Sunnudagsblaðið - 06.02.1966, Blaðsíða 20
treyst hinum neí'nilega svo vel, að
hann þyrði að hætta á að fara
úr landi, nema öruggt væri, að
þeir færu báðir. Og Ríkharður
varð fyrst að fara til Englands til
að láta krýna sig, afla fjár til her-
ferðarinnar og gera ráðstafanir
um stjórn ríkisins í fjarveru hans.
Þetta allt tók sex mánuði, og er
þeir ætluðu að leggja af stað að
því loknu, andaðist di'ottning Fil-
ippusar, og varð hann af þeim sök-
um að fresta brottför sinni. Rík-
harður vildi ekki fara án hans og
beið líka eftir því, að Filippus yrði
ferðbúinn. Að því kom loks í júlí
árið 1190, og þá héldu þcir báðir
af stað austur í heim með herji
sína.
Ýmsum samtíðarmönnum Rík-
harðar var farið að þykja nóg
um. hve krossför hans dróst á lang-
inn, og sumir voru farnir að efast
um heilindi hans í því máli. Menn
gátu vel fyrirgefið honum, að hann
hafði farið með her á hendur föð-
ur sínum, en hitt var verra að
þola honum undanbrögð frá því
að rækja skyldu sína við kirkjuna
og hina kristnu trú. Ekki virtist þó
ástæða til að bera brigður 'á að
Rikharöur hafi af lieílum huga
fýst að komast austur í Jórsala-
heim til að berjast við Serki. En
á hinn bóginn hætti honum oft við
að iofa meiru en hann gat efnt.
Hann var nýjungagjarn og gekk
oft tii nýrra starfa mcð eldmóði
í byrjun, en þreyttist fljótt og
byrjaði á einhverju öðru. Töfin á,
að krossferðin hæfist, var heldur
ekki síður sök Filippusar en Rík-
harðar, en Filippus kunni betur að
gæta tungu sinnar og var spar á
loforð og þar að auki lét hann
það aldrei fara á milji mála, að
hann mæti hag ríkis síns meir en
krossferðina.
Vera má einnig, að hvorugur
þeirra konunganna hafi talið neina
sérstaka ástæðu til að flýta sér.
Menn vissu, að Saladín hafði verið
stöðvaður við Tyros og krossíara-
riddarar höfðu hafið sókn gegn
Serkjum og stefndu að því að ná
Ekru á sitt vald. Öflugri her en
þeir Filippus eða Ríkharður réðu
yfir hafði auk þcss haldið austur
í maí 1189 undir stjórn Friðriks
Barbarossa keisara, og það er ekki
ósennilegt, að þeir félagar, konung-
ar Englands og Frakklands, hafi
ekkcrt vcrið að flýta sér til liðs
við herafla, sem hlyti að viöur-
kenna annan stjórnanda þeim
æðri. Eii mánuði áður en þeir kon-
ungarnir héldu að lokum af stað
drukknaði Ffiðrik keisari í Litiu-
Asíu og hersveitir hans leystust
smám saman upp. Þörfin á aðstoð
frá Evrópu var þess vegna mikil.
Ríharður var samt ekkert að
flýta sér austur. Floti hans sigldi
til Miðjarðarhafs um Njörvasund,
en sjálfur fór hann landveg til
Marseille og steig þar um borð.
Þaðan héldu nokkur skip beina
leið til Sýrlands og veitti erki-
biskupinn af Kantaraborg því liði
forstöðu, en sjálfur ákvað Rík-
harður að koma við á Sikiley með
meginhluta liðsins. Jóhanna syst-
ir hans lifði þar í ekkjustandi og
sætti óbliðri meðforð hjá Tan-
kred konungi. Hann neitaði að
greiða henni heimanmund hennar
og einnig neitaði hann að borga
upphæð, sem konungurinn, maður
hennar, hafði ánafnað Hinriki II.
Englandskonungi og afkomendum
hans. Ríkhardur kom til Sikileyj-
ar í september 1190 og lét það
verða eitt sitt fyrsta verk að
þröngva Tankred til að gjalda
þetta fé. Síðan sættist hann þó
við Sikileyjarkonung og tók upp
nána samvinnu við hann, Filipp-
usi Frakkakonungi til sárra von-
brigða, en hann hélt líka kyi'ru
fvrir á Sikiley allan tímann sem
Ríkharður dvaldist þar. Á yfir-
borðinu var líka góð vinátta með
þeim konungunum og Filippus
leysti Ríkharð undan gamalli trú-
lofun hans og frönsku prinsess-
unnar Alísar. í staðinn gekk Rík-
harður að eiga Berengaríu af Na-
varra, og kom móðir hans til Sik-
ileyjar með brúðina á fund hans.
Vorið 1191 héldu þeir konung-
arnir frá Sikiley, Filippus Frakka
konungur fékk gott leiði alla leið
ti! Sýrlands, en Ríkharður lagði
af stað nokkru síðar og lenti í
ofviðri. Floti hans tvístraðist að
nokkru leyti, en safnaðist aftur
saman við Kýpur. Skipið, sem
systir hans og Benengaría voru
á, kom til Kýpur viku fyrr en
hann sjáfur. Þá réð yfir Kýpur
ísak Commenus, sem kallaði sig
keisara og var uppreisnarmaður
gegn Miklagarðskeisara. ísak
hugðist taka hinar tignu konur i
gíslingu. Þær neituðu þó að ganga
g3 SUNNUPAG&BLAi) - ALPÝeUBLAÐlÐ