24 stundir - 08.07.2008, Page 38
pörumst á móti í úrslitakeppn-
inni.“ Yngvi, félagar hans og hug-
búnaður þeirra stóðu sig með
stakri prýði í undankeppninni og
unnu hana og verða því að teljast
líklegir til afreka í sjálfri úr-
slitakeppninni. Þar verður keppt
með útsláttarfyrirkomulagi en alls
eru það átta lið sem keppa.
Mesta keppnin frá Kaliforníu
Hið íslenska forrit sem sigraði í
keppninni í fyrra þótti afar vel
heppnað og því kemur það lítið á
óvart að þetta árið skuli aðrir
keppendur hafa tekið sér íslenska
forritið til fyrirmyndar. „Við vor-
um einir í fyrra að nota þessa að-
ferðarfræði en nú eru einir þrír
spilarar sem eru að nýta sér þessa
svokölluðu hermunartækni við
þetta.“
Aðspurður hvort að keppn-
isskapið sé áberandi hjá íslenska
gervigreindarhópnum segir Yngvi
það vera nauðsynlegt en hann telur
helstu samkeppnina koma frá Kali-
forníu. „Ég myndi halda að sterk-
asti andstæðingurinn okkar væri
forrit frá Kaliforníu háskóla í Los
Angeles en það voru einmitt þeir
sem við sigruðum í fyrra.“
Íslensk titilvörn á alþjóðlegri ráðstefnu
Heimsmeistarar í
gervigreind
Innan skamms mun
þriggja manna hópur frá
Háskólanum í Reykjavík
halda til Chicago í Banda-
ríkjunum. Verkefnið: að
verja heimsmeistaratitil í
gervigreind.
Yngvi Keppnin hefst í Chicago 15.júlí.
24stundir/Valdís Thor
Íslands sómi Yngvi og fé-
lagar freista þess að verja
heimsmeistaratitil sinn.
Eftir Viggó I. Jónasson
viggo@24stundir.is
Það er ekki á hverjum degi sem Ís-
lendingar takast á við það verkefni
að verja heimsmeistaratitil. Það er
hinsvegar verkefni sem blasir við
þeim Yngva Björnssyni, dósent við
tölvunarfræðideild Háskólans í
Reykjavík, Hilmari Finnssyni og
Gylfa Þór Guðmundssyni en þeir
freista þess að verja heimsmeist-
aratitil í gervigreind. Keppnin fer
fram á heimsins stærstu ráðstefnu
um gervigreind, AAAI, sem fram
fer í Chicago dagana 15.-18. júlí.
„Grunnhugmyndin er sú að við
erum að vinna í tækni sem er að
gera tölvum kleift að læra sjálfar, af
reynslunni,“ segir Yngvi. „Það er
keppt í mörgum mismunandi
leikjum sem forritin hafa aldrei séð
áður. Forritin fá bara sendar leik-
reglurnar og eiga þau að uppgötva
sjálf og læra hvað þarf til að spila
þennan leik vel og vinna.“
Unnu undankeppnina
Eins og í öðrum heimsmeist-
arakeppnum þá fer fram und-
ankeppni sem heimsmeistararnir
þurfa að taka þátt í. „Það var und-
ankeppni í gangi, eins og í fótbolt-
anum, sem ræður hverjum við
38 ÞRIÐJUDAGUR 8. JÚLÍ 2008 24stundir
„Félagar í Saving Iceland eru upp
til hópa dugnaðarforkar, hug-
sjónafólk sem berst fyrir íslenska
náttúru. Við eigum að bjóða þau
velkomin til landsins og þakka
þeim fyrir hjálpina enda ærið
verk fyrir höndum að opna augu
nokkurra stóriðjusinna.“
Hlynur Hallsson
hlynurh.blog.is
„Enn einu sinni megum við búast
við einhverjum lýð til að mót-
mæla því sem þeim kemur ekkert
við. Ég tel að þarna sé á ferðinni
lýður sem aldrei hefur migið í
saltan sjó eða dýft hendinni í kalt
vatn, kann ekki landafræði og því
síður að það virði rétt eða skoð-
anir annarra. “
Hulda Elma Guðmundsdóttir
heg.blog.is
„Djöfuls svítness er að fara úr
bænum þegar veðrið er svona. Ha
ha, ég er orðin eins og hundrað
ára, geeet ekki verið í bænum um
helgar út af öllum látunum í út-
hverfapakkinu sem mæta í 101
um helgar og eru með fylliríslæti
og vesen með hugarfarinu: „hva’
fólk valdi sér að búa hérna.“
Katrín Atladóttir
katrin.is
BLOGGARINN
HEYRST HEFUR …
Bæði Mugison og Bloodgroup fengu slappa dóma í
dönsku pressunni fyrir framkomu sína á Hróars-
kelduhátíðinni. Mugison fékk aðeins tvær stjörnur í
einu af dönsku dagblöðunum og kallaði blaðamað-
ur tónleikana hrein vonbrigði. Honum fannst það
miður að Mugison skyldi öskra meira en syngja og
bjóst greinilega við svipuðu efni og á eldri plötum
Mugga. bös
Um næstu helgi fer fram Eistnaflug í Neskaupstað,
þar sem hljómsveitin Ham mun koma fram ásamt
öðrum góðum böndum. Um ágæti Ham þarf ekki
að fjölyrða, enda ein goðsagnakenndasta rokk-
hljómsveit Íslandssögunnar. Sveitin mun þó spila á
fleiri stöðum í sumar, enda ekki á hverjum degi sem
meðlimir hennar koma saman til æfinga. Ekki er þó
útséð með dagsetningar í þeim efnum enn þá. tsk
Hún er ágætlega heppnuð nýja herferðin hjá Voda-
fone sem nefnist Skítt með kerfið. Plaggöt þess efnis
voru sett upp fyrir helgina og þóttu áberandi. Virt-
ist sem ný pönkhljómsveit hefði verið stofnuð eða
Anarkistafélagið hefði sent frá sér ályktun. Hreins-
unardeild Reykjavíkurborgar tók enga sénsa heldur
fjarlægði allt klabbið enda óvenju þrifnir eftir að
miðborgarstjórinn Jakob Frímann tók við. tsk
„Þetta gerist frekar oft hjá tón-
listarmönnum, að þeir gleymi
hljóðfærum sínum,“ segir Björn
Jörundur Friðbjörnsson, með-
limur hljómsveitarinnar Ný-
danskrar, sem spilaði á Markaðs-
degi Bolvíkinga á laugardaginn.
Aðspurður hvort tónlistarmenn
hugsuðu ekki um gítara sína líkt og
kærusturnar, svaraði Björn að
bragði: „Jú jú, en það kemur fyrir
að við gleymum þeim líka!“
Gítarinn er glænýr og af gerð-
inni Fender Telecaster. „Þetta er
amerískur Telecaster, hannaður
fyrir rétthenta. Hann var sendur í
flug í gær, en það gekk allt vel,
þrátt fyrir að hann sé örlítið flug-
hræddur,“ segir Björn, en gítarinn
er ekki sá hinn sami og hljómar í
laginu Flugvélar.
Blíða í Bolungarvík
Nýdönsk frumflutti nýtt lag
sveitarinnar á Markaðsdeginum,
sem að sögn Björns Jörundar lagð-
ist vel í mannskapinn.
„Lagið steinlá alveg. Við lékum
aftan við sundlaugina í brakandi
blíðu, alveg óvenjugóðu veðri og
krakkarnir heimsóttu hoppukast-
alann meðan fullorðna fólkið tróð
í sig pönnukökum. Svo var hörku-
ball um kvöldið, góð stemnning og
allt lukkaðist frábærlega.“
Nýdönsk mun næst koma fram
um verslunarmannahelgina þar
sem þeir leika á Akureyri, Seyð-
isfirði, Vestmannaeyjum og í Hús-
dýragarðinum.
Þá er nýjasta lag sveitarinnar,
Náttúra, væntanlegt á öldur ljós-
vakans í dag.
traustis@24stundir.is
Nýdönsk með velheppnað ball í Bolungarvík
Björn Jörundur
gleymdi gítarnum
Flughræddur Fender Björn Jörundur
ásamt týnda Telecaster-gítarnum sínum.
Su Doku þrautin snýst um að raða tölunum frá 1-9 lárétt og
lóðrétt í reitina, þannig að hver tala komi ekki nema einu sinni
fyrir í hverri línu, hvort sem er lárétt eða lóðrétt. Sömu tölu má
aukin heldur aðeins nota einu sinni innan hvers níu reita fylkis.
Unnt er að leysa þrautina út frá þeim tölum, sem upp eru gefnar.
Su doku
9 8 1 6 4 3 7 2 5
4 7 2 5 1 8 6 3 9
3 5 6 2 7 9 1 4 8
8 1 4 9 3 6 2 5 7
7 6 3 4 2 5 8 9 1
2 9 5 7 8 1 3 6 4
5 2 9 8 6 7 4 1 3
1 4 8 3 5 2 9 7 6
6 3 7 1 9 4 5 8 2
Þarftu alltaf að kaupa ódýrustu bitana af
matnum?
a
Ætli föngunum þyki ekki grasið
alltaf grænna hinum megin
Margrét, verður grasræktun liðin á Litla-Hrauni?
Margrét Frímannsdóttir er fangelsisstjóri á Litla-Hrauni,
en nú er í gangi söfnun fyrir nýju gróðurhúsi fyrir fangana,
svo þeir geti ræktað ýmsar matjurtir. FÓLK
24@24stundir.is fréttir