Morgunblaðið - 27.08.2003, Blaðsíða 39

Morgunblaðið - 27.08.2003, Blaðsíða 39
Fisléttur fiskur … njótum veiðinnar, aflans, hollustunnar og fjölbreytninnar. Allar uppskriftirnar eru fyrir fjóra. matur Pasta með reyktum laxi 500 g pasta, soðið al dente 4 msk ólívuolía 2 msk sítrónusafi 1 msk kapers 1 msk kornsinnep 1/2 rauðlaukur, fínt saxaður 8-10 sneiðar reyktur lax 2 msk ferskt dill, saxað 2 msk fersk ítölsk steinselja, fínt söxuð Setjið olíu, sítrónusafa, kapers, sinnep og lauk á miðlungsheita pönnu í 2 mínútur eða þar til laukurinn er mjúkur. Látið vatnið renna vel af pastanu og hrærið laukblöndunni saman við það. Setjið þá laxinn, stein- seljuna og dillið út í og blandið. Piprið eftir smekk. Berið fram með fersku spínati. lifun

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.