Sunnudagsblaðið - 06.02.1966, Blaðsíða 5

Sunnudagsblaðið - 06.02.1966, Blaðsíða 5
niottóið fyrir kvæðunum í þýðingu Ekelofs; hann hefur einnig ort trúarkvæði, diwán. Frá Konia heldur í'irstinn yfir Eufrat, um fl.iótatunguna ofanverða, og hfram til norðurs í átt til Van-vatnsins, stjörnunnar handan fjalla. Enn gengur sagan út írá þvi að diwán furstans, hymnar þeir sem hann kveður til Panayían. sé elzti, >'Upprunalegasti,” hluti ljóðasafnsins, en seinni hlut- 'on, legendurnar, séu seinni tíma viðaukar. Sagt er að þær séu einungis úrval svo þess má vænta að Ekelöf eigi eítir að auka og umbreyta þeim. — 1 seinni hlutanum má greina sundur tvo kvæðaflokka, :>nnan sem fjallar um pyntingarnar í fangelsinu, og unnan um förina til Van. Þar kcmur kona við s°gu, húsfreyja, dóttir eða systir furstans, sem fær ha»n leystan úr haldi, elur önn fyrir honum síðan og V)rðist jafnvel tilbúin til að sclja sig hans vegna. Mörgum þessum kvæðum sem furstanum eru lögð 1 munn er einnig beint til gyðjunnar, hinnar alhelgu, yerndarvætt hjarðanna, scm líkt er við brúði. 1 einu þeirra óskar furstinn sér að mynd hans væri 'lc»gd á barm hennar, milli brjóstanna — einmitt a sama stað og Vlacherne-madonnan ber mynd hins ofædda Jesúbarns sem ekki er til í hugarheimi furst- "hs. Þannig er furstinn leiddur áleiðis til Van, ’miestur, yfirkominn, en borinn uppi af skæru ljósi »mra mcð sér, blint skáld sem segir fram sín cigin kvæði. segir að fangmn hafi fallið fyfir vollu Manikea, og kvæði furstans benda vissulega til þess. Hann er enginn sanntrúaður kristinn maður. Hann cr hálfkristinn dultrúarmaður, eins og Eke- löf segir í eftirmála sínum, og hefur sjálfsagt numið citthvað af heimspeki Manesar. Það bregður jafnvel fyrir búddisma í átrúnaði furstans á hina helgu mey kristindómsins. En ástin á henni vísar honum á smugu milli drottins og djöfuls, góðs og ills; hún sem er einskis móðir hefur huggun að færa hverj- um og einum. í diwán sínum beinir hann til hennar, hinnar helgu móður, meyjarinnar í himinblámanum, auðmjúku bænarákall sem í senn er munúðug ást- aijátning. Kvæðaflokkurinn er í heild sinni einstætt trúarljóð sem á cngan sinn líka í sænskum bók- mcnntum eftir rómantísku skáldin fyrir einlægni sína og innileik. Ljóminn umhverfis mynd gyðj- unnar sundrar myrkrinu þar sem furstinn lifir. En ógnirnar cru einnig þáttur örlaga lians, píslirnar sem hann líður, grimmdin, þjóðarmorðin á efri árum Miklagarðsríkis, og þær eru einn þáttur kvæðisins. Því er það svo einstætt og áhrifamikið. Verk Eke- löfs er í sænskum nútímabókmenntum einungis sambærilegt við Aniöru Harry Martinsons, og í Eke- löfs eigin skáldskap bcr það í heild sinni jafnvcl af Mölna-elegíu hans. Á kápu bókarinnar er mynd erkiengils í Hagia Sníía. Hann sé ég fyrir mér sem ímynd þeirra helgu köllunar sem knúið hefur Ekelöf að kveöa þetta eiustæöa, fagra og hrífaifdi skáJdverk- ALÞÝÐUBLAÐIÐ - SUNNUDAGSBLAÐ 53

x

Sunnudagsblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Sunnudagsblaðið
https://timarit.is/publication/302

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.