Eintak - 01.12.1993, Side 40

Eintak - 01.12.1993, Side 40
íslendingar hafa sál, bæði einir sér og síðan allir saman - þjóðarsálina. Sú sál er skiljanlega stærri og magnaðri en aðrar sálir. Ekki bara merkilegri en sál hvers einstaks íslendings heldur líka mikilfenglegri en sálir annarra þjóða. íslendingar eru nefnilega einstakir, sérstakir og öngvum öðrum líkir. Gunnar Smári Egilsson rekur hér helstu eðlisþætti þessarar Afskiptasemi Skaparinn hefur komið því svo haganlega fyrir að Islendingar hafa jafnmikið þol gagnvart afskipta- semi nágrannans eins og þeir hafa þörf fyrir að skipta sér af annarra hag. Þessi afskiptasemi hefur fundið sér farveg í óskráðum reglum í samskiptum manna, jafnt sem heilu lagabálkunum frá Alþingi. (Það eru til dæmis til lög sem kveða á um hvaða nöfnum foreldrar mega skíra börn sín.) En skýrast kemur hún fram þegar fólk setur sér reglur í smærri hópum, til dæmis í húsfélög- um. í hefðbundnum húsreglum fjölbýlishúsa á Is- landi eru ákvæði um svefntíma fólks, hvar og hve- nær það má hengja út þvott, hvort og þá undir hvaða kringumstæðum það má skilja hluti eftir á svölum íbúða sinna og hversu nálægt íbúð sinni börn skuli hætta leik og ganga þögul og prúð. f þessum reglum kristallast bæði þörf og þol íslend- inga gagnvart afskiptasemi. Þeir eru tilbúnir að fórna eigin ffelsi til þess að geta takmarkað frelsi nágrannans. Aumingjadýrkun Ef marka má íslendingasögurnar er þetta ein- kenni ffekar geðgróið en meðfætt þjóðarsálinni. I sögunum voru hetjurnar hetjur og liðleskjurnar aumingjar. Á þessari öld hafa hetjumar hins vegar orðið að skúrkum og vesalingarnir að hetjum. Þannig er Salka Valka hetja þar sem hún lifði í sjálfskipaðri fátækt og vesaldómi en Steinþór er þrjótur þar sem hann komst vel af í lífsbaráttunni. Mestur aumingi bókmenntasögunnar, Ólafur Ijósvík- ingur, varð ástmögur þjóðarinnar. Ólafur var svo mikil gufa að hann leystist upp í lok bókarinnar af einskærum roluhætti. Aumingjadýrkunin lifir ekki bara góðu lífi í bókmenntunum, heldur líka hversdags. öllum þykir vænt um þann illa stæða, illa farna og jafnvel skapilla, vilja knúsa hann og finna í honum góða sál og gott innræti. Enginn vill hins vegar heyra af þeim sem gengur vel og líður vel - nema þá ein- hverja kjaftasöguna. Bjartsýni Bjartsýni Islendinga er svo óhófleg að á meðan all- ar þjóðir keppa um íþróttaverðlaun, bókmennta- og friðarverðlaun gera þær sér grein fyrir því að engin þjóð önnur en íslendingar hefur möguleika á bjartsýnisverðlaunum og einskorða þau því við Islendinga eina. fslendingar eru í raun ónýtir til allra verka nema þeir séu drifnir áfram af bjartsýni. Þeim finnst ekki spennandi að takast á við neitt sem ekki þarf kraftaverk til að klára. Árangurinn er misjafn. Allt ffá katastrófum í fiskeldi til glapræðis á borð við Stöð 2 sem reyndist hið besta mál á endanum. Bjartsýni Islendinga lýsir sér í því að þeir gera engar áætlanir - að minnsta kosti engar sem ætl- unin er að fýlgja. Bjartsýnn maður þarf ekki áætl- anir. Hjá honum á allt að blessast einhvern veginn. Brjóstvit Islendingar hafa ofurtrú á brjóstviti, enda hefur þeim hlotnast meira af því en öðru viti. Þeir eru fljótir að verða sérfræðingar í hverju því sem þeir leiða hugann að. Að surnu leyti er þetta sprottið af fámenninu. Hér verða allir að vera sérffæðingar í fleiru en einu og helst í hellingi af málum. Og þar sem Islend- ingar eru nokkurn veginn eins uppbyggðir og það fólk sem á fullt í fangi með að vera sérfræðingar á einu sviði, þá eru Islendingar sjaldnast miklir sér- fræðingar.í neinu af því sem þeir leggja fyrir sig. Sérffæði þeirra ristir grunnt en er víðfeðm. Is- lendingar hafa því lítið vit á mörgu, en ekki mikið vit á neinu. Doði Ef til vill væri ekki hægt að lifa á íslandi án þess að láta allt yfir sig ganga. Þó ekki væri nema vegna veðursins. Og verðsins í seinni tíð. Islendingar rísa sjaldan upp og mótmæla. Andóf þeirra gegn dönskum yfirráðum einskorðað- ist við suð í bænabréfúm og tuð í skólastofum Menntaskólans í Reykjavík. Ef ekki hefði verið fyr- ir þá slembilukku að Hitler hertók Danmörku væru þeir sjálfsagt enn suðandi og tuðandi. Sú list að láta allt yfir sig ganga hefur gert doð- ann að einu einkennistákni íslensks lundarfars. Is- lendingar voru svo dofnir fýrr á öldum að þeir sultu fremur en að láta sér detta í hug að borða síld sem þó hreinlega skolaði á land til þeirra. Það eru meira að segja til sögur af því að síld hafi rignt á þá eftir að hún hafði þyrlast upp í háloftin í einhverj- um dularfullum stormsveipum. En þótt skapar- inn kastaði þannig síldinni í hausinn á þeim í von um að þeir vöknuðu kveiktu þeir ekki á perunni, heldúr báru síldina niður í fjöru og hentu henni aftur í sjóinn. Með sama doðann að vopni ganga Islendingar inn í súpermarkaði og kaupa papriku á verði gulls. Þrátt fyrir að þeir hafi búið hér í þrjátíu kynslóðir kunna þeir ekki enn að klæða af sér íslensk vetrar- veður, heldur verða á ntilli húsa í sumartísku síð- asta árs. Ekki vegna þess að þeir séu svona miklar tildurrófur, heldur vegna þess að þeim finnst ekki taka því að klæða sig betur úr því það vorar hvort sem er. Á sama hátt og útlenda og ódýra paprikan kemur hvort sem er bráðum. Dómharka Þrátt fyrir fámennið og þá samstöðu sem Islend- ingar finna með santlöndum sínum, þá eru þeir fljótir að snúa við blaðinu ef nágranni þeirra stígur út af sporinu. íslendingar hafa nefnilega nokkuð dökka sýn á manneðlið og er gjarnt að trúa því að sá sem mistígur sig sé eðlislægur misyndismaður. Og stundum þarf sá ekki að misstíga sig. Það er nóg að hann sé lítillega öðruvísi í háttum. íslend- ingum er nefnilega gjarnt á líta á alla þá sem eru ekki alveg eins og þeir sjálfir sem skítapakk. Þannig renna unglingar sem brjóta og bramla sumarbústaði saman við stökkbreytta illþýðið í Mad Max-myndunum. Þeir missa alla mennsku og eru nánast réttdræpir. Og þegar sú afstaða hefur feng- ið að ferðast örlítið um þjóðarsálina verður hún að brýnni nauðsyn. Ef þetta fólk er ekki tekið úr sam- bandi hið fyrsta mun það smátt og smátt vaxa, 40 EINTAK DESEMBER
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128
Side 129
Side 130
Side 131
Side 132
Side 133
Side 134
Side 135
Side 136
Side 137
Side 138
Side 139
Side 140

x

Eintak

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Eintak
https://timarit.is/publication/309

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.