Sunnudagsblaðið - 10.04.1966, Page 11

Sunnudagsblaðið - 10.04.1966, Page 11
Einu sinni voru tvö systkin. Þau hétu Lísa og Lalli. Þau áttu heima a sveit. M'ámmá' leyfði þeim, einn góðan veðurdag, að fara í berjamó. Þau tóku föturnar sínar og nestið, sem manna hafði útbúið handa þeim og héldu af stað. Lalli fann strax berjastað. Hann vildi ekki leyfa Lísu að tína þar. ,,Þú getur sjálf fundið þér berjastað,“ sagði hann. Lísa litla gekk um í berjamónum og leitaði en fann hvergi ber. Lalli var búinn að hálf-fylla sína fötu, þegar þau fóru að borða nestið sitt. Lísa var með sína fötu alveg galtóma. „Elsku Lalli minn. Viltu gefa mér að smakka eitt ber?“ spurði hún kurteislega. „Nei-nei, þú getur sjálf tínt berin h'anda þér“, svaraði Lalli hryssingslega og beit hehninginn af stórri jólalcökusneið. 'r'?ga- hann var búinn að drekka og borða, fór hann strax að tína meira. En Lísa lagðist niður í lyngið og horfði á köngulló, sem skreið inn á milli brauðmol'anna, sem hún hafði skilið eftir. Lísa gætti þess vel að trufla ekki dýrið, lá grafkyrr og horfði á köngullóna gæða sér á molunum. Allt í einu heyrði hún, að köngullóin hvíslaði einhverju, afar lágt. Lísa beygði sig alveg yfir hana og hlustaði. ,.Ég er köngulló — köngulló, ég get vísað þér á berjamó. Eltu mig, eltu mig, en elsku, stígðu ekki ofan á mig!“ Lísa trúði varla sínum eigin eyrum. Samt elti hún köngullóna í hæfilegri fjarlægð. ALÞÝÐUBLAÐIÐ - SUNNUDAGSBLAÐ £27

x

Sunnudagsblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Sunnudagsblaðið
https://timarit.is/publication/302

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.