24 stundir - 09.07.2008, Blaðsíða 6

24 stundir - 09.07.2008, Blaðsíða 6
Hressing í bolla frá Knorr 6 MIÐVIKUDAGUR 9. JÚLÍ 2008 24stundir Eftir Hlyn Orra Stefánsson hlynur@24stundir.is „Það væru mistök að hætta að styðjast við greiningar á áfalla- streituröskun í kynferðisbrota- dómum,“ segir dr. Berglind Guð- mundsdóttir, sálfræðingur hjá Neyðarmóttöku Landspítalans. Eins og sagt var frá í 24 stundum í gær bendir Jón Steinar Gunn- laugsson hæstaréttardómari, í grein sem hann ritar, á að erfitt sé að vita hvað það er sem veldur röskun eða vanlíðan. Segir hann greiningu á áfallastreituröskun ekki til þess fallna að sanna sök sakbornings. Kærandi geti jafnvel upplifað áfallastreituröskun vegna kærunn- ar og niðurlægingar sem henni fylgir. Sýnir ekki mikla þekkingu „Hann er að ljá máls á mikil- vægu máli,“ segir Berglind. „En því miður sýnir hann ekki nægilega mikla þekkingu á áfallastreiturösk- un.“ Hún segir mjög erfitt fyrir kær- anda að gera sér upp áfallastreitu- röskun sem viðbrögð við kyn- ferðisofbeldi. „Viðkomandi þarf þá að hafa gríðarlega mikla þekkingu á áfallastreituröskun og vita að hverju greinandinn leitar.“ Spurningalistar eru aðeins lítill hluti af þeim tólum sem notuð eru til að greina áfallastreituröskun, segir Berglind. Einnig sé viðkom- andi tekinn í ítarleg viðtöl, enda einkennin ekki augljós. Hún segir að vissulega geti ein- staklingur upplifað streitu við það að ganga í gegnum kæruferli vegna kynferðisofbeldis. Hins vegar sé það einkenni áfallastreituröskunar að einstaklingur endurupplifir áfallið. Í grein sinni segir Jón Stein- ar jafnframt að ef menn samþykkja að unnt sé að færa sönnur á brot með greiningu á áfallastreiturösk- un, hljóti þeir að telja það draga úr líkum á að brot hafi verið framið ef ekki mælast merki um andlegar af- leiðingar kynferðisofbeldis. Þetta segir Berglind vera mis- skilning. „Við vitum að ekki allir þróa með sér áfallastreituröskun í kjölfar kynferðisofbeldis.“ Hún segir erlendar rannsóknir benda til að allt að 57% þolenda kynferðisofbeldis þrói með sér áfallastreituröskun. Einstaklingar séu mishæfir til að takast á við áföll og sumir geti jafnvel unnið úr áföllum á borð við kynferðisof- beldi án utanaðkomandi aðstoðar. Mikilvæg tól í dómsmálum  Segir skrif hæstaréttardómara bera vott um vanþekkingu á áfallastreituröskun  Erfitt að gera sér upp áfallastreituröskun ➤ Þeir sem þjást af áfallastreitu-röskun endurupplifa atburð- inn sem olli áfallinu. ➤ Þeir upplifa gjarnan tilfinn-ingalegan doða og forðast það sem minnir á atburðinn. ➤ Þá finna þeir oft fyrir ofur-árvekni og eru því sífellt á nálum gagnvart umhverfinu. ÞRÍR FLOKKAR EINKENNA Sérfræðingur Berglind er doktor í klínískri sálfræði með áherslu á afleiðingar áfalla, og hefur unnið með þolendum kynferðisofbeld- is sem leita til LSH. „Ég geri ráð fyrir því að fólk hafi fundið fyrir þessu ef það var vak- andi,“ segir Sigrún Guðmunds- dóttir íbúi á Selfossi. „Það hafa ekki komið margir eftirskjálftar yfir þrjá á Richter en ég geri ráð fyrir því að flestir hafi verið sofandi á þessum tíma,“ segir hún og bætir við að heimafólk kippi sér ekki upp við minni skjálfta núorðið. „Við heimamenn tölum ekki um skjálfta af þessari stærð sem stóra í sjálfu sér,“ segir Sigrún. Þjónustumiðstöðin „Fólk hefur ekki hringt eða leit- að til okkar,“ segir Ólafur Örn Har- aldsson, verkefnisstjóri Þjónustu- miðstöðva jarðskjálftasvæða á Suðurlandi. „Við erum með tvö númer opin eftir hádegi hjá okk- ur,“ segir hann og bætir við að eng- in hafi verið á skrifstofunni um morguninn, en jarðskjálfti sem mældist 3,3 á Richter varð laust fyrir klukkan hálfsjö í gærmorgun við norðanvert Ingólfsfjall. Eftirskjálftar Jarðskjálftinn var á 5 km dýpi og fannst á Selfossi og í Hveragerði. Nokkrir minni skjálftar hafa mælst í kjölfarið en samkvæmt Veður- stofu Íslands eru þetta eftirskjálftar frá Suðurlandsskjálftanum 29. maí síðastliðnum. „Við búumst ekkert frekar við skjálftum af þessari stærð, en þetta eru allt eftirskjálftar og það hefur dregið úr tíðni þeirra,“ segir Sigþrúður Ármanns- dóttir hjá Veðurstofunni og bætir við að fólk hafi hringt inn til að láta vita af skjálftanum. áb Skjálftar við Ingólfsfjall í gærmorgun Skjálfti sem mældist 3,3 á Richter í gær fannst á Suðurlandi Surtsey er komin inn á heims- minjaskrá sem einstakur staður náttúruminja á heimsmæli- kvarða. Þetta var tilkynnt á fundi heimsminjanefndar UNESCO nú í vikunni, að því er greint er frá á vef Umhverfisstofnunar. Surtsey var friðuð 1965 á meðan gosvirkni var enn í gangi. Með friðlýsingunni var tekið fyrir um- ferð manna út í eyna og gildir bannið enn í dag, nema að fengnu leyfi Umhverfisstofnunar. Stuðla átti að því að eyjan fengi að þróast án áhrifa eða afskipta mannsins. Surtsey á heimsminjaskráFjöldapóstur og sms-skilaboð gengu manna á milli til að vekja at- hygli á stöðu ljósmæðra í samn- ingaviðræðum við ríkið. Stuðn- ingsfólk kom saman í gærmorgun við Stjórnarráð Íslands til að sýna stuðning sinn við ljósmæður. „Við erum mjög þakklátar, það er frábært að finna þennan stuðn- ing,“ segir Guðlaug Einarsdóttir formaður Ljósmæðrafélags Íslands. „Það er talað um 100 manns sem mættu í gærmorgun,“ segir hún en bætir við að ljósmæður bindi mikl- ar vonir við fund við samninga- nefnd ríkisins í dag. „Við höfum haft spurnir af því að það sé eitthvað að rofa til og að hjúkrunarfræðingar séu bjartsýnir í þeirra kjaraviðræðum við ríkið.“ Í stuðningsyfirlýsingu fjölda- póstsins kom m.a. þetta fram: „Ljósmæður þjónusta konur og börn á mikilvægustu augnablikum lífsins. Launakjör þeirra eru til marks um að hvorki þarfir né störf kvenna séu metin að verðleikum.“ Ljósmæðrafélag Íslands hefur farið fram á það við ríkisstjórnina að laun þeirra verði leiðrétt til sam- ræmis við laun annarra háskóla- stétta með sambærilega menntun. Fjöldi ljósmæðra hefur nú sagt upp störfum, eða um helmingur starf- andi ljósmæðra á landinu öllu. áb Stuðningsmenn Komu saman í gærmorgun við stjórnarráðið. Komu saman fyrir ríkisstjórnarfund í gær Styðja ljósmæður í kjarabaráttunni Salmonellusýkt kjöt finnst nú í miklu magni í Danmörku. Halldór Runólfsson yf- irdýralæknir brýnir fyrir ferðafólki að gæta varúðar og borða aðeins fulleldað kjöt í ferðum sínum í Danmörku sem og annars staðar. fr Salmónella í kjöti Ferðamenn gæti varúðar N1 VERSLUN BÍLDSHÖFÐA 9 SÍMI 440 1220 Verð 1.410.000 kr. ENGIN ÚTBORGUN ALLT A Ð 100% FJÁRM ÖGNU N NINJA ZX 6R

x

24 stundir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: 24 stundir
https://timarit.is/publication/307

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.