24 stundir - 28.08.2008, Síða 32
Eftir Maríu Ólafsdóttur
maria@24stundir.is
Nanna Kristín kemur sér þægilega
fyrir og er furðu róleg að sjá þó
hún samsinni því að visst spennu-
fall fylgi því að sjá loks lokaútgáf-
una á hvíta tjaldinu. Segja má að
kvikmyndin sé í anda dogmakvik-
mynda þar sem að leikarnir skópu
sína karaktera sjálfir og við upp-
tökur voru ætíð notaðar fimm
myndavélar í einu. „Mér finnst
Valdísi hafa tekist mjög vel að leik-
stýra svona stórum hópi leikara,
klippa myndina saman og koma
sögu hvers og eins á framfæri.
Karakterinn minn er ákveðin dek-
urdúlla en ég vildi hafa hana eins
ólíka óframfærnu og lokuðu
stúlkunni sem ég lék í Foreldrum
og hægt var. Ég veit reyndar ekki
hvernig ég myndi höndla brúð-
kaupsdag eins og í kvikmyndinni
en ég held að fáar brúðir séu
pollrólegar á brúðkaupsdaginn og
þarf oft lítið til að koma öllu úr
jafnvægi. Ég tala nú ekki um ef
fjölskyldumynstrið er flókið,“ seg-
ir Nanna Kristín.
Ófrísk í brúðarkjól
Nanna Kristín er í sambúð en
ekki gift og aðspurð um sinn eigin
brúðkaupsdag segist hún ekki vera
með ákveðnar hugmyndir en segir
í léttum tón að hún myndi í það
minnsta ekki óska sér að vera
ófrísk þegar að honum kæmi.
Hún var komin þrjá mánuði á leið
þegar tökur hófust og segir það
hafa verið talsvert fyrirtæki að
þurfa að bakka margoft inn í rút-
una í stórum og fyrirferðarmikl-
um brúðarkjólnum til að komast
inn á þröngt salernið, en þetta sé
nú allt hluti af meðgöngunni.
Stubbur og Stubbasmiðja
Nanna Kristín segir móðurhlut-
verkið hafa komið sér skemmti-
lega á óvart og að lífið hafi vissu-
lega öðlast meiri tilgang með
fæðingu sonarins þó sér finnist
það ekki hafa breyst sem slíkt.
Nanna Kristín vinnur nú að miklu
leyti heima og sér um frumburð-
inn en segist þó hlæjandi ætla að
setja hann í leikskóla síðar meir
svo hann verði ekki skrýtni strák-
urinn sem er bara alltaf með
mömmu sinni. Nanna Kristín
opnaði barnahúsgagnaverslunina
Stubbasmiðjuna skömmu eftir
fæðinguna og segir verslunar-
reksturinn hafa komið til af því að
hún fékk mikinn áhuga á öllu því
sem tengist börnum á meðgöng-
unni. Í versluninni eru 13 innrétt-
uð barnaherbergi og þar hafi hún
fengið útrás fyrir listsköpunina. Af
mörgum þeim vörum sem fást í
versluninni rennur hluti innkom-
unnar til góðgerðarmála og í því
samhengi mun Nanna Kristín taka
þátt í hinum svokallaða Glæsi-
markaði í Perlunni um helgina en
ágóði hans mun renna til bygg-
ingar á nýju skólahúsnæði í Jemen
þar sem Jóhanna Kristjónsdóttir
hefur staðið fyrir öflugu styrktar-
starfi. Nóg er að gera í verslunar-
rekstrinum en heimasíða og vef-
verslun Stubbasmiðjunnar verður
opnuð nú um helgina.
Einstakt tækifæri
Nanna Kristín segist ekki vera
hætt að leika en sér finnist ágætt
að geta unnið að hluta til heima
og hún sé heppin að hafa tækifæri
til þess. Eftir útskrift var hún í
nokkur ár fastráðin hjá Þjóðleik-
húsinu, en hún segir að í leikhús-
inu sé ekki mjög fjölskylduvænn
vinnutími. Hún dáist að fólki sem
hefur leikið áratugum saman í
leikhúsi svo ekki sé talað um þegar
makinn er einnig leikari því fólk
þurfi virkilega að gefa hluta af lífi
sínu í starfið. Þó lífið hafi snúist
um leikhúsið snúist það nú að
mestu leyti um soninn. „Um leið
veit ég að til honum líði vel þarf ég
vera ánægð með það sem ég er að
gera og það veitir mér mestu
ánægjuna að starfa sem leikkona
og ég vil halda áfram að þróast
sem slík,“ segir Nanna Kristín.
Áhugi á handritsgerð
Það er einstakt tækifæri fyrir ís-
lenska leikara að leika í bíómynd-
um og segir Nanna Kristín að hún
myndi óhikað taka aftur þátt í
slíkri vinnu strax á morgun. Eins
sé yndislegt að vinna með vinum
sínum úr Vesturportshópnum.
Spurð um framtíðina segir hún að
hún sé björt og endalausir mögu-
leikar samhliða því að vinna sem
leikkona. Blaðamanni heyrist á
Nönnu Kristínu að hún hafi áhuga
á handritsgerð og veiðir upp úr
henni að hún sé nú þegar byrjuð
að skrifa handrit en hún vill sem
minnst gefa upp um það að svo
stöddu. Nú sé að einbeita sér að
því að fylgja Sveitabrúðkaupi eftir
á erlendum kvikmyndahátíðum
en strax í næstu viku heldur hún
til Toronto og fer þá í fyrsta sinn í
lengri tíma frá syninum, sem hún
segir örugglega verða lítið mál fyr-
ir hann en meira fyrir mömmuna.
Fáar brúðir eru pollrólegar á brúðkaupsdaginn
Sveitabrúðkaup Nönnu
Það er eftirminnilegt þegar Nanna Kristín Magnúsdóttir tók við Edduverðlaununum sem leikkona ársins fyrir
leik sinni í kvikmyndinni Foreldrar. Hún var þá langt gengin með sitt fyrsta barn, son sem hún eignaðist í des-
ember síðastliðnum með manni sínum Kristni Vilbergssyni. Nanna Kristín fer nú með hlutverk brúðarinnar í
kvikmynd Valdísar Óskarsdóttur, Sveitabrúðkaupi, sem frumsýnd verður í dag en hér er á ferðinni ljúfsárt og
á köflum sprenghlægilegt fjölskyldudrama. Blaðamaður settist að spjalli með Nönnu Kristínu eftir forsýningu.
a
Ég fékk einhvern
rosalegan kraft þeg-
ar ég var ófrísk og fannst
ég geta gert allt svo ég
notaði það og hef því
ekkert farið í fæðing-
arorlof.
Sveitabrúðkaup
Frumsýnd í dag.
32 FIMMTUDAGUR 28. ÁGÚST 2008 24stundir
FÓLK
24@24stundir.is a
Það veitir mér mestu ánægjuna að
starfa sem leikkona og ég vil halda
áfram að þróast sem slík.
viðtal
1.High School Reunion: Til að
minna mann á að grunnskólinn sé
að baki.
2.Quiznos: Betri en Subway.
3.Súkkulaði: Á snúðum, konfekt og
Nóa kropp.
4.Emilíana Torrini:
Nýja platan hennar er
meistaraverk!
5.Skór: Með hælum og og opnir
- less is not more.
6.Café Kultúra: Gæti hæglega orðið
arftaki Sirkús.
7.Troma: Kvikmyndafyrirtæki
sem framleiðir skemmtilega lélegar
myndir.
8.Malmö: Ódýrari en
Kaupmannahöfn og sætari strákar.
9.Hundar: Af því þeir
þurfa svo á þér að halda.
10.Sagan af Eyfa Skemmtilegasta
barnaplata ársins!
11.Að æfa handbolta: Því þið
gætuð unnið silfur einn daginn á
Ólympíuleikunum.
12.Nephey: Rokk og rósir frá
Danmörku og sætir strákar.
13.Vatn: Hollt, gott og nánast
endalaust.
14. Sirkús Agora: Bara til þess að
sjá Ultra Mega Teknóbandið Stefán!
15.3G Myndsímtöl: Bætir
fókus í símasexið!
16.Réttir: Þú ert ekki maður með
mönnum, nema að hafa slegist við
digran hrút!
17.Þjóðarstolt: Því það lætur
okkur líða aðeins stærri en
venjulega.
18.Ég fíla 90´s safnplötunni: Því
vont er stundum gott.
19.Facebook: Leynilegt daður og
persónunjósnir.
20.Ljóðasmíðar: Til að ausa úr
skálum reiðinnar.
21.Stefnuljós: Sérstaklega á
hringtorgum.
22.Kurteisi: Klikkar aldrei ef þú vilt
fá eitthvað.
23.Bar11: Heldur uppi rokkinu um
helgar.
24.Edwins gallabuxur: Því
Brad Pitt gengur í svoleiðis.