Eintak - 01.12.1993, Page 80

Eintak - 01.12.1993, Page 80
Brynja 1 kvikmyndahandrit: Friðrik Þór Friðriksson. teikningar: Steingrímur Eyfjörð Kristmundsson 1) Morgun við tjörnina blub-blub 6) Tilheyrandi tillit rrrrrrrrrrrrrrrrrrrrrrrrrrrrrrrrrrrrrrr 2) Við hús Brynju ssssh hshshs hshss 4) Greinar trjánna veifa fhhshffh fhfh fhfh 7) Vetrarævintýri slabb slobb blob blob 3) Hún lítur út um gluggann grstgrstastss ts t gr gr 5) Hún er að pæla pft pfft pffft pffffft pffffffft 8) Kyrralífsmynd ílll millllíi í Mig langar Vasaleikrit eftir Þorvald Þorsteinsson Sviðið er sjónvarpsskjár. Eftir auglýsingar birtist þula kvöldsins. Sjónvarpsþulan: Gott kvöld. Ég heiti Brynja Xochitl Vífilsdóttir. Mig langar til þess að reka raf- tækjaverslun. Mig langar til þess að læra líffræði. Mig langar til þess að gerast áskrifandi að bókmennta- tímariti og lesa hverja einustu grein. Mig langar til 80 þess að vinna við fornleifarannsóknir. Mig langar til þess að hafa tíma til þess að virða fyrir mér fallega plöntu og skilja hvernig einstakir hlutar hennar verða til. Mig langar til þess að vita hvers vegna gervihnettir fara út af braut sinni og falla til jarðar. Mig langar til þess að heimsækja vaxmyndasafn. Mig langar til þess að skilja eðli sjúkdóma hjá dýrum og koma í veg fyrir að þeir breiðist út meðal annarra dýra og jafhvel í menn. Mig langar til þess að skilja og upplifa hvað listamaður var að hugsa, með því að skoða verkin hans. Mig langar til þess að fara djúpt inn í helli. Mig langar til þess að skilja hvernig rafeindasmásjá og stjórnkerfi farþegalyftu virkar. Mig langar til þess að vita af hverju brimvarnargarðar hafa verið byggðir nákvæm- lega þar sem þeir eru byggðir. Mig langar til þess að vita hvert samband fjölmiðla er við þann raun- veruleika sem þeir miðla. Mig langar til þess að rækta kjúklinga. Mig langar til þess að skilja uppbyggingu þess samfélags sem ég er hluti af. Mig langar til þess að læra forn-grísku. Mig langar til þess að skilja af hverju drengir haga sér öðruvísi en stúlkur. Mig langar til þess að læra að útbúa mat handa geimförum. Mig langar til þess að vita hvað aðrir hugsa þegar þeir sjá mig. Mig langar til þess að fylgjast með starfsemi í sláturhúsi. Mig langar til þess að vita hvað gerist þegar mig dreymir. Mig langar til þess að vinna við að afgreiða Iyf í apóteki. Mig langar til þess að læra eins mikið og hægt er um jörðina og hreyfingar hennar, eðli árstíðanna og þá þætti sem stjórna loftslaginu. Mig langar til þess að læra heimspeki. Mig langar til þess að vinna sem útlitsteiknari á dagblaði. Mig langar til þess að lifa í sátt við umhverfi mitt og sjálfa mig. Mig lang- ar til þess að geta notað myndavél á listrænan hátt. Mig langar til þess að vinna í kirkjugarði. Mig Iangar til þess að vita af hverju fólk hagar sér öðruvísi þegar það er eitt en þegar það er í hópi fólks. Mig langar til þess að taka gamalt útvarp í sundur og setja það saman aftur. Mig langar til þess að geta svarað með vísindalegum rökum af hverju það er engin hætta á þvi að tunglið falli til jarðar. Mig langar til þess að vita af hverju fólk hugsar á ólíkan hátt á ólíkum æviskeiðum. Mig langar til þess að sigla í nóttinni og láta stjörnurnar vísa mér veginn. Mig langar til þess að vita hverjir eru raunverulegir vinir mínir. Mig langar til þess að geta fundið merkingu ákveðinna orða með því að rekja þau aftur til eldri tungumála. Mig langar til þess að lifa í beinu sambandi við náttúruna. Mig langar til þess að skilja lestunar- og losunarbúnað á flugvöllum, bæði fyrir farangur og farþega. Mig langar til þess að geta haldið dauðvona sjúklingi á lífi. Mig langar til þess að geta gefið hugmynd eitthvert form sem hægt yrði að meta fagurfræðilega. Mig lang- ar til þess að þekkja hverja einustu frumu manns- líkamans. Mig langar. Auglýsingar. EINTAK DESEMBER
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140

x

Eintak

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Eintak
https://timarit.is/publication/309

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.