24 stundir - 28.08.2008, Blaðsíða 33
„Það er eiginlega búið að kyn-
gera konur svolítið út frá brjósta-
skorum og brjóstastærðum. Við
viljum bara sýna það með allri
flórunni að þau eru einstök. Hvort
sem eitt er farið, bæði eru til staðar
eða bæði farin,“ segir Jónína Ósk
Lárusdóttir en hún ásamt Dagnýju
Erlu Gunnarsdóttur, Matthildi
Lárusdóttur og Írisi Jóhannsdóttur
skipuleggur nú ljósmyndasýn-
inguna Ein-stök brjóst.
„Hugsunin er að mynda hundr-
að konur. Þetta verða bara ofboðs-
lega fallegar myndir af kven-
mannsbarmi og markmiðið er að
selja þær,“ segir Jónína og bætir
við að ágóðinn af sölunni muni
renna til góðs málstaðar sem hefur
enn ekki verið endanlega ákveðinn.
„Við erum bara að skoða hvar
þörfin er.“
Auglýst eftir brjóstum
Það myndu margir halda að það
væri erfitt verk að fá hundrað kon-
ur til að samþykkja það að brjóst
þeirra yrðu mynduð, sýnd og síðan
seld. Um síðastliðna helgi stofnaði
Jónína hóp á samfélagsvefnum Fa-
cebook þar sem auglýst var eftir
þátttakendum. Viðbrögðin létu
ekki á sér standa.
„Viðbrögðin eru ótrúleg. Það
hafa margir barmar með tveimur
eða án brjósta boðið fram aðstoð
sína. Það er alveg magnað að finna
þessa samstöðu meðal kvenna,“
segir Jónína en nú þegar eru hátt í
60 konur búnar að bjóða fram
barm sinn og sú elsta í þeim fríða
hópi er áttatíu ára gömul.
Ein-stök brjóst snýst þó um
meira en bara ljósmyndasýningu
því einnig verða seldir sérmerktir
bolir ásamt því sem Jónína og
stöllur hennar eru nú í viðræðum
við fólk úr listageiranum um sam-
starf.
Þegar haldin er sýning af þessu
tagi er í mörg horn að líta og Jón-
ína játar að ýmislegt vanti upp á.
„Við erum að vinna í því að fá
einhvern fallegan og góðan sal. Við
vorum komin með loforð fyrir ein-
um sem gekk til baka.“
Þeir sem vilja leggja verkefninu
lið, hvort sem það er með barmi
sínum, peningastyrkjum eða af-
notum af sýningarsal, geta sent
tölvupóst á netfangið einstok-
brjost@gmail.com. viggo@24stundir.is
Auglýst eftir íslenskum brjóstum
Einstakir barmar íslenskra kvenna
24stundir/Þorkell
Brjóst af öllum stærðum og gerðum Sýningin Ein-stök brjóst á að sýna almenningi
hversu einstök brjóst kvenna séu. Myndin tengist ekki sýningunni.
24stundir FIMMTUDAGUR 28. ÁGÚST 2008 33
Glæsilegir
kjólar
Eddufelli 2 Bæjarlind 6
sími 557 1730 sími 554 7030
Str. 36-56
Ertu á leið til Köben í frí, House of Colors bíður
ódýra íbúðagistingu á góðum stað, stutt frá
öllu, ströndinni, miðbænum og verslunum.
Sjá nánar á houseofcolors.dk
House of Colors
teg. ROXI - sexí og flottar í stærðum
S,M,L í hvítu og svörtu á kr. 1.990,-
Misty, Laugavegi 178,
Sími 551 3366
Góð þjónusta – fagleg ráðgjöf
Lokað Laugardaga
www.misty.is
teg. VEGA - mjög flottar í S,M,L,XL
á kr. 1.990,-
Þessa dagana eru þrír fjórðu af
liðsmönnum Led Zeppelin að
vinna saman að nýju efni. Þetta
eru þeir Jimmy Page gítarleikari,
Jason Bonham, sonur upp-
runalega trommarans, og bassa-
leikarinn John Paul Jones.
Trommuleikarinn sagði liðsmenn
vera að setja saman nýtt efni er
gæti hugsanlega endað sem ný
hljómplata frá Led Zeppelin.
Söngvarinn Robert Plant hefur
þó hvergi komið nálægt nýja efn-
inu. „Í augnablikinu er það eina
sem ég veit að ég fæ að djamma
með þessum frábæru tónlist-
armönnum,“ sagði Jason Bon-
ham í viðtalinu. „Þegar þeir
hringja mæti ég bara og spila og
spyr engra spurninga. Það þyrfti
að leysa mörg mál áður en ný Led
Zeppelin-plata yrði gefin út.“
biggi@24stundir.is
Aðdáendur stórkostlegrar rokksveitar standa á öndinni
Þrír fjórðu af Zeppelin í hljóðver KRINGLUNNI - SMÁRALIND
Peysa
3.990