24 stundir - 12.04.2008, Side 62

24 stundir - 12.04.2008, Side 62
62 LAUGARDAGUR 12. APRÍL 2008 24stundir „Ég drakk RC Cola gjarnan sem krakki. Ég man að mér fannst það betra en kóka kóla. Einhvernveg- inn ferskara. Meiri tilfinning fyr- ir vatninu. Væntanlega hafa inn- flutningsaðilar vörunnar farið á hausinn enda vill þessi þjóð ekk- ert annað en kók. Pepsí í hallæri.“ Birkir Fjalar Viðarsson kaninka.net/birkirfjalar „Búinn að fá fyrstu morðhót- unina á Íslandi vegna bloggs! Hann gat samt ekki sagt mér fyrir hvaða blogg! Talaði stutt og skellti á! Þetta er búið að vera meira puðið. Blogga í 2 mánuði og loksins tekst að fá eina morð- hótun út af blogginu! “ Óskar Arnórsson huldumenn.blog.is „Fækkaðu fötum. Nú er það dott- ið úr mér hvað hann hét klám- kjafturinn sem söng lag með þessu heiti og oft var spilað í út- varpinu í gamla daga. Ef ég man rétt voru þessar línur í laginu: Pabbi hann er barngóður, afi hann er Freymóður og ég er orð- inn lafmóður.“ Ármann Jakobsson armannjakobsson.blogspot.com BLOGGARINN Eftir Atla Fannar Bjarkason atli@24stundir.is „Mér líst æðislega vel á útkomuna. Ég hef aldrei verið jafn ánægð með neitt sem ég hef gert í tónlist. Ég var svo ung þá, þetta er meira frá mér,“ segir söngkonan Jóhanna Guðrún. Hún kýs að kalla sig Yoh- anna í dag sem er alþjóðleg útgáfa af nafni hennar. Yohanna gefur út breiðskífuna Butterflies and Elvis á fimmtudag í næstu viku. Skífan var tekin upp í Sound Factory-hljóðverinu af upp- tökustjóranum Höskuldi Hösk- uldssyni, Husky Höskulds. Hann er þekktastur fyrir að hafa hlotið Grammy-verðlaunin eftirsóttu árið 2003 fyrir vinnu sína á breiðskífu Noruh Jones, Come Away With Me. Eintómir fagmenn „Það var rosalega fínt að vinna með Husky,“ segir Yohanna. Þeir sem komu að skífunni með henni voru miklir fagmenn. Abe Laboriel jr. lék til að mynda á trommur en hann hefur starfað náið með bítl- inum Paul McCartney síðustu ár. „Hann er rosalega frægur tromm- ari. Ég þurfti að klípa mig til að fatta með hvaða fólki ég var að vinna og það var fyndið að hlusta á sögurnar sem þeir deildu. Ég heyrði á þeim að þeir eru búnir að gera fullt sem fæstir eru búnir að gera í þessum bransa.“ Yohanna á erfitt með að lýsa tónlist sinni en segir að hún hafi bæði verið kölluð kántrípopp og blús. „Það er rosalega mismunandi hvernig fólk lýsir tónlistinni,“ segir hún. „Ég er undir áhrifum frá mörgum tónlistarmönnum enda með mjög breiðan tónlist- arsmekk.“ Semur sögur Yohanna semur meirihluta text- anna á skífunni og aðspurð hvað þeir fjalli segir hún það rosalega mismunandi. „Ég sem rosalega oft um eigin reynslu og það sem ég upplifi. Svo sem ég sögur sem eru ekki eins persónulegar. Svo sem lög út frá þeim.“ Breiðskífa Yohönnu verður fyrst um sinn gefin út á Íslandi. Spurð um útlönd segist Yohanna lítið skipta sér að bisness-hluta útgáf- unnar. „Ég er að einbeita mér að útgáfunni á Íslandi,“ segir hún. „Ég byrja hér, svo sjáum við hvað gerist.“ Fyrrverandi barnastjarna tók upp breiðskífu með Husky Höskulds Yohanna kveður Jóhönnu Guðrúnu Í næstu viku kemur út breiðskífan Butterflies and Elvis, sem er fyrsta breiðskífa Jóhönnu Guð- rúnar síðan hún var barn. Jóhanna kýs að kalla sig Yohanna í dag. Gott samstarf Husky tók upp breið- skífu Yhönnu. ➤ Jóhanna Guðrún byrjaði aðsyngja 8 ára gömul. ➤ Hún gaf út sína fyrstu breið-skífu 10 ára gömul og sló strax í gegn. ➤ Ári síðar gaf hún út sína aðrabreiðskífu. ➤ Söngkonan María Björk erumboðsmaður Yohönnu. YOHANNA HEYRST HEFUR … Valgeir Magnússon, betur þekktur sem Valli Sport, hefur verið umboðsmaður hljómsveitarinnar Merzedes Club frá stofnun. Hann hefur komið hljómsveitinni vel á framfæri, svo vægt sé til orða tekið, en nýjasta útspil hans er auglýsingasamn- ingur Símans við Merzedes Club. Þessu hafa tón- listarmenn tekið eftir og nú heyrist að símtölum rigni yfir Valla þar sem þeir óska eftir plögghjálp. afb Íslenskir auðmenn og stjórnmálamenn eru ekki þeir einu sem nýta sér einkaþotur til að komast á milli staða. Vísir greindi frá því í gær að Egill Ólafs- son og félagar í Þursaflokknum flygju í einni slíkri til Akureyrar um helgina þar sem hljómsveitin heldur þrenna tónleika. Uppselt er á tvenna tón- leikana og nær uppselt á þá þriðju svo að Þursarnir ættu ekki að gráta verðmiðann. afb Dv.is greindi frá því í gær að lesandi hefði haft sam- band við Illuga Jökulsson, ritstjóra tímaritsins Skakka turnsins, og beðið hann að tóna niður efn- istökin á einni síðu blaðsins. Síðan ku fjalla um skelfilegustu tímabil mannkynssögunnar, en les- andinn hafði áhyggjur af martröðum dóttur sinnar eftir lestur blaðsins. Illugi veltir nú fyrir sér hvernig hann getur komið í veg fyrir martraðirnar. afb „Tímaritið kemur út fjórum sinnum á ári og stílar inn á árstíð- irnar. Fyrsta tölublað kemur út í sumar,“ segir Ragnheiður Guð- finna Guðnadóttir, markaðsfulltrúi hjá Senu og fegurðardrottning. Kemur á óvart Ragnheiður og Hans F. Hansen undirbúa nú útgáfu tímarits og eru langt komin með fyrsta tölublað sem kemur út í sumar. Eftir það kemur út eitt tímarit fyrir hverja árstíð; vetur, sumar, vor og haust. Ragnheiður ætlar að leggja áherslu á gæði og lúxus í lífsstíl fólks. „Ekkert slúður eða sorg- arsögur,“ segir hún, en fæst ekki til að gefa upplýsingar um efni fyrsta tölublaðsins. Hún segir að tímarit- ið verði stórt og mikið að eigi eftir að koma á óvart. „Efnið er að- alspennan,“ segir hún. „Ég hugsa að gæði blaðsins og markaðs- pælingar eigi eftir að koma fólki á óvart. Efnið er hvaðanæva úr heiminum - það er ekki endilega bundið við Reykjavík. Við verðum með upplýsingar um flotta staði í Evrópu og förum út fyrir ramm- ann.“ atli@24stundir.is Ragnheiður Guðfinna gefur út tímarit Ekkert slúður eða sorgarsögur Ragnheiður Þögul um efni tímaritsins. Su Doku þrautin snýst um að raða tölunum frá 1-9 lárétt og lóðrétt í reitina, þannig að hver tala komi ekki nema einu sinni fyrir í hverri línu, hvort sem er lárétt eða lóðrétt. Sömu tölu má aukin heldur aðeins nota einu sinni innan hvers níu reita fylkis. Unnt er að leysa þrautina út frá þeim tölum, sem upp eru gefnar. Su doku 3 5 7 2 6 8 1 4 9 8 4 9 1 7 3 5 2 6 6 1 2 4 9 5 3 7 8 7 9 6 3 4 1 8 5 2 2 3 1 5 8 6 4 9 7 4 8 5 7 2 9 6 1 3 1 6 3 9 5 2 7 8 4 5 2 4 8 3 7 9 6 1 9 7 8 6 1 4 2 3 5 Ef þú ætlar að vera afi þarftu að færa fórnir. 24FÓLK folk@24stundir.is a Ég er öllu vanur eftir að hafa verið í samstarfi við sjálfstæðismenn! Hvernig gengur sambúð hins pólitíska refs og minksins? Ísólfur Gylfi Pálmasons, fyrrverandi alþingismaður, hefur hýst minkabú, óafvitandi, undir sólpallinum hjá sér á Flúðum, einsog fram kom í Pésanum, fréttabréfi Hruna- mannahrepps. Hafði þá einn sveitunginn á orði að það færi vel á því að minkur væri undir palli pólitísks refs. Um er að ræða stórglæsilega sér- hæð á eftirsóttum stað í Keflavík. 4 góð svefnherbergi, stofa, bað- herbergi, sjónvarpshol, eldhús með nýrri innréttingu og tækjum. Parket og flísar. Flottar svalir á 2 vegu. Forstofa. Kapaltenging. Sér- inngangur, 2 sérbílastæði. Húsið allt tekið í gegn að utan með flísum, harðviði, Alusink þakjárni og fl. Geymsluloft yfir allri íbúðinni. Þvottahús. Þessi eign er í göngufæri við skóla, verslanir og þjónustu. Sjón er sögu ríkari. Vill skipta á eign á höf- uðborgarsvæðinu, 4 herb. eða stærra. Verð kr 24,9 millj. Hafið samband við Jóhannes í s-6151226 eða á skrifstofu Eignavers s- 5532222. www.eignaver.is Eggert Sk. Jóhannesson, Jóhannes Eggertsson, Ólafur Thoroddsen hdl. Nánari upplýsingar veitir Fasteignasalan Eignaver Sími 553-2222 • eignaver.is Síðumúli 13 • 108 Reykjavík Lyngholt Kef. 5 herb. sérhæð

x

24 stundir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: 24 stundir
https://timarit.is/publication/307

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.