24 stundir - 27.08.2008, Blaðsíða 24

24 stundir - 27.08.2008, Blaðsíða 24
24 MIÐVIKUDAGUR 27. ÁGÚST 2008 24stundir Ef marka má þetta fallega ein- býlishús geta tæplega 300 tonn af rusli litið ótrúlega vel út. Húsið sem kallast The Big Dig House er hannað af fyrirtækinu Single Speed Design og byggt eingöngu úr end- urunnu eða ónotuðu efni sem fékkst úr hinni svokölluðu Boston Big Dig-vegaframkvæmd. Húsið er byggt úr stáli, steypu, akbrautum og forsteyptri steypu sem varð afgangs við byggingu að- alsamgönguæðarinnar. Þar sem efni í bygginguna fékkst gefins kostaði það aðeins um 11.300 krónur á fermetrann, fyrir utan landverð. Enginn hráefniskostnaður Hugmyndin að því að nota end- urunnið og ónotað efni frá upp- byggingu vegakerfis var þróuð af eiganda hússins, Paul Pedini. Ped- ini er sjálfur samgönguverkfræð- ingur og hafði komið að fram- kvæmdum í Boston þannig að hann vissi afar vel hvað væri til til verksins. Hann ákvað að fá arki- tektana John Hong og Jinhee Park til liðs við sig þar sem honum lík- aði afar vel hönnun skrifstofu- húsnæðis þeirra. Því lýsti hann sem nútímalegu, kassalöguðu húsi með flötu þaki og vildi að þannig liti sitt eigið hús út. Allt hráefni í bygginguna fékk Pedini gefins en þurfti þó að borga flutnings- kostnað sjálfur. Þrif og málning Auk byggingarvinnu liggur tals- verð vinna að baki við að þrífa og mála endurunna hluti. Innandyra er húsið einnig úr endurunnu efni með steyptum gólfum, sedrusvið á veggjum og þá eru stórir og miklir gluggar á húsinu þannig að innan- dyra er mjög bjart og sést vel inn í skóginn sem húsið stendur við. maria@24stundir.is Glæsilegt Ekki má sjá að húsið sé búið til úr rusli. Fallegt hús byggt úr rusli og drasli Góð hugmynd fyrir framtíðina Ótrúlegur úrgangur og drasl getur safnast upp við framkvæmdir. Ekki þarf þó allt að fara á haugana því margt má endurnýta, t.d. í hús- byggingar. Framkvæmd Nóg að gera við bygginguna. Stílhreint Ekkert rusl að sjá hér. Nútímanlegt Húsið er bjart að innan. - kemur þér við AUGLÝSINGASÍMI: 510 3744

x

24 stundir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: 24 stundir
https://timarit.is/publication/307

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.