Eintak

Ataaseq assigiiaat ilaat

Eintak - 07.04.1994, Qupperneq 6

Eintak - 07.04.1994, Qupperneq 6
Hæstiréttur Tyrklands kemst hjá því að taka afstöðu til hvort fara eigi fram rannsókn á meintri kynferðislegri misnotkun með því að láta dæma í forræðisdeilu Sophiu Hansen og Halims Al eftir íslenskum lögum. Eftir úrskurð hæstaréttar Tyrk- iands í gær hillir loks undir það að börnin komi heim, börnin hennar Sophiu Hansen. Lagabókstafurinn tyrkneski sem rétturinn studdist við kveður á um að þegar hjón séu gefin saman í öðru landi en Tyrk- landi skuli dæma í forræðismálum eftir lögum þess lands. Aðrar grein- ar segja einnig að dæma eigi eftir lögum þess lands þar sem hjón eiga sameiginlegt ríkisfang eða síðast sameiginlegt lögheimili. I öllum til- vikum er um Island að ræða. Bar- átta Sophiu hefur ekki síst snúist um að fá tyrkneska dómstóla til að líta á þessar lagagreinar og viður- kenna að þær ættu við. En þó er ekki sigur unninn enn. Sophia hefur verið að reyna að endurheimta dætur sínar árum saman og það sætir fúrðu að það hafi tekið svo langan tíma að fá nið- urstöðu um eftir hvaða lögum skuli dæmt. Nærtækasta skýringin er einfaldlega sú að dómarar í undir- rétti í Tyrklandi hafi verið á bandi Halims Al, enda undir miklum þrýstingi bókstafstrúarmanna. Fyrir tveimur árum lagði Sophia fram gögn fyrir réttinum sem bentu sterklega til þess að eldri dóttir þeirra Halims hefði verið misnotuð kynferðislega. Korr þeim gögnum einnig á framfæ tyrkneska dómsmálaráðum Tveir tyrkneskir læknar sko telpuna og komust að þeirri niðurstöðu að verulegar líkur væru á því að sýkingu mætti rekja til kynferðis- legrar misnotkunar og raunar varla aðra skýringu að finna. Leitað var stað- festingar erlendra sérfræð- inga og hnigu niðurstöður þeirra í sömu átt. Þeir treystu sér þó ekki tO að fúllyrða neitt. Þótt ekki hafi verið sýnt fram á sök Ha- lims í þessu efni þá ber hann ábyrgð á velferð dætra sinna meðan þær dvelja hjá honum og eðlilegt að rann- sókn færi fram. Þegar þessi forræðisdeila er skoðuð sést að viðhorf tyrkneskra dómsyfirvalda til Halims breyttust eftir að þeir fengu þessar upplýsingar. Gengið var harðar eftir því að Sop- hia fengi að sjá dætur sínar og Ha- lim var dæmdur fýrir að virða ekki umgengnisréttinn. Sophiu barst hins vegar nýlega bréf frá dóms- málaráðuneytinu tyrkneska þess Halim Al á nú undir högg að sækja í forræðisdeilu sinni og Sophiu Hansen eftir úrskurð hæstaréttar Tyrklands þess efnis að dæma skuli eftir íslenskum lögum. Sophia hefurþó ekki unnið nema hálfan sigurenn íbaráttu sinni við að fá dæturnar heim því ekki er víst að tyrkneskir dómstólar komist að sömu niðurstöðu og þeir íslensku sem dæmdu henni forræðið. efnis að undirréttur hefði ekki talið tilefni til að rannsaka meinta kyn- ferðislega misnotkun. Líta ber á niðurstöðu hæstaréttar Tyrklands í þessu ljósi. Með því að láta dæma eftir íslenskum lögum kemst rétturinn væntanlega hjá því að taka ákvörðun um hvort rann- sókn eigi að fara fram. Meiri líkur eru á því að niðurstaðan verði Sop- hiu í hag og því ólíklegra að hún krefjist rannsóknar. Ef hún færi fram mætti búast við að enn meiri harka færðist í forræðisdeiluna og bókstafstrúarmenn færðust í auk- ana í stuðningi sínum við Halim. Deilan var líka orðin óþægileg fyrir ráðamenn beggja þjóðanna. Sig- urður Pétur Harðarson, stuðnings- maður Sophiu, staðfesti í samtali við EINTAK að væntanlega yrði ekki gengið eftir því að rannsókn fari fram eftir úrskurð hæstaréttar enda skiptir Sophiu öllu máli að fá dætur sínar til lslands svo fljótt sem auðið er. Hæstiréttur sendi forræðisdeil- una affur til dómarans í undirrétti með þeirri ábendingu að hann skyldi nú dæma eftir íslenskum lögum. En spurningin er hvort Sophia geti treyst því að hann dæmi henni í vil fyrst hann hafnar að rannsaka jafn alvarlegar ásakanir og hún bar fram sem studdar voru rannsóknargögnum viður- kennndra sérfræðinga. Það er ekki víst að hann komist að sömu nið- urstöðu og íslenskir dómstólar sem dæmdu Sophiu forræðið. O 6 FIMMTUDAGUR 7. APRÍL 1994

x

Eintak

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Eintak
https://timarit.is/publication/309

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.