24 stundir - 28.08.2008, Page 26
26 FIMMTUDAGUR 28. ÁGÚST 2008 24stundir
Osteopathy
o
o
o
o
oOrkuhúsiðSuðurlandsbraut 34
108 Reykjavík
Tímapantanir 5 200 120/130
Upplýsingar 846 2392
Osteópatarnir
Micah Nicholls BSc (Hons) Ost Med, DO, ND og
Fríða Hauksdóttir BSc (Hons) Ost Med, DO, ND
hafa hafið störf í Orkuhúsinu.
Osteópatía er sérmenntun í að greina og meðhöndla
stoðkerfisvandamál og er löggild heilbrigðisstétt.
Osteópatía er einstaklingsmiðuð og árangursrík
líkamsmeðhöndlun fyrir unga sem aldna.
Osteópatar meðhöndla margskonar vandamál allt frá
lið- og vöðvaverkjum til astma og iðrabólgu, þá bæði
bráða og króníska verki.
Eftir Hauk Johnson
haukurj@24stundir.is
„Það er í rauninni þekkt að bakt-
eríur í munnholi geta farið inn í
blóðrás og valdið
almennum lík-
amlegum ein-
kennum víðar en
bara í munnin-
um. Því að þótt
tennurnar séu oft
taldar standa svo-
lítið sér eða fyrir
utan líkamann þá
eru æðar og fleira
í tannholdinu, og reyndar tönnun-
um sjálfum, sem tengjast öðrum
hlutum líkamans,“ segir Hólmfríð-
ur Guðmundsdóttir, tannlæknir
hjá Lýðheilsustöð.
„Þessi tengsl eru sérstaklega
þekkt í sambandi við hjartaþels-
bólgu og það hefur einnig verið tal-
ið að ákveðnir bólguvakar, tengdir
tannholdsbólgu, geti stuðlað að
hjartaáföllum.“
Ótímabærar fæðingar
Fjölmargar rannsóknir hafa ver-
ið gerðar á ýmsum öðrum auka-
verkunum slæmrar tannheilsu og
hafa verið settar fram kenningar
um tengsl við nýrnasjúkdóma,
beinþynningu, sykursýki og jafnvel
fæðingu fyrirbura.
Að sögn Helgu Ágústsdóttur,
sérfræðings í öldrunartannlækn-
ingum, hefur tekist að staðfesta
þessi tengsl í sumum rannsóknum,
og þá einna helst þegar kemur að
bandarískum konum af afrískum
uppruna. Í sumum löndum, eins
og t.d. Portúgal, er jafnvel boðið
upp á ókeypis tannlækningar fyrir
konur á meðgöngu til að reyna að
sporna gegn þessum áhrifum.
En þá er ekki allt upp talið.
„Það eru mjög sterk tengsl á
milli slæmrar tannheilsu hjá eldra
fólki og lungnabólgu. Þá getur það
gerst að bakteríur úr munnholinu
komist í lungu í gegnum öndunar-
veginn og valdið þar bólgum,“ seg-
ir Helga.
„Þar að auki er það ljóst að fólk
með slæma tannheilsu nærist ekki
jafn vel. Það borðar til dæmis ekki
jafn mikið af hráu grænmeti, eins
og gulrótum, og heldur sig frekar
við mat sem hefur verið mikið soð-
inn og þá eru næringarefnin jafnvel
ekki enn til staðar.“
Því er mikilvægt að mæta reglu-
lega til tannlæknis því lykilatriði er
að greina tannsjúkdóma á frum-
stigi til að auðvelda meðferð á
þeim.
Slæm tannheilsa getur haft ýmis alvarleg áhrif á almenna heilsu
Tannheilsa getur
haft áhrif á hjarta
Sagt er að leiðin að hjarta
manns sé í gegnum mag-
ann. En rannsóknir á
sambandi tannheilsu og
hjartaheilsu sýna að leið-
in að heilbrigðu hjarta er
í gegnum heilbrigðan
munn og tennur. Er jafn-
an talið að tengsl séu á
milli margra fleiri sjúk-
dóma og tannheilsu.
Reglubundið eft-
irlit Það er mik-
ilvægt að upp-
götva sjúkdóma í
munni á frumstigi.
➤ Afar mikilvægt er að farareglulega til tannlæknis en
fyrir flesta nægir að fara á 6,
12 eða 18 mánaða fresti.
➤ Sumir fara oftar en einnigkoma einhverjir einungis til
að láta hreinsa tennurnar.
TANNHEILSA
Hólmfríður Guð-
mundsdóttir
Því hefur oft verið haldið fram
að maís- og hnetuneysla geti valdið
sjúkdómum í meltingarfærum án
þess þó að sú kenning hafi verið
sönnuð. En niðurstöður stórrar
rannsóknar sem nýlega voru
kynntar sýna að þvert á móti hafi
hnetur, maís og poppkorn góð
áhrif á meltingarveginn.
Rannsóknin fór fram á árunum
1986 til 2004 og var sérstaklega
fylgst með pokamyndun á görnum,
sem á ensku nefnist diverticulosis
og hrjáir allt að helming Vestur-
landabúa sem náð hafa sextugs-
aldri.
Kom í ljós að þeir sem borða
hnetur oft (allavega tvisvar í viku)
eru í 20 prósentum minni hættu á
að mynda poka á görnum en þeir
sem borða sjaldan hnetur (einu
sinni í mánuði eða sjaldnar). Að
sama skapi kom í ljós að þeir sem
neyta poppkorns oft eru í 28 pró-
sentum minni hættu á að fá þenn-
an algenga kvilla.
haukurj@24stundir.is
Hnetur og maís gegn algengum kvilla
Poppið er gott
Ekki spara poppið
Samkvæmt rannsókn-
inni er popp gott fyrir
meltinguna.
LÍFSSTÍLL
lifsstill@24stundir.is a
Það eru mjög sterk tengsl á
milli slæmrar tannheilsu hjá
eldra fólki og lungnabólgu.
heilsa