nor-
rænu ríkjunum auk Eistlands
mæta til leiks eða alls um 50
keppendur. Hefst mótið
klukkan tíu.
Þrettán á móti
þeim bestu
Allsérstæður viðburður á sér
stað á svellinu í Egilshöll um
helgina þegar allnokkur er-
lend íshokkífélög skipuð leik-
mönnum 12 til 13 ára etja þar
kappi. Er það liður í sérstakri
keppni Evrópu og Ameríku og
koma félögin frá Kanada,
Bandaríkjunum, Svíþjóð og
Finnlandi. Er mikill spenn-
ingur fyrir mótinu hér enda
koma liðin frá stærstu og
bestu íshokkíþjóðum heims.
Viðburður
Stjórn Héraðssambandsins
Skarphéðins, HSK, hefur sótt
um að fá að halda Landsmót
Ungmennafélags Íslands árið
2010 en frestur til þess arna
rennur út í lok þessa mánaðar.
Færi mótið þá fram að Hvols-
velli en talsverðar endurbætur
þarf þar að gera til að mæta
þeim kröfum sem gerðar eru
til slíks mótshalds.
HSK vill
Landsmót
Golfsamband Íslands hefur
loks samræmt reglur hér-
lendis við það sem gerist er-
lendis hvað varðar forgjaf-
arkerfi. Hefur verið nokkur
munur á þeim reglum en héð-
an í frá verða þær að öllu leyti
eins. Allt um nýju reglurnar
má finna á golf.is.
Virk forgjöf